Morgunblaðið - 27.06.1986, Page 22

Morgunblaðið - 27.06.1986, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1986 Japan: Þingrofið helsta kosningamálið Tókýó, AP. SÚ ÁKVÖRÐUN Ysauhiro Naka- sone, forsætisráðherra Japans, að ijúfa þing og' boða til nýrra kosninga til beggja deilda er orðið helsta málið í kosningabar- áttuni. Ekkert fordæmi er fyrir þvi að forsætisráðherra hafi rofið þing i Japan á kjörtímabil- inu og efnt til kosninga, en þær verða i landinu 6. júní nk. Þótt Nakasone sjálfur hafi leitast við að draga athygli frá þingrofínu, og lagt áherslu á fjármála- og menntamálastefnu stjómarflokks- ins, Frjálslynda lýðræðisflokksins, þá hafa andstæðingar hans einblínt á þetta mál. Þeir hafa sakað Naka- sone um að hafa misnotað aðstöðu sína með að ijúfa þingið og ekkert hafí réttlætt þá ákvörðun. Fréttaskýrendur telja að ástæða þess að Nakasone tók þann kost að ijúfa þingið hafí verið sú að hann vildi gegna áfram embætti forsætisráðherra á næsta kjörtíma- bili. Samkvæmt flokkslögum Frjáls- lynda lýðræðisflokksins, er for- manni flokksins óheimilt að gegna forsætisráðherraembættinu lengur en tvö kjörtímabil. Nakasone hefur verið við völd þijú og hálft ár. Fijálslyndi flokkurinn hefur hreinan meirihluta á þingi, og er því jafnvel spáð að flokknum takist að auka fylgi sitt í kosningunum. Vinsældir Nakasones em líka mikl- ar meðal kjósenda. Samkvæmt skoðanakönnunum em yfír 50% þjóðarinnar ánægðir með störf hans. Er það um 10% meira fylgi en flestir forverar hans í forsætis- ráðherraembættinu höfðu. ísjaka flogið til New York OsIó.AP. NORSKT vínfyrirtæki sendi tveggja tonna ísklump til Banda- ríkjanna i fyrradag og var hon- um komið fyrir á stalli fyrir utan nýtt norskt safn i New York i gær. Klumpurinn, sem er um 2.000 ára gamall, var hogginn út úr jökli í miðhluta Noregs og fluttur með þyrlu til Oslóar, þar sem hann var settur um borð í SAS-þotu, sem flaug með hann til New York. Norska safnið var vígt og opnað í gær, en það er við South Street í New York. Opnuðu það Ed Koch, borgarstjóri, og Walter F. Mondale, fyrmrn varaforseti Bandaríkjanna, sem er af norskum ættum. Efnt var til hátíðahalda við safnið í gær í tilefni eitthundrað ára afmælis frelsisstyttunnar, sem stendur við innsiglinguna til New York-hafnar. Hófst hátíðin á því að norska skólaskipið Christian Radieh, sem er ljölmastra segl- skúta, sigldi inn á höfnina. Skútan mun taka þátt í hópsiglingu stórra seglskipa í höfninni í New York 4. júlí nk. Fyrstu frönsku glasatvíburarnir Fyrstu frönsku glasatvíburamir fæddust í París í lok síðustu viku. Þeir heita Vincent (t.h.) og Camille. Mjmdin var tekin af þeim daginn eftir fæðinguna. Frjóvgað egg var sex mánuði í djúpfrosti áður en því var komið fyrir í legi móður þeirra. Bandaríkin: Ensk útgáfa Pravda nýtur aukinna vinsælda FLESTIR kannast við rússneska blaðið Pravda , sem er málgagn Kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Þeim er eflaust einnig kunnugt nm að nafn þess þýðir „Sannleikur". En Vesturlandabúar vita fæstir nokkuð iim innihald þess. Aðalástæða þess er vafalítið sú að málið er óaðgengilegt, þar sem það er ritað með sýrillísku letri, en ekki rómversku, eins og við eigum að venjast. Nú hefur þessari hindrun verið rutt úr vegi, þar sem að hafin er útgáfa blaðsins á ensku. Rússar falast eftir japönskum tölvum Tókýó, AP. RÚSSAR reyna um þessar mund- ir að fá keyptar 10.000 heimilis- tölvur í Japan til nota í skólum landsins, að sögn japanska blaðs- ins Asahi Shimbun. Blaðið segir sovézka sendinefnd stadda í Tókýó og að hún eigi í viðræðum við fulltrúa nokkurra fyrirtækja sem framleiða heimilis- tölvur. Talsmenn fyrirtækjanna veijast allra frétta af viðræðunum og vilja ekki einu sinni staðfesta að þær eigi sér stað. Japanskt fyrirtæki, Nippon Gakki, seldi Sovétmönnum 4.000 tölvur sem það segir henta byijend- um, í fyrrahaust. Andvirði hverrar tölvu var 360 dollarar, eða um 15 þús. ísl. kr. Charles Cox, en hann er útgef- andi í St. Paul í Minnesota, tók ákvörðunina um útgáfu fyrir tveim- ur árum. Hann sá fram á að það væri markaður fyrir biaðið meðal embættismanna, rússneskunem- enda og fleiri. „í upphafí gerðum við ráð fyrir að við seldum flest blöðin í áskrift, til bókasafna, há- skóla, stórfyrirtækja o.s.frv. En okkur á óvænt, fóru blaðsölutumar að panta blaðið." Blaðið hefur selst vel í borgum eins og Washington og Cambridge í Massachusetts, en það selst líka vel í bændaþorpum eins og Greeley í Colorado. Cox hefur ekki samið um út- gáfuréttinn við Sovétmenn, enda ekki víst að þeir vilji semja við gróðahyggjumann sem hann. Blað- ið hefur hins vegar greint frá hinni ensku útgáfu, og að því er virðist, af velþóknun. Hvorki verður sagt að blaðið sé mjög spennandi, né fyrst með frétt- imar. En dálkahöfundurinn Craig Farr segir það ágætis svefnmeðal, og bætir við að 90% af hinu átta síðna blaði fjalli um framgang bylt- ingarinnar, hvemig verkalýðshetjur eins og rennismiðurinn S. Shulekov fari fram úr fímm ára áætluninni og stóraukna ísskápaframleiðslu í Omsk. Blaðið hefur einnig komið út f London um nokkurt skeið og nýtur samskonar vinsælda þar. (Úr Washington Post.) Þúsundir flýja óveðurssvæðin við Mexíkóflóa Málaferlin út af „Cannery Row“: Raquel Welch dæmd- ar ellefu milljón- ir dollara í bætur Los Angeles, AP. LEBKKONAN Raquel Welch vann á þriðjudag mál, sem hún höfðaði á hendur kvikmynda- fyrirtækinu Metro-Goldwyn- Mayer og nokkrum frammá- mönnum þess vegna brott- rekstrar úr starfi. Voru henni alls dæmdar 11 milljónir doll- ara (ríflega 450 millj. isl. kr.) f bætur. „Ég bjóst aldrei við svo miklum yfírburðasigri," sagði Welch, er hún yfírgaf húsakynni hæstarétt- ar. „Fyrir mér vakti það fyrst og fremst að hreinsa mannorðið og komast aftur til starfa minna í kvikmyndum." Hún krafðist 20 milljóna doll- ara bóta og hélt fram, að David Begelman, fyrrum framkvæmda- stjóri MGM, Michael Phillips, kvikmyndaframleiðandi og David Ward, leikstjóri, hefðu bundist samtökum um að flæma hana úr hlutverki sínu í kvikmyndinni „Canneiy Row“ („Ægisgata") og ráða leikkonuna Debru Winger f hennar stað. Christina Snyder, lögmaður stefndu, sagði undir lok réttar- haldanna í sfðustu viku, að sam- særiskenning stefnanda væri hlægileg og fráleit. Dómurinn komst að þeirri nið- urstöðu á þriðjudag, að um sam- særi hefði verið að ræða og leik- konan hefði tapað tekjum og orðið fyrir álitshnekki. Dómurinn úr- skurðaði ennfremur, að kvik- myndafyrirtækið hefði rofíð samning sinn við hana. Raquel Welch Samkvæmt úrskurðinum voru Raquel Welch dæmdar 7,65 millj- ónir dollara í miskabætur, að mestu leyti úr hendi MGM, auk bóta vegna tekjutaps. Fram- kvæmdastjóranum var gert að greiða leikkonunni 694.444 doll- ara og framleiðandinn var dæmd- ur til að reiða fram 27.500 doll- ara. Leikstjóranum var ekki gert að greiða bætur. Kvikmyndin „Cannery Row“, sem gerð var 1980 eftir sam- nefndri sögu John Steinbecks, hlaut dræma aðsókn og misjafnar viðtökur hjá gagnrýnendum. Port Arthur, Texas, AP. HVIRFILBYLURINN Bonnie geystist inn yfir strönd Mexíkó- flóa fyrir sunnan bæinn Port Arthur í Texas í gærmorgun og var vindhraðinn þá orðinn um 135 km á klukkustund. Þúsundir íbúa við ströndina höfðu þá yfir- gefið heimili sín og flúið lengra inn í land. Viðvaranir voru gefnar út fyrir 435 kílómetra langt svæði frá ná- grenni Morgan City í Louisiana til Freeport í Texas. Ekki hafa borist fregnir um al- varlegt tjón, en vitað var að raf- magnslínur höfðu slitnað og vegir farið undir vatn í gífurlegri úrkomu, sem fylgdi veðurofsanum. Um 12 þúsund manns yfírgáfu heimili sín á miðvikudagskvöld, þar af um 5 þúsund í Galveston og nágrenni og um 7 þúsund f Camer- on-héraði. Þá voru um 8.000 starfs- menn fluttir í land af borpöllum úti fyrir ströndinni. Andrew prins og Sarah: Ovænt heimsókn til Norður-írlands Belfast, AP. ANDREW prins og konuefni hans, Sarah Ferguson, komu óvænt og fyrirvaralaust til Norð- ur-írlands í gær. Opnuðu þau nýja sjúkrahúsálmu, fylgdust með keppni á fþróttadegi lög- reglunnar og snæddu jarðarber og ijómaís í garðveizlu. Þetta er í fyrsta sinn sem ungfrú Ferguson kemur til Norður-írlands. Þegar út spurðist um nærveru hins konunglega pars dreif að mann- fjölda til að hylla það. Venja er að halda áformum um ferðalög konungfólksins til Norð- ur-írlands leyndum fram á síðustu stundu, til þess að öryggi þess megi verða sem mest. Andrew prins og Sarah Ferguson fóru á milli staða í herþyrlu eða skotheldri bif- reið og hermenn sáust á húsþökum þar sem leið þeirra lá um. Árið 1981, rétt fyrir giftinguna, hugðust Karl prins og lafði Dfana heimsækja Norður-Irland. Lekið var í blöð að ferðin stæði fyrir dyrum og var hætt við allt saman eftir að fréttin birtist. Ástæðan var sögð ótti um öiyggi þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.