Morgunblaðið - 14.01.1986, Síða 43

Morgunblaðið - 14.01.1986, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR1986 43 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11.30 FRÁ MÁNUDEG! TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu .. Fanný og Alexander — Hvers vegna sýnd aftur? Guðrún Kristinsdóttir hringdi: „Hvemig í ósköpunum datt þeim hjá sjónvarpinu í hug að eyðileggja fyrir manni þrettándakvöldið með því að endursýna þessa óþverralegu og leiðinlegu sænsku mynd, Fanný og Alexander? Var ekki nóg að sýna þetta einu sinni í sjónvarpinu, eins langdregið og það er. Nýi flokkurinn sem byijað er að sýna á sunnudögum „Blikur á lofti" virðist hins vegar vera góð og fróðleg mynd. Nokkur orð um Stundina okkan Ég held að sá þáttur sé hafður of þunglamaleg- ur. Þessar austantjalds teiknimyndir eru svo snauðar og leiðinlegar að yngri böm geta ekki haft gaman af þeim. Þess vegna langar mig til að spyrja fyrir hvaða aldursflokk „Stundin okkar" sé eiginlega? Krítarkort tefja Húsmóðir í Austurbæ hringdi: „Mikið er ég orðin þreytt á því að bíða eftir að þeir sem eru.með þessi krítarkort séu afgreiddir Ég sé alls ekki hagræðið af þessu fyrirkomulagi — það tefur oft afgreiðsluna þegar verið er að leita að þessari vél til að afrita kortin og svo virðist heilmikil skriffinska í kringum þetta. Stór- markaðir ættu að hafa einn sér- stakan kassa þar sem hægt væri að greiða fyrir sig með krítarkort- um. Þá gætu þeir sem eru með krítarkort staðið í eigin biðröð og aðrir þyrftu ekki að bíða eftir þeim.“ Málefni LIN verði endurskoðuð Austurbæingur hringdi: „Ég vil lýsa stuðningi við Sverri Her- mannsson menntamálaráðherra varðandi það að málefni Lána- sjóðs íslenskra námsmanna þurfi að taka til gagngerrar endurskoð- unar. Greinilegt er að hjá sjóðnum fara gífurlegir fjármunir forgörð- um ef námsmenn greiða ekki nema lítil hluta þess aftur sem þeir fá úr sjóðnum. Skilst mér að skuldir sem þannig eru strikaðar út geti numið milljónum á ein- stakling í sumum tilfellum. Það hljóta allir að sjá að við svo búið má ekki standa. Að sjálfsögðu eigum við að gera ungu fólki kleift að stunda framhaldsnám, en að ausa út peningum með þessum hætti nær hins vegar ekki nokkri átt. Ég vil því lýsa sam- stöðu í þessu máli með mennta- málaráðherra og vona að hann afnemi þær reglur sem nú gilda um sjóðinn en setji aðrar og skyn- samlegri reglur í staðinn." Greiðari umferð — færri slys Jóhann hringdi: „Að undan- fömu hefur verið skrifað töluvert um ökuhraða og slys í Velvak- anda. Ekki er að efa að slysin verða flest vegna þess að of hratt er ekið miðað við aðstæður. Mörg umferðaróhöpp stafa líka af því að menn hafa ekki athyglina vakandi við aksturinn og eru jafn- vel með hugann við allt annað. Þetta verður mjög áberandi við götuljós, það tekur suma öku- menn óratíma að átta sig á að græna ljósið er komið. Þeir eru þá kannski niðursokknir í sam- ræður og taka þá fyrst á stað þegar græna ljósið er búið að loga góða stund og aðrir ökumenn farnir að flauta á þá. Ég er handviss.um að umferðin gæti gengið greiðar fengjust menn til að sinna akstrinum með athygli og þannig mætti koma í veg fyrir þessar miklu umferðar- taflr sem einkenna umferðina hér. Ef menn temdu sér hóflegan og jafnan ökuhraða og hefðu at- hyglina bundna við aksturinn meira en nú er, er ég viss um að færri slys yrðu í umferðinni hér og hún yrði jafnframt töluvert greiðari NOB0 skjalaskápar ★ Norsk gæðavara ★ Ótal möguleikar ★ Vönduð hönnun ★ Ráðgjöf við skipulagningu E. TH. MATHIESEN H.F. BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRDI, SIMI 651000. Allt RÖÐ OG REGLU Fataskápar úr hvítri plastfilmu. H: 200 sm. B: 142 sm. D: 54 sm. Útborgun kr. 3000. Aíb.: kr. 1500 á mán. »SamI selv» Kommóður úr plastfilmu. Hvítri eða Ijósri eik. 8 skúffur kr. 3.980. 6 skúffur kr. 3.250. 4 skúffur kr. 2.500. Við tökum að sjálfsögðu greiðslukortin bæði sem útborgun á kaupsamningi og sem stað- greiðslu með hæsta afslætti. QUSG&GNAHOLLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK» 91-81199 og 81410

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.