Morgunblaðið - 05.02.1986, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra:
Samningamenn fá ,jákvætt“
svar frá ríkissljórninni
Þorleifur Thor-
lacius látinn
ÞORLEIFUR Thorlacius sendi-
herra lést á mánudaginn í sjúkra-
húsi. Hann átti við alvarleg veik-
indi að striða um nokkuð skeið.
Þorleifur Thorlacius fæddist 18.
apríl 1923. Hann varð stúdent á
Akureyri 1943 og aðstoðarmaður í
utanríkisráðuneytinu 1944—45.
Settur fulltrúi í utanríkisráðuneyt-
inu 1. október 1947 og skipaður
fulltrúi árið eftir. Hann var skipaður
sendiráðsritari í Osló 1. nóvember
1952, skipaður sendiráðunautur 1.
september 1958 og skipaður deild-
arstjóri í utanríkisráðuneytinu 1.
október 1960. Hann gegndi starfi
forsetaritara frá 1962—1968 og sat
í orðunefnd þau ár. Þorleifur var
skipaður sendiráðunautur í Bonn
1. apríl 1968 og jafnframt vara-
fastafulltrúi hjá Evrópuráðinu frá
15. mars 1970. Fjórum árum síðar
var hann skipaður sendifulltrúi í
Kaupmannahöfn og prótókollsstjóri
utanríkisráðuneytisins varð hann
1. ágúst 1983 og jafnframt fasta-
fulltrúi hjá Evrópuráðinu öðru sinni
frá 14. nóvember 1983. Þorleifur
Thorlacius var skipaður sendiherra
í utanríkisþjónustunni 15. nóvem-
ber 1983. Hann var sæmdur ýmsum
heiðursmerkjum fyrir embættis-
störf.
Eftiriifandi eiginkona hans er
Guðrún Einarsdóttir, þau eignuðust
ijögur böm.
Samningamenn verkalýðs-
hreyfingar og atvinnurekenda fá
í dag „jákvætt svar“ frá ríkis-
stjóminni við erindi sínu frá þvi
fyrir helgi um aðgerðir af hálfu
stjómarinnar til að greiða fyrir
BJÖRN Þórhallsson verður sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins kosinn formaður stjóraar
Þróunarfélagsins á föstudaginn,
en þá á að halda fyrsta stjórnar-
fundinn eftir að Davíð Scheving
Thorsteinsson stjómarformaður
og Hörður Sigurgestsson, sögðu
af sér þegar meirihluti stjórnar-
innar ákvað að ráða Gunnlaug
Sigmundsson sem framkvæmda-
stjóra félagsins.
Núverandi varaformaður stjóm-
ar Þróunarfélagsins, Þorsteinn Ól-
afsson, framkvæmdastjóri hjá
Sambandi íslenskra samvinnufé-
laga, verður í sæti stjómarfor-
manns í upphafi fundarins á föstu-
dag en síðan kýs stjómin sér nýjan
formann. Bjöm Þórhallsson er
INNLENT
gerð kjarasamninga, að þvi er
Steingrimur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sagði í samtali við
blm. Morgunblaðsins í gær. Rík-
isstjórnin fól í gærmorgun hon-
um og Þorsteini Pálssyni fjár-
annar tveggja varamanna, sem
gengu upp í stjómina eftir að þeir
Davíð og Hörður sögðu af sér. Hinn
er Gunnar Ragnars, forstjóri Slipp-
stöðvarinnar á Akureyri.
78 TOGARAR af 106 hafa nú
ákveðið að haga veiðum sínum
eftir sóknarmarki á þessu ári eða
meira en helmingi fleiri en á sið-
asta ári. Alls hafa útgerðir 292
skipa ákveðið að hafa þennan
háttinn á, en 135 gerðu svo í
fyrra. Frestur til ákvarðanatöku
er runninn út, en einhverjar til-
kynningar em enn óafgreiddar.
Sé farið eftir flokkum skipa
samkvæmt veiðiheimildum lítur
skiptingin milli aflamarks og sókn-
armarks þannig út. Togarar alls
106, 78 á sóknarmark, í fyrra 29.
Almennir bátar alls 199, á sóknar-
mark 133, í fyrra 72. Sfldarbátar
alls 100, 33 á sóknarmark, 15 í
fyrra. Humarbátar alls 56, 35 á
málaráðherra að ganga frá svari
stjóraarinnar til samningamanna
vinnumarkaðarins.
„Ríkisstjómin ræddi þetta mál
ítarlega og er alveg sammála um
að sjálfsagt sé að vinna að lausn
yfirstandandi deilna á þessum
grundvelli enda náist um þá lausn
breið samstaða — samningar takist
á grundvelli þeirra tillagna, sem
samningsaðilamir hafa sett frarn,"
sagði forsætisráðherra. Hann kvað
brýnt að nýta það tækifæri, sem
nú gæfist með batnandi viðskipta-
kjörum og lækkandi olíuverði til að
ganga til samninga og komast hjá
átökum á vinnumarkaði. Steingrím-
ur sagði að vel kæmi til greina að
endurskoða verðlagsákvarðanir,
sóknarmark, 11 í fyrra. Humar- og
sfldarbátar alls 25, 13 á sóknar-
mark, 8 í fyrra. Fjöldi skipanna
eftir flokkum miðast við tölur síð-
asta árs nema í togaraflokknum.
Útgerðir rækjubáta og skelbáta
þurfa ekki að ákveða sig strax, en
rækjubátar em alls 91 og skelbátar
39. Loðnuskipin eru 48, en þau fá
ekki leyfi til veiða eftir sóknar-
marki, aðeins aflamarki, sem tak-
markast um 0,5% loðnuafía þeirra,
umreiknuðum í aðrar tegundir. 18
loðnuskip hafa tekið það mikinn
afla, að þau fá ekki leyfí til botn-
fískveiða.
Hluti skýringarinnar á auknum
áhuga á sóknarmarki er, að í afla-
marki hafa allmörg skip fremur
sem þegar hefðu verið teknar -
enda hefðu þær verið teknar á
grundvelli annarra forsenda en nú
væru.
Að loknum fundinum með full-
trúum Alþýðusambandsins, Vinnu-
veitendasambandsins og Vinnu-
málasambands samvinnufélaganna
í dag munu forsætis- og fjármála-
ráðherra eiga fund með forystu-
mönnum BSRB og kynna þar af-
stöðu sína en eins og fram hefur
komið eru kröfur BSRB í yfírstand-
andi samningaviðræðum nánast
samhljóða kröfum aðildarfélaga
ASÍ.
Næsti fundur samninganefnda
VSÍ/VMSS og ASÍ verður haldinn
á morgun.
fyran þorskkvóta og geta aukið
hann, í sumum tilfellum talsvert, í
sóknarmarki. Við veiðar eftir sókn-
armarki, er útgerðum annars vegar
heimilt að bæta 20% ofan á áunnið
þorskaflamark eða miða þorskafl-
ann við ákveðið hámark eftir svæð-
um og stærð skipa. í sóknarmarki
eru ekki takmarkanir á hámarks
afla annarra tegunda en þorsks.
Sóknarmarksskipum er óheimilt að
selja eða kaupa kvóta og verða að
takmarka veiðar sínar við ákveðinn
dagafjölda. Aflamarksskipum er
hins vegar heimilt að selja og kaupa
kvóta og stunda veiðar án annarra
takmarkana en hámarksafla af
hverri tegund.
Björn Þórhallsson nýr for-
maður Þróunarfélagsins
7 8 togarar á sóknarmark
— helmingi fleiri á sóknarmark nú en í fyrra
Jacquline Picasso og Ing-
mar Bergmann heiðursgestir
Listahátíð í Reykjavík 1986:
MEÐAL listamanna sem væntanlega koma á Listahátíð í Reykja-
vík verður bandaríska þjóðlagasöngkonan Joan Baez og jasspían-
istinn frægi Herbie Hancock. Þetta kom meðal annars fram á
blaðamannafundi sem Framkvæmdanefnd Listhátíðar í Reykjavík
hélt til að kynna bráðabirgðadagskrá hátíðarinnar sem mun
standa frá 31. maí til 17. júní í sumar. Heiðursgestir hátíðarinnar
verða frú Jacquline Picasso ekkja Pablos Picasso og sænski
kvikmyndaleikstjórinn Ingmar Bergmann.
Morgunblaðið/Júlíus
Framkvæmdanefnd Listahátíðar í Reykjavík 1986. Frá vinstri:
Kristin Jóhannesdóttir kvikmyndaleikstjóri, Birgir Sigurðsson
rithöfundur, blaðafulltrúi Listahátíðar, Hrafn Gunnlaugsson full-
trúi Reykjavíkurborgar í nefndinni og formaður hennar, Salvör
Nordal framkvæmdastjóri Listahátíðar, Stefán Baldursson leik-
hússtjóri og Kristinn Hallsson fulltrúi ríkisins i nefndinni. Þau
Kristín, Birgir og Stefán era fulltrúar listamanna í nefndinni.
Listahátíð hefst með opnun
Pieasso-sýningar á Kjarvalsstöð-
um. Þar verður Jacquline Picasso
viðstödd. Þá mun Doris Lessing
rithöfundur afhenda verðlaun í
smásagnasamkeppni Listahátíð-
ar. Fýrstu verðlaun eru 250.000
krónur, önnur verðlaun 100.000
krónur og þriðju verðlaun 50.000
krónur. Að lokum verður flutt
verk Hafliða Hallgrímssonar sem
hann hlaut tónskáldaverðlaun
Norðurlandaráðs 1986 fyrir. Síðar
sama dag verða fyrstu af þremur
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
íslands. Einleikari á tónleikunum
verður Cecile Licad. Hún stundaði
nám hjá Rudolf Serkin í átta ár
og er aðeins 25 ára gömui. Bassa-
söngvarinn Paata Burchuladze
syngur með Sinfóníuhljómsveit-
inni föstudaginn 6. júní í Há-
skólabíói. Burchuladze er frá
Sovétrflq'unum. Þrátt fyrir að
hann sé ungur að árum hefur
hann hlotið mikið lof fyrir söng
sinn. Kristinri Hallsson, sem er
fulltrúi ríkisins í Framkvæmda-
nefndinni, sagði að það væri
mikill fengur að fá hann á Lista-
hátíð nú þegar hann er að byija
feril sinn. Á þriðju og síðustu tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitarinnar
sem haldnir verða laugardaginn
14. júní í Háskólabfói syngur
ítalska sópransöngkonan Katia
Ricciarelli einsöng.
Herbie Hancock einn af fræg-
ustu jasspíanistum heims leikur í
Broadway fímmtudaginn 5. júní.
Fjórir bandarískir slagverksleik-
arar frá The New Music Consort
í New York halda tónleika á
Kjarvalsstöðum laugardaginn 7.
júní. Með þeim munu leika þeir
Halldór Haraldsson og Gísii
Magnússon píanóleikarar. Á efn-
isskránni eru verk eftir innlend
og erlend tónskáld, þar á meðal
Áskel Másson og Guðmund Haf-
steinsson. Ungur sænskur ljóða-
söngvari Thomas Lander, bariton,
syngur við undirleik Jan Eyron í
Gamla bíói sunnudaginn 8. júní.
Lander er aðeins 25 ára gamall
en hefur fengið mjög góða dóma
fyrir ijóðasöng. Hinn heimsfrægi
píanóleikari Claudio Arrau heldur
einleikstónleika í Háskólabíói 9.
júní. Hann er nú kominn yfír átt-
rætt, en er þrátt fyrir háan aldur
einn af fremstu píanóleikurum
heims í dag. í Dómkirkjunni verða
tónleikar enska organistans Colin
Andrews þriðjudaginn 10. júní. Á
efnisskrá hans er meðal annars
orgelsónata eftir Gunnar Reyni
Sveinsson. Guðni Franzson klari-
nettuleikari flytur verk eftir 7 ung
íslensk tónskáld í Norræna húsinu
miðvikudaginn ll.júní.
Bandaríska þjóðlagasöngkonan
Joan Baez kemur á Listahátíð og
mun hún halda tónleika í Broad-
way 12. júní. Dave Brubeck kvart-
ettinn, sem m.a. er frægur fyrir
flutning sinn á laginu Take Five
o.fl., spilar í Háskólabfói laugar-
daginn 14. júnf. Daginn eftir, 15.
júní, verða tónleikar Vínarkvart-
ettsins í Gamla bíói. í þessum
kvartett eru meðlimir úr Vínarfíl-
harmóníusveitinni. Meðal verka
sem hann flytur er Dauðinn og
stúlkan eftir Schubert.
Unglingamir fá líka eitthvað
við sitt hæfí á Listahátíð því
mánudaginn 16. júní og þriðju-
daginn 17. júní verður popphátíð
í Laugardalshöllinni. Þar munu
koma fram bæði íslenskar og
erlendar hljómsveitir. Hrafn
Gunnlaugsson formaður fram-
kvæmdanefndar Listahátíðar
sagði að búið væri að fá Steinar
Berg umboðsmann til liðs við
nefndarmenn, en ekkert væri enn
ákveðið um hvaða hljómsveitir
kæmu. Hann sagði að endilega
þyrfti að halda hressilega popp-
hátíð.
Sunnudaginn 1. júní verður
dagskrá með Doris Lessing rit-
höfundi. íslenskir leikarar lesa úr
verkum hennar. í tilefni komu
hennar til íslands mun Forlagið
gefa út bók hennar Grasið syngur.
Af öðrum listamönnum sem koma
á Listahátfð má nefna Flamengo-
hóp frá Spáni. Nola Rae og John
Mowat, breskir látbragðsleikarar,
flytja leiksýningu sem byggð er á
Rómeó og Júlíu, en sýning þessi
er styrkt af British Council,
Síðast en ekki síst má nefna
að á Listahátíð kemur gestaleikur
frá Dramaten í Stokkhólmi og
sýnir tvær sýningar á leikritinu
„Fröken Júiía" eftir August
Strindberg. Leikstjórinn Ingmar
Bergmann verður viðstaddur á
báðum sýningunum sem verða í
Þjóðleikhúsinu laugardaginn 7.
júní og sunnudaginn 8. júní. Sýn-
ing þessi er styrkt af Norræna
gestaleikjasjóðnum.
Fjórar listsýningar verða í
tengslum við Listahátíð. í austur-
sal Kjarvalsstaða verður sýningin
á verkum Pablo F*icasso eins og
áður er getið. Á sýningunni verða
55 verk úr einkasafni Jacquline
Picasso. í vestursal verður sýning-
in „Reykjavík í myndlist" sem
haldin er í tilefni 200 ára afmælis
Reylqavíkurborgar. í Listasafni
íslands verður stór yfírlitssýning
á verkum Karls Kvaran. Fyrir-
hugað er að í Norræna húsinu
verði sýning á olíumálverkum og
grafíkmyndum eftir norska mál-
arann Edward Munch, en ekki er
enn víst hvort af henni geti orðið.
Ef ekki verður reynt að fá í stað-
inn sýningu á myndum eftir annan
frægan norrænan listmálara.
Hrafn Gunnlaugsson sagði að
áætlaður heildarkostnaður við
Listahátíðina í sumar væri
21.300.000 krónur, en markmiðið
væri að Listahátíð stæði undir sér.
Gert er ráð fyrir að tekjur, inn-
gangseyrir og seldar auglýsingar
í dagskrá o.fl., nemi 13.600.000
krónum og framlög frá ríki og
borg auk erlendra aðiia nemi
7.700.000 krónum.
Á Listahátíð í Reykjavík 1986
verða færri atriði en verið hafa
áður á slíkum hátíðum, en að sögn
Hrafns hefur verið reynt að vanda
mjög til hennar. Einnig hefur
verið séð til þess að dagskráratriði
rekist ekki á og heyrir til undan-
tekninga ef tvær sýningar eru á
sama tíma.