Morgunblaðið - 05.02.1986, Qupperneq 56
EUROCARD J
V —J
STAÐFEST1ÁNSIRAUST
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Stærstu skuldunautar ríkisbanka:
Útvegsbanki lánaði einum
skuldunaut 145% af eigin fé
Gapa...!
Tannvemdardagurinn var í
gær. Mælst var til þess að
uppeldis- og skólastofnanir
verðu deginum til þess að
fræða bömin um tannvernd
og tannhirðu. í tilefni dags-
ins bauð tannlæknadeild
Háskóla Islands bömum af
bamabeimilinu Grundaborg
í beimsókn í bús deildarinn-
ar við Hringbraut. Eins og
sjá má á meðfylgjandi mynd
er ábuginn í besta lagi og
bandtökin í meira lagi fag-
mannleg.
Morgunblaðið/Bjami
— í Landsbanka hefur einu fyrirtæki
verið lánaðir 1,5 milljarðar króna
sem eru 83,6% af eigin fé bankans
STÆRSTI SKULDUNAUTUR Landsbanka íslands skuldaði bank-
anum um 1,5 milljarða króna 30. nóvember síðastliðinn, eða sem
svarar til 83,6% af eigin fé bankans, sem þá var 1,8 milljarðar
króna. Stærsti skuldunautur Útvegsbanka íslands skuldaði bank-
anum um 720 milljónir króna 30. júní síðastliðinn, eða sem svarar
til 145% af eigin fé bankans, sem þá var 496 milljónir króna.
Stærsti skuldunautur Búnaðarbanka íslands skuldaði bankanum
um 426 milljónir króna 30. nóvember síðastliðinn, eða sem svarar
til 56,8% af eigin fé bankans, sem þá var 750 milljónir króna.
litu tölumar um eigið fé bankanna
þannig út:
Útvegsbanki um áramót 1984:
Matthías Bjamason, viðskipta-
ráðherra, svaraði á Alþingi í gær
fyrirspumum Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, þingmanns Alþýðuflokksins
f Reykjavík, um lánsviðskipti fimm
stærstu skuldunauta rflcisbank-
anna. Bar þingmaðurinn fram fyrir-
spum sína, þegar rætt var um
svokallað Hafskipsmál á þingi á
sfnum tíma. Viðskiptaráðherra
greindi ekki frá nöfnum stærstu
skuldunautanna en númeraði þá
með tölustöfunum 1-5 í svari sínu.
Hlutfallstölur eru miðaðar við bók-
fært eigið fé bankanna 31. desem-
ber 1984 framreiknað til verðlags
30. júní 1985 hjá Útvegsbankanum
og til verðlags 30. nóvember hjá
Landsbanka og Búnaðarbanka.
Eftir að ráðherra hafði gefið svör
sín skýrði Jóhanna Sigurðardóttir
þingfréttamönnum frá því, að væri
framreiknað með lánsiijaravísitölu
423 milljónir 913 þúsund krónur,
30. júnf 1985: 496 milljónir 392
þúsund krónur.
Landsbanki um áramót 1984: 1
milljarður 125 milljónir 564 þúsund
krónur, 30. nóvember 1985:1 millj-
arður 841 milljón 586 þúsund krón-
ur.
Búnaðarbanki um áramót 1984:
564 milljónir 539 þúsund krónur,
30. nóv. 1985: 750 milljónir og 287
þúsund krónur.
Viðskiptaráðherra nefndi aðeins
hlutfailstölur í svari sínu. En séu
tölumar, sem Jóhanna kynnti um
eigið fé notaðar til að reikna út
skuldastöðu einstakra fyrirtækja
verður niðurstaðan þessi:
Landsbankinn
1. 83,6% 1,5 milljarðar kr.
2.65,4% 1,2 milljarðar kr.
3.65,1% 1,2 milljarðar kr.
4.56,1% 1 milljarðurkr.
5.33.8% 622 milljónir kr.
Búnaðarbankinn
1.56,8% 426 milljónir kr.
2. 37% 277 milljónir kr.
3.35% 262 milljónir kr.
4.31,7% 237 milljónir kr.
5.22,7% 170 milljónirkr.
Útvegsbankinn
1.145% 719 milljónir kr.
2.130,6% 648 milljónir kr.
3. 40,5% 201 milljónirkr.
4.39,8% 197 milljónir kr.
5.36,6% 181 milljónir kr.
Pólarlax:
Samið um söluseiða
fyrir hálfan milljarð
— seiðin keypt af norrænu fyrirtæki og alin 1 tankskipi við Irland
Joan Baez
kemur á
Listahátíð
BANDARISKA þjóðlagasöng-
konan Joan Baez er meðal
þeirra erlendu listamanna
sem væntanlegir eru á Lista-
hátíð í Reykjavík sem haldin
verður dagana 31. maí til 17.
júní í sumar.
Framkvæmdanefnd Listahá-
tíðar í Reykjavík kynnti í gær
bráðabirgðadagskrá Listahátíð-
ar í sumar. Morgunblaðið hefur
birt fréttir um ýmsa aðra lista-
menn, sem koma munu á Lista-
hátíð, en f gær kom m.a fram
að Joan Baez söngkona mun
halda tónleika í veitingahúsinu
Broadway flmmtudaginn 12.
júní nk.
Sjá bls. 4.: Jacquline Pic-
asso og Ingmar Bergmann
heiðursgestir.
PÓLARLAX við Straumsvik
hefur nú samið við norræna
laxeldisfyrirtækið Scanfarm
um sölu á einni milljón af
TILKYNNT var um sprengju í
Flugleiðavél í Luxemborg um
hádegisbilið í gær. ítarleg leit
var gerð í tveimur vélum fyrir-
tækisins, sem þá voru í Luxem-
borg, en ekkert athugavert
fannst og héldu vélaraar í loftið
eftir 2 «/* klukkustundartöf.
Það var þýzkumælandi maður
sem tilkynnti um sprengjuna til
skrifstofu Flugleiða í Frankfurt.
laxaseiðum á ári næstu 5 ár.
Söluverð milljón seiða er
tæpar 100 milljónir króna og
umsaminnar sölu nálægt hálf-
sagði hann að sprengja væri um
borð í Flugleiðavél á leið frá Luxem-
borg til Orlando í Bandaríkjunum.
I Luxemborg voru þá tvær vélar
fyrirtækisins, Orlando-vélin og
önnur á leið til Keflavíkur og New
York. Leit hófst þegar og annaðist
hana sveit sérþjálfaðra lögreglu-
manna. Ekkert athugavert kom í
ljós og héldu vélamar af stað 2'h
tíma síðar. 418 farþegar voru í
flugvélunum tveimur.
um milljarði. Ennfremur mun
Pólarlax kaupa 10% hlutafjár
í Scanfarm, sem hyggst fram-
leiða 3.000 til 3.500 lestir af
laxi árlega í risatankskipi
staðsettu við írland.
Finnbogi Kjeld, stjómarformað-
ur Pólarlax, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að í sölusamningi
þessum væri ákvæði þess efnis,
að mögulegt væri að framlengja
hann til annarra 5 ára, óskuðu
báðir aðilar þess. Líklegt væri 'að
Fiskeldi hf. við Húsavík legði til
eitthvað af þessum seiðum. Verð
á seiðunum yrði á hveijum tíma
leiðandi markaðsverð í Noregi, sem
nú væri um 15,50 norskar krónur
eða rúmar 90 krónur íslenzkar.
Því væri andvirði einnar milljónar
seiða tæpar 100 milljónir og miðað
við núverandi verð, næmi andvirði
sölunnar næstu 5 árin hátt í 500
milljónir króna.
Finnbogi sagði, að Scanfarm
væri samnorrænt fyrirtæki, nú í
eigu Finna, Dana, Norðmanna og
Svía, en fengjust tilskilin leyfi hér
heima, væri frágengið að Pólarlax
keypti 10% hlutafjár að upphæð 4
milljónir norskar krónur eða um
24 milljónir íslenzkar. Kaupin yrðu
þá úármöjgnuð með hluta af seiða-
sölunni. Aform Scanfarm væru að
rækta laxinn í 105.000 lesta tank-
skipi staðsettu við strendur Irlands
og áætluð árframleiðsla fyrst um
sinn væri 3.000 til 3.500 lestir.
Kosningar
31.maí
SAMKOMULAG hefur tekist um
það milli stjómarflokkanna, að
sveitastjómarkosningar í þéttbýli
verði laugardaginn 31. maí nk., en
á nokkrum stöðum í dreifbýli laug-
ardaginn 14.júní.
Sjá nánar á þingsíðu bls. 32.
Sprengjugabb
í Flugleiðavél