Morgunblaðið - 14.01.1986, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986
TRYGGIÐ ORYGGI YKKAR
JALCROCH
Stærðir 39-46
ÖRYGGISSKÓR
Léttir, sterkir
vinnuskór og stígvél
með stáltá og
stálþynnu í sóla.
Mikið úrval.
Sendum í póstkröfu.
JALMONT
Stærðir 39-46
Skeifan 3h
Frá sjónarhóli umboðsmanns:
Afgreiðsla hjá Lána-
sjóði íslenskra náms-
manna meira og minna
í molum um árabil
Sími 82670
— eftirHönnu
Elíasdóttur
I fjögur ár hefi ég átt samskipti
við Lánasjóð íslenskra námsmanna
sem umboðsmaður nemanda við
nám í USA. Hefði ég haft minnsta
grun um hvað ég raunverulega var
að takast á við með því að taka að
mér þetta umboð hefði ég vissulega
hugsað mig tvisvar um. Pyrirhöfn-
in, óþarfa óþægindin og áhyggjum-
ar sem þessi samskipti hafa valdið
mér mun seint úr minni líða. Ég
er því mjög hlynnt því að mál LÍN
séu tekin til athugunar, því þar er
verðtekkun
sem munar um
Facit 4510 og 4511 prentarar ganga viö flestar gerðir af einka- og heim-
ilistölvum. Þeir eru áreiðanlegir, mjög fljótvirkir og prentun er í háum
gæðaflokki. Hver leturhaus endist fyrir meira en 100.000.000 stafi og
blekborðinn fer létt með 4.000.000 stafa.
4510 kostaöi áöur kr. 18.300 4511 kostaði áður kr. 22.800
kostar nú kr. 12.900 kostar nú kr. 16.900
Þetta er verðtilboð sem ekki er hægt að hafna og þar að auki eru í boði
greiðslukjör við allra hæfi.
GÍSLI J, JOHNSEN SF. lIHD
NÝBVLAVEGI 16'- P.O. BOX 39?-» 202 KÓPAVOGUR •'.SlMr 641222
SUNNUHLÍÐ, AKUREYRI, SflVU^96-25004
svo sannarlega margt athugavert
eins og reyndar þegar hefur komið
fram í fjölmiðlum undanfama daga.
Rögg-samur ráðherra
Mig undrar ekki að gífurlegar
kvartanir hafi borist inn á borð
menntamálaráðherra varðandi mál-
efni LÍN. Burtséð frá fjármálum
sjóðsins þá er öll afgreiðsla hans
meira og minna í molum og til há-
borinnar skammar að mörgu leyti.
Næsta furðulegt er að enginn
menntamálaráðherra skuli hafa séð
ástæðu til að taka LÍN sérstaklega
fyrir, svo sannfærð er ég um að
kvartanir hafa borist ámm saman
í eyru ráðamanna í menntamála-
ráðuneytinu.
Það vekur líka furðu mína að nú
þegar taka skat á málinu og ráð-
herra sýnir vilja í verki þá heyrast
jafnvel raddir um stjómarslit. Ætti
ekki frekar að þakka ráðherra
framtakssemina?
Óliðlegt starfsfólk —
dæmalaus reglugerð
Eins og áður getur hefi ég verið
umboðsmaður nemanda í fjögur ár
og þekki sannarlega af eigin raun
vinnubrögð starfsfólksins á skrif-
stofu LÍN. Þau eru alveg makalaust
slæm. Það er eins og valist hafi til
starfa þama að öllu jöfnu, þó sjálf-
sagt með einhveijum undantekn-
ingum, með eindæmum óliðlegt og
fúlt starfsfólk. Ég hefi horft upp á
starfsmann í afgreiðslu beinlínis
hella sér yfir eldri konu sem skildi
ekki til hlítar frumskóg reglna
Lánasjóðsins. Það skyldi svo sem
engan undra, því þær reglur eru í
stöðugri breytingu, þ.e. það sem
skila átti inn í gær er allt annað í
dag. Þessum viðskiptum stúlkunnar
og eldri konunnar lyktaði með því
að sú síðamefnda hrökklaðist út
með tárin í augunum, áreiðanlega
án þess að skilja orð af því sem
stúlkan sagði. Það er því alveg
dæmalaust að iesa útdrátt úr prent-
aðri reglugerð sem hangir snyrti-
lega upp á vegg í afgreiðslu sjóðsins
á Laugavegi 77 en þar er varað við
því að starfsfólki í opinbem starfi
sé sýnd ókurteisi eða að viðhöfð séu
ummæli eða orðbragð sem þykir
ósæmilegt. En áðumefnt starfsfólk
virðist vera með öllu óháð slíkum
reglum og getur því ef því sýnist
svo hellt yfir viðskiptavinina maka-
lausum dónaskap og ókurteisi.
Enginn vafi er á því að eitthvað
er í meiriháttar ólagi á skrifstofu
LÍN sem án efa má rekja til starfs-
fólksins.
Mistök og- vítavert
kæruleysi
Ég get dregið fram hinar ótrúleg-
ustu sögur um vinnubrögð þama.
M.a. fór lán til míns nemanda inn
á reikning einhvers manns á Akur-
eyri vegna mistaka starfsfólks.
Þetta þýddi þriggja vikna bið í
SB*"'*?6''4
tifn
AUGLÝSINCASTOFA
MYNDAMÓTA HF