Morgunblaðið - 14.01.1986, Qupperneq 47
MORGUNBLABIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986
47
Páll og Atli léku vel
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni fróttamanni Morgunblaðsins <d Vestur-Þýskalandi.
HANDKNATTLEIKSHELGIN hér í
Þýskalandi var nokkuð spennandi
og skemmtileg og ijóst er að það
verða Essen og Grosswaldstadt
sem berjast um titilinn að þessu
sinni. Bseði liðin unnu um helgina
Forest
féll úr
bikarnum
NOKKRIR leikir voru í 3. umferð
bikarkeppninnar ensku í gœr.
Helstu tíðindi urðu þau að Black-
burn sló Nottingham Forest úr
keppninni. Vann 3:2 og Peter
Davenport bað um að fá sölu frá
Forest. Þetta gerðist fyrir leikinn
en hann er eitthvað óhress með
stjórn fálagsins.
Önnur óvænt úrslit urðu þau að
Carlisle vann QPR, 1:0, og Notts
County vann Stoke með tveimur
mörkum gegn engu. Úrslit annarra
leikja urðu þessi:
Bury — Barnsley
Middlesbr. — Southampton
Sheff. Utd. — Fulham
Sheff. Wed.-WBA
Aston Villa — Portsmouth
Bradford — Ipswich
Reading — Huddersfield
Þess má geta að framlengja
þurfti leik Aston Villa og Ports-
mouth en staðan eftir venjulegan
leiktímavar 1:1
2:0
1:3
2:0
2:2
3:2
0:1
2:1
þó svo sigur Grosswaldstadt
hefði verið minni en menn bjugg-
ust við. Aifreð Gíslason átti enn
einn stórleikinn með Essen og
Páll Ólafsson var besti maður
vallarins er Dankersen vann
Göppingen.
Grosswaldstadt sótti Hofweier
heim og vann 21:23 eftir æsi-
spennandi og sögulegan leik.
Grosswaldstadt hefur nú fengið
15 stig úr síðustu átta leikjum og
virðist óstöðvandi um þessar
mundir. Þeir höfðu 20:14 yfir er
fimmtán mínútur voru eftir af leikn-
um á laugardaginn en þá gerðist
umdeilt atvik sem breytti gangi
leiksins.
Leikmaður Hofweier skaut í
andlit markvarðar Grosswaldstad
úr vítakasti og meiddist hann tals-
vert - gat ekki leikið meira með
og er nú á sjúkrahúsi þar sem
verið er að athuga meiösl hans.
Dómarar leiksins veittu vítaskytt-
unni rautt spjald og þá trylltist allt
í höllinni. Heimaliðið vaknaði af
værum blundi og 2.200 áhorfendur
studdu vel við bakið á þeim þannig
að þeim tókst að minnka muninn
en ekki nægjanlega þó.
Flestir bjuggust við öruggum
sigri Essen er liðið lék við Gumm-
ersbach á heimavelli sínum. Sér-
staklega vegna þess að Neitzel
og Krokowski léku ekki með. í
upphafi leiksins virtist allt stefna í
stórsigur því Essen komst í 6:1
og hefðu veriö meira yfir ef ekki
hefði verið fyrir frábæra mark-
vörslu Thiel.
Rasmussen átti góðan leik og
minnkaði muninn fyrir Gummers-
bach og í síðari hálfleik var jafn-
ræði mikið með liðunum. Þegar
ein mínúta var eftir var 17:17 og
Gummersbach í sókn en einum
leikmanni færri. Þeir misstu bolt-
ann og Alfreð skoraði úr hraðaupp-
hlaupi er hálf mínúta var eftir.
Hann var því hetja Essen í leiknum,
skoraði fimm mörk og var hreint
óstöðvandi. Þjálfari Gummersbach
var rekinn í sturtu í síðari hálfleik.
Páll Ólafsson átti mestan þátt
í góðum sigri Dankersen yfir Göpp-
ingen. Páll skoraði 8 mörk í leikn-
um en Dankersen vann 30:15. Páll
var talinn besti maður vallarins í
þessum mikilvæga sigri þeirra fé-
laga.
Atli Hilmarsson og félagar hjá
Gunsburg virðast eiga erfitt upp-
dráttar um þessar mundir. Liðiö
tapaði sínum þriðja leik í röð um
helgina, nú gegn Berlin. Bæði liðin
eru í fallhættu en lokatölur urðu
21:13. Atli gerði tvö mörk.
Schwabing vann Flensborg
28:27 og Dusseldorf vann Dort-
mund 19:15.
Kiel lék ekki um þessa helgi en
á föstudaginn lék liðið æfingaleik
við heimsmeistara Sovétmanna og
lauk þeim leik með 25:24 sigri
Sovétmanna. Leikurinn var hraður,
skemmtilegur og vel leikinn.
í annari deildinni vann Hameln
lið Flensburg 21:19 en Bjarni og
félagar hjá Wanne Eickel töpuðu á
heimavelli fyrir Bergkamen 18:21.
Það verða Hameln, lið Kristjáns
Arasonar, og Bayern Dormagen
sem berjast um sigur í annarri
deildinni.
KR velgdi Haukum
stundum undir uggum
HAUKAR lögðu KR-inga að velli í
úrvalsdeildinni f körfuknattleik á
sunnudag í Hagaskóla með 88
stigum gegn 79. í hálfleik munaði
einnig níu stigum er staðan var
50-41 fyrir Hauka.
Haukarnir tóku forystu strax á
fyrstu minútu og höfðu jafnan
undirtökin. Framan af var leikurinn
þó jafn og KR-ingar héldu í fullu
tré við Haukana fyrsta kortériö,
en rétt fyrir hlé náöu Haukarnir
góðum kafla og komust um tíma
10 stigum yfir, 42-32.
Mikill hraði einkenndi leik lið-
anna í fyrri hálfleik, einkum þó
Haukanna. KR-ingar börðust eins
og Ijón og um tíma velgdu þeir
Haukunum undir uggum er á seinni
hálfleikinn leið.
Haukar byrjuðu seinni hálfieik
af krafti og náðu 14 stiga forystu,
57-43, en síðan kom góður kafli
hjá KR, sem minnkaði muninn í
fjögur stig, 60-56, er 12 mínútur
voru eftir. Um tíma munaði aðeins
tveimur stigum og er 6 mínútur
voru eftir var staðan 74-73 fyrir
Hauka og allt gat gerst þar sem
beztu menn beggja liða voru
komnir í mikil villuvandræði.
Á síðustu mínútunum kom
munurinn á liðunum hins vegar í
Ijós og Haukunum tókst að ná aftur
8 stiga forystu, 81 -83, þegar rúmar
fjórar mínútur voru eftir og er
röskar tvær mínútur lifðu var stað-
an 84-75 og hélzt sá munur til
leiksloka.
Leikurinn var fjörugur á að horfa
og vel leikinn hjá báðum liðum.
Ört var skipt um leikkerfi og varn-
araðferðir og hraði góður. Hjá
Haukum fór Ólafur Rafnsson á
kostum í fyrri hálfleik og skoraði
þá hverja þriggja stiga körfuna af
annarri úr bláhorni vallarins, alls
14 stig. ívar Webster átti mjög
góðan leik, stöðvaði marga sókn
KR-inga ýmist með því að hiröa
frákast eða blokkera skot. Hann
lagði mörg stig Haukanna upp auk
þess að skora 15 sjálfur. Pálmar
átti einnig mjög góðan leik og
skoraði margar mikilvægar körfur
í seinni hálfleik þegar sem mestur
gállinn var á KR-ingum.
KR-ingar áttu einn af sínum
betri leikjum í vörn og sókn. Páll
Kolbeins var atkvæðamikill og gíf-
urlegu munar um endurkomu
Guðna Guðnasonar, sem lék nú
sinn fyrsta leik eftir meiðsl. Skoraði
hann 10 stig í röö í seinni hálfleik
þegar KR-ingar gerðu hvað harð-
asta hríð að Haukunum.
Stig KR: Páll Kolbeins 22, GuÖni Guöna 15,
Birgir Mikaels 14, Garöar Jóhanns 8, Þorsteinn
Gunnars 8, Matthías Einars 6, Guðmundur
Björns 4 og Samúel 2.
Stig Hauka: Pálmar Sigurös 25, Ólafur
Rafns 16, ívar Webster 15, Henning Hennings
14, ívar Ásgríms 6, Reynir Kristjáns 6, Kristinn
Kristins 4 og Bogi Hjálmtýsson 2.
- ágás.
• Þeir fálagar Kristján Sigmundsson og Steinar Birgisson úr Vfkingi
eru einu leikmenn líðsins sem unnið hafa til allra þeirra titla með
fálaginu sem taldir eru upp hárna á sfðunni til vinstri. Frábær árangur
hjá þeim félögum. Morgunblaðið/Bjarni
Opið bréf til stjórnar
„Afreksmannasjóðs“ ÍSÍ
NÝLEGA veitti „Afreksmanna-
sjóöur" ÍSÍ styrki til í þrótta-
manna og sérsambanda innan
ÍSÍ. í blaðafréttum var greint frá
því að þessir styrkir væru veittir
vegna góðs árangurs viðkomandi
íþróttamanna og til undirbúnings
þátttöku í Olympíuleikunum
1988.
Það er alltaf vandáverk að
veita slíka styrki og umdeilanlegt
hverjir hafi unnið til þeirra. Ef
þetta væri í fyrsta eða annað
sinn sem styrkir eru veittir úr
þessum sjóöi myndi ég láta málið
kyrrt liggja, en þar sem svo er
ekki get ég ekki þagað lengur.
Allir þeir íþróttamenn sem
styrk hlutu eru allrar virðingar
veröir og hinir ágætustu íþrótta-
menn, en því miður eru ekki
nema tveir þeirra sem eru
íþróttamenn á heimsmælikvarða
og kannski tveir til viðbótar á
Evrópumælikvarða, hinir kæm-
ust ekki einu sinni í Norðurlanda-
úrval.
Hinsvegar eru þrír fatlaðir
íþróttamenn sem allir hafa unnið
til afreka á heimsmælikvarða á
þessu ári, þ.e.a.s. Baldur Guðna-
son sem vann bæði silfur- og
bronsverðlaun á Heimsleikum
mænuskaðaðra sl. sumar, Hauk-
ur Gunnarsson sem vann bæði
silfur- og bronsverðlaun á Evr-
ópumóti sl. sumar og síöast ekki
síst Jónas Óskarsson sem setti
heimsmet í 100 m baksundi sl.
vor. Auk þess unnu bæði Jónas
og Haukur til verðlauna á Ólymp-
íuleikum fatlaðra 1984.
Ég hlýt því að spyrja stjórn
„Afreksmannasjóðs" (SÍ: Lítur
hún á íþróttir fatlaðra sem ein-
hverskonar þriðja flokks íþróttir?
Telur hún íþróttasamband fatl-
aðra einhverskonar „aukauaðila
að (Sí?
Ef svo er ekki, eftir hverju í
veröldinni er þá farið þegar
ákveðið er hvernig veitt er úr
„Afreksmannasjóði" ÍSÍ?
Með íþróttakveðju,
Amór Pétursson,
fyrrv. formaður
íþróttafálags fatlaðra
f Reykjavík og nágrennl.
• Þorbergur Aðalsteinsson kom til móts við iandsliðið f handknatt-
leik á flugvellinum í Kaupmannahöfn í gær en liðið ieikur sinn fyrsta
- leik á Baltic-Cup f kvöld gegn Dönum. Hár sást hann ásamt Guð-
mundi Guðmundssyni og í baksýn er Guðjón Guðmundsson aðstoðar-
maður Bogdans. Morgunblaðið/Valur
Þorbergur í
landsliðshópinn
Frá Val Jónatanssyni, blaðamannl Morgunblaðsins í Danmörku.
ekki með að þessu sinni. Einnig
er enn óvist um hvort þeir Atli
ÍSLENSKA landsliðið f handknatt
leik kom hingað til Danmerkur f
gær en fyrsti leikurinn f Baltic
Cup-mótinu verður í kvöld klukk-
an 18.30 að fslenskum tfma.
Þorbergur Aðalsteinsson kom til
móts við hópinn á flugvellinum í
Kaupmannahöfn en þaðan hált
hópurinn til Vejle þar sem hann
mun dvelja fram á laugardag, en
þá lýkur mótinu.
Þorbergur Aðalsteinsson mun
leika tvo fyrstu leikina með ís-
lenska liðinu, gegn Dönum og
Austur-Þjóðverjum, en síðan mun
hann fara til Svíþjóðar þar sem lið
hans, Saab, á að leika. Þorbergur
lék um helgina með liði sínu gegn
Clif og átti stórleik í 31:25 sigri
þeirra. Hann var tekinn úr umferð
allan leikinn en skoraði engu að
síður ellefu mörk.
Þeir leikmenn sem héldu frá ís-
landi í gærmorgun voru markverð-
irnir Kristján Sigmundsson, Ellert
Vigfússon og Brynjar Kvaran. Aðrir
leikmenn voru Guðmundur Guð-
mundsson, Júlíus Jónasson, Þor-
gils Óttar Mathiesen, Steinar Birg-
isson, Þorbjörn Jensson, Geir
Sveinsson, Valdimar Grímsson og
Egill Jóhannesson. Þorbergur kom
síðan til móts við þá eins og áður
greinir og Kristján Arason hitti þá
íVejle.
Þær fréttir biðu landsliðshóps-
ins er til Vejie kom að Sigurður
Gunnarsson og Einar Þorvarðar-
son kæmust ekki í leikina. Mót-
herjar þeirra á Spáni vildu ekki
fresta leik þeirra og því leika þeir
Hilmarsson, Alfreð Gíslason og
Páll Ólafsson geta leikið með en
líklegt er að þeir nái að leika þrjá
síðustu leikina.
Bjarni Guðmundsson meiddist í
leik með liði sínu um helgina og
getur ekki leikið með í þessu móti
þannig að talsvert verður um for-
föll í þessum undirbúningi liðsins
fyrir lokakeppni heimsmeistara-
keppninnar sem verður í lok febrú-
ar.
íslenska liðið mun æfa í Vejle
fyrir hádegi í dag en leikurinn við
Dani hefst síðan klukkan 18.30 að
íslenskum tíma í dag. Byrjunarliðið
verður líklega þannig aö Kristján
Sigmundsson verður í markinu.
Valdimar Grímsson og Guðmund-
ur Guðmundsson leika í hornunum
og Þorgils Óttar verður á línunni.
Fyrir utan leika þá Kristján Arason,
Steinar Birgisson og Þorbergur
Aðalsteinsson.
Leikið íkvöld
í KVÖLD verða tveir fyrstu leikirn-
ir f 8-liða úrslitum bikarkeppni
KKÍ. Þá leika í Seljaskóla ÍR - IBK
og Valur — Fram. Fyrri leikurinn
hefst klukkan 20. Þetta eru fyrri
leikir liðanna en samkvæmt nýj-
um reglum um bikarkeppni er
leikið heima og að heiman í
þessari umferð og einnig f undan-
úrslitunum.