Morgunblaðið - 04.09.1986, Page 18

Morgunblaðið - 04.09.1986, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986 Lambakj ötsneysla í hröðum vexti eftírívar Guðmundsson Markaðsátak bandarískra fjár- bænda, sem hófst í fyrrahaust með öllu því brauki og bramli, sem ein- kennir amerískar auglýsinga- og áróðursherferðir, hefír borið tilætl- aðan árangur og vel það. Amerískt lambakjöt er nú það vinsælt, að fjár- bændur geta ekki framleitt nóg til skiptanna. Verð hefír hækkað upp úr öllu valdi. Er svo komið að lambakjöt er nú í hærri verðflokki en nautalq'öt. í júlímánuði þegar nautakjöt seldist á 85 cent pundíð í heildsölu var dilkakjötsverð 1,56 dollarar. Nú er það að vísu ekki einsdæmi að á vissum tímum árs sé lamba- kjöt dýrara en nautakjötið en 70 centa munur á pundið var óheyrt. Fjárbændur rifa seglin Söluráð fjárbænda hefír nú ákveðið að rifa seglin í auglýsinga- herferðinni, þar sem aukin eftir- spum eftir lambakjöti yrði aðeins til þess að innflutningur ykist. En fjárbændur í Bandaríkjunum telja ekki ástæðu til að leggja sig fram og eyða tíma og fé í að auglýsa fyrir lambakjötsframleiðendur á Nýja-Sjálandi og í Ástralíu. Þessar tvær þjóðir, sem eru lang- stærstu innflytjendur lambakjöts til Bandaríkjanna, hafa þegar hagnast á auglýsingaframtaki íjárbænda. Innflutningur þeirra sl. ár jókst um 70% eða úr 18 milljónum punda í 32 milljónir punda. Og þótt inn- flutta kjötið sé ekki eins verðhátt og það innlenda, venjulega um 50 centum ódýrara í heildsölu, þá gera Ný-Sjálendingar og Ástralíumenn sig ánægða með það og sækjast eftir meiri sölu. Þessi aukni innflutningur lamba- lcjöts til Bandaríkjanna átti sér stað á sama tíma og við íslendingar sil- uðumst til að hasla íslensku dilka- kjöti völl á amerískum markaði. Kunnugir halda því fram að landinn hafí þar misst af „strætó" fyrir smámunalega tortryggni gagnvart væntanlegum viðskiptavinum. „Létt og ljúffengft“ vartöfraorðið í auglýsingaherferð fjárbænda var iögð áhersla á kjörorðið „létt og ljúffengt". En um þessar mund- ir fer sú árátta eins og eldur í sinu um Bandaríkin, að matur og drykk- ur eigi fyrst og fremst að vera „léttur og ljúffengur" til þess að mönnum heilsist vel og verði langlífír og hver stefnir ekki að því marki? Hitt skiptir minna máli eða gengið er fram hjá því þegjandi að létt getur stundum orðið „þungt" eins og kom fram í rannsókn, sem nýlega var gerð á bjórdrykkjuvenju manna eftir að „létti" bjórinn — „Ef núverandi eftir- spurn eftir lambakjöti í Bandaríkjunum helst eða ef hún eykst að nokkru ráði fer ekki hjá því að bæði Ný- Sjálendingar sem Ástr- alíumenn og ef til vill fleiri fái augastað á auknum innflutningi lambakjöts til Banda- ríkjanna“. Lite — kom á markaðinn. Það kom sem sé í ljós að þeir sem áður höfðu látið sér nægja einn sterkan bjór drukku nú þijá „létta" á sama tíma. Þannig breyttist létt í þungt. Og það kom ekki illa við bjórframleið- endur sem seldu þann létta á sama verði eða jafnvel dýrari en þann gamla, þunga. Hvort sama verður upp á teningnum hvað lambakjötið áhrærir skal ósagt látið og tíminn mun skera úr. Ferskt er tekið fram yfir fryst Önnur landlæg þjóðtrú í Banda- ríkjunum hvað mataræði snertir er að „ferskt" sé betra en „fryst". Þetta á sérstaklega við um kjöt og fískmeti. Hitt er svo algengt að matvælin sem fólk kaupir „fersk" eru sett í frysti er heim kemur. Þegar á þessa mótsögn er bent er viðkvæðið: „Já, en við vitum að maturinn var ferskur er við frystum hann. Hitt vitum við ekki þegar við kaupum fryst hvort það var ferskt þegar það var fryst hjá framleið- andanum." Kúabændur hyggja á fjárbúskap Kúabændur í Bandaríkjunum eiga við erfiðleika að stríða vegna offramleiðslu mjólkurafurða, ekki síður en þeir íslensku. Sagt er að hinar auknu vinsældir lambakjöts- ins hafí vakið þá hugsun hjá kúabændum, að best væri að hætta við beljumar og snúa sér að fénu. Það hefði einhvem tímann þótt saga til næsta bæjar ef nautgripabændur í Ameríku hefðu snúið sér að fjár- rækt. Það hefír jafnan verið litil virðing hjá kúabændum fýrir starf- semi ijárbænda og öfugt. En gamla máltækið segir að neyðin kenni naktri konu að spinna. En hinu er ekki að leyna að auglýsingaherferð Qárbænda hefír dregið úr nauta- kjötsneyslunni. Og það þurfti vafalaust ekki til þar sem „rauða kjötið" var farið að fá „óorð“ á sig fýrir að vera „þungur" matur og blátt áfram óhollur. Þrátt fyrir það er gert ráð fyrir að meðalneysla nautakjöts í Banda- ríkjunum fari upp í 78 pund á mann á þessu ári. En fyrir 10 ámm nam nautakjötsneyslan 94 pundum á mann. Þá var lambakjötsneyslan 1 pund á mann en er nú 1,7 pund. Það er því langt í land að ná meðal- talsneyslu Bandaríkjamanna í lambakjöti eins og hún var mest árið 1962 sem þá nam 5,7 pundum á mann. Til fróðleiks og saman- burðar má geta þess að fiskneysla í Bandaríkjunum er nú komin upp í 14,2 pund á mann og hefír aukist á tveimur árum um 2 pund á mann árlega. Það mun taka sinn tíma að rétta við og auka fjárstofn Banda- ríkjanna svo hann verði nægur til að anna lambakjötseftirspuminni. I lok seinni heimsstyijaldarinnar var íjárstofn Bandaríkjanna 56 milljón- ir hausa og er nú 10 milljónir talsins. Aukinn innflutningnr fyrirsjáanlegur Ef núverandi eftirspum eftir lambakjöti í Bandaríkjunum helst eða ef hún eykst að nokkru ráði fer ekki hjá þvi að bæði Ný-Sjálending- ar sem Ástralíumenn og ef til vill fleiri fái augastað á auknum inn- flutningi lambakjöts til Banda- ríkjanna. En það er ekki útilokað að þar geti orðið ljón á veginum ef ekki rætist úr stjómmálalegum erfíðleikum milli Bandarílqastjómar og „undir hnattar" þjóðunum tveim- ur, sem hafa neitað að hafa í höfn amerísk herskip, sem kunna að hafa kjamorkuvopn innanborðs. En Bandaríkjastjóm neitar að tilkynna hvort herskip þeirra hafa slíkan herútbúnað innanborðs eða ekki. Þessi ásteytingarsteinn gæti og komið snurðu á hemaðarbandalagið milli Bandaríkjanna og Ástralíu og Nýja-Sjálands. Þótt ekki yrði gripið til viðskiptabanns væri ekki frá því að vinslit milli þessara þjóða gætu haft slæm áhrif á verslunarvið- skipti þeirra. Möguleikar á aukinni uUarnotkun Það hefír og hresst upp á búskap íjárbænda að ný tækni í spuna ull- ar- og bómullarblöndu lofar góðu um betri nýtingu ullar en verið hef- ir undanfarið. Það þyrfti t.d. ekki annað en að stór gallabuxnaframleiðslufyrir- tæki fæm að sauma úr þessari nýju ullar- og bómullarblöndu til þess að ullin yrði á ný í hávegum höfð og nytsöm til klæða eins og hún hefir verið um aldaraðir. Höfundur starfaði á MorgunbUð- inuááninum 1934— '51, fyrstsem blaðamaður og aíðar sem frétta- stjóri. Hann gegndi ýmaum störf- um /yá Sameinuðu þjóðunum & árunum 1951—’71. Hann varðað- alræðismaður íslands INew York 1973 en býrnú í Washington.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.