Morgunblaðið - 04.09.1986, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER1986
Kennaraháskóli íslands:
Námskeið um álita-
mál í kennsluaðferð-
um og namsgögnum
Þátttakendur á námskeiðinu um álitamál hlusta á fyrirlestur Mörtu Ólafsdóttur um álitamál innan
liffrœðinnar.
Kennaraháskóli íslands hélt
nýverið námskeið er nefndist
„Alitamál" þar sem rætt var um
mismunandi viðhorf til náms,
kennslu og uppeldis og hvernig
þau birtast í kennslufræði,
kennsluaðferðum og námsgögn-
um. Umsjón með námskeiðinu
höfðu þau Ólafur H. Jóhannson,
skólastjóri Æfingaskóla Kenn-
araháskólans, og Erla Kristjáns-
dóttir, stundakennari við
Kennaraháskólann. Þátttakend-
ur voru 25 hvaðanæva af landinu.
ISLENSKT SEMENT
HÆFIR ÍSLENSKUM ADSTÆDUM
Alltfrá upphafi hefur Sementsverksmiðja ríkisins kappkostað að
íslenskt sement hæfi sem best íslenskum aðstæðum.
FRAMLEIÐSLA
SEMENTSVERKSMIÐJARÍKISiNSframleiðir:
Portlandsement í venjulega steinsteypu.
Hraðsement í steypu sem verður að harðna hratt.
Pozzolansement í steypu sem má harðna hægt en verður
að vera þétt og endingargóð. (Sérstaklega ætlað í stíflur,
brýr og hafnarmannvirki).
STYRKLEIKI
Portlandsementið er framleitt í samræmi við íslenskan
sementsstaðal IST 9.
Styrkleiki sements er aðaleiginleiki þess.
Styrkleiki íslensks Portlandsements:
Styrkleikikg/sm2eftir
Portlandsement
Lágmarkskrafa IST 9
3daga 7daga 28daga
250 350 500
175 250 350
GAGNLEGAR UPPLYSINGAR FYRIR
HÚSBYGGJENDUR
• Það er ekki alltaf hægt að treysta því að steinsteypa sé
gallalaus. Látið því kunnáttumenn framleiða og með-
höndlasteypuna.
• íslenska sementið er blandað varnarefnum gegn alkalí-
hvörfum, sölt steypuefni eða salt steypuvatn getur ónýtt
þessavörn.Hverskonarönnuróhreinindi.svosem sýrur
og f inefni í steypuefnum, geta valdið skemmdum í
steinsteypunni.
• Sparið vatnið í steypuna. Hver lítri vatns f ram yfir það,
sem nauðsynlegt er, rýrirendingu hennar.
• Gerið steypuna þjála, þannig að hún þjappist vel í mótin.
Varist þó að auka þjálina með íblöndun vatns fram yfir
það sem steypuframleiðandinn gefur upp.
• Hlífið nýrri steypu við örri kólnun. Einangrið lárétta fleti
og sláið ekki f rá mótum of snemma. Annars getur
steypan enst verr vegna sprungumyndana.
• Leitið ávallt ráðgjafar hjá sérfræðingum ef þið ætlið að
byggja hús eða önnur mannvirki úr steinsteypu. Betri
ending bætir fljótt þann kostnað.
SEMENTSVERKSMIÐJA
RÍKISINS
„Tilgangur þessa námskeiðs var
tvíþættur. Annarsvegar var fjallað
um mismunandi menntastefnur og
tengsl þeirra við grundvallarlífs-
skoðanir manna og hinsvegar
hvemig unnt er að fjalla með nem-
endum í gmnnskóla um efni sem
um em skiptar skoðanir," sagði
Ólafur H. Jóhannson í samtali við
Morgunblaðið.
„Á námskeiðinu var fjallað um
mismunandi viðhorf til kennslu og
skólastarfs og hvaðan viðhorf
manna em sprottinn. Það sem menn
vilja kenna á sér oft dýpri rætur
og heimspekilegri en við gemm
okkur grein fyrir í fljótu bragði".
A námskeiðinu fjallaði Páll
Skúlason, heimspekiprófessor, um
mismunandi skoðanakerfi og
lífsviðhorf og rakti með hvaða hætti
skoðanir myndast og á hvem hátt
gmndvallar lífsskoðanir manna
kunna að hafa áhrif á viðhorf til
margvíslegra álitamála. í framhaldi
af því var fjallað um ólíkar mennta-
stefnur og þátttakendur greindu
eigin viðhorf til skóla og menntun-
ar. Ekki var lagt mat á ólíkar
stefnur heldur bent á þau atriði sem
talsmenn þeirra leggja áherslu á.
Þá var Ijallað um viðfangsefni
innan tiltekinna námsgreina sem
líklegt má telja að um séu skiptar
skoðanir. Gunnar J. Gunnarsson,
stundakennari í Kennaraháskólan-
um og framkvæmdastjóri KFUM
og KFUK fjallaði um efni innann
kristinna fræða, Marta Ólafsdóttir,
kennari við Kennaraháskólann,
fjallaði um líffræði og Ólafur H.
Jóhannsson um álitamál innan sam-
félagsfræða.
„Sem dæmi um viðfangsefni úr
þessum greinum sem tekin voru
sem dæmi um álitamál er hvemig
unnt er að fjalla um kristin fræði
óháð því hvaða trúarskoðun ein-
stakir kennarar eða nemendur
aðhyllast, hvemig unnt er að taka
á sköpunar- og kraftaverkasögum
Biblíunnar. Úr líffræði má nefna
spumingar er snerta líf og dauða,
landnýtingu, landvemd, kynfræðslu
og fóstureyðingar. Innan samfé-
lagsfræðinnar var bent á ýmis
viðfangsefni, t.d. siði og venjur
framandi þjóða. Þátttakendur
ræddu þessi dæmi og fundu til
ýmis fleiri úr öðrum greinum.
Síðasta dag námskeiðsins fjallaði
Hreinn Pálsson, heimspekingur, um
efni er hann nefndi „heimspeki með
bömum". Hreinn vinnur að doktors-
ritgerð á þessu sviði og verður efni
því tengt tilraunakennt í vetur.
Skoðanaskipti og rökræður eru,
að okkar mati, mjög nauðsynlegur
þáttur í skólastarfí en jafnframt
vandmeðfarinn og gerir geysimiklar
kröfur til kennara. Hæfni til að tjá
skoðanir sínar en meta skoðanir
annarra af sanngimi og réttsýni er
ein af undirstöðum lýðræðisins. Við
verðum að reyna að virða skoðana-
frelsið og vera það umburðarlynd
að geta viðurkennt rétt annarra til
að hafa skoðanir sem við erum ekki
sammála jafnframt því sem við við-
urkennum rétt manna til að vinna
eigin skoðunum fylgi.
Þessum málum hefur ekki verið
sinnt sem skyldi enda viðkvæm og
vandmeðfarin. Kennarar þurfa að
geta notið þess trausts að þeir geti
fjallað um álitamál án þess að
blanda eigin skoðunum þar inn í.
Þetta er viðkvæmt mál en nauðsyn-
legt að skoða það og leita að leiðum
til að takast á við efni af þessu tagi.
Sagt hefur verið að einn mæli-
kvarði á réttsýni sé sá að geta
túlkað skoðun sem maður er algjör-
lega ósammála á þann veg að sá
sem skoðunina aðhyllist geti sagt
sem svo, jú, þetta er einmitt megin-
atriðið í minni skoðun," sagði
Ólafur að lokum.