Morgunblaðið - 03.07.1986, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚLt 1986
Lengi lifir í
gömlum glæðum ...
James Gamer og Sally Field i Murphy’s Romance
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Murphy’s Romance ★ ★ V2
Leikstjóri Martin Ritt. Handrit
Harriet Frank jr. og Irving
Ravetch. Aðalhlutverk Sally
Field, James Gamer, Brian
Kerwin, Corey Haim. Banda-
risk, Columbia 1985.
Maður hefur löngum nokkra
hugmynd um á hverju er von þegar
myndir Martins Ritt eru annars
vegar. Oftast eru þær hæglátar,
rómantískar og fjalla gjaman um
þá einstaklinga sem af einhveijum
ástæðum hafa orðið, eða eru undir
í lífsbaráttunni. Þeir eru yrkisefnið
hans Ritt og eiga samúð hans
óskipta. Hann fer manna nærfæm-
ustum höndum um oftast hráslaga-
legt veraldarvafstur þess. Um árabil
hefur hann unnið myndir sínar með
hjónunum og handritahöfundunum
Harriet Frank jr. og Irving Ravetch.
Þessi samvinna hefur m.a. alið af
sér þær ágætu myndir Hud Sound-
er, Conrack og Norma Rae.
Ritt hefur getið sér orð sem úr-
vals stjómandi leikara sinna, (gam-
all leiklistarkennari við Actor’s
Studioið í New York þar sem hann
kenndi m.a. þeim Paul Newman,
Joanne Woodward og Rod Steiger)
og Sally Field hlaut Óskarsverð-
launin fyrir titilhlutverkið í mynd
hans, Normu Rae.
Enn er Ritt staddur úti í dreif-
býlinu, að þessu sinni í smábæ í
Arizona og Field er í fararbroddi.
Hún kemur næsta tómhent til að
leita gæfunnar, ef undan er skilinn
sonur hennar, 12 ára gamall. Hefur
fest kaup á niðumíddum bóndabæ
þar sem hún hyggst reka tamninga-
stöð og hrossamótel. En bændum
líst illa á kvenmann sem tamninga-
mann og sama afstaða kemur upp
í bankanum þegar hún biður um lán.
Kvenréttindahreyfíngin virðist ekki
enn hafa numið land í hveiju
krummaskuði vestur þar. Ekki
bætir upp á sakimar er mannrolan
hennar fyrrverandi birtist einn góð-
an veðurdag og kjaftar sig inn á
mæðginin á nýjan leik.
Eini ljósi punkturinn í hversdags-
grámanum sem umlykur Field er
James Gamer, miðaldra ljrfsali og
einn af broddborgurum bæjarins.
Að lokum hefur gamli seigur skotið
sér yngri mönnum ref fyrir rass,
unnið ráðvillt hjarta Fields og þeim
mæðginum er borgið.
Það er ekki ný bóla þar vestra
(né annars staðar) að eldri menn
vinni hjörtu sér mun yngri kvenna,
(það gagnstæða nánast tabú) og
það er nokkur galli við myndina að
þessi endalok liggja í loftinu frá
upphafi. Sterkir karlar, ráðvilltar
konur, það fer ekki öðm vísi en á
einn veg. Maður bíður þess bara
að mannleran fyrrverandi hyskist út
úr myndinni sem og hann gerir við
lftinn orðstír og sá roskni taki sér
húsbóndavaldið. Annars er ýmislegt
laglega gert. Á hljóðlátan, næstum
lítillátan hátt kynnumst við þessari
fáséðu hlið americana; kyrrlátu
sveitaþorpi með sínu friðsama lífs-
munstri.
Sally Field leikur gamalkunnan
harðjaxl af öryggi, enda orðin slík-
um rullum vön. James kallinn Gam-
er stelur hins vegar myndinni (til-
nefndur til Óskarsverðlaunanna í
vor fyrir þessa túlkun sína), með
skemmtilega reffilegum leik og
skýrri, sterkri persónusköpun.
Hann átti í talsverðu stríði við að
fá hlutverkið. Talinn heldur roskinn.
En Gamer vann þá baráttu gegn
yngri mönnum sem og í myndinni
og sýndi, þegar á hólminn var komið
að hann hefur engu gleymt og er
enn stórvarasamur í kvennamálum!
Upp í hugann kemur brandarinn
um tuddana: Það vom tvö naut í
sama haganum. Annað gamalt, hitt
ungt. Allt í einu sagði unga nautið
við það gamla: „Sjáðu, bóndinn
hefur gleymt að loka hliðinu. Það
em nokkrar kýr þama í næstu
girðingu. Við skulum hlaupa þang-
að og taka tvær þeirra." „Nei,“
svaraði gamli tuddinn. „Við skulum
ganga og taka þær allar."
>>-*'•*'0-15
Hjá Sláturfélaginu
færðu allt í grillveisluna
og að auki fylgja hér
nokkur heilræði
um steikingu á teini
Þú færð allar tegundir af góðu kjöti á grillið, vínar- og
medisterpylsumar okkar vinsælu, kol, grillolíu, ótal
tegundir af kryddi, grænmeti og öðru meðlæti sem
þarf til að útbúa girnilega grillveislu.
Heilræði um steikingu á teini
Allt kjöt, fisk, brauð og grænmeti má glóða á teini, en
það er ekki sama hvernig það er gert. Best er að
smyrja teininn vel áður en þrætt er á hann. Grænmetið
er gott að skera I aðeins stærri bita en kjötið svo það
verði ekki ofsteikt þegar kjötið er tilbúið. Teinamat á
Kka alltaf að pensla áður en hann er settur á grillið -
annars ofþomar hann og skorpnar. Best er að nota
grillolfu eða kryddlög. Lögurinn gerir matinn meyran
og bragðgóðan, og hann er tilvalið að nota sem sósu
á eftir. Varast ber að stinga í kjötið á teininum - þá
lekur gómsætur safinn úr, og ekki er ráðiegt að strá
salti á kjötið fyrr en eftir að steikingu er lokið.
/
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS
™ och t #n f.fjífSSwSfer I
>' P*»vr. könm uáwn 0« ' í
^BÁSCÖ
f,vk 1 p'‘
ta'wn-M. kryddor
I /Míli
fVty
íslensk
tónlist
kynntí
Austur-
Þýskalandi
ÁGÚSTA Ágústsdóttir, sópran-
söngkona, og Gunnar Björnsson,
sellóleikari, kynna um miðjan júli
íslenska tónlist i Austur-Þýska-
landi.
Tónleikar verða haldnir í Dresd-
en, Erfurt og líklega Weimar, sagði
Ágústa Ágústsdóttir í samtali við
Morgunblaðið. Píanóleikari þeirra
verður Pólverjinn Anna Prabucka-
Firlej. Á efnisskránni eru sönglög
eftir íslenska höfunda og að auki
eftir Grieg og Síbelíus. Þá verður
flutt Prelúdíua í H-dúr fyrir selló
og pfanó eftir Skúla Halldórsson, Úr
dagbók hafmeyjunnar fyrir selló og
pfanó eftir Sigurð Egil Garðarsson
og Stefjaspil, nýtt verk eftir dr.
Hallgrím Helgason, fyrir selló og
píanó, tileinkað Gunnari Bjömssyni
sellóleikara.
Þremenningamir munu einnig
taka þátt í Alþjóðlega tóniistamám-
skeiðinu í Weimar, sem kennt er
við Franz Liszt-tónlistarháskólann
þar í borg. Námskeiðið stendur
dagana 10. til 23. júlí.
Agústa sagði þetta í fimmta sinn
sem þau tæku þátt í námskeiðinu
en það sækja að jafnaði nemendur
og prófessorar frá 20 til 30 löndum,
heimsþekkt fólk sumt af því.
Gunnar Björnsson sellóleikari og
Ágústa Ágústsdóttir sópransöng-
kona.