Morgunblaðið - 15.02.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. FEBRÚAR1986
*
A markaðs-
torg’inu
A
Eg kann því afar vel þegar
starfsmenn ríkisfjölmiðlanna
auglýsa eftir efni, en þess er
skemmst að minnast er umsjónar-
maður bamaefnis í sjónvarpinu birti
slíka auglýsingu hér í blöðunum og
þá hefir leiklistardeild ríkisútvarps-
ins auglýst eftir leikþáttum og leik-
ritum fyrir útvarp, er reyndar verð-
launum heitið fyrir bestu sending-
una. Er ekki að efa að vonin um
að hreppa verðlaunaféð hleypir
kappi í íslenska leikritasmiði, en
engin ástæða er til að ætla að rit-
höfundar almennt sjái ástæðu til
að stunda hér listsköpun ef svo fer
sem horfir á tímum vaxandi pen-
ingahyggju. Innlendir rithöfundar
hljóta og að standa vanmáttugir
gagnvart hinu alþjóðlega afþrey-
ingarefni er hér flæðir um gáttir.
Hugsum okkur rithöfund sem heflr
eytt öllum sínum frítíma í svo sem
tvö ár við að koma saman bók.
Rithöfundurinn gengur að tilboði
útgefandans um ákveðna heildar-
greiðslu fyrir verkið. Þannig vill til
að rithöfundurinn starfar á auglýs-
ingastofu við að semja auglýsinga-
texta. Við næsta borð situr auglýs-
ingateiknari önnum kafinn við að
hanna kápur jólabókanna. Glæsi-
legar myndimar streyma líkt og af
færibandi og þama er bókin hans.
Hjarta rithöfimdarins hoppar af
kæti; hann veit sem er að kápan
ræður miklu um sölu bókarinnar.
Annars hugar spyr hann teiknarann
hvað svona skreyting kosti. „Ég
veit ekki um heildarkostnaðinn
svarar teiknarinn, en ég fæ ...“
Rithöfundurinn sest aftur í básinn
sinn, talan sem auglýsingateiknar-
inn nefndi var hærri en þóknunin
úr hendi bókaútgefandans. EVá
þeirri stundu hefir rithöfundimn
aðeins samið auglýsingatexta. Ég
nefni ekki þetta dæmi til að kasta
rýrð á bókaútgefendur eða samtök
rithöfunda heldur til að árétta
hversu dýrar umbúðimar utanum
hugverkin eru orðnar. Ríkið, smá-
salamir, auglýsingaiðnaðurinn og
prentsmiðjumar hirða bróðurpart-
inn af tekjum af bóksölu og eftir
sitja rithöfimdurinn og útgefandinn
með sárt ennið. Og ég á ekki von
á að þessi háskalega þróun breytist
á næstunni. Eða hvað halda menn
að gerist ef rithöfundar rísa upp
og heimta sinn réttláta skerf?
Auðvitað munu útgefendur neyð-
ast til að leita til alþjóðlegu út-
gáfufyrirtækjanna er bjóða jafnvel
uppá bók og sjónvarpsþáttaröð í
einum pakka. Hugsjónamenn verða
vafalaust áfram við lýði í röðum
bókaútgefenda en róðurinn á eftir
að þyngjast fyrir unga og óþekkta
rithöfunda, þess vegna er svo mikil-
vægt að efna til verðlaunasam-
keppni slíkrar er leiklistardeild rík-
isútvarpsins heflr nú auglýst.
FimmtudagsleikritiÖ
Ég ætlaði satt að segja ekkert
að minnast á flmmtudagsleikritið
að þessu sinni heldur bara á leik-
ritasamkeppnina, en þar sem ég hef
fjallað um hvert og eitt einasta út-
varpsleikrit rásar 1 frá því ég tók
við núverandi starfl hér á blaðinu,
þá vil ég fara örfáum orðum um
Bæn meyjarinnar eftir Stephen
Mulrine. Þýðing Jóns Viðars var
áheyrileg en sjálft verkið fór inn
um annað eyrað og út um hitt.
Virtist mér helst að höfundurinn
vildi magna upp draugagang á
stúdentaheimili er var til húsa í
gömlu og virðulegu húsi í Glasgow.
Ekki risu nú hárin á höfði undirrit-
aðs þrátt fyrir hljóðbrögð Hákons
Leifssonar. í guðanna bænum bein-
iði sjónum frá afdönkuðum breskum
„spennuleikritum" er vafalaust
berast Ieiklistardeildinni á spólum
frá BBC. Aðeins eitt atriði vakti
ótta í þessu verki og það var lýsing
á draugnum ... þetta var andlit
látins manns.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
ÚTVARP
LAUGARDAGUR
15.febrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
7.20 Morguntrimm.
7.30 íslenskir einsöngvarar
og kórarsyngja.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Lesiö úr forystugreinum
dagblaðanna. Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áður
sem Margrét Jónsdóttir flyt-
ur.
10.10 Veðurfregnir.
Óskalög sjúklinga, fram-
hald.
11.00 Heimshorn — Japan.
Umsjón: Ólafur Angantýs-
son og Þorgeir Ólafsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.46 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur
ívikulokin.
15.00 Miðdegistónleikar
a. „Rejse ind i den gyldne
skærm", tónverk eftir Per
Nörgaard. Sinfóníuhljóm-
sveit danska útvarpsins leik-
ur; Tamás Vetö stjórnar.
b. „Antigone", tónverk eftir
Ketil Hvoslev. Norska ungl-
ingasinfóníuhljómsveitin
leikur; Karsten Andersen
stjórnar.
15.50 íslenskt mál. Ásgeir
Blöndal Magnússon flytur
þáttinn.
18.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Listagrip. Þáttur um list-
ir og menningarmál. Um-
sjón. Sigrún Björnsdóttir.
17.00 Framhaldsleikrit barna
og unglinga: „Sæfarinn"
eftir Jules Verne í útvarps-
leikgerð Lance Sieveking.
Fimmti þáttur: „Vél eða
skepna". Þýðandi: Margrét
Jónsdóttir. Leikstjóri: Ben-
edikt Árnason. Leikendur:
Sigurður Skúlason, Róbert
Arnfinnsson, Pálmi Gests-
son, Rúrik Haraldsson,
Tinna Gunnlaugsdóttir,
Harald G. Haralds, Þor-
steinn Gunnarsson, Rand-
ver Þorláksson,. Ellert Ingi-
14.45 Enska bikarkeppnin 5.
umferð
Bein útsending
17.00 Iþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
19.26 Búrabyggð
(Fraggle Rock)
Sjötti þáttur.
Brúöumyndaflokkur eftir Jim
Henson.
Þýðandi Guðni Kolbeins-
son.
19.50 Fréttaágripátáknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingarogdagskrá
20.30 Staupasteinn (Cheers)
Átjándi þáttur
Bandarískur gamanmynda-
flokkur.
Þýðandi Guðni Kobeinsson.
mundarson og Aðalsteinn
Bergdal.
17.35 Einsöngur í útvarpssal.
Ágústa Ágústsdóttir syngur
aríur eftir Wolfgang Amad-
eus Mozart. Anna Norman
leikurápíanó.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 „Sama og þegið".
Umsjón: Karl Ágúst Úlfsson,
Siguröur Sigurjónsson og
Örn Árnason.
20.00 Harmoníkuþáttur. Um-
sjón: HögniJónsson.
20.30 Leikrit: „Bæn meyjar-
innar" eftir Stephen Mulr-
ine. Þýðandi: JónViðarJóns-
son. Leikstjóri: Inga Bjarna-
LAUGARDAGUR
15. febrúar
20.55 Sá gamli kemur í heim-
sókn
(The Pleasure of His Comp-
any)
Bandarisk bíómynd frá
1961.
Leikstjóri George Seaton.
Aöalhlutverk: Fred Astaire,
Lilli Palmer, Debbie Reyn-
oldsogTabHunter.
Eftir nær tuttugu ára heims-
hornaflakk snýr miðaldra
glaumgosi heim til San
Francisco til að vera viö
brúðkaup dóttur sinnar.
Mannsefnið á ekki upp á
pallboröiö hiá föðurnum og
son. Leikendur: Asa Sva-
varsdóttir, Arnór Benónýs-
son, Sigrún Edda Björns-
dóttir, Maria Siguröardóttir,
Jóhann Sigurðarson, Margr-
ét Ákadóttir, Sigurður Skúla-
son og Alda Arnardóttir.
(Endurtekiö frá fimmtudags-
kvöldi.)
21.40 Kwöldtónleikar.
Strauss-hljómsveitin í Vinar-
borg leikur lög eftir Johann
og Josef Strauss; Max
Schönherrstjórnar.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma
(18).
22.30 Bréf frá Færeyjum. Dóra
Stefánsdóttir segir frá.
23.00 Danslög.
hann gerir allt til að spilla
fyrirráðahagnum.
Þýðandi Rannveig Tryggva-
dóttir.
22.45 Lifiöerstutt
(Vivre pourvivre)
Frönsk-ítölsk bíómynd frá
1967.
Leikstjóri Claude Lelouch.
Aðalhlutverk: Yves Mont-
and, Candice Bergen og
Annie Girardot.
Vinsæll sjónvarpsfrétta-
maður stendur á tímamót-
um i lifi sínu þegar hriktir í
stoðum hjónabands hans.
Gæfa hans veltur á því að
hann taki réttar ákvaröanir
og horfist í augu við mistök
sín.
Þýðandi Ólöf Pétursdóttir.
00.50 Dagskrárlok.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar.
Umsjón: Jón Örn Marinós-
son.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
03.00.
jjjy
LAUGARDAGUR
15.febrúar
10.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Sigurður Blön-
dal.
12.00 Hlé
14.00 Laugardagurtillukku
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00 Listapopp
Stjómandi: Gunnar Salvars-
son.
17.00 Hringborðið
Erna Arnardóttir stjórnar
umræðuþætti um tónlist.
18.00 Hlé
20.00 Bylgjur
Árni Daníel Júlíusson kynnir
framsækna rokktónlist.
21.00 Djassogblús
Vernharður Linnet kynnir.
22.00 Bárujárn
Þáttur um þungarokk í
umsjá Siguröar Sverrisson-
ar.
23.00 Svifflugur
Stjórnandi: Hákon Sigur-
jónsson.
24.00 Ánæturvakt
með Helga Má Barðasyni.
03.00 Dagskrárlok.
SJÓNVARP
Tónlistar-
kross-
gátan
Þar sem tónlistarkross-
gáta Jóns Gröndals féll
niður á rás 2 vegna veik-
inda Jóns, verður kross-
gátan ráðin með aðstoð
hlustenda á morgun. Við
birtum því sömu kross-
gátuna aftur að þessu
sinni.
Sá gamli kemur
í heimsókn
— bandarísk bíómynd
Candice Bergen og Yves Montand í hlutverkum sínum
í kvikmyndinni „Lífið er stutt“.
Lífið er stutt
Seinni kvikmynd kvölds-
ins nefnist „Lífíð er stutt"
eða „Vivre pour vivre“ og
er frá 1967. Leikstjóri er
Claude Lelouch, en aðal-
hlutverk eru í höndum Yves
Montand og Candice Berg-
en. Vinsæll sjónvarps-
fréttamaður stendur á
tímamótum í lífi sínu þegar
hriktir í stoðum hjónabands
hans. Gæfa hans veltur á
því að hann taki réttar
ákvarðanir og horfíst í
augu við mistök sín. Þýð-
andi er Ólöf Pétursdóttir.
heimsókn". Leikstjóri er
George Seaton og með
aðalhlutverk fara Fred
Astaire, Lilli Palmer,
Debbie Reynolds og Tab
Hunter.
Eftir nær tuttugu ára
heimshomaflakk snýr mið-
aldra glaumgosi heim til
San Francisco til að vera
við brúðkaup dóttur sinnar.
Mannsefnið á ekki upp á
pallborðið hjá föðumum og
hann gerir allt til að spilla
fyrir ráðahagnum. Þýðandi
er Rannveig Tryggvadótt-
ir.
■I Bandarísk bíó-
55 mynd frá árinu
1961 er fyrri
bíómynd kvöldsins og hefst
hún kl. 20.55. Hún ber
nafnið „Sá gamli kemur í
Fred Astaire og Debbie
Reynolds i hlutverkum
sínum.