Morgunblaðið - 27.08.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1986
23
Náttúruhamfarirnar í Kamerun
„Gasið var svo eitrað að allt
visnaði — fólk, dýr og gróður“
— segir bandarískur trúboði
Yaounde, London, Vatíkanínu, Madrid, AP.
HERMENN með gasgrimur
töldu í gær lík fórnarlamba eit-
urgassins, sem lagði upp úr
gígvatni i Kamerún á fimmtu-
dag, og leituðu eftirlifenda.
Stjóm Kamerún lýsti yfir því í
gær að 1.534 hefðu látist af
völdum gassins og hafa starfs-
menn neyðarhjálpar Samein-
uðu þjóðanna, sem staddir em
í Yaounde, höfuðborg Kamer-
ún, staðfest þessa tölu.
Erik Hágglund, talsmaður
neyðarhjálpar SÞ, taldi að gasið
hefði valdið raski hjá um tuttugu
þúsund manns. Stjóm Kamerún
hefur sagt að gasið hafí valdið
þijátíu þúsund manns sárum og
tjóni.
Þorpið Nios, sem stendur við
gígvatn með sama nafni, varð
verst úti. Þar bjuggu um 700
manns. Önnur þorp nærri vatninu
urðu einnig illa úti.
Fred Tern Hom, hollenskur
prestur, sagði að hann hefði farið
í eitt þorpið eftir að hörmungam-
ar dundu yfír. Þar sá hann karla,
konur og böm liggja örend á veg-
um, fyrir utan hús sín og í rúmum.
í þriðjudagsblaði Daily Mail er
vitnað í bandarískan trúboða:
„Gasskýið eyddi öllu lífí. Það var
engin eldsprengja en gasið var svo
eitrað að allt visnaði — fólk, dýr
og gróður. Regnskógurinn, sem
áður var grænn, er nú líkastur
risastóru eyðilandi."
Aðrir áttu aldrei
lífsvon
Annar prestur á svæðinu, John
Ambe, lýsti ástandinu í sjúkrahúsi
í Wum, sem er næsta stóra borg
við vatnið. „Allir, sem færðir vom
hingað frá vatninu, höfðu bmna-
sár á líkamanum,“ sagði Ambe í
viðtali við BBC. „Fólkið var hrætt
og ástandið sló alla út af laginu.
Aðrir íbúar þorpanna létust af
gaseitmn og áttu aldrei lífsvon."
Hann sagði að prestar, sem fóm
í þorp við vatnið Nios, hefðu
greint frá því að verið væri að
jarða fólk í íjöldagröfum. Að hans
sögn lagði gasið upp úr vatninu
á fímmtudag en ekki föstudag
eins og hingað til hefur verið
greint frá.
Enn er ekki ljóst hvaða gasteg-
und fólkið varð að bráð. Stjóm
Kamerún sagði á sunnudag að
brennisteinsvetni hefði losnað úr
viðjum á botni vatnsins við
sprengingu. Eldflallasérfræðingar
telja líklegra að ýmsar gerðir eit-
urgasefna _ hefðu komið upp úr
vatninu. Ýmsar gastegundanna
hefðu verið lyktar- og litlausar
og þar á meðal hefði verið kolsýr-
ingur.
Svæðið, sem hörmungamar
dundu yfír, er eitthvert það feg-
ursta í Afríku. íbúar þar búa í
litlum strákofaþyrpingum í
hlíðum hálendis Kamerún. Og
þama teygir sig röð eldíjallatinda
og djúpra dala inn í austurhluta
Nígeríu.
Bretar réðu áður yfír svæðinu
og var það þá hluti af Nígeríu.
Þegar Bretar létu af stjóm ákváðu
íbúamir í atkvæðagreiðslu að
heyra undir Kamerún.
Dr. Guðmundur Sigvaldason
jarðf ræðingur.
leggst yfir í slíku magni, sem hér
um ræðir, finna menn aðeins lykt-
ina í fyrsta andartaki. I næsta
andartaki em allar lyktarfrumur
óvirkar og í þriðja andartaki er
maðurinn allur,“ sagði Guðmund-
ur að lokum.
Eiturgas af rotnandi dýra-
leifum losnaði úr læðingi
— segir Guðmundur Sigvaldason jarðfræðingur, sem tel-
ur hörmungarnar hafa verið af líffræðilegum toga
„OKKAR tilgáta er sú að hörm-
ungarnar i Kamerún hafi verið
líffræðilegs eðlis,“ sagði Guð-
mundur Sigvaldason, jarðfræð-
ingur og formaður Alþjóðasam-
bands eldfjallastöðva, í viðtali
við Morgunblaðið. Hann telur
að stöðuvatnið Nios sé mjög
kyrrt. Efstu lög vatnsins séu
súrefnisrík en súrefni minnki
eftir því sem neðar dregur. Við
slíkar aðstæður myndist í rotn-
andi dýraleifum brennisteins-
vetni og kolsýringur, sem hafi
losnað úr læðingi við jarð-
hræringar.
Guðmundur var spurður hvort
íslenskir sérfræðingar yrðu sendir
til Kamerún til að aðstoða þarlend
yfírvöld: „Menningar- og fræðslu-
stofnun Sameinuðu þjóðanna,
UNESCO, hefur boðið fram að-
stoð. Ekki er vitað hvort sú aðstoð
verður þegin. Aðstoðin yrði í því
fólgin að senda á vettvang menn
sem veitt gætu sérfræðilega ráð-
gjöf. Svo vill til að Alþjóðasam-
band eldfjallastöðva hefur komið
sér upp miklum upplýsingabanka
og við erum ráðgefendur
UNESCO í málum af þessu tagi.
Veitum við aðallega ráðgjöf um
hverja eigi að senda og hvað eigi
að aðhafast þegar svona kemur
upp,“ sagði Guðmundur.
„I þessu máli var eðlilegt að
einhver Islendingur færi, annars
er það undir hælinn lagt hvort
íslendingar eru með í slíkum ferð-
um.
Það er erfítt að gera sér grein
fyrir því hvað er að gerast í Kam-
erún og hefur enn ekki verið
ákveðið hvort UNESCO sendir
hjálp. Fjölmargir aðiljar hafa boð-
ið fram aðstoð og því óvíst að
þeir telji ástæðu til að leita til
UNESCO.
Það er mjög á reiki hvað gerð-
ist. í fréttaskeytum segir að
sprenging hafí orðið, en það er
ákaflega óljóst. Einnig er talað
um að fólk hafí heyrt eitthvað og
annars staðar minnst á jarðhrær-
ingar.
Víst er að þetta hefur gerst
mjög snögglega og því hugsanlegt
að einhver hljóð hafi heyrst. Ein-
hver hreyfing hlýtur að hafa
komið á vatnið þegar gasbólur
komu upp á yfirborðið með tölu-
verðum krafti. Það á eftir að koma
í ljós hvað gerðist. En okkar get-
gáta nú er sú að þetta sé líffræði-
legs eðlis frekar en af völdum
eldvirkni. Þegar dýraleifar rotna
í súrefnissnauðu vatni myndast
brennisteinsvetni og kolsýringur.
Við teljum að þarna hafí orðið
einhver hræring og við það hafi
gasið losnað skyndilega með fyrr-
greindum afleiðingum. Þetta er
nákvæmlega það sama og gerist
þegar egg fúlnar. Þá myndast
brennisteinsvetni og menn geta
rétt ímyndað sér hvemig er að
vera innilokaður í herbergi þegar
þúsund fúlegg eru brotin í einu.
En þegar brennisteinsvetni
AP/Símamynd
Hafin ráðstefna hlutlausra og óháðra ríkja
Áttunda ráðstefna Samtaka hlutlausra ríkja
hófst í gær í Harare í Zimbabwe. 101 ríki í
Afríku og Asíu á aðild að samtökum þessum
í gær voru haldnir undirbúningsfundir en sjálf
ráðstefnan hefst í dag. Búist er við að harðorð-
ar ályktanir varðandi kynþáttastefnu sljórn-
valda í Suður-Afríku og stefnu Bandaríkja-
stjórnar gagnvart Nicaragua verði lagðar
fram á ráðstefnunni. Myndin er frá opnun-
arhátíðinni.
Kjarnorkuverið í Chernobyl:
Meingallað af
teikniborðinu
Hinn mannlegi þáttur gleymdist
Vín, AP.
VIÐ hönnun kjarnorkuversins
í Chernobyl gleymdist að gera
ráð fyrir að starfsmönnum
þess gætu hugsanlega orðið á
mistök, segir Bryan Edmond-
son, þekktur breskur sérfræð-
ingur um nýtingu kjarnorku.
Margir vísindamenn telja að
Sovétsljórnin vilji ekki viður-
kenna mistök við hönnun
kjarnakljúfsins í kjarnorku-
verinu og leggi þess vegna
áherslu á að slysið hafi orðið
vegna mistaka starfsmanna.
í skýrslu Sovétstjórnarinnar
um Chernobyl var farið hörðum
orðum um vanrækslu starfs-
manna þess og þeir gerðir ábyrgir
fyrir slysinu. Hins vegar sagði
Valery A. Legasov, háttsettur
yfirmaður kjamorkumála í Sov-
étríkjunum, á mánudag að allir
kjamakljúfar, sem væru sömu
gerðar og sá sem sprakk í
Chernobyl, hefðu nú verið teknir
úr notkun til þess að unnt væri
að endurnýja þá.
Um 500 sérfræðingar frá 50
löndum funda nú í Vín á vegum
Alþjóðakjamorkumálastofnunar-
innar um hvem lærdóm megi
draga af Chemobyl-slysinu og
er Legasov fulltrúi Sovétstjómar-
innar.
Vísindamenn frá Vesturlönd-
um hafa látið í það skína að
Sovétmenn leggi áherslu á mistök
starfsmanna versins til þess að
hylma yfír alvarlega hönnunar-
galla kjarnakljúfsins. Flestallir
kjarnakljúfar í Sovétríkjunum eru
sömu tegundar og sá sem spreng-
ingin varð í 26. apríl síðastliðinn.
Árið 1976 skoðuðu breskir sér-
fræðingar sams konar kjama-
kljúf í Leningrad og komust að
þeirri niðurstöðu að hönnun hans
væri ábótavant hvað varðaði sjö
mikilvæg atriði.
ERLENT