Morgunblaðið - 05.02.1986, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1986
47
Séð yf ir í Hollywood. Morgunblaðið/Helgi J. Hauksson.
Hollywood tekur stakkaskiptum
Undanfamar vikur
hefur veitingastað-
urinn Hollywood tekið
stakkaskiptum og auk þess
að hafa nú fengið á sig nýtt
ytra útlit, þá er starfsfólk
staðarins einnig annað en
áður.
Að sögn framkvæmda-
stjórans, Baldurs Brjáns-
sonar, er stefnan að hækka
aldur gesta staðarins og
brydda upp á ýmsum nýj-
ungum, og munu búningar
á starfsfólkið vera á leið-
inni erlendis frá.
Nýir yfirmenn Hollywood. Framkvæmdastjóri Baldur Brjánsson,
Guðrún Reynisdóttir yfirþjónn, Kristjana Geirsdóttir veitinga- og
móttökustjóri og Pétur Snæbjörnsson veitingastjóri.
Að veita engin
viðtöl er besta
auglýsingin!
Robert De Niro er einn af þeim sem halda því
fram að það að neita því að koma fram í fjöl-
miðlum sé sú besta auglýsing sem hægt sé að huga
sér!
Ungir sem aldnir, feimnir eða framagjamir leikar-
ar, hafa tekið þessari uppástungu fegins hendi og
fetað í fótspor hans.
Sean Penn segir: „Eftir fyrstu mjmdina sem ég
lék í átti ég viðtöl á báða bóga, en fór svo að íhuga
hvað væri svona merkilegt við það í hvaða skóla ég
hefði farið og hvað ég gerði í tómstundum mínum.
Af hveiju langar fólk að vita hvað ég borða á
morgnana, hvað kemur það því við að ég fari ekki
í sund.
Þegar viðtölin við mig fóru að birtast í blöðum
og tímaritum fór dijúgur tími í að útskýra fyrir
fólki hvað ég hefði verið að meina... Tímasóun.
Mikil prýði???
Að hafa gluggatjöld þannig að hægt sé að draga
fyrir er eitt af því sem flestum þykir nauðsyn-
legt. Það er hinsvegar dálftið óvenjulegt að sjá hús-
veggi prýdda gluggatjöldum. Þessum húseiganda
finnst það hinsvegar fallegt að skreyta útvegginn hjá
sér með litskrúðugum tjöldum og geta dregið fyrir
hann þegar húma tekur.
COSPER
© PIB
GOSPER
— Standið á fœtur svo konan getí sest
Eigum fyrirliggjandi
★ BME-festingajárn í miklu úrvali
★ BULLDOG-festingajárn
★ KAMBSAUM
★ OREGON FURU, 1. fl. 21/2x5 og 3x6“.
★ DANSKT BEYKI kantsk., Ijóst og rauðl.,
ofnþurrkað.
★AMERÍSKA EIK, ofnþurrkaða 1 “ og 2“.
★ RAMIN 1“.
★ RASAÐAN OREGON PINE KROSSVIÐ
1/2“.
★ BAÐHERBERGISPLÖTUR OG LISTA.
• PÁLL ÞORGEIRSSON &C0,
Ármúla 27. Sími 686100.
Samband veitinga- og gistihúsa
mótmælir hækkun flugvallarskatts
Samband veitinga- og gistihúsa mótmælir harð-
lega þeirri ákvörðun stjórnvalda að hækka flug-
vallarskatt úr kr. 250 í kr. 750 frá og með 1.
mars 1986.
Erlendum ferðamönnum hefur fjölgað mikið á ís-
landi síðustu árin. Hlutur ferðaþjónustu í gjaldeyr-
istekjum hefur farið vaxandi og er nú meiri en
nokkru sinni fyrr. Mikið starf liggur að baki þessum
árangri, en samkeppnin er óvíða harðari en um
hylli ferðamannsins og má lítið út af bregða svo
árangurspillist.
í umræðum um vanda hinna hefðbundnu at-
vinnugreina er einatt lögð áhersla á nýsköpun
í atvinnulífi landsmanna og að hlúa beri að þeim
framti'ðaratvinnuvegum sem íslenskt þjóðarbú
muni æ meir byggja á. Ferðaþjónusta er þar
ofarlega á blaði.
Reyndin er sú aA á meðan síauknlr
skattar eru lagðlr á ferAaþjónustuna
er framlag tll landkynnlngar stórlega
skert.
Þessi mikla hækkun flugvallarskatts og sá stutti
fyrirvari sem veittur er, er alvarleg atlaga að ferða-
þjónustunni og hafa nú þegar heyrst óánægju-
raddir erlendis frá. Hætta er því á að afleiðingar
þessarar ákvörðunar verði aðrar en stjórnvöld
hyggja.
Samband veitinga- og gistihúsa skorar því á fjár-
málaráðherra að endurskoða ákvörðun þessa.
og Boxford
rennibekkir.
Eigum HARRISON M300 til afgreidsiu strax.
Útvegum adra med stuttum fyrirvara.
G.J. FOSSBERG
vélaverzlun hf.
Skúlagötu 63 Reykjavík.
Símar 18560 og 13027