Morgunblaðið - 05.02.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1986
51
i; í fe f ! j $ |
i b I
a\ T*-f7
Jl
VELVAKANDI
SVARAR {SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þesslr hrlngdu . .
Þakkir til
heilsuhælisins
Velvakandi.
Viltu gjöra svo vel að koma á
framfæri þakklæti til Jóns Gunn-
ars læknis á Heilsuhælinu í
Hveragerði og starfsfólks fyrir
góða hjálp. Þar er mjög gott að
vera.
Erla Hafliðadóttir,
Hveragerði
Fleiri popptón-
leika á skjáinn
Rósa K. Stefánsdóttir hringdi
og vildi gjaman fá að fylgjast
með fleiri popptónleikum í sjón-
varpinu. Sem dæmi nefndi hún
Söndru og Madonnu. Best væri
að sýna þá strax eftir fréttir á
kvöldin. Reyndar sagði hún að
poppdagskrá sjónvarpsins undan-
fama daga hefði verið ágæt en
ekki væri þó of mikið af því góða.
Grunaðir um
þjófnað
Atli Guðmundsson hringdi og
þótti hart að vera sífellt gmnaður
um þjófnað þegar hann kæmi inn
í verslanir, bara af því hann væri
unglingur.
„Þegar veðrið var sem verst
um daginn fórum við kunningj-
amir inn í Garðakaup til að hlýja
okkur meðan við biðum eftir
strætó. Þá kom kaupmaðurinn og
henti okkur út því við værum að
stela. Daginn eftir var ég svo inni
í bókabúðinni Grímu að skoða blað
og þá kom að mér einhver kona
sem var að kaupa í versluninni
og skipaði mér að snúa við öllum
vösum mínum því ég hafí verið
að stela. Ég sýndi henni það sem
í vösunum var en hún fór ekki
ofan af því að ég hefði hnuplað
einhveiju, sem var alls ekki rétt.
Síðan kom búðareigandinn og
leitaði á mér en fann vitanlega
ekkert. Á endanum var mér hent
út fyrir þjófnað sem ég hafði ekki
framið. Mér fínnst það mjög hart
að allir krakkar sem voga sér inn
í verslanir séu sífellt gmnaðir um
þjófnað. Eins og það sé gefíð að
þeir sem eru yngri en sextán steli
öllu steini léttara."
Reykvíkingar
greiði niður
ferðir fólks úr
nágrannabyggðum?
Reykvíkingur hringdi:
„í kvöldfréttum 30. janúar sl.
var fjallað um sameiningu félaga
leigubílstjóra i Reykjavík, Hafnar-
fírði og Mosfellssveit. í fréttinni
kom fram að ætlunin væri að
lækka gjald á milli Hafnarfjarðar
og Reykjavíkur um 70 krónur.
En jafnframt því fara leigubfl-
stjórar fram á hækkun á almenn-
um leigubflatöxtum. Ég fæ ekki
betur séð en að með þessum
hækkunum séu Reykvíkingar að
greiða niður leigubflaferðir fólks
úr nágrannabyggðum til Reykja-
víkur. Mér þætti gott að heyra
svar forsvarsmanna leigubflstjóra
við þessu atriði."
Oánægja íbúa í Suðurhlíðahverfi
Skipulagsmál borgarinnar eru oft
á tíðum bitbein manna og er það
ofur eðlilegt, þar sem skiptar skoð-
anir eru á meðal fólks. En ég held
að allir séu á sama máli um það
að réttur fólks ætti að vera sá sami
og best bæri að hafa samvinnu
stjómenda og þeirra sem málin
skipta, hveiju sinni.
Ég vil með þessu bréfí vekja
athygli á aðstöðu eins af nýju hverf-
um borgarinnar, sem heitir Suður-
hlíðar. Þetta hverfí virðist vera litið
homauga af stjómvöldum og al-
mennt séð vera vandamál þar sem
fróðir menn um þessi málefni hafa
ekki getað hannað næsta nágrenni
á viðunandi hátt og hugsað málefn-
in til enda, heldur skipulagt dag
frá degi.
Það sem er efst í huga mínum
er hraðbraut sú sem liggur við hlið-
ina á húsunum, gatnamót á mótum
Bústaðavegar og Suðurhlíðar og
breyting á strætisvagnaleið um
hverfíð. Þrátt fyrir það að hrað-
braut sé lögð við hliðina á húsum
hverfísins sem að mínu mati hefði
mátt vera lengra í burtu, þá er
hugsað um gangandi vegfarendur
yfír Bústaðaveginn með göngum
þeim sem hafa verið í smíðum síð-
ustu mánuðina. Þetta er algjör
nauðsyn, þar sem bömin þurfa að
sækja skóla yfír hraðbrautina. Þó
er ijarstæða að vera að ijúfa
hljóðmön þá sem á að einangra
húsin frá umferðinni. Steyptir vegg-
ir em ekki nein lausn.
Það er svo komið í dag að á
annatímum í umferðinni em íbúar
hverfísins lokaðir inni og komast
hvergi út úr hverfinu þar sem
umferð er svo mikil í báiðar áttir
eftir Bústaðavegi. Sjálf hef ég þurft
að bíða frá 7-10 mínútur á þessum
gatnamótum til að komast inn á
götuna. Þessi gatnamót em eins
og allir vita ekki fullunnin þar sem
akgrein á eftir að koma nær hverf-
inu, og þess vegna er mikil tregða
um gatnamótin. Ég skora á yfírvöld
að láta til skarar skriða og lagfæra
gatnamótin svo að þau komi að
gagni og nauðsynlegt er í framhaldi
af því að reisa umferðarljós.
Ekki þýðir fyrir yfírvöld að horfa
framhjá því að það er fólk sem býr
í þessu hverfí. Fólk þetta hefur
jafnan rétt til þjónustu eins og aðrir
borgarbúar. Én stefnan virðist sú
að einangra þetta hverfí, hvað alla
þjónustu snertir. Síðasta dæmið er
að lokað var fyrir strætisvagnaþjón-
ustu í hverfínu í háskammdeginu,
rétt fyrir jól. Fyrirvaralaust var
akstri strætisvagna beint eftir Bú-
staðavegi með eina biðstöð efst í
hverfínu. Svo rangt var að þessari
breytingu staðið að hún var hvorki
auglýst með fyrirvara, né fólkið sem
búsett er í hverfínu látið vita og
upplýst um málið.
Nú er svo komið að þeir sem búa
HEILRÆÐI
Er reykskynjarinn í lagi?
Hefur þú, lesandi góður, hugleitt það að reykskynjari er ein ömgg-
asta líftrygging, sem þú og fjölskylda þín getur fengið. Það er undir
þér komið að hann veiti það öiyggi, sem til er ætlast.
Mundu, það er nauðsynlegt að prófa reykskynjarann mánaðarlega.
Bilaður reykskynjari er „falskt" öryggi. Prófaðu því skynjara þinn
strax. Á morgun getur það verið of seint. Hefur þú endumýjað
rafhlöðuna nýlega? Rétt staðsetning á reykskynjara er mjög mikilvæg.
Farið varlega með eld.
neðst í þessu hverfí þurfa að ganga
í ca. 10 mínútur á biðstöðina. Þar
sem bömin, sem búa í neðri hiuta
hverfsins eiga langt í skóla og hafa
fengið skólamiða í strætisvagnana,
hætta að geta nýtt sér þessa þjón-
ustu, þá er spuming um skólabfl.
Þetta er mál, sem krefst gaumgæfí-
legrar endurskoðunar.
Mig langar einnig að vekja at-
hygli á því að gönguleið frá hverfínu
er erfíð, þar sem ekki eru gangstíg-
ar meðfram þessum stóru götum,
þ.e. Bústaðavegi og eins Suðurhlíð
í átt að miðbænum og í öðru lagi
Kringlumýrarbraut. Erfítt er að
komast fótgangandi í búðir eða
aðra þjónustu og þar af leiðir að
fólk þarf að vera háð bflum, þó að
staðsetning hverfisins sé mjög góð.
Nýbúið er að leggja gangstíg
frá strætisvagnabiðstöð þeirri sem
talað er um hér að framan og niður
að undirgöngunum. í dag er þessi
gangstígur lífshættulegur þar sem
þetta er slétt brekka sem er ísilögð
í frosti og snjó. Ég hef horft á
gamalt fólk standa efst í brekkunni
og treysta sér ekki niður hana.
Þetta fólk er meðal annars á leið í
kirkjugarðinn og þarf því að ganga
dijúgan spotta til að komast þang-
að%
Ég vona að stjómendur þessarar
borgar fari að hugsa um hina
mannlegu hlið á borgarmálum og ég
vil árétta það að samvinna um
borgarmál er allt sem gildir.
Guðrún Ragnars
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að
skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 11.30, mánu-
daga
til föstudaga, ef þeir koma þvf ekki
við að skrifa. Meðal efnis, sem vel
er þegið, eru óbendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng verða
að fylgja öllu efni til þáttarins, þó
að höfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástaeða til að
beina þvf til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálk-
unum.
Utsala Utsala
Mikll
verðlækkun
Elízubúðin,
Skipholti 5
PHILCOWD8Q4.
ÞVOTTAVEL,
ÞURRKARIOG
VAKTMAÐUR.
Philco WD 804 er þvottavél. Hún
tekur bæði inn á sig heitt og kalt vatn
og lækkar þannig orkureikninga þína.
Vinduhraðinn er 800 snúningar á
mínútu, - þvotturinn verður þurrari
orka og tími sparast í þurrkaranum.
Philco WD 804 er þurrkari. Þurrkarinn
hefur tímarofa fyrir allt að 2 klst., auk
sérstakrar 8 mínútna kælingar í lok
þurrkunar. Sérstakt þurrkkerfi er fyrir
viðkvæman þvott.
Philco WD 804 hefur sérstakan
öryggisbúnað, - vaktmaðurinn.
Öryggið sem hann skapar er ómetan-
legt, endingin verður betri og viðhalds-
kostnaður lækkar.
Láttu Philco skila þér þvottinum
hreinum og þurrum - engar snúrur,
engar áhyggjur.
Verð aðeins kr. 29.990.-