Morgunblaðið - 14.01.1986, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986
Minning:
Ásgerður Efemía
Guðmundsdóttir
Fædd 20. nóvember 1907
Dáin 1. janúar 1986
í dag 14. janúar verður til moldar
borin frá Langholtskirkju amma
mín Ásgerður Efemía Guðmunds-
dóttir fædd að Ósi í Bakkagerði í
Borgarfírði eystri. Hún var dóttir
hjónanna Sigríðar Bjamadóttur og
Guðmundar Einarssonar smiðs og
bónda sem þar bjuggu. Síðar flytja
þau að Lindarbakka í sömu sveit
og þar elst hún upp með foreldrum
sínum og fóstursystur Pálínu Guð-
mundsdótir, til 6 ára aldurs að hún
verður fyrir þeim sára missi að
móðir hennar deyr langt um aldur
fram. Eftir það elst hún upp hjá
föður sínum og síðari konu hans
Soffíu Guðmundsdóttur ásamt
tveim bræðrum sem þau eignuðust,
þeim Þorsteini og Þóri Einari en
þá voru þau flutt að Steinholti, í
sömu sveit. Amma mín sagði mér
oft frá fallegu sveitinni sinni, Álfa-
borginni, þar sem hún lék sér oft
sem bam og Dýrfjöllunum fögru.
Eftir fermingu fer hún til Margrétar
Elíasóttur og manns hennar Jóns
Guðmundssonar, sem bjuggu að
Skálum á Langanesi og hún er hjá
þeim þar til leið hennar liggur suður
til Reykjavikur. Þar býr hún hjá
föðurbróður sínum, Jóni Einarssyni
og konu hans Guðrúnu, að Leyni-
mýri, og fer að vinna fyrir sér eins
og títt var um ungt fólk í þá daga.
Nálægt tvítugsaldri fer hún til
Neskaupsstaðar og þar gengur hún
í hjónaband með afa mínum, Jóni
ísfeld, kaupmanni þar frá Hesteyri
í Mjóafírði, árið 1927. Þau eignuð-
ust tvö böm, Ólafíu Stefaníu, fædda
19. mars 1928 og er sú sem þessa
grein ritar dóttir hennar og Þóri
Guðmund fæddan 11. febrúar 1933.
Eftir nokkurra ára hjonaband veik-
ist afí minn og lézt hann árið 1935
langt um aldur fram.
I annað sinn stendur amma mín
frammi fyrir ástvinamissi, en hún
var ung og dugleg, allt lífið fram-
undan og hún lætur ekki hugfallast
þótt erfitt væri á þeim tíma að
standa ein eftir með tvö ung böm.
Árið 1937 gengur hún í hjónaband
með Jóni Sigurðssyni frá Péturs-
borg í Vestmannaeyjum. Þau eign-
uðust saman tvö böm, þau Jónu
Sigríði fædda 19. maí 1939 og
Guðmund fæddan 12. október 1941.
Bjuggu þau á Neskaupsstað til árs-
ins 1951, en þá flytja þau suður til
Reykjavíkur. Margar af mínum
beztu endurminningum frá bemsku
á ég frá heimili afa og ömmu á
Óðinsgötu 17 í Reykjavík. Amma
var mikil húsmóðir, heimilið alltaf
myndarlegt og fallegt. Bömum sín-
um var hún góð móðir og bama-
bömum og bamabamabömum
yndisleg amma og langamma. Síð-
ari mann sinn missti hún árið 1959
en þá vom bömin að mestu leyti
uppkomin og farin að sjá sér far-
borða sjálf. Hún vann eftir það á
ýmsum stöðum en lengst af í
Laugavegsapóteki í um 20 ár. Hún
lét af störfum þar fyrir 8 ámm, þá
farin að kenna heilsubrests. Amma
var flutt í Hátún 10, hjúkmnar-
heimili fyrir aldraða, á aðfangadag
jóla síðastliðinn og þar lést hún á
nýársdag. Mikill er söknuður bama,
ömmubama og langömmubama og
tengdabama sem öll era á lífi,
bræðranna tveggja og aldraðrar
fóstursystur. Ég, Guðrjón og íris
þökkum elsku ömmu og langömmu,
allar stundir sem við höfum átt með
henni.
Guð varðveiti ömmu. Hún mun
alla tíð lifa í hugum okkar.
Tryggvina Sigríður
Herbertsdóttir,
Guðjón og íris.
Veistu hvað heppnin
r
h
Mímir, félag- stúdenta í
íslenzkum fræðum:
Mótmæla
lækkun lána
hjá Lána-
sjóði ísl.
námsmanna
STJÓRN Mímis, félags stúdenta
í íslenskum fræðum, sendi Morg-
unblaðinu í gær svohljóðandi til-
kynningu:
„Mímir, félag stúdenta í íslensk-
um fræðum, mótmælir harðlega
þeirri ákvörðun menntamálaráð-
herra að lækka námslán á vormiss-
eri 1986. Mímir bendir á að með
lögum nr. 72 frá 1982 um námslán
og námsstyrki tók Alþingi ákvörðun
um tilhögun námslána sem síðan
hefur ekki verið staðið við nema
með miklum eftirgangsmunum af
hálfu stjómar Lánasjóðs íslenskra
námsmanna.
Ennfremur vekur Mímir athygli
á að upphæð námslána miðast við
lágmarksfjárþörf til framfærslu,
sem byggist á neyslukönnun opin-
berra aðila frá 1973. Því er fárán-
legt að bera saman námslán og
launataxta sem engan veginn
nægja til framfærslu.
Mímir mótmælir og siðlausum
vinnubrögðum ráðherra viðvíkjandi
brottvísun Siguijóns Valdimarsson-
ar framkvæmdastjóra LÍN. Fram-
kvæmdastjóri lánasjóðsins ber ekki
ábyrgð á fjárhagsvandræðum hans,
heldur stjómvöld sjálf.
Mennt er máttur og því mót-
mælir Mímir öllum hugmyndum um
niðurskurð námslána og hvetur
Alþingi til að standa við lögin frá
1982 með því að veita sjóðnum
nægilegt Qármagn og tiyggja
þannig um leið jafnrétti til náms.“
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Vinningar í H.H.Í. 1986: 9 á kr. 2.000.000; 108 á kr. 1.000.000; 216 ákr. 100.000; 2.160 ákr. 20.000; 10.071 ákr. 10.000;
122.202 á kr. 5.000; 234 aukavinningar á kr. 20.000. Samtals 135.000 vinningar á kr. 907.200.000.