Morgunblaðið - 14.01.1986, Síða 44

Morgunblaðið - 14.01.1986, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986 Frábær markvarsla í síðasta leiknum — æsispennandi lokamínútur Islandsmótsins Egill skoraði 100 mörk VALUR tryggði sér annað sætið á íslandsmótinu í handknattleik þegar liðið gerði jafntefli við Stjörnuna í siðasta leik mótsins að þessu sinni. Leikurinn var all- an tfmann mjög jafn, jafnt í leik- hléi, 11:11, og þegar flautað var til leiksloka höfðu bæði iiðin skorað 21 mark. Mikill spenna var á lokasekúndum þessa leiks. Hannes Leifsson jafnaði fyrir Stjörnuna er 38 sekúndur voru eftir úr vftakasti og síðan voru þeir aðeins hársbreidd frá því að skora 22. markið undir lokin. Það tókst þeim þó ekki og því varð Stjarnan f þriðja sæti á íslands- mótinu á eftir Val. Leikurinn hófst nokkuð furðu- lega. Ellert Vigfússon, markvörður Vals, skoraði fyrsta mark leiksins á annari mínútu og er þetta annað FH-INGAR biðu slæman ósigur gegn KA í sfðasta leik liðanna í 1. deildinni. Leikurinn fór fram í Hafnarfirði og sigruðu Akur- eyringarnir með 25 mörkum gegn 16, en f hálfleik var staðan 11-10 fyrir KA. Liðin voru áþekk og leik- urinn jafn f fyrri hálfleik og byrjun þess sfðari, en er um 20 mfnútur voru til leiksloka skildu leiðir og KA-menn tryggðu sér sanngjarn- an stórsigur. Leikurinn var jafn og spilið sæmilegt í fyrri hálfleik. KA-menn urðu fyrri til að skora en FH-ingar jöfnuðu jafnharðan upp í 4—4. Skiptust liðin síðan á um að skora 2—3 mörk í röð hvort og staðan 9—7 er 9 mínútur voru til leikhlés. Þá fengu menn smjörþefinn af því sem koma skyldi, KA-menn skoruðu fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 11—9, en 25 sekúndum fyrir hlé skoruðu FH-ingar sitt 10 mark og staðan því 11—10 fyrir KA í hálfleik. FH-ingar byrjuðu seinni hálfleik- inn á því að jafna, 11—11, en þá skoruðu KA-menn þrisvar í röð og komust í 14—11. FH-ingar minnk- uðu muninn í 14—13 er 21 mínúta var eftir, en tvær næstu sóknir þeirra enduðu með stangarskoti og margar þær næstu með þvt að Sigmar Þröstur varði. Skoruðu FH-ingar ekki mark í 10 mínútur en á sama tíma léku norðanmenn vörn FH sundur og saman og skoruðu hvað eftir annað, komust í 18-13 er rúmar 11 mínútur voru eftir. Þegar 8 mínútur voru til leiks- loka skoruðu FH-ingar síðasta mark sitt og staðan 20—16. Gull- tryggðu KA-menn sigurinn með því að skora 5 síðustu mörk leiks- ins, hið síðasta er sekúnda var eftir. Líklega er þessi leikur sá lakasti sem FH-liðið hefur sýnt í vetur. Spilið var einhæft, t.d. var haldið :i{ streytu að leika upp á Þorgils Óttar i seinni hálfleik enda þótt jafnan lægju á honum tveir KA- menn og lokuðu hann af. Nær allar sóknir enduðu á miðjunni þótt vörn KA væri þar öflug fyrir og stöðvaði hvert skotið af öðru. KA-liðið spilaði ágætlega að þessu sinni. Knötturinn gekk vel milli manna, af einum kantinum á annan. Fjölbreytni var f sóknartil- raunum og stöðugt breytt um leik- kerfi og ógnun því mikil í spilinu. Það segir sitt um ágætan sóknar- leik KA að Sverrir Kristins mark- vörður FH varði 11 skot úr dauða- færi, þar af eitt víti. Þá var mark- varzla Sigmars Þrastar í liði KA mjög góð. Hann varði 17 skot, flest úr dauðafæri, þar af tvö víti. Beztir hjá FH voru Þorgils Óttar Valur — Stjarnan 21:21 mark Ellerts í vetur. Örugglega markahæstur markvarða í deild- inni. Hermundur Sigmundsson skor- aði því næst tvívegis fyrir Stjörn- una en Júlíus Jónasson svaraði með tveimur mörkum úr vítaköst- um. Þetta líkaði Hermundi ekki og hann tók sig til og skoraði þrjú næstu mörk. Staðan orðin 4:6 fyrir Stjörnuna og Hermundur hafði gert öll mörkin. Valsmenn jöfnuðu síðan leikinn í 7:7 og jafnt var síðan FH-KA 16:25 og Sverrir markvörður. Stefán Kristjáns komst vel frá fyrri hálfleik og skoraði þá glæsileg mörk en honum var sýnt rauða spjaldið í þeim seinni. Hjá KA var Sigmar Þröstur beztur, en Erlingur Kristjáns var einnig góður í vörn og sókn. Guð- mundur Guðmunds og Logi Ein- arsson voru og góðir. Pétur Bjarna skoraði mest en var mjög eigin- gjarn og skaut í tíma og ótíma, ýmist framhjá marki eða að Sverrir varði. Mörfc FH: Þorgils Óttar Mathiesen 5/1, Stefán Kristjánsson 5, Óskar Ármannsson 3/2, Jón Erling Ragnarsson 2 og Valgarö Valgarðsson 1. Mörk KA: Pótur Bjarnason 6, Erlingur Kristjánsson 6/2, Guömundur Guömundsson 5/2 , Logi Einarsson 4, Anton Pétursson 1, Erlendur Hermannsson 1, Jón Kristjánsson 1 og Þorleifur Ananíasson 1. __ áflás VALSMENN unnu ÍR-inga í úrv- alsdeildinni í körfuknattleik á sunnudagskvöldið þegar liðin léku í íþróttahúsi Seijaskóla. Þegar aðeins 13 sekúndur voru til leiksloka var aðeins eins stigs munur, 85:86 fyrir Val, en þeir skoruðu fimm síðustu stigin og unnu með 91 stigi gegn 85. Stað- an í leikhiéi var 38:43. ÍR-ingar höfðu frumkvæðið framan af í þessum leik en aldrei var munurinn þó mikill. Mjög jafnt var fram í miðjan fyrri hálfleik en þá komust Valsmenn nokkur stig yfir og hóldu forskotinu það sem eftir var leiksins. ÍR-ingar komust þó oft ansi nærri þeim á stigatöfl- unni en aldrei náðu þeir þó að komast yfir. í síðari hálfleik komust Vals- menn mest í tíu stiga forystu þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka en Breiðhyltingar tóku góðan endasprett og náðu að minnka muninn'niður í eitt stig er 13 sek- úndur voru eftir. Valsmenn skorð- uðu síðan og þegar tíminn var rétt að renna út náðu þeir boltanum aftur. Kristján Ágústsson reyndi skot, hitti og fékk að auki vítakast á öllum tölum í fyrri hálfleik. í síðari hálfleik höfðu Valsmenn forystu allt frá fyrstu mínútu. Mest var forskotið fjögur mörk, 17:13 og 18:14, en Stjörnumönnum tókst að jafna leikinn þegar aðeins 38 sekúndurvoru til leiksloka. Þegar tvær mínútur voru til leiksloka var staðan 21:20 og Stjörnumenn í sókn. Dæmt er víta- kast á þá og Hermundur tók kast- ið. Hann hafði verið öruggur til þessa í vítaköstum sínum og skor- að úr þeim öllum fimm. Ellert Vigfússon varði vítakastið og Vals- menn komust í hraðaupphlaup en Brynjar Kvaran gerði sér lítið fyrir og varði vel. Stjarnan hóf sókn og er 38 sekúndur voru eftir fá þeir vítakast og úr því skoraði Hannes Leifsson og jafnaði þar með leikinn. Vals- menn ætluðu nú greinilega að halda boltanum það sem eftir var leiksins en þá var dæmdur ruðn- ingur á þá og Stjarnan komst í hraðaupphlaup og reyndu skot en leiktíminn var úti og liðin skildu þvíjöfn. Þar með lauk þessu íslandsmóti með bráðskemmtilegum leik og eldfjörugum. Það eina sem ekki var skemmtilegt og gott í þessum leik voru dómararnir. Þeir voru mjög slakir og voru alls ekki starfi sínu vaxnir. Ellert Vigfússon stóð sig frá- bærlega í marki Vals, varði 19 skot í leiknum og þar af eitt vítakast. Lengst af leiknum var lítil ógnun í sóknarleik Valsmanna og vörnin ekki eins sterk og hún á að sér, enda var Þorbjörn Jensson ekki með. Það sem bjargaöi liðinu var markvarsla Ellerts. Hjá Stjörnunni átti Brynjar ágætan dag í markinu. Varði alls 13 skot. Hermundur skoraði mikið en hann fór einnig með mörg tækifæri forgörðum. Hann er allt of bráður að skjóta á stundum. Mörk Vals: Valdimar Grímsson 6/1, Júlíus Jónasson 4/2, Jón Pétur Jónsson 4/2, Jakob Sigurösson 3, Geir Sveinsson 2, Theodór Guðfinnsson 1, Ellert Vigfússon 1. Mörk Stjörnunnar: Hermundur Sigmunds- son 8/5, Magnús Teitsson 3, Hannes Leifsson 3/2, Gylfi Birgisson 2, Skúli Gunnsteinsson 2, Sigurjón Guðmundsson 2, Einar Einarsson 1. sem hann skoraði úr og þar með var forskotið orðið sex stig, 85:91, og þannig lauk leiknum. Besti maður Vals aö þessu sinni var Tómas Holton. Hann er geysi- lega fljótur og laginn með boltann auk þess sem hann hitti bókstaf- lega alltaf er hann reyndi körfuskot og hefði hann að ósekju mátt skjóta meira. Torfi Magnússon var harður í fráköstunum svo og Sturla og Jóhannes Magnússon hitti vel lengst af. Hjá ÍR var Ragnar Torfason atkvæðamestur. Hann hefði þó að ósekju mátt vanda sig betur í skotum, s+erstkalega í fyrri hálf- leik. Björn Leósson kom verulæ- ega á óvart með góðum leik. Hann skoraði margar fallegar körfur auk þess sem hann stóð fyrir sínu í vörninni. Stig ÍR: RagnarTortason 22, Björn Leósson 19, Karl Guðlaugsson 13, Hjörtur Oddsson 13, Björn Steffensen 5, Benedikt Ingþórsson 5, Vignir Hilmarsson 4, Jóhannes Sveinsson 4. Stlg Vals: Tómas Holton 25, Sturla örlygs- son 17, Jóhannse Magnússon 12, Kristján Ágústsson 11, Torfi Magnússon 9, Guðmund- ur Hallgrimsson 6, Einar Ólafsson 5, Jón Steingrímsson 4. FRAM sigraði Þrótt örugglega { síðasta leik þessara iiða f 1. deild- inni á laugardaginn 32—19. Þrótt- ur fékk þvf ekki stig í deildinni og átti sér aldrei viðreisnar von í þessum leik frekar en öðrum í vetur. Egill Jóhannsson skoraði 14 mörk f þessum leik og varð markahæsti leikmaður 1. deildar að þessu sinni, gerði alls 100 mörk. Staðan f hálfleik var 17—5 fyrir Fram. Það var greinilegt að leikurinn skipti ekki máli fyrir Þrótt og léku þeir eins og miðlungs 3. deildarlið. Þeir skoruðu fyrsta markið sitt í leiknum er 10 mínútur voru liðnar og var staðan þá 41 fyrir Fram. Flestar sóknaraðgerðir Framara byggðust upp á því að láta Egil Jóhannsson skora, hann var næst- markahæsti leikmaður deildarinn- ar fyrir síðustu umferðina með 86 mörk, Gylfi Birgisson hafði gert 88. Mestur varð munurinn í hálf- leiknum 12 mörk, er staðan var 16—4. Þessi munur hélst út hálf- leikinn. Egill fór á kostum í fyrri hálfleik og gerði alls 9 mörk í honum. í seinni hálfleik var allt miðað við að Egill næði 100 marka múrnum og það tókst er aðeins 3 mínútur voru til leiksloka. Mestur munurinn í seinni hálfleik var 14 mörk. Framarar sýndu ekki neinn snilldarleik og áttu það á hættu að detta niður á sama plan og Þróttur, í seinni hálfleik. Framarar geta mikið meira og á góðum degi geta þeir unnið hvaða lið sem er í deildinni. Þeir enduðu í þriðja neðsta sæti og halda því sæti sínu í 1. deild. Þróttur — Fram 19:32 Þróttarar koma til með að falla, þeir fá þó tækifæri á að leika við lið númer 3 og 4 í 2. deild um tvö laus sæti í 1. deild, því fjölgað verður þar. En með leik eins og þeir hafa sýnt að undanförnu hafa þeir ekkert að gera í 1. deild. Leik- menn liðsins virtust með öllu áhugalausir og var kappsmál þeirra að klára leikinn. Mörk Fram: Egill Jóhannsson 14/2, Ingólfur Steingrímsson 5, Dagur Jónasson 3, Hermann Björnsson 3, Hjörtur Ingþórsson 3, Ragnar Hermannsson 2 og Jón Árni Rúnarsson og Hlynur Jónasson eitt mark hvor. Mörk Þróttar: Guömundur óskarsson 5, Brynjar Einarsson 4, Helgi Helgason 4, Haukur Hafsteinsson 3, Gísli Óskarsson 2 og Guö- mundur A. Jónsson eitt. Val. Lokastaðan f 1. deild Víkíngur 14 12 0 2 350:271 24 Valur 14 10 1 3 326:281 21 Stjarnan 14 8 3 3 346:290 19 KA 14 7 1 6 300:283 15 FH 14 7 0 7 336:335 14 Fram 14 5 1 8 334:331 11 KR 14 3 2 9 302:343 8 Þróttur 14 0 0 14 273:433 0 Markahæstir urðu: Egill Jóhannesson Fram 100 Gylfi Birgís8on Stjörnunni 90 Þorgiis O. Mathiesen FH 90 Valdimar Grímsson Val 88 KA sprækir og burstuðu FH -sus. Körfubolti: Valsmenn fvið sterkari en ÍR -sus.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.