Morgunblaðið - 27.06.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.06.1986, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1986 Fulltrúadeildin samþykkir aðstoð við contra-skæruliða: Úrslitin talin mikill sigur fyrir Reagan Washington, AP. FULLTRÚADEILD Bandaríkja- þings samþykkti í gœr að veita skæruliðum í Nicaragua 100 milljón dollara í aðstoð. 221 þing- maður greiddi atkvæði með til- lögunni, en 209 á móti. Er litið svo á að þetta sé mikill sigur fyrir stefnu Reagan í utan- ríkismálum, þar sem hann hefur Það væri synd að segja að ítölsku lögregluna skorti hugmyndaflug til að vekja athygli á málstað sínum. Sl. þriöjudag tóku 70 lögregluþjónar í borginni Treviso sig til og af- klæddu sig í allra manna augsýn (þ.m.t. varðstjórans) á lögreglustöð borgarinnar. Lögregluþjónamir hafa um nokkum tíma mótmælt því að þurfa að mæta á vakt klædd- ir í einkennisbúningi. Hafa þeir lagt fram kröfu um að mæta á vinnustað barist fyrir því í marga mánuði að skæruliðum yrði veitt þessi aðstoð. Síðustu dagana fyrir atkvæða- greiðsluna lagði forsetinn allt kapp á að tillagan yrði samþykkt í full- trúadeildinni. Kom hann m.a. fram í sjónvarpi í því skyni og ræddi við fjölda demókrata til að reyna að fá þá á sitt band. í sínum eigin fötum og skipta um föt á vinnustað. „Lögregluþjónar í Mílanó og Róm mæta til vinnu sinnar í einkennis- búningum og ég sé ekki ástæðu til að þið hagið ykkur öðruvísi," sagði Armandos Alfieri, varðstjóri. Ekki líkaði lögregluþjónunum svarið og á þriðjudag mættu þeir til vinnu í sínum eigin fötum og höfðu einkennisbúninga sína með Samkvæmt tillögunni fá skæru- liðamir, sem beijast gegn sandín- istastjóminni í Nicaragua, um 70 milljónir dollara hemaðarstuðning, en 30 milljónir verða notaðar til kaupa á vistum og nauðsynjavömm. Næst mun öldungadeild þingsins greiða atkvæði um tillöguna. Er búist við því að þar nái hún fram sér í plastpoka. Búningsklefar eru engir á lögreglustöðinni í Treviso og skiptu lögregluþjónamir því um föt í viðurvist varðstjórans og ann- arra sem leið áttu um lögreglustöð- ina. Að fataskiptunum loknum gengu þeir á fund Alfieri og hótuðu að leggja niður vinnu nk. laugardag, yrðu kröfur þeirra ekki teknar til umræðu og greina þá þegar. Upptæki lögregluþjónanna, sem hefur vakið mikla kátínu á meðal ítala, hafði þó sín áhrif þvi strax á þriðjudagsmorgun var mál þeirra tekið fyrir og þeim lofað „auknum sveigjanleika" varðandi fataskipti. að ganga, enda hefur öldungadeild- in samþykkt svipaða tillögu áður. Úrslit atkvæðagreiðslunnar í gær komu nokkuð á óvart, en fulltrúa- deildin, þar sem demókratar eru í meirihluta, hafnaði svipaðri tillögu fyrr í vetur. Þó var gert ráð fyrir að mjótt yrði á mununum, en fáir gerðu ráð fyrir að úrslitin yrðu eins afdráttarlaus og raun bar vitni. Áður en greitt var atkvæði um til- löguna sagði Thomas O’Neill leið- togi demókrata í fulltrúadeildinni og forseti hennar að forsetanum hefði tekist að snúa nokkmm demókrötum, en samt mundu að- eins eitt eða tvö atkvæði skera úr um hvort tillagan yrði samþykkt eða ekki. Harðar umræður urðu í þinginum um tillöguna. Stuðningsmenn for- setans héldu því fram að nauðsyn- legt væri að veita contra-skæmlið- um stuðning, þar sem það væri eina leiðin til að bíjóta kommúnisma á bak aftur í Nicaragua og koma þar á fót lýðræðisstjóm. Andstæðingar forsetans sögðu hins vegar að stjóm Reagans hefði ekki beitt sér fyrir friðsamlegri lausn málsins. Með því að veita skæmliðum hemaðarstuðning væri Reagan einungis að gera illt verra og spilla fyrir friðammleitunum í Mið-Ameríku. Veður víða um heim Lagit Hast Akureyri 16 skýjað Amsterdam 16 25 heiðskfrt Aþena 20 30 akýjað Barcelona 26 alskýjað Berlfn 11 27 helðakfrt BrOsael 16 30 heiðskfrt Chicago 6 26 akýjað Dublin 11 20 heiðakfrt Feneyjar 26 þoku- móða Frankfurt 14 26 heiðskfrt Genf 17 27 helðakfrt Helainkl 16 24 heiðakfrt HongKong 26 28 rignlng Jerúaalem 16 26 akýjað Kaupmannah. 22 léttskýjað Las Palmaa 22 akýjað Lissabon 16 26 haiðakfrt London 16 28 akýjað Loa Angeles 16 27 akýjað Lúxemborg 26 lóttskýjað Malaga 27 helðakfrt Mallorca 34 akýjað Miaml 26 30 rlgnlng Montreal 6 16 akýjað Moakva 10 12 akýjað NewYork 16 24 akýjað Oaló 12 27 heiðakfrt Parfa 18 28 helðskfrt Peking 18 26 helðskfrt Reykjavfk 13 rlgnlng RfódeJaneiro 14 30 akýjað Rómaborg 17 32 heiðskfrt Stokkhólmur 17 27 heiðakfrt Sydney 7 17 helðskfrt Tókýó 22 32 skýjað Vfnarborg 16 21 helðskfrt Þórshöfn 12 alskýjað ítalía: Lögreglumenn afklæð ast í mótmælaskyni Frá Bryiy u Tomer, f réttaritara Morgnnbladsins á Ítalíu. LÖGREGLUÞJÓNAR í borginni Treviso á N-Ítalíu (nálægt Feneyjum) mótmæltu þvi nú á dögunum að mæta til vinnu i einkennisbúningum og í mótmælaskyni afklæddu sjötíu þeirra sig fyrir framan varðstjóra sinn, auk þess sem þeir hótuðu að leggja niður vinnu frá og með næsta laugardegi, yrði mál þeirra ekki tekið til umræðu þá þegar. Flóttatilraun Treholts Arne Treholt með yfirmanni sínum þjá KGB, Genady Titov. Fékk kort frá Titov Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgnnbladsins. Á MEÐAN Arne Treholt sat í fangelsinu í Drammen fékk hann póstkort frá yfirmanni sínum innan sovézku leyniþjónustunn- ar, KGB, Genadij Titov. Slapp það framhjá póstskoðun, sem Treholt var látinn sæta. Treholt skrífaði síðar Titov bréf og smyglaði helzti vinur hans, skáldið og blaðamaðurinn Egil Ulateig, því út úr fangelsinu. Upp- haf bréfsins er á þessa leið: Kæri vinur. Takk fyrir síðast og þakkir fyrir kortið . . .“ Bréfið segist Ulateig aldrei hafa látið af hendi og telur lögreglan framburð hans trúverðugan. Þegar það hafði verið gert upptækt við húsleit hjá Ulateig komst upp um kortið, sem Treholt fékk frá Titov. Útiloka að Treholt geti aftur reynt flótta Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritaraMorgunblaósins. ARNE Treholt mun ekki fá annað tækifæri til að reyna flótta úr fangelsi meðan hann afplánar 20 ára refsivist sina. Hafa norsk fangelsisyfirvöld gert áætlun um fangavist hans, sem mun gera flótta útilokaðan. í fyrsta lagi verður sett mun strangari vakt yfír Treholt en áður. Hann er nú í einangrun í Ullersmo- fangelsinu. í öðru lagi verður klefí hans og klefagangurinn útbúinn rafeindabúnaði svo unnt verði að fylgjast nákvæmlega með öllum hreyfingum hans. Þá verður hann aldrei nema stuttan tíma í senn í hveiju fangelsi fyrir sig, en hann verður fluttur ört milli fangelsa I öllum landshlutum Noregs. Verður það gert til að gera samskipti og samráð við aðra um nýja flóttatilraun illmögulega. Fangelsisyfirvöld eru staðráðin I þvf að stórefla gæzlu á Treholt og ef einhver atriði I áætlun, sem gerð hefur verið þar að lútandi, stangast á við reglur, verður allt kapp lagt á að fá þeim reglum breytt. Ætlaði síðasta spöl- inn sem diplómat Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsiiis. ARNE Treholt ráðgerði að ferð- ast síðasta spölinn á flóttanum sem senegalískur sendifulltrúi. Lögreglumaður frá Gambíu átti, samkvæmt flóttaáætluninni, að afhenda honum og ungri unnustu hans vegabréf og skjöl í Barcelona, sem sýndu að hann væri senegalísk- ur sendifulltrúi. Barcelona átti að vera síðasti viðkomustaðurinn á flóttanum til Senegal. Lögregluþjónninn er föðurbróðir Gambíumannsins, sem var sam- fangi Treholts og einn af sam- verkamönnum hans í meintri flótta- tilraun. Spurst hefur út að lögreglu- þjónninn átti að fá 10 þúsund norskra króna, jafnvirði nær 60 þús. ísl. kr., fyrir að koma með hin föl- suðu skjöl til Spánar. Hin unga vinkona Treholts er ákærð fyrir skjalafals og aðild að flóttatilrauninni. Henni er gefíð að sök að hafa útvegað falsað brezkt vegabréf fyrir Treholt. Það er ekki refsivert að stijúka úr fangelsi, en lögreglan útilokar ekki þann möguleika að Treholt verði ákærður fyrir aðild að vega- bréfsfölsuninni. Verði af ákæru af þessu tagi á hann yfir höfði sér refsingu til viðbotar 20 ára fanga- vist, sem hann var dæmdur til fyrir njósnir. Reneé Michelle Steel, hin unga vinkona Arne Treholt, eins og norsk- ur teiknari sá hana fyrir sér eftir lýsingu vitna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.