Morgunblaðið - 27.06.1986, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986
19
Lif í Soginu
Það er alltaf fremur erfitt að
afla sér talna úr Soginu, þar eru
veiðihús glettilega mörg og
veiðibækur að minnsta kosti jafn
margar ef ekki fleiri. Þó lekur
alltaf eitthvað út, þannig hefur
fregnast, að fyrsta daginn, 20.
júní, hafi tveir laxar veiðst í landi
Ásgarðs, tveir fyrir landi Bflds-
fells og tveir fyrir landi Þrasta-
lundar, sem er tiltölulega merki-
legt, því iðulega þykir það treg
veiðistöð. Ekkert fréttist af Syðri
Brú, en enginn renndi við Al-
viðru dag þennan. Næsta dag
voru aftur á móti komnir menn
vopnaðir stöngum og þó þeir
naeðu engum laxinum á land,
þýðir það ekki að þeir hafi einsk-
is orðið varir, þeir misstu að
minnsta kosti einn vænan lax
og sáu fleiri. Þetta er ritað 26.
júní og tölumar hér því ekki þær
nýjustu sem hugsast getur. Þær
gefa þó vísbendingu um að lax
hafí verið genginn snemma í
Sogið, og þó telja kunnugir að
vatnið hafí verið í kaldara lagi.
Ekki þarf að taka fram, að
þessir laxar sem veiddust voru
stórir.
veröndinni er ætlunin að koma fyrir
útigrilli ásamt borðum og stólum.
Síðan verða settir slqólgarðar úr
gleri kringum veröndina," sagði
Guðmundur er gengið var um nýju
húsakynnin.
Guðmundur var spurður að því
hvers vegna hefði verið ráðist í
þessar framkvæmdir. „Það er nú
saga að segja frá. Veturinn 1984
var ákveðið að byggja áhalda-
geymslu yfir vélar og tæki sem fé-
lagið á. Ætlunin var að geymslan
yrði ekki stór í sniðum, svona 60
fermetrar á að giska. En hug-
myndin óx ört og að lokum var
ráðagerðin orðin tífalt stærri í snið-
um en í upphafi. Það má segja að
við séum enn vélageymslulausir,
því að öllu plássi í félagsheimilinu
hefur verið ráðstafað og aðeins lítill
hluti þess verður notaður sem
áhaldageymsla!“
Guðmundur var inntur eftir hvort
ekki væri kostnaðarsamt fyrir fé-
lagið að standa í stórræðum sem
þessum. „Að sjálfsögðu er þetta
mikið átak fyrir félagið, en því má
ekki gleyma að við höfum notið
geysimikils stuðnings bæði ein-
staklinga og fyrirtækja. í fyrra var
skipuð bygginganefnd sem í eiga
sæti Stefán Gunnlaugsson, formað-
ur, Hermann Sigtryggsson, Hreiðar
Jónsson, Jóhann Áðalsteinsson og
ég. Stefán hefur séð um fjármalin
og farist vel úr hendi, hann hefur
ávaxtað margfalt hveija krónu sem
honum hefur borist. Uppreiknaður
kostnaður við þessar framkvæmdir
er á bilinu 12-14 miiljónir en beinn
kostnaður félagsins er mun lægri.
Þar kemur margt til. í fyrsta lagi
greiðir ríkið 40% af uppreiknuðum
heildarkostnaði. Þá hafa margir
sjálfboðaliðar lagt hönd á plóginn.
Gamlir jaxlar hafa séð að mestu
leyti um byggingu heilsuræktar-
álmunnar, en fíölmargir aðrir vel-
unnamar félagsins hafa komið við
sögu í þessu uppbyggingarstarfi.
Þá erum við með happdrætti í gangi
til að fjármagna þessar fram-
kvæmdir og einnig hefur KA-klúbb-
urinn í Reykjavík veitt okkur mikinn
stuðning," sagði Guðmundur.
Eitthvað spaklegt að lokum? „Ég
vil nota þetta tækifæri til að þakka
öllum þeim sem hafa lagt hönd á
plóginn við þetta verk og láta þá
von í ljósi að þetta hús megi verða
öllum KA-mönnum að gagni, sem
íþróttamannvirki og ekki síðu*1 sem
alhliða félagsmiðstöð."
Grímsá: Enn góð ...
Veiði er enn með ágætum í
Grímsá, en þar veiddust 90 laxar
tvo fyrstu dagana sem frá hefur
verið greint. Alls eru nú komnir
um 200 laxar á land, eftir því
sem Ylfa Þorsteinsdóttir, starfs-
stúlka í veiðihúsinu við Laxfoss,
sagði í samtali við Morgunblaðið
í gærdag. 8 laxar fengust í
gærmorgun.
Að sögn Ylfu hefur veiðin
einkum verið á neðstu veiðistöð-
um árinnar, en dálítið væri farið
að reitast upp af físki fram í
dal. Þá væri dijúg fluguveiði
saman við maðkveiðina.
18 punda lax sem veiddist
fyrsta daginn er enn stærstur,
en laxinn er annars yfirleitt
5—10 punda og alltaf einn og
einn stærri. Nokkrir 15—16
punda fískar hafa verið lagðir
að velli.
Enn er beðið eftir neistanum á
Iðu og í Stóru Laxá og rétt á
meðan myndi þessi mynd teljast
táknræn fyrir ástandið á þeim
slóðum...
Morgunblaðið/gg
PCW
DRAUMATOLVAIM
i i
ÞETTA ER TOLVAN!
FYRIR EIIMSTAKLIIMGA OG FYRIRTÆKI
AMSTRAD PCWtölva með íslensku RITVIIMNSLUKERFI, ísl. 3ja tíma leiðbeiningum á snældum,
SAMSKIPTAFORRITI fyrirtelex, gagnabanka o.fl. og PRENTARAI-fyriraðeins39.900,- kr. Stóri
bróðir, AMSTRAD 8512, er með 2 drifum og stærra minni og kostar aðeins 49.900,- kr. Hann er
auk þess hægt að fá fneð fullkomnu fjárhagsbókhaldi eða með viðskiptamanna-, sölu- og
lagerkerfi fyrir 59.900,- kr., og með hvoru tveggia fyriraðeins64.900,- kr. -allt í einum pakka
- geri aðrir beturl
AMSTRAD PCW 8256
ritvinnslutölvan: 256 K RAM (innbyggður RAM diskur), I drif;
skjár: 90 stafir x 32 línur. Prentari: Punktaprentari, 90 stafirá sek.
AMSTRAD PCW 8512
ritvinnslu- og bókhaldstölvan: 512 K RAM (innb. RAM diskur),
2 drif (B-drif er 1 megabyte), skjár: 90 st. x 32 línur. Prentari:
punktaprentari, 90 stafir á sek.
FORRIT FYRIR AMSTRAD:
Samsklptaforrlt: BSTAM, BSTMS, Chit-Chat, Crosstalk. Honeyterm
8256. Move-it. Aætlana- og relknlforrlt: Pertmaster, Milestone,
Brainstorm, Statflow, Cracker, Master Planner. Multiplan, PlannerCalc,
SuperCalc. Gagnagrunnsforrlt: Cambase, Cardbox. dBase II, dGraph,
dUtil, Delta, Flexifile. Telkniforrlt: Dataplot plus. Datplot III, DR Draw,
DR Graph, Polyplot, Polyprint. Forrltunarmál: DR C Basic, Mallard,
Basic, Microsoft Basic, Nevada Basic. Cis-Cobol, Nevada Cobol, RM
Cobol, HiSoft C, Nevada Fortran, Pro Fonran,DR PL/I, DR Pascal MT+,
Nevada Pascal. Pro Pascal, Turbo Pascal. Annað: Skákforrit. Bridgeforrit.
íslemk forrlt: Ritvinnsla (fylgir), Fjárhagsbókhald. Viðskiptamannafor-
rit. Sölukerfi, Lagerbókhald, Nótuútprenttin, Límmiðaútprentun.
Auk þúsunda annarra CP/M forrita.
Ath.: Tölvan verður kynnt n.k. laugardag
kl. 10.00-18.00 í tölvudeild Bókabúðar Braga
v/Hlemm. Verið velkominl
(£[£}Braga
Laugavegi 118 v/Hlemm, símar 29311
& 621122. Tölvuland hf„ sími 17850.
Umboðsmenn útl á landl: Akranes: Bókaskemman. Akureyri: Bókabúðin Edda, Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga, Djúpavogi: Verslunin Djúplð
Grindavík: Bókabúð Grindavíkur. Hafnarfjörður: Kaupfélag Hafnfiröinga. Húsavík: Bókaverslun Þórarins Stef., ísafjöröur. Hljómborg, Keflavík Bókabúö
Keflavíkur, Vestmannaeyjar: Vídeóleiga GS.
Öll verö miöuö við gengi íjúní 1986 og staögreiöslu.
Báöum geröum fylgir íslenskt ritvinnslukerfi (LOGO-
SCRIPT), Dr. Logo og CP/M+. ísl. lyklaborð, ísl.
leiðbeiningar, 3ja tíma kennsluefni á 2 snældum (ísl.),
prentari meö mörgum fallegum leturgeröum og
-stærðum. Meö AMSTRAD 8512 er einnig hægt að fá
fullkomin bókhaldskerfi sem henta mjög vel litlum og
meöalstórum fyrirtækjum.
Námskeið:
Tölvufræðslan sf. Ármúla 36, s. 687590 & 686790:
Fjárhagsbókhald 6 tímar aðeins 2.500 kr.
Viðskiptamanna-, sölu- og lagerkerfi 6 tímar aöeins 2.500 kr.
Ritvinnslunámskeiö 6 tímar aðeins 2.500 kr.