Morgunblaðið - 04.09.1986, Page 23

Morgunblaðið - 04.09.1986, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986 23 Könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Samband ungra framsóknarmanna: Meirihluti hlynntur aðild útlend- inga að íslenskum fyrirtækjum Andstaða við aukin gjöld til skóla og heilbrigðisþjónustu MEIRA en helmingur kjósenda er hlynntur þvl, að útlendingum verði heimilt að eiga hlut í íslenskum fyrirtækjum, en þó ekki meirihluta. Þetta er ein nið- urstaðan í víðtækri þjóðmála- könnun, sem Félagsvisindastofn- un Háskóians gerði í vor fyrir Samband ungra framsóknar- manna og kynnt var á þingi SUF um siðustu helgi. Könnunin var framkvæmd dag- ana 26. apríl til 5. maí. Úrtakið var 1.500 manns á aldrinum 18 ára til 80 um land allt. Svör fengust frá 1.116 manns eða 74,4% þátttak- enda. Spumingin um eignaraðild út- lendinga var svo orðuð: „Sumum fínnst að útlendingar megi ekki eiga neinn hlut í íslensku fyrirtæki, en öðrum finnst það í lagi. Hvað fínnst þér?“ Síðan voru gefnir nokkrir svarmöguleikar. 21,6% vildu enga eignaraðild útlendinga, 12,7% voru hlynntir meirihlutaeign útlendinga, 8,2% helmingseign og 50,2% minni- hlutaeign. Greinilegur mismunur kom fram á afstöðu karla og kvenna. 32,3% kvenna vildu enga eignaraðild útlendinga, en sömu skoðunar voru aðeins 12,1% karla. 3,6% kvenna vildu heimila meiri- hlutaeign útlendinga, en 20,7% karla. Sé tekið mið af afstöðu svar- enda til stjómmálaflokkanna er stuðningur við meirihluta- eða helmingseign útlendinga mestur meðal kjósenda Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks, en minnstur með- al kjósenda Alþýðubandalags og Kvennalista. 60% telja Sjálf- tstæðisflokkinn atvinnurekendaflokk í könhuninni vom athuguð við- horf til kjósenda og eins og þegar hefur verið greint frá hér í blaðinu telur nærri helmingur kjósenda (46%) að Framsóknarflokkurinn sé ekki flokkur þéttbýlisins, heldur sé hann fyrst og fremst flokkur er gæti hagsmuna dreifbýlis. Fram- sóknarflokkur og Alþýðuflokkur vom helst taldir tækifærissinnaðir flokkar og Alþýðuflokkurinn var oftast nefndur sem flokkur sem lagar steftiu sína fljótt að breyttum aðstæðum. Um 29% af þeim sem kjósa Framsóknarflokkinn telja hann vera gamaldags og sömu sögu er að segja af 12% kjósenda Sjálf- stæðisfíokksins. Tölur fyrir aðra flokka em mun lægri. Þá telja tæp- lega 60% kjósenda Sjálfstæðisflokk- inn fyrst og fremst gæta hagsmuna atvinnurekenda, en ekki launafólks. Þessarar skoðunar em m.a. 32% kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Stuðningur við byggðastefnu reyndist mjög mikill meðal kjós- enda. Spurt var: „Ertu sammála eða ósammála því að stuðla beri að sem jöfnustum búsetuskilyrðum um allt land, þó það kosti aukin þjóðarút- gjöld?" 47,7% sögðust vera „alveg sammála", 23,2% „frekar sam- mála“, 14,1% „frekar ósammála" og 8,7% „algjörlega ósammála". Stuðningurinn við byggðastefnu reyndist mestur meðal kjósenda Alþýðubandalags (87,5%), Kvenna- lista (85,9%) og Framsóknarflokks (85%), en minni meðal kjósenda Alþýðuflokks (69,7%) og Sjálfstæð- isflokks (59,3%). Þá var stuðningur við byggðastefnu minni meðal kjós- enda í Reykjavík (64,5%) og á Reykjanesi (66,3%), en annars stað- ar á landinu (81,8%). Um helmingur sjálfstæðismanna vill skólagjöld Spurt var hvort fólk væri sam- mála því eða ósammála, að sjúkling- ar greiði sjálfír meira af kostnaði við heilbrigðisþjónustu og skóla (skólagjald), ef almennar skatta- lækkanir kæmu á móti. Um 70% voru „frekar ósammála" eða „al- gjörlega ósammála" því að sjúkling- ar greiddu meira af kostnaði við heilbrigðisþjónustu, en um 24% voru „alveg sammála" eða „frekar sammála" því. Nærri 56% voru andvígir aukinni greiðslu skóla- gjalda, en 36% meðmæltir. Meðal ungra kjósenda var heldur meiri stuðningur við slíkar gjaldtökur, en meðal hinna eldri. Mestur var stuðningur við slíkar hugmyndir meðal lq'ósenda Sjálfstæðisflokks- ins (31% fyrir heilsugæslu og 48% fyrir skólagjöld). Um 62% þátttakenda töldu að of fáar konur sitji á Alþingi. Hins vegar töldu flestir, að það skipti litlu máli fyrir val þeirra á flokkum í kosningum hve margar konur væru á framboðslistum þeirra. Um 45% sögðu það engu máli skipta og 72% sögðu það engu eða fremur litlu máli skipta. Spurt var um almennt viðhorf fólks til nokkurra samtaka og fyrir- tækja, þ.e. hversu jákvætt, hlut- laust eða neikvætt viðhorfíð væri. Jákvæðast var viðhorfíð til Bænda- samtakanna og Alþýðusambands- ins (um 53%). Næst kom Vinnuveitendasambandið (44%), Samvinnuhreyfingin (34%), bank- amir (28%) og olíufélögin (21%). Neikvæðast var viðhorfið til olíufé- laganna (47,1%), bankanna (44,8%) og samvinnuhreyfíngarinnar (37,5%). Loks er að nefna að í könnuninni voru þátttakendur beðnir að nefna nöfn tveggja þingmanna Fram- sóknarflokksins og þriggja þing- manna Sjálfstæðisflokksins, sem ekki væru ráðherrar. Þekktustu framsóknarþingmennimir reyndust Páll Pétursson og Guðmundur Bjamason, en þekktustu sjálfstæð- isþingmennimir reyndust Ámi Johnsen, Salóme Þorkelsdóttir og Friðrik Sophusson. Nokkrir svar- endur nefndu menn, sem ekki sitja á þingi eða sitja í ríkisstjóm og einn taldi Pálma Jónsson vera þing- mann Framsóknarflokksins. VELDU ++ SAMSUIMG ÞAÐ ER ÖRUGGARA VIP-550 86 80 92 86 9B XM KU HH 106 108 u w i=; t \lÍPj£50 Hljómur oq qædí er eklci á allra > € > BO mimm > « > lilSll3 Tilbod ársins: Kr. 19.900 Laugavegl 63 (Vltastígsmegin) — Síml 62 20 25

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.