Morgunblaðið - 14.01.1986, Síða 45

Morgunblaðið - 14.01.1986, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR1986 45 Knatt- spyrnu- úrslit 1. deild: Liverpool — Watford 3:2 Birmingham — Ipswich 0:1 Chelsea — Luton 1:0 Coventry — Aston Villa 3:3 Everton — Queens Park Rangers 4:3 Leicester — West Ham 0:1 ManchesterCity — Southampton 1:0 Oxford United — Manchester United 1:3 Sheffield Wednesday — Arsenal fr Tottenham — Nottingham Forest 0:3 WBA — Newcastle 1:1 2. deild: Carlisle — Grimsby 1:2 Crystal Palace — Charlton 2:1 Huddersfield — Sheffield United 3:1 Hull — Bradford 1:0 Millwall — Stoke 2:3 Norwich — Middlesbrough 2:0 Oldham — Wimbledon 2:1 Portsmouth — Fulham 1:1 Shrewsbury — Barnsley 3:0 Sunderland — Leeds 4:2 Bolton — Gillingham 0:1 3. deild: Brentford — Wigan 1:3 Bristol City — Rotherham 3:1 Chesterfield — Walsall fr Derby — Bristol Rovers fr Lincoln — Bury 2:0 Newport — Bournemouth 2:1 Notts County — Plymouth 2:1 Reading — Cardiff 1:1 Swansea — Blackpool 2:0 York — Wolverhampton 2:1 4. deild: Burnley —Aldershot fr Cambridge — Hereford 4:0 Chester — Tranmere 1:0 Colchester — Torquay 0:0 Crewe — Wrexham 3:2 Exeter — Stockport 1:0 Mansfield — Northampton 1:0 Orient — Hartlepool 1:1 Preston — Halifax 0:1 Rochdale — Port Vale 3:3 Scunthorpe — Peterborough 2:0 Staðan 1. deild Man. Utd. 25 17 4 4 45-15 55 Everton 26 15 5 6 60-35 50 Chelsea 24 15 5 4 39-23 50 Llverpool 26 14 8 4 59-27 50 West Ham 24 14 6 4 39-20 48 Sheff. Wed. 25 12 7 6 40-39 43 Arsenal 24 12 6 6 28-26 42 Luton 26 11 8 7 41-29 41 Nott. For. 26 12 4 10 44-38 40 Newcastle 25 9 9 7 35-37 36 Tottenham 25 10 5 10 39-31 35 Watford 25 9 6 10 40-42 33 Man. City 26 8 8 10 30-33 32 Southampton 25 8 6 11 33-36 30 QPR 25 9 3 13 27-35 30 Coventry 25 6 7 12 32-43 25 Leicester 26 6 7 13 33-47 25 Aston V. 26 5 9 12 31-41 24 Oxford 25 5 8 12 37-52 23 Ipswich 26 6 5 15 20-38 23 Birmingham 25 5 3 17 14-35 18 WBA 26 2 7 17 23-60 13 2. deild Norwich 25 15 6 4 51-23 51 Portsmouth 25 15 4 6 44-20 49 Wimbledon 26 12 6 8 34—28 42 Charlton 23 12 4 7 41-27 40 Brighton 25 12 4 9 44-36 40 Sheff. Utd. 26 11 7 8 43-37 40 Hull 26 10 8 8 42-36 38 Crystal P. 25 11 5 9 32-30 38 Barnsley 26 10 7 9 27-26 37 Blackburn 24 9 8 7 28-30 35 Stoke 25 8 10 7 32-31 34 Bradford 23 10 3 10 27-32 33 Shrewsbury 26 9 5 12 33—39 32 Leeds Utd. 26 9 5 12 34-45 32 Sunderland 26 9 5 12 27-39 32 Grimsby 25 8 7 10 39-37 31 Oldham 25 9 4 12 36-41 31 Huddersfield 25 7 9 9 36-41 30 Millwall 23 8 3 12 35-41 27 Middlesbr. 25 7 6 12 21-29 27 Fulham 22 7 3 12 23-31 24 Carlisle 24 4 3 17 21-51 15 Öll efstu liðin unnu Man. United heldur enn öruggri forystu Frá Bob Hennessy, fróttamanni Morgunblaðsins Englandi, og AP. MANCHESTER UNITED heldur enn öruggri forystu sinni í ensku 1. deildinni í knattspyrnu. United sigraði Oxford á laugardaginn 3—1 og er nú með fimm stiga forystu í deildinni. Everton, Chelsea, Liverpool og West Ham unnu öll si'na leiki um helgina og fylgja fast á eftir í toppbaráttunni. Mark Hughes skoraði stórglæsilegt mark fyrir United gegn Oxford. Spánska félagið Barcelona vill kaupa þennan skemmti- lega leikmann og hefur boðið United 2 milljónir punda fyrir kappann. Ron Atkinson, framkvæmdastjóri Utd., segir að hann fari ekki fyrr en eftir þetta keppnistímabil. Paul Walsh skoraði tvennu fyrir Liver- pool gegn Watford og lan Rush skoraði sitt fyrsta mark í 10 leikjum. Tottenham mátti þola stórtap á heimavelli sínum gegn Notthingham Forest. Gary Lineker skoraði fyrir Everton og er nú markahæstur f 1. deild með 22 mörk. Oxford var betra liðið gegn Manchester United í fyrri hálfleik. Þvert á gang leiksins skoraði Norman Whiteside, sem var fyrir- liði, fyrsta mark leiksins á 12. mín- útu og þannig var staðan í hálfleik. David Leworthy jafnaði fyrir Ox- ford í upphafi seinni hálfleiks, þetta var hans 4. mark í fimm leikjum, síðan hann kom til Oxford frá Tottenham. Mark Hughes skoraði síðan stórglæsilegt mark, fékk sendingu fyrir markið og skoraði með viðstöðulausu þrumuskoti í netið. Áður en yfir lauk skoraði Colin Gibson þriðja markið og sigurinn öruggur. United náði sér vel á strik í seinni hálfleik og var sigurinn sanngjarn. Áhorfendur voru 13.250. Þrjú mörk á 13 mínút- um hjá Everton Mikið markaregn var á Goodi- son Park í leik Everton og QPR og voru skoruð alls sjö mörk. Gestirnir skoruðu tvívegis áður en Everton tókst að skora. Gary Bannister skoraði fyrsta markið fyrir QPR eftir aðeins 12 mínútur. John Byrne skoraði annað markið sem var stórglæsilegt, með vinstri, af löngu færi 13 mínútum seinna. Það var svo einni mínútu fyrir hálf- leik að Graeme Sharp skoraöi úr vítaspyrnu, sem dæmd hafði verið á Steve Wicks. Það var svo á 13. mínútu í seinni hálfleik sem leik- menn Everton gerðu út um leikinn. Fyrst jafnaði Gary Lineker á 55. mín., Paul Wilkinson, sem komið hafði inná sem varamaður, kom heimamönnum yfir tveimur mínút- um síðar og á 68. mínútu skoraði Lineker aftur og var þetta jafn- framt hans 22. mark í deildinni, þar sem hann er nú markahæstur. Fjórum mínútum fyrir leikslok skor- aði svo Bannister þriöja mark QPR. Tvenna hjá Walsh Liverpool átti í töluverðum vand- ræðum með Watford í fyrri hálfleik. Töluverðar stöðubreytingar voru hjá liðinu og voru leikmenn tals- verðan tíma að finna s!g. Jan Molby lék sem aftasti maður í vörninni og Ronnie Whelan lék sem bak- vörður og Kenny Dalglish var ekki með. Kenny Jackett skoraði fyrsta markið fyrir Watford á 16. mínútu, með góðu vinstrifótarskoti. Paul Walsh, sem enn er á sölulista hjá Liverpool, jafnaði einni mínútu fyrir hálfleik, eftir góðan undirbúning Craig Johnstons. Seinni hálfleikur- inn var svo eign Liverpool og náðu þeir þá vel saman. Walsh skoraði aftur í upphafi seinni hálfleiks og kom Liverpool yfir. Það var svo lan Rush, sem skoraði loks eftir 10 leiki í röð án þess að koma knettin- um í netið, er 14 mínútur voru til leiksloka. Markið var sérlega glæsilegt, Rush fékk sendinu frá Johnston inn í vítateiginn þar sem hann tók knöttinn niöur og skoraði með fallegu skoti. Jan Lohman átti svo síðasta orðið er hann skoraði rétt fyrir leikslok, eftir mistök hjá Bruce Grobbelaar í markinu. Slæmt gengi hjá Tottenham Tottenham hefur ekki gengið vel að undanförnu. Liðið mátti þola stórtap, 0—3, á heimavelli sínum, White Hart Lane, gegn Notting- ham Forest. Enski framherjinn Peter Davenport skoraði tvívegis fyrir Forest, en fimm mörk hefðu verið nærri lagi, því hann óð i marktækifærum. Það var fyrst og fremst góð markvarsla Ray Clem- ence í markinu sem bjargaði því að mörkin voru ekki fleiri. Þriðja mark Forest gerði Colin Walsh. Þetta er einn slakasti leikur Totten- ham í vetur. Leikmenn virtust þreyttir og áhugalausir. Tíu leikir í röð án taps David Speedie skoraði sitt 15. mark fyrir Chelsea gegn Luton. Þetta reyndist eina mark leiksins og var þetta jafnframt 10. leikur Chelsea í röð án taps. Luton var betra liðið í fyrri hálfleik en Chelsea i þeim seinni. Markið kom á 54. mínútu. Chelsea er því enn með í toppbaráttunni í deildinni. Markaskorarinn mikli, Frank McAvennie, gerði sigurmark West Ham gegn Leicester á útivelli. Þetta var 20. mark hans á tímabil- inu. Leicester fékk þó tækifæri til að jafna er þeir fengu vítaspyrnu, en Phil Parkes varði naumlega frá Gary McAllister. Shilton í stuði David Phillips skoraði eina mark Manchester City gegn Southamp- ton er aðeins fjórar mínútur voru til leiksloka. City sótti nær látlaust allan leikinn og var það fyrst og fremst fyrir frábæra markvörslu Peter Shiltons í marki Southamp- ton, að mörkin urðu ekki fleiri. Southampton hefur ekki unnið leik á útivelli í 10 mánuði. Coventry, sem aldrei hefur unniö Aston Villa, mátti sætta sig við jafntefli eftir að hafa haft tvö mörk yfir í hálfleik. Brian Kilcline skoraði tvennu fyrir Coventry og Cyrille Regis eitt. Simon Stainrod skoraði fyrst fyrir Villa og Andy • Gary Lineker, Everton, er nú markahæstur í ensku 1. Hann hefur skorað 22 mörk. deildinni. Gray bætti öðru markinu við. Það var svo nýi leikmaðurinn hjá Villa, Paul Elliott, sem jafnaði 11 mínút- um fyrir leikslok. Birmingham ekki unn- ið leik í tæpa fjóra mánuði Birmingham er nú komið í bull- andi fallhættu og hefur liðið ekki unnið leik síðan 21. september. Liðið tapaði fyrir Ipswich á laugar- daginn, 0—1. Kevin Wilson skoraði eina mark leiksins eftir mistök David Seamans, markvarðar, á 34. mínútu. Imri Varadi. skoraði jöfnunar- mark WBA um miðjan seinni hálf- leik og bjargaði þar með öðru stig- inu fyrir heimamenn. Newcastle tók forystuna í fyrri hálfleik með marki Ken Whartons. Lineker markahæstur GARY Lineker, Everton, er nú markahæstur f ensku 1. deildinni í knattspyrnu. Kappinn hefur gert 22 mörk í 26 leikjum. Frank Bunn, Hull, er markahæstur í 2. deild með16mörk. Hér fer á eftir listi yfir marka- hæstu leikmenn 1. og 2. deildar: mörk Gary Lineker, Everton, 22 Kerry Dixon, Chelsea, 21 Frank McAvennie, West Ham, 20 Mike Newell, Luton, 19 John Aldrige, Oxford, 17 2. deild: Frank Bunn, Hull, 16 Kevin Drinkell, Norwich, 15 Gordon Hubson, Grimsby, 15 Keith Bertschin, Stoke, 15 Til sölu Manta LC 500 Þessi stórglæsilegi vélsleöi er til sölu á góöu verði. Hann er svo til ónotaöur, búinn 85 hestafla EI-Tigre-vél, tveggja belta með hámarkshraöa um 140 km. Frábærir aksturseiginleikar og algjört augnayndi. Ennf remur til sölu eftirfarandi Bens-bílar í toppstandi og með lága km.tölu. Mánaðar afgreiöslutími: Mercedes Bens 450 SE74, verð kr. 450.000,- Mercedes Bens 350 SE ’77, verð kr. 550.000,- Mercedes Bens 280 SE ’77, verö kr. 550.000,- I Mercedes Bens 280 E79, verð kr. 550.000,- Upplýsingar í síma 61-12-10 < 4t’

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.