Morgunblaðið - 14.01.1986, Page 19

Morgunblaðið - 14.01.1986, Page 19
1---------Z----------- MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1986 19 Útflutningsverðmæti fersks fisks tvöfalt meira 1985 en árið áður ÚTFLUTNINGUR á ferskum fiski héðan til Bretlands og Þýzkalands jókst um 32,5% í magni frá árinu 1984 til 1985 og tvöfaldaðist að verðmætum í is- lenzkum krónum talið. Árið 1984 var verðmæti þessa útflutnings rúmlega 1,2 milljarðar króna, en rúmlega 2,4 síðasta ár. Meðal- verð á hvert kfló af fiski talið í íslenzkum króum hækkaði um 50,7%. Mest er aukningin í flutn- ingi fisks í gámum til Bretlands eða um 150%. Meðalverð á kfló fyrir fisk upp úr skipum var hærra en úr gámum á síðasta ári, en lægra árið áður. Aukning í fískútflutningi til Bretlands var á síðasta ári um 75% frá árinu áður, en dróst saman um 12,6% til Þýskalands. Heildarút- flutningurinn var tæpar 62.000 lestir 1985 en tæpar 47.000 árið á undan. 1984 var ails landað 24.129,5 lestum í Bretlandi og 22.613,3 í Þýzkalandi. Árið 1985 voru þetta 42.195,2 og 19.753,8 lestir. 1984 lönduðu fískiskip 141 sinni í Bretlandi samtals 13.805 lestum að verðmæti 399 milljónir króna. Meðalverð var 28,90 krónur. 1985 lönduðu fískiskip alls 164 sinnum í Bretlandi samtals 16.882 lestum að verðmæti 717 milljónir króna, meðalverð á kíló 42,48. Magnaukning milli áranna er 22,3%. 1984 lönduðu fískiskipin 119 sinnum í þýzkum höfnum samtals 19.843 lestum að verðmæti 459 milljónir króna, meðalverð 23,20. 1985 lönduðu skipin alls 104 sinnum í Þýzkalandi samtals 17.956 lestum að verðmæti 639 milljónir króna, meðalverð 35,61. Samdrátt- ur milli áranna er 9,5%. 1984 voru seldar héðan 10.325 lestir af gámafíski í Bretlandi að verðmæti 301 milljón króna, meðal- verð 29,10. 1985 voru seldar í Bretlandi 25.313 lestir af gámafíski að verðmæti um 1 milljarður króna, meðalverð 40,31. Magnaukning milli áranna er 150%. í Þýzkalandi voru árið 1984 seldar 2.770 lestir af gámafíski að verðmæti 55 millj- ónir króna, meðalverð 19,90. Árið eftir var salan úr gámum 1.798 lestir að verðmæti 50 milljónir króna, meðalverð 27,90. Samdrátt- urímagnier35%. Upplýsingar þessar eru fengnar fráLIÚ. Fiskurinn fluttur út. Iceland Seafood seldi fyrir 5,7 milljarða 1985 Afkoma síðasta ár líklega sú bezta til þessa, segir Guðjón B. Olafsson, framkvæmdasljóri fyrirtækisins ICELAND Seafood Corporation, dótturfyrirtæki Sambandsins í Bandaríkjunum, seldi á síðasta ári fiskafurðir fyrir 5,7 milljarða króna, 136.234.000 dali. Aukningin frá síðasta ári er 13,5%. Alls voru seldar 47.855 lestir og er það 10,2% meira en árið áður. Er þetta næst mesta aukning í dölum talið milli ára hjá fyrirtækinu og Guðjón B. Ólafsson, framkvæmdasljóri fyrirtækisins, segir afkom- una á siðasta ári líklega þá beztu til þessa. Framleiðsla verksmiðjufram- leiddrar vöru á síðasta ári nam 28.300 lestum að verðmæti 2,9 milljörðum króna, 69,7 milljónum dala og jókst um 8,5% í verðmætum og 7,8% í magni. Sala flaka var 15.450 lestir að verðmæti 2,2 millj- arðar króna, 59,2 milljónir dala. Aukning í verðmætum var 17,5% og í magni 12,6%. Sala skelfísks var 1.060 lestir að verðmæti 407,4 milljónir króna, 9,7 milljónir dala. Aukning í verðmætum var 48,1% en í magni 126%. Verðmætaaukn- ingin er minni en í magni vegna þess, að nú er hærra hlutfall rækju en áður í skelfísksölunni. í desember jókst salan um 19,7% í magni og 35,2% í verðmætum. Alls voru þá seldar 3.675 lestir að verðmæti 474,6 milljónir króna, 11,3 milljónir dala. Salan milli áranna 1985 og 1984 jókst um 680,4 milljónir króna, 16,2 milljónir dala. Guðjón B. Ólafsson sagði, að fyrirtækið hefði aukið markaðshlut- deild sína lítillega, en á hinn bóginn hefði líklega verið hægt að auka söluna enn meira, ef ekki hefði komið til skortur á fiski að heiman. Guðjón sagðist vera bjartsýnn á ganginn á nýbyrjuðu ári. Verð hefði farið hækkandi á síðasta ári og til dæmis hefði þorskblokkin hækkað um 25 til 30% á seinni hluta ársins. Markaðsverð væri að færast upp á við, til dæmis á rækju og hörpu- diski. Hins vegar gæti skortur á ýmsum fisktegundum og of miklar verðsveiflur haft neikvæð áhrif á verðþróunina. Það yrði varla fyrr en í apríl eða mai, sem í ljós kæmi hver verðþróunin yrði á árinu. ftarslcóli ÖLAFS GAUKS 10% afmælisafsláttur til 24. jan. Innritun allra aldurshópa fer fram daglega kl. 2—5 e.h. í skólanum, Stórholti 16, sími 27015. Upplýsingasími á öörum tíma 685752. Nú er tækifæri tilaö byrja. Stórbílaþ vottastöð 1. Bíllinn er olíuþveginn til aö hreinsa af tjöru. 2. Forþvottur. Þykku sápulööri sprautaö yfir bílinn. 3. Vatnsþvottur með burstum. Shampoo í vatninu. 4. Bíllinn fær yfirferð af svokölluöu skyllevoks sem gefur gljáa og verndar bílinn. 5. Jafnframt þessu öllu er undirvagn hreinsaöur. Veröin eru frá 580 fyrir minni sendiferöabíla og upp í 1280 fyrir stærstu flutn- ingabíla meö aftanívagni. (Ath.: Olía og skumm reiknaö sér). Til aö byrja meö veröur stööin opin sem hér segir: Virka daga frá 9—19 eöa eftir þörfum. Laugardaga frá 9—17 eöa eftir þörfum. Sunnudaga frá 14—22 eða eftir þörfum. Hins vegar erum viö reiöubúnir aö breyta þessu eftir óskum viöskiptavina og viljum gjarnan heyra tillögur þeirra. Stórbílaþvottastödin Höföabakka 1. Sími 688060. Kanaríeyjar -Tenerife - Gran Kanari Örugg sólskinsparadís í skammdeginu. Enska ströndin- Ameríska ströndin- Dagfiugbáðarieiðir. Las Palmas- Puerto de la Cruz Fuiikominþjónusta Beint leiguflug, verð frá kr. 25.970,- islenskur<Srarstjóri. 8. janúar 4 vikur á 3 vikna verði. 5 febr. og 26. febr., 22 dagar. Páskaferð 19. mars, 14 dagar Þið veljið um dvöl í íbúðum, án matar, eða á fjögurra og fimm stjörnu hótelum með morgunmat og kvöldmat, á eftirsóttustu stöðum Kanaríeyja. Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir ÓTRÚLEGA HAG- STÆTT VERÐ 3 VIKUR, 2 í ÍBÚÐ, FRÁ KR. 28.480,- FLUCFERÐIR -joibreyttar sKemmn- og sxoounaneruir. _ SOLRRFLUG Sjórinn, sólskinið og skemmtanalífið eins og fólk vill hafa það. Vesturgötu 17 Símar 10661,15331 og 22100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.