Morgunblaðið - 03.07.1986, Side 72
STum
wm I
FASTEIGNA
jjjl MARKAÐURINN
Í^LÍI
LIFLEG SALA
Okkurvantar
eignirásöluskrá
símar: 11540—21700
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 1986
VERÐILAUSASOLU 40 KR.
Sala gámafisks í júní:
25% verðlækkun
frá upphafi til
loka mánaðarins
ÍSLENDINGAR seldu ferskan fisk úr fiskiskipum f Bretlandi og
Þýzkalandi og gámum í Bretlandi fyrir 326 milljónir króna í síðasta
mánuði samkvæmt upplýsingum LIÚ. Alls voru með þessum hætti
seldar 6.341 lest og meðalverð á hvert kiló var 51,42 krónur. Meðal-
verð fyrir fisk úr gámum var 51,97 krónur en 49,96 úr fiskiskipum.
Hæst varð meðalverð úr gámum í fyrstu viku mánaðarins, 61,93 krón-
ur, en lægst í síðustu vikunni, 44,78, eða um 25% lægra. Hæst meðal-
verð skipa var 65,94 krónur hjá Sunnutindi SU, en iægst verð fiski-
skipa 36,48 krónur hjá Þorsteini GK.
Fiskiskipin seldu alls í mánuðinum
2.255 lestir að verðmæti 112,7 mill-
jónir króna og meðalverð var 49,96.
I fyrstu vikunni voru seldar 432
lestir að verðmæti 24,8 milljónir,
meðalverð 57,34; í annarri viku 684
lestir að verðmæti 33,2 milljónir,
Bensínið lækkar
um 2 krónur:
Sterka bensín-
ið alls staðar
á sama verði
VERÐLAGSRÁÐ hefur sam-
þykkt verðlækkun á bensíni,
svartolfu og gasolfu. Bensínið
la»kk»r um 2 krónur, úr 28
krónum lítrinn f 26 krónur.
Þetta jafngildir 7% lækkun og
hefur bensin nú lækkað um
26% það sem af er árinu.
Sterka bensínið mun kosta
28,50 kr. hver lftri hjá öllum
olíufélögunum.
Gasolía lækkar um 1,20 krón-
ur, úr 8,40 krónum lítrinn í 7,60
kr. Nýtt svartolíuverð er 6.600
krónur tonnið, en það var 7.000
krónur fyrir lækkunina. Verð á
sterka bensíninu er sem kunnugt
er frjálst. Morgunblaðið fékk þær
upplýsingar hjá olíufélögunum
þremur að þau myndu eftirleiðis
selja sterkt bensín á 28,50 kr.
lítrann. Þetta þýðir að Skeljungur
og Esso lækka verðið um 2 krón-
ur, en OLÍS seldi sterka bensínið
á 29,90 kr. lítrann og lækkar
því verðið um 1,40 kr.
meðalverð 48,44; í þriðju viku 577
lestir að verðmæti 29,8 milljónir,
meðalverð 51,70 og í þeirri síðustu
561 lest að verðmæti 24,9 milljónir,
meðalverð 44,34 krónur.
Ur gámum voru seldar 4.086
lestir að verðmæti 213,4 milljónir
króna, meðalverð 51,97. í fyrstu
vikunni voru seldar 575 lestir að
verðmæti 35,6 milljónir, meðalverð
61,93; í annarri viku 1.105 lestir
að verðmæti_ 61,7 milljónir, meðal-
verð 55,87; í þriðju viku 899 lestir
að verðmæti 48,5 milljónir, meðal-
verð 53,98 og í þeirri síðustu 1.507
lestir að verðmæti 67,5 milljónir,
meðalverð 44,78.
Borgarspítalinn:
A leið á landsmót
Morgunblaðið/V aldimar Kriatinsaon
Margur reiðskjótinn lagði leið sína yfir Þjórsárbrú
í gær, en talið er að flestir þeirra er komi ríðandi
á mótið þurfi að fara yfir brúna þar sem áin er ófær
hestum. Gekk umferðin vel yfir brúna og sýndu
ökumenn þolinmæði og tillitssemi þegar hestarnir
töltu yfir þennan flöskuháls á leið sinni á landsmótið.
Sjá frétt frá landsmótinu á bls. 5.
Allir meinatæknar
segja upp störfum
— nærri helmingur meinatækna á Landsspítalanum
hættur eöa að hætta vegna óánægju meö kaup og kjör
ALLIR meinatæknar Borgarspít-
alans, um 40 manns í 30 stöðum,
sögðu upp störfum sínum á mánu-
daginn og láta þeir af störfum
1. október í haust takist ekki nýir
samningar fyrir þann tfma.
Ástandið á Landsspítalanum er
þegar orðið alvarlegt af sömu
Þórír Oddsson um þátt iðnaðarráðherra í Hafskipsmáli:
Reynt að ljúka rann-
sókninni um helgina
Eindregin ósk iðnaðarráðherra til ríkissaksóknara að rann-
sókn á meintri aðild hans að Hafskipsmálinu verði flýtt
ALBERT Guðmundsson iðnaðarráðherra hafði í gærmorgun
samband við Hallvarð Einvarðsson, nýskipaðan ríkissaksóknara,
og kom á framfæri við hann eindreginni ósk sinni um að ríkissak-
sóknari hlutaðist til um að hraðað yrði svo sem unnt væri rann-
sókn á meintri aðild ráðherrans að Hafskipsmálinu.
„Iðnaðarráðherra hefur farið
þess á leit við mig að rannsókn á
meintri aðild hans að Hafskipsmál-
inu verði hraðað svo sem unnt er,“
sagði Hallvarður Einvarðsson í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hallvarður sagði að eindregin ósk
þessa efnis hefði borist honum í
gærmorgun og hann hefði komið
þeirri ósk á framfæri við Þóri
Oddsson, settan rannsóknarlög-
reglustjóra.
„Við höfum haft það að markmiði
að hraða þessari rannsókn og auð-
vitað munum við reyna að verða
við þessum tilmælum sem ríkissak-
sóknari hefur beint til okkar, að
hraða henni enn frekar," sagði Þórir
Oddsson, rannsóknarlögreglustjóri
ríkisins, er blaðamaður Morgun-
blaðsins spurði hann hvemig RLR
myndi bregðast við ósk iðnaðarráð-
herra.
Þórir sagðist allt eins búast við
að rannsókn á ætluðum þætti iðnað-
arráðherra í Hafskipsmálinu yrði
lokið um svipað leyti og rannsókn-
inni í máli Guðmundar J. Guð-
mundssonar. Kvaðst hann vonast
til þess að það yrði um eða eftir
næstu helgi.
sökum, þvf að frá áramótum
hefur rúmlega þriðjungur meina-
tækna þar sagt upp störfum.
Horfir nú til mikilla vandræða á
rannsóknarstofum spítalans, að
sögn Davíðs Á. Gunnarssonar,
forstjóra Rikisspftalanna.
Meinatæknamir sögðu upp vegna
óánægju með launakjör sín, að sögn
Jóhannesar Pálmasonar, fram-
kvæmdastjóra Borgarspítalans.
Grunnlaun meinatækna munu vera
um 30 þúsund krónur á mánuði.
„Þeir telja að nýgerðir sérkjara-
samningar séu ekki fullnægjandi og
því sögðu þeir allir upp með venju-
legum fyrirvara," sagði Jóhannes í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gær.
Davíð Á. Gunnarsson sagði að
frá síðustu áramótum hefði rúmlega
þriðjungur af um 30 meinatæknum
Landsspítalans, sem starfa á rann-
sóknarstofum í blóðefnafræði og
blóðmeinafræði, sagt upp störfum
og þar af væru einir sex hættir.
„Við fáum ekki nýtt fólk í stað
þeirra, sem hætta, og því höfum við
verið í miklum vandræðum. Ef ekki
verður komið verulega til móts við
kröfur þessa fólks, þá verða vand-
ræðin á rannsóknarstofum gífurleg
eftir einn mánuð eða svo,“ sagði
Davíð.
Hann sagðist ekki muna eftir slíku
ástandi fyrr. „Stéttarfélög heilbrigð-
isstéttanna, m.a. meinatækna, hafa
verið að ganga frá sérsamningum
sínum að undanfömu og staðfest þá
í flestum tilvikum með miklum at-
kvæðamun," sagði hann. „Á sama
tíma ber hinn einstaki starfsmaður
sig upp við okkur og lýsir mikilli
óánægju með kaup sitt og kjör. Þetta
er vel menntað og afar hæft tækni-
fólk, sem fær betri vinnu og laun í
einkageiranum. Uppsagnimar hafa
í för með sér mjög aukið vinnuálag
hjá þeim, sem eftir em - í rauninni
meira álag en nokkurt vit er í. Okkar
vandi er sá, að við semjum ekki sjálf-
ir við okkar starfsfólk, heldur launa-
deild fjármálaráðuneytisins og því
sitjum við á milli fólksins og samn-
ingsaðilans. Þetta mál er allt mikið
umhugsunarefni fyrir þá, sem eiga
að taka á því, það er að segja stjóm-
völd í landinu."
Um mánaðamótin var gengið frá
nýjum sérkjarasamningum Borg-
arspítalans og röntgentækna spítal-
ans, sem sögðu upp síðla vetrar og
réðu sig tímabundið til loka júnímán-
aðar. Þar var um að ræða 10-15
manna hóp, að sögn Jóhannesar
Pálmasonar, og var m.a. samið um
eins launaflokks hækkun fyrir sér-
þjálfun röntgentæknanna. Þá hefur
og nýlega verið gengið frá nýjum
sérkjarasamningi við Hjúkrunarfé-
lag Islands. Launataxtar þess félags
voru samræmdir töxtum Félags há-
skólamenntaðra hjúkrunarfræðinga
og hafði það m.a. í för með sér
þriggja launaflokka hækkun fyrir
félaga í HÍ, einn flokk frá 1. febrú-
ar, annan frá 1. júlí og sá þriðji
kemur 1. september.