Morgunblaðið - 14.01.1986, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR1986
39
STEFANIE POWERS
Hún á um 30 fósturbörn
Gleðin skín úr augunum á
tugum bama þegar Steph-
ame Power birtist í dyrunum
heima hjá þeim, því þeim er hún
meira en fræg leikkona, þau líta
öll á hana sem móður sína. Steph-
anie hefur nefnilega séð fyrir 30
munaðarlausum bömum suður á
Italíu síðustu tuttugu árin.
Leikkonan sem er mjög bamelsk
en hefur aldrei fætt bam í heiminn
hefur séð fyrir þessum krökkum,
passað að þau hafi ekki vanhagað
um neitt, veitt þeim ástúð og
hlynnt að þeim á allan hugsanleg-
an hátt. Sagan á bakvið það hvem-
ig það hófst að hún tók þessi
munaðarlausu böm að sér er dálít-
ið sérstök. Stephanie var þá átján
ára leikkona sem ekki var orðin
fræg og var að vinna á Ítalíu við
upptökur. Einn daginn þegar frí
gafst frá vinnu fór hún að skoða
sig um og það er best að gefa henni
sjálfri orðið:
„Ég var eitthvað að þvælast um
í Róm þegar mér fannst ég endi-
lega þurfa að snúa mér við og þá
blasti lítill fallegur snáði við mér.
Hann stóð bara og starði á mig,
líklega níu þá. Ég gat ekki talað
ítölsku og hann kunni ekki stakt
orð í ensku en í rauninni vom
engin orð nauðsynleg í þessu til-
viki... sorgmædd augu hans náðu
til mín.
Þegar ég tók í höndina á honum
mundi ég líka allt í einu að spá-
kona sem ég hafði farið til og hafði
sagt mér að ég myndi hitta ungan
mann í Róm sem myndi skipta
sköpum í lífi mínu.
Eftir að hafa eytt deginum með
Silvano Rampucci, en það heitir
pilturinn minn, vildi hann endilega
bjóða mér heim með sér og það
var þá munaðarleysingjahæli.
Ég ákvað að verða fósturforeldri
Silvano og þetta vatt upp á sig
þangað til bömin mín voru orðin
þrjátíu. Ég man að þegar ég var
að koma Silvano í góða skóla átti
ég oft í íjárhagserfiðleikum og var
að skrapa saman krónur til að
geta menntað hann, en það rættist
nú úr þeim erfíðleikum von bráðar.
í dag er Silvano orðinn meðeigandi
í fyrirtækinu mínu og við erum
mjög náin mæðgin."
Stephanie á í dag um þrjátíu fósturbörn og upphafið að barnaláninu
átti sér stað á Ítalíu fyrir meira en tuttugu árum.
Ekkert letilíf
b
r ær lifa engu letilífi þær Vic- langt í frá. A meðan fólk sefur
toria Principal og Diahann Carroll, almennt væram blundi era þær
tvær á fótum og puða heljarinnar
ósköp.
Klukkan hálf fimm á morgnana
fer Diahann á fætur, syndir, hleyp-
ur og hjólar. Victoria „lúrir" til
fimm, en þá tekur hún til við að
fylgja strangri líkamsræktardag-
skrá sem hún hefur sett sér fyrir.
Þetta tekur stöllumar nokkrar
klukkustundir eða þar til mætt er
í upptökur f þáttunum Dallas og
Dynasty.
COSPER
----Góðan daginn, læknir. Nú er ég með nýju gleraugun,
sem þú lést mig fá í síðustu viku.
COSPER.
( PlB soponhagon
E
M2
SX
Bingó — Bingó
í Glæsibæ
í kvöld kl. 19.30
Aöalvinningur 25.000. Næsthæsti vinningur
12.000. Heildarverömæti yfir 100,000, Stjórnin.
Eigum á lager pakkningasett
í úrvali
®nausi
Siðumúla 7*9, simi 82722.
;trkt
- ✓
t - ■■ -jvás**®'.. '■■"-.>■■■■>'-■
fev.
KROSSVIÐUR SPÓNAPLÖTUR
T.d. vatnslímdur og T.d. spónlagðar, plast-
vatnsheldur - úr greni, húðaðar eða tilbúnar
birki eða furu. undir málningu.
Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket.
Einstök gæöavara á sérdeilis hagstæöu
verðl' SPARIÐ PENINGA!
- Smíðið og sagið sjálf!
Þið fáið að sníða niður allt plötuefni
hjá okkur í stórri sög
■ ykkur að kostnaðarlausu.
BJORNINN
Við erum í Borgartúni 28