Morgunblaðið - 03.07.1986, Síða 31

Morgunblaðið - 03.07.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 1986 31 Sala á People Express: „Yfirlýsing gefin til að koma í veg fyrir hrun verðbréfa“ — segir Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða „ÞAÐ KÆMI mér ekki á óvart þó Peoples Express, Pan American og TWA muni hverfa af markaðnum í næstu framtíð, hvort sem hlutar þess verða seldir eða þau sameinuð öðrum flugfélögum, þetta er þróun sem er að eiga sér stað og mun halda áfram á Bandaríkja- markaði," sagði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, er hann var inntur álits á frétt um að bandariska flugfélagið Peoples Express væri til sölu. Hann taldi þó ekki að sögusagnir um að félagið væri að verða gjaldþrota ættu við rök að styðjast, sagði félagið í fjár- hagslegri endurskipulagningu, það ætti talsvert lausafé, og yfirlýsing um að það væri til sölu væri gefin til að koma í veg fyrir hrun verðbréfa. „í raun eru öll skráð fyrirtæki í Hann sagðist búast við að eftir Bandaríkjunum til sölu ef gott verð nokkur misseri yrðu ekki nema 5-6 fæst fyrir þau,“ sagði Sigurður. flugfélög í Bandaríkjunum, samein- Sjávarhitadreifing á 20 m dýpi umhverfis landið á tímabilinu 20. maí til 10. júní. Skálínubeltin tvö vestur og suðvestur af landinu tákna ísjaðar. Vorkomu seinkar í hafinu VORKOMA í hafinu er nú veru- lega seinna á ferðinni en tvö undanfarin góðærisár, segir í fréttatilkynningu frá Hafrann- sóknastofnun. Þann 10. júní lauk þriggja vikna leiðangri á rannsóknaskipinu Bjama Sæmundssyni, svonefndum vorleiðangri. í ferðinni fóru fram rannsóknir allt umhverfis landið á hitastigi, seltu, næringarefnum, þörungasvifí og dýrasvifi. Þá var útbreiðsla kolmunna á svæði milli íslands og Færeyja athuguð og reyndist vera mun meira magn af honum en undanfarin þtjú ár. Einkum var hér um að ræða þriggja ára ókynþroska fisk. Alls voru 9 sérfræðingar og rannsóknarmenn í leiðangrinum en leiðangursstjóri var Jón Ólafs- son. Leiðangursmenn komust að því að á norðurmiðum gætir verulega áhrifa hlýsjávar. Það kom hins vegar í ljós að sjór í yfirborðslögum á Vestfjarða- og og norðvesturmið- um var allt að einni gráðu kaldari en í febrúar. Stafar þetta trúlega af kælingu. vegna veðurfars á þessum slóðum í apríl og maí. Á norðaustur- og austurmiðum var hitastig tvær til þrjár gráður sem er um gráðu kaldara en í vorleiðangri 1985 en nálægt með- altali síðustu ára. Kaldsjórinn í Austur-íslandsstraumi var langt undan landi. Bygging Tónlistarskóla ísafjarðar stöðvast: Bæj arstj órninni boðinn samstarfssamningnr BYGGINGU Tónlistarskólans á ísafirði hefur ekki verið haldið áfram eftir að grunnur hússins var steyptur sl. sumar. Tónlistarfélaginu hefur verið neitað um fjárveitingu frá rlkinu, og synjaði bæjarstjórn- in beiðni um framlag á þessu fjárhagsári. „Við höfum nú kynnt bæjarráði hugmyndir okkar um samstarfssamning um byggingu skólans," sagði Pétur Hafstein, formaður Tónlistarfélags ísafjarðar. „Hljóti málið ekki jákvæða afgreiðslu er mjög tvísýnt um framtíð byggingarinnar." Aætlað er að bygging skólans muni kosta 25 milljónir króna, af þeiin liggja þegar 2 milljónir í grunn- inum. Bæjarstjómin veitti fé tii fram- kvæmdanna árið 1984 og 1985. „Við töldum þetta ákveðna vísbend- ingu um stuðning bæjaryfírvalda við skólann. Enn bindum við miklar vonir við að fé fáist til framkvæmda á næsta fjárhagsári," sagði Pétur. Á síðasta ári veitti menntamálaráðu- neytið einnig fé til skólans af sérstök- um fjárlagalið. Beiðni um beina fjár- veitingu var synjað af Alþingi með vísun til laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóia. Haraldur Haraldsson bæjarstjóri sagði að bæjarráð hefði gert tillögu um að tekin yrði afstaða til málefna skólans á næsta bæjarstjómarfundi. Enginn fundur er í þessari viku, og verður málið tekið fýrir fímmtudag- inn lO.júlí nk. ing flugfélaga hefði átt sér stað að undanfömu, t.d. hefði eitt stærsta flugfélag í Bandaríkjunum, Eastem Airlines, verið keypt af flugfélaginu Texas Intemational, en það var búið að kaupa annað félag og stjómar einn maður nú flórum flugfélögum sem eru samanlagt stærsta flug- félag Bandaríkjanna. „Við höfum fylgst mjög vel með Peoples Express, sérstaklega eftir að þeir byijuðu að fljúga yfír Atl- antshafíð, en félagið er orðið mjög stórt, þeir eru nýbúnir að kaupa þijú flugfélög í Bandaríkjunum á þessum vetri, þannig að Atlants- hafsflugið er mjög lítill hluti af heildarstarfsemi þeirra. Erfíðleikar þeirra stafa líklega helst af flugi innan Bandarílq'anna, þeir byijuðu að fljúga á lágum kostnaði og með lág fargjöld en önnur flugfélög hafa fylgt í kjölfarið og í dag er lítill munur á fargjöldum flugfélaganna. Félagið hefur tapað um 58 milljón- um dollara eða tæplega 2,4 milljörð- um á fyrstu þrem mánuðum þessa árs, og töpuðu tæpum 40 milljónum á síðasta ársfjórðungi í fyrra, þann- ig að þeir hafa tapað um milljón dollurum á dag að undanfömu og þess vegna hafa þessar sögusagnir myndast um að þeir séu að verða gjaldþrota." Hann sagði að Peoples Express hefðu getað boðið upp á lág fargjöld á Atlantshafinu, m.a. vegna þess hve sterkir þeir hafa verið í Banda- ríkjunum og því hafí fargjöld verið talsvert lægri í vetur en undanfarna vetur, fargjöld hefðu einnig lækkað þar sem flöldi Bandaríkjamanna hefði hætt við ferðir til Evrópu vegna ótta við hryðjuverk. „Við höfum fylgt markaðnum og sjáum ekki fram á að Peoples Express hætti á næstu vikum þannig að við gerum ráð fyrir óbreyttu ástandi næstu vikur og mánuði.“ Guðmundur Kristinn seldi í Grimsby GUÐMUNDUR Kristinn SU seldi á þriðjudag 55 lestir af fiski i Grimsby. Heildarverð var 2.369.000 krónur, meðalverð 43,10. Á mánudag voru seldar 330 lestir af fiski úr gámum og meðalverð fyrir þær 47,80 krón- ur á hvert kíló. Talsvert af fiski var einnig selt úr gámum á þriðjudag. Verð þá var mun lakara, en endanlegar tölur lágu ekki fyrir siðdegis. Afli Guðmundar Kristins var nokkuð blandaður. Fyrir 30 lestir af þorski fengust að meðaltali 44,30 krónur á kíló, fyrir 11 lestir af ýsu 49,29 og minna fyrir aðrar tegund- ir. 20% aflans fóru í fyrsta flokk og það sem eftir var skiptist jafnt milli annars og þriðja. Meðalverð á þorski úr gámum á mánudag var 51 króna, fyrir ýsu 55 og kola 36 krónur. Eins og fyrr er getið var verð á þriðjudag mun lægra, en endanlegir útreikningar lágu ekki fyrir síðdegis. Það mun vera á mörkunum að útflutningur á fersk- um fiski fyrir verð sem þetta borgi sig. . .. •.«»«! .■*, einu sinní í viku og velji sér kjúkiingadag. Hér birtist spennandi uppskrift úr samkeppni (SFUGLS, veldu þér kjúklingadag og reyndu uppskriftina. POTTKJÚKLINGUR ALMA EIR SVAVARSDÓTTIR Þessi uppskrift er fyrir 4-5 og jafnvel 6 manns þar sem meölæti er mikið og ertilvalin fyrir þá sem þurfa aó spara svolítið en vilja samt hafa veislumat. Hráefni: 1 stór kjúklingur 1 i/2kg. Kryddblanda: 4-6 msk. matarolía 2 maröir hvítlauksgeirar 4 msk. kjúklingakrydd salt, pipar, paprika smá sítrónusafi. Þetta er allt sett saman í skál, hrært í og er kjúklingurinn síðan penslaður allur vel með kryddleginum. Síðan er kjúklingurinn settur í eldfastan pott í heitan ofn, 275°C, og brasaður í 15 mín. Svo er hitinn minnkaður í 185°C og er kjúklingurinn steiktur í 1 klst. í viðbót. Soði er ausið yfir annað slagið. Á meðan er meðlætið búið til. Sósan: Soöiö af kjúklingnum sett á pönnu og rjóma helltútá. Snittubrauð: 1 msk.smjör 1 msk. mayonaise 1 msk. rifinn ostur aromat, hvítlauksduft. Hrært saman, snittubrauðið skorið endilangt, smurt með þessu, vafið álpappír, hitað í ofni. „GumsalaAlmos": 1/2 dós sveppir (safinn tekinn af þeim, best erþó að nota ferska sveppi) 1/2 rauöpaprika 1/2 gulpaprika 1 stórlaukur smjör til að steikja upp úr salt, pipar Allt smátt skorið og brúnað á pönnu við vægan hitS. G0TT-H0LLT 0GÓDÝRT ísfugl Sími: 666103

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.