Morgunblaðið - 14.01.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1986
23
AP/Símamynd
Róa yfirAtlantsála
Þrír Bretar skýrðu í gær frá áformum sínum um að róa yfir Atlantshafið, frá Kanaríeyjum tíl
Barbados í Karíbahafi. Róðurinn hefst 20. janúar nk. á tveimur bátum. Don Allum í miðið, sem
er 48 ára verkfræðingur, ætlar að róa einn síns liðs en Mike Nestor (t.v.) og Sean Crowley (t.h.),
sem eru 22 og 23 ára námsmenn, hyggjast tvimenna sinn bát. Djarfhugamir búast við að róðurinn
taki tvo til þrjá mánuði.
Fyrirskipaði Khadafy
tilræði við Genscher?
Bonn, 13. janúar. AP.
í VESTUR-ÞÝSKA dagblaðinu
Bild var á sunnudag haft eftir
ráðhemun í vestur-þýsku stjóm-
inni að Moammar Khadafy,
Líbýuleiðtogi, hafi skipað palest-
inskum sérsveitum að ráða
Hans-Dietrich Genscher, utan-
rfldsráðherra, af dögum.
í Hamborgarblaðinu stóð undir
fyrirsögninni „Khadafy á höttunum
eftir Genscher" að borist hefði við-
vörun frá ónefndu arabaríki um að
líf Genschers væri í bráðri hættu
og síðan á laugardag hafi ráðher-
rans verið gætt sérstaklega vel.
„Morðingjamir gætu þegar verið
komnir til landsins," sagði enn-
fremur.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins sagði að ekki mætti búast við
ummælum þaðan um fréttina í Bild,
en hann sagði að öryggisviðbúnaður
væri nú meiri en venjulega þar sem
borist hefðu vissar vísbendingar.
Talsmaðurinn gat þess ekki hvers
eðlis þessar vísbendingar væru eða
hvort þær vörðuðu Khadafy.
Harma árás á
borgarstjóra
Frankfurt, 13. janúar. AP.
STJÓRNMÁLALEIDTOGAR fordæmdu í gær, sunnudag, árás, sem
gerð var á Walter Wallmann, borgarstjóra í Frankfurt, á nýárs-
fagnaði vestur-þýska alþýðusambandsins.
Wallmann, sem er varaformaður
Kristilega demókrataflokksins,
hafði verið boðið að tala á nýárs-
fagnaði alþýðusambandsins en
þegar hann gekk að ræðustólnum
réðust að honum um 80 manns og
spörkuðu í hann og hrintu. Wall-
mann komst þó að ræðustólnum og
ætlaði að flytja ræðu sína en hún
kafnaði í hrópum nokkurs hóps
manna, sem kallaði í sífellu „burtu
með Wallmann og kapitalið".
Manfred Kiesewetter, deildarfor-
seti alþýðusambandsins i Frankfurt,
talaði á eftir Wallmann og bað hann
afsökunar i framferði mannanna.
Johannes Rau, kanslaraefni jafnað-
armanna í kosningunum á næsta
ári, hefur einnig harmað þennan
atburð og sagði hann, að það væri
einn af homsteinum lýðræðisins,
að menn fengju að láta í ljós skoð-
anir sínar.
Nefúði úr inter-
feron ffesfn kvefi
Boston. 13. ianúar. AP.
Boston, 13. janúar. AP.
NEFÚÐA úr hormóninu inter-
feron virðist mega brúka til
þess að komast hjá kvefi, að
þvi er fram kemur í grein í
læknaritinu New England Jo-
umal og Medicine. Rannsóknir
við bandarískan háskóla annars
vegar og ástralskan bins vegar
leiddu í (jós að úðinn haldi aftur
af svoköfluðum rhinoveirum,
sem valda nefkvefi er þær
berast frá vitum fólks við
hnerra eða hósta.
Samkvæmt greininni em rhino-
veirumar algengasti kvefvaldur-
inn og er talið að úðann megi
nota til að komast hjá kvefi í
a.m.k. flómm tilfellum af fimm.
Hins vegar er hann alveg gagns-
laus gegn flenzuveimm, sem einn-
ig valda kvefeinkennum. En þrátt
fyrir það fengu þeir sem tilraunin
var gerð á helmingi sjaldnar kvef
en samanburðarhópur.
Ifyrri tilraunir með interferon
gegn kvefi reyndust gagnslitlar
vegna aukaverkana. í tilrauninni
með nefúðann var reynt að kom-
ast hjá aukaverkunum með því
að veita stærri skammta en áður
á styttri tíma. Virðist það hafa
heppnast þvf eina aukaverkanin
var sú að aðeins 10% þátttakenda
fengu smávægilegar blóðnasir.
Eftir er að athuga hvort úðinn
er hættulaus fólki með öndunar-
örðugleika.
Talið er að kvefveimr séu
a.m.k. 200 talsins, þar af em
svokallaðar rhinoveimr um eitt-
hundrað og valda þær langoftast
kvefi, eða í 30—50% tilvika. Úð-
inn, sem virðist geta haldið þeim
niðri, er framleiddur úr náttúm-
legu interferoni.
Kína:
Caspar Weinberger:
Engín flugvél
skotin niður
Washington, 13. janúar. AP.
CASPER Weinberger, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, vísaði í
gær, sunnudag, á bug fréttum frá Kuwait um að Líbýumenn hefðu
skotið niður bandaríska orrustuflugvél yfir Miðjarðarhafi.
„Þetta er bull og vitleysa og út
í bláinn," sagði Weinberger í viðtali
við ABC-sjónvarpsstöðina um þá
frétt Kuna-fréttastofunnar í Ku-
wait, að bandarísk flugvél hefði sl.
miðvikudag verið skotin niður með
sovésku Sam-7-flugskeyti þegar
hún var á flugi yfir Sidra-flóa.
Kuna-fréttastofan sagði, að full-
trúar bandaríska sjóhersins í Róm
hefðu tilkynnt, að flugvél af gerð-
inni F-18-Homet hefði horfið, en
Weinberger sagði, að þessi flugvél
hefði horfið í vondu veðri undan
Frakklandsströnd, víðs fjarri Líbýu.
Bandaríkjamenn benda líka á það,
að ef Líbýumenn skytu niður banda-
ríska flugvél, yrðu þeir ömgglega
fyrstir til að skýra frá því.
Grænland:
Fiskveiðisamningnr
við Japan strandar á EB
Kaupmannahöfn, 13. janúar. Frá Nils JSrgfen Bruun, fréttaritara Morgunblaðs uw.
EKKI hefur enn verið gengið
frá fiskveiðisamningi milli Jap-
ana og Grænlendinga fyrir árið
1986. A árinu 1985 voru Japanir
með um 10 stóra togara við
Grænland, og stunduðu þeir
einkum karfaveiðar. Heildar-
kvótinn er 22.000 tonn og komast
Grænlendingar sjálfir ekki yfir
að veiða það allt.
Grænlenska útvarpið greindi ný-
lega frá, að það sem ylli töfum á
gerð fiskveiðisamnings milli þjóð-
anna, væri, að Grænlendingar gætu
e.t.v. ekki úthlutað Japönum veiði-
kvótum nema bjóða Evrópubanda-
laginu þá fyrst.
Grænlendingar gerðu bindandi
fiskveiðisamning við EB, er þeir
sögðu sig úr bandalaginu, og er
gildistími hans fimm ár. Samkvæmt
samningnum verða Grænlendingar
að láta EB í té þá kvóta, sem þeir
nýta ekki sjálfir.
Grænlenska heimastjómin kann-
ar nú, hvemig unnt sé að halda
áfram samstarfínu við Japani án
þess að í odda skerist við EB-löndin.
140 milljón ára steingerv-
ingur skjaldböku finnst
Peking, 13. janúar. AP.
EITT hundrað og fjörutiu millj-
óna ára gamall steingervingur
skjaldböku hefur fundist í kola-
námu í Jilin-héraði í Norðaust-
ur-Kina, að sögn opinberu kin-
versku fréttastofunnar, Xinhua.
í fréttinni sagði að steingerving-
urinn hefði fundist nýlega í 700
metra djúpu námaopi f Liaoyuan-
kolanámunni í Vestur-Jilin. Stein-
gervingurinn tilheyrir áður óþekktri
tegund og mun að sögn vísinda-
manna reynast rannsóknum á þró-
un skjaldbökutegundarinnar mikil-
vægur.
Aparaðstoða fatlaða
Canuchin-apinn Susu, sem er níu ára gamall, aðstoðar hér húsbónda sinn, Lois Corvese III, en
hann er alveg iamaður fyrir neðan háls.