Morgunblaðið - 14.01.1986, Page 17

Morgunblaðið - 14.01.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR 1986 17 Hanna Elíasdóttir „Ég- hefi horft upp á starfsmann í afgreiðslu beinlínis hella sér yfir eldri konu sem skildi ekki til hlítar frumskóg reglna Lánasjóðsins. Það skyldi svo sem engan undra, því þær reglur eru í stöðugri breytingu, þ.e. það sem skila átti inn í gær er allt annað í dag. viðbót við mánaðarbið, þannig að nemandi fékk ekki sitt lán fyrr en næstum tveim mánuðum seinna en búist var við. Skuldabréf undirritað og tilbúið frá minni hálfu var afhent starfsmanni í afgreiðslu í merktu umslagi þess starfsmanns sem sá um námsmenn í USA á þessum tíma. Svo leið og beið og engin tilkynning barst um afgreiðslu skuldabréfsins. Við upphringingu var mér tjáð, að ekkert skuidabréf hefði borist frá mér. Við komu mína á skrifstofu LÍN bað ég um að leitað yrði betur, sem gert var með ólund og fúkyrðum. Umslagið fannst innan um dót í afgreiðsluborðinu. Engin afsökunarbeiðni kom fram þó þama væri um vítavert kæm- leysi að ræða. Þetta þýddi að nemandi þurfti enn að bíða óþarf- lega lengi eftir láni. Erfiðbiðí fjarlægu landi Það vefst varla fyrir neinum hve erfið þessi óþarfa bið er námsmanni í fjarlægu landi, hann getur ekki treyst á foreldra eða vandamenn til úrbóta í bili eins og nemendur hér heima sem geta þó alltaf fengið fæði og ef til vill lán í skamman tíma. Hér heima eru engin skóla- gjöld, engin hótun um brottrekstur úr skóla verði skólagjöld ekki greidd. Nú hefur umræddur nemandi 'lokið sínu námi en síðasta lán sem hann fékk var afgreitt með eindæm- um. Nemandi skilaði inn sínum gögnum um 'sumarið er hann kom heim í fríi sínu. Var honum þá sagt að öll gögn væru komin og hann fengi lánið í síðasta lagi um miðjan október. Lánið kom hins vegar ekki fyrr en í desember eftir óteljandi símhringingar, fyrirspumir, bréfa- skriftir. Skýringar sem ég fékk varðandi þetta mál voru að nemandi hefði átt að skila inn pappírum með öðru orðalagi en gert var. Þó hafði þetta orðalag verið tekið gilt þá um sumarið og oft áður. Stutt við bakið á menntamálaráðherra Ég gæti haldið áfram að tína fram ýmsar athugasemdir varðandi afgreiðslu LÍN en læt þetta nægja. Með þessum skrifúm vil ég styðja við bakið á menntamálaráðherra, Sverri Hermannssyni, og hvet umboðsmenn og nemendur til að gera hið sama, því mér er fullkunn- ugt um að mjög margir hafa sömu sögu að segja um undarlega starfs- hætti á skrifstofu LÍN. Höfundur er fyrrv. umboðsmaður nemanda. VÁKORT VÁKORT Eftirtalin kreditkort eru á vákorta- lista Kreditkorta sf., og eru veitt 2.500 kr. verölaun fyrir hvert þessara korta sem tekiö er úr umferð. Þeir sem fá eitthvert þessara korta í hendur eru vinsamlegast beönir aö hafa tafarlaust samband viö Kredit- kort sf., í síma 91-685499. 5414 8300 1374-3108 5414 8300 1370-9109 5414 8300 1363-2103 5414 8300 1326-0103 5414 8300 1305-8101 5414 8300 1302-4103 5414 8300 0187-5102 Lovísa Þórarinn Þórdís Sigurður Anna Ásdís G. Davíðsson Listræn lýsing fyrir fólk með fágaðan smekk Röntgentæknar hætta störfum RÖNTGENTÆKNAR í fullu starfi á Landspítalanum eru hættir störfum. Þeir gengu út um áramótin. „Astandið á deild- inni er mjög slæmt. Við getum ekki haldið uppi eðlilegri þjón- ustu og starfsemin er hægt og bítandi að sigla í strand,“ sagði Ásmundur Brekkan, yfirlæknir röntgendeildar Landspítalans i samtali við Morgunblaðið. Á röntgendeild Landspítalans eru 17 stöðugildi og hafa 9 gengið út, átta störfuðu á röntgendeild og einn á krabbameinsdeild. „Röntgen- tæknar eru óánægðir með kjör sín, eins og raunar flestir, enda illa launuð vinna, en einnig hafa þeir orðið að horfa upp á að hjúkrunar- fræðingar, sem af gamalli hefð vinna á deildinni, eru á mun hærri launum fyrir sömu vinna. Ég er ekki að segja að þær séu ofaldar með laun sín, en óánægja rönt- gentækna er skiljanleg,“ sagði Ás- mundur Brekkan. Hann sagði að deildin gæti ekki sinnt verkefnum utan spítalans og ýmis sérhæfð verkefni hefðu orðið að sitja á hakanum. Á Borgarspítalanum sögðu rönt- gentæknar upp störfum sínum 1. desember sl. og hætta þar af leið- andi l.mars. „Það er stöðugur flótti úr stétt- inni,“ sagði Ágústa Halldórsdóttir formaður Röntgentæknafélagsins. „Af þeim 90 röntgentæknum sem hafa lokið námi eru einungis 45 starfandi. Þetta er erfíð vinna og ílla launuð." Aðspurð um hvort röntgentækn- amir á Landspítalanum væru búnir að ráða sig annarstaðar sagði Ágústa að þær væru að leita sér að vinnu. Læknastofa Hef opnaö læknastofu á Bárugötu 15, Reykjavík. Marinó Pétur Hafstein læknir. Sérgrein: Heila- og taugasjúkdómar (Neurology). Viötalsbeiönum veitt móttaka í síma 62-28-28 mánudaga—fimmtudaga frá kl. 11.00—12.00. Frönsku borðlamparnir frá Mad og Le Dauphin bera ljúfa birtu í skammdeginu. HEiMlLIS- OG RAFTÆKJADEILD PRISMA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.