Morgunblaðið - 27.06.1986, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.06.1986, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1986 Það er mál manna innan tón- listarheimsins að söngkonan Diana Ross hafí aldrei ljómað eins af lífsgleði og hamingju og einmitt nú. Hún er nýgengin í hjónaband með milljónamær- ingnum Ame Næss, sem er norskur að ætt og uppruna. Hún er ástfangin upp fyrir haus og auk þess sem hún hefur nóg að gera, bæði við að syngja og leika í kvikmyndum. Þessa dagana er hún t.a.m. önnum kafín við upp- tökur á mynd, sem íjallar um líf og starf Josephine Baker, en þar * fer Diana með aðalhlutverkið. Engu að síður hefur hún stöku sinnum gefíð sér tíma til að fylgja manni sínum eftir á alls kyns fyrirlestra og fundi, sem hann hefur haldið. Auk þess að vera mikill viðskiptajöfur er Ame m.a. einn þeirra sem klifíð hefur fyallið Mount Everest. Fyrir skömmu hélt hann fyrirlestur í Noregi um það afrek sitt og svaraði spum- ingum áheyrenda um allt milli “> himins og jarðar — allt frá auðæf- um sfnum til sambandsins við Ross. Söngkonan sat út í sal og fylgdist með manni sínum úr í heilagt þjónaband - brúðkaups- mynd Ross og Næss. ^arlægð og lét ekkert fram hjá sérfara. En þegar Ame Næss fór að líkja Qallinu við konu kom hann við veikan blett á söngkonunni, baráttuandinn gerði vart við sig og kvenréttindakonan Diana Ross gat ekki stillt sig, stóð upp og spurði hvemig í ósköpunum honum dytti í hug að líkja dauðu fjallinu við konu? Hvort honum fyndist klifur í klettum eins spennandi og konur yfírleitt? Það fór kliður um salinn og áheyrend- ur óttuðust að nú hefði Ame gengið of langt og ákveðinn hóp- ur blaðamanna á fundinum flýtti sér að hripa niður fyrirsögn frétt- arinnar — „Stjömustríð milli Ross og Næss“ — „Ross stefnir Næss fyrir meiðyrði" — og annað í þeim dúr. En Ame Næss tók þessari fyrirspum eins og hverri annarri, varð að vísu dálítið vandræðalegur en sagði: „Ég veit ekki alveg hvemig best er að útskýra þetta, en fyrir mér er Qallið kvenkyns. Ég hef aldrei getað staðist fyöll. Þau em allt í senn, lokkandi, heillandi, fögur, en um leið lífshættuleg. Alveg eins og konur." — Stutt og lag- gott svar sem Diana kunni vel aðmeta. Hvaða kona gætí staðist jámviþ'a Ame Næss? - spyr Diana Ross. Hjónakomin á fyrirlestrinum fræga. Hvanneyr- ingar funda á afmælinu ændaskólinn á Hvanneyri verður 100 ára árið 1989. Þó þijú ár séu enn í afmælið eru forráða- menn skólans þegar famir að undirbúa hátíðahöldin. Staðarmenn era nú að undirbúa fegranarátak, en gert er ráð fyrir að haldið verði upp á afmælið með útihátíð einhvem dag í júní á afmælisárinu. Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson Hvanneyringar á stéttarsambandsfundi stilla sér upp til myndatöku í tilefni þess að gamli skól- mn þeirra verður 100 ára árið 1989. Stéttarsambandsfundurinn var einmitt haldinn á Hvanneyri að þessu sinni. V_______________________________________________________________________________________________________ Hvanneyringar hafa haft mikil áhrif í íslenskum landbúnaði. Það má meðal annars sjá á því að 30 fyrram nemendur skólans sátu aðalfund Stéttarsambands bænda sem haldinn var á Hvanneyri fyrir skömmu. Þar af vora 25 Hvann- eyringar kjömir fulltrúar á fund- inum, af 64 fulltrúum alls. Diana og* Arne ást- fangin upp fyrir haus Böm hafa löngum verið eitt uppáhalds- myndefni ljósmyndara um allan heim. Þau eru erfíð en eðlileg, harðneita að brosa eftir pöntun og era að öllu leyti laus við alla tilgerð. Viðfangseftiið er því bæði heill- andi og krefjandi því það getur vissulega tekið á taugamar að reyna að fá þau til að horfa á myndavélina, hvað þá heldur að sitja kyrr. Krúttleg kríli Fáar bamaljósmyndir hafa þó vakið aðra eins athygli og mynd Sam Campanaro, sem tekin var fyrir u.þ.b. tveimur áram. Fékk hann þá til liðs við sig fímmtán fyrirsætur á aldrinum 3—4 mánaða af öilum kynflokk- um, stillti þeim upp og reyndi að festa á filmu. Eftir á, þegar myndin hafði vakið athygli um víða veröld, sagði Campanaro að þetta hefði verið virkilega vandasamt verk. Þessi krúttlegu krfli vildu nefnilega alltaf renna dálftið út á hlið og þegar eitt þeirra hætti að skæla tók bara annað við. En þrátt fyrir að það hafí kostað töluverða þolinmæði þá lét Sam það ekki aftra sér frá því að kalla öll bömin saman, tveimur áram síðar, raða þeim upp í sömu röð og smella af. - Um þetta verk sitt sagði hann: „Nú sé ég að fyrri myndin var alger hátíð. Þau vora þá bara óvitar, sem skekktust kannski pínulítið í stöðu sinni - en núna era þetta orðnir bandbijálaðir ærslabelgir. Þau hlupu út um allt, duttu, ráku sig á, týndust, rifust og slógust. Það tók mig fleiri klukkutíma að fá þau til að slappa af eina mínútu." - En árangurinn er vissulega vel þess virði - ekki satt?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.