Morgunblaðið - 04.09.1986, Page 29

Morgunblaðið - 04.09.1986, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986 29 Þeir eru margir laxarnir sem álpast hafa & agn veiðimanna í sumar, svo margir, að allt útlit er nú fyrir að sumarið, sem er að ljúka, verði metlaxveiðisumar. Glæðist aftur í Döl- um... „Áin var orðin allskuggalega litil og aðeins örfáir staðir orðið eftir þar sem laxinn gat legið. Þeir staðir voru svo barðir myrkr- anna á milli, en einhvem veginn var alltaf einhver reytingsveiði," sagði Hjörleifur Jónsson, kokkur í veiðihúsinu Þrándargili við Laxá í Dölum, í samtali við Morgun- blaðið í gær. Þá voru komnir rétt rúmlega 1500 laxar á land. „Það rigndi talsvert á laugar- daginn og svo hefur hellirignt í allan dag og laxinn er farinn að ganga grimmt. Það hefur varla gengið fiskur hér í margar vikur og menn verið að beija á löxum sem voru löngu komnir, en nú rennur hann upp og neðstu stað- imir em morandi í laxi, grálúsug- um fiski. Það þyrfti þó að rigna meira til þess að hann dreifði sér betur," bætti Hjörleifur við. Hóp- urinn sem lauk veiðum í fyrradag fékk 70 laxa, en er Morgunblaðið sló á þráðinn lá veiði dálítið niðri rétt á meðan mesta veðurhæðin gekk yfir Dalina, „það er varla stætt rétt sem stendur," sagði Hjörleifur. Stærstu laxar sumarsins vom þrír 23 punda fiskar, en einnig hefur slatti af 20—22 punda löx- um ginið yfir önglum veiðimanna og séð eftir því eftirminnilega. Veitt er til 17. september, þannig að vel er hugsanlegt að veiðin í sumar verði betri en í fyrra, en þá var hún hreint afbragð, 1600 laxar. Kjósin: 20 punda múr- inn rofinn Laxá í Kjós bættist nýlega í hóp þeirra mörgu laxveiðiáa sem hafa gefið 20 punda fisk í sumar eða stærri, en líklega er langt síðan að slíkir fiskar hafa veiðst í jafn mörgum ám og nú. Það var Guðrún Jónsdóttir sem hélt uppi heiðri Laxár með því að ná 20 punda hæng á maðk í Fossinum í Bugðu, 25. ágúst síðastliðinn. í fyrradag veiddist svo 16 punda hængur sem var bæði rauður, leg- inn og horaður, fiskur sem hefur vegið a.m.k. 20 pund nýgenginn. Annars hefur veiðin batnað nokkuð síðustu daga eftir að það tók að rigna, „þetta var orðið hundleiðinlegt, en þó ívið skárra en í þurrkunum miklu í fyrra. Það rann þó enn vatn um laxastigann, en það var hætt að gera í fyrra þegar verst lét,“ sagði Ólafur Ól- afsson, veiðivörður við Laxá í Kjós, í samtali við Morgunblaðið í gærdag. Sagði Ólafur að það hefðu veiðst þetta 10—15 laxar á dag frá helginni og nú væm komnir um 1200 fiskar úr ánni. „Það þarf að rigna meira, laxinn hefur ekki dreift sér aftur þrátt fyrir þá úrkomu sem komin er og hún er fljót að detta aftur niður ef ekki verður framhald á úr- komutíðinni. Það þarf sannast sagn algert flóð með mold og drullu," sagði Ólafur ennfremur. Meðalþunginn hefur verið í lægri kantinum að undanfömu, en þó alltaf vænir laxar öðm hvom í bland. Þá hefur veiðst ýmist á maðk eða flugu, þannig sagði Ólafur að Jón Pálsson yfir- leiðsögumaður hefði verið með smáflugur að undanfömu og veitt afar vel. í fyrra veiddust 1154 laxar í Laxá og Bugðu, veiðin er því betri nú eins og víðast hvar annars staðar, en það virðist þó vera minni munur í Laxá en víða annars staðar. Hörkugott í Svartá Svartá er nú komin hátt í 400 laxa og hefur verið hörkugóð veiði að undanfömu og nóg af laxi að koma upp, enda hefur verið hreint út sagt mergð af honum í Blönd- unni. Þá hefur það gerst í sumar, að laxinn hefur dreift sér betur en í fyrra, er mikill hluti aflans veiddist í vatnaskilunum við Blöndu. Algengt hefur verið að hollin hafi fengið þetta 15—30 laxa, allt eftir því hvort veitt hef- ur verið í tvo daga eða þijá. Veitt er á þijár stangir. ALLT í HAUSTVERKIN Á HEIMILIÐ, í BÁTINN, BÚSTAÐINN OG GARÐINN. HANDVERKFÆRI, RAFMAGNS- VERKFÆRI TIL ALLRA MÖGU- LEGRA OG ÓMÖGULEGRA NOTA. GARÐYRKJUVERKFÆRI í ÖLL STÖRF, HJÓLBÖRUR, SLÖNGUR, SLÖNGUKLEMMUR, SKÓFLUR ALLSKONAR, STUNGUGAFFLAR, KARTÖFLUGAFFLAR. FUAVARNAREFNI, LÖKK, MÁLN- ING - ÚTI-, INNI- - MÁLNING- ARÁHÖLD, HREINLÆTISVÖRUR, KÚSTAR OG BURSTAR. OLÍULAMPAR OG LUKTIR, GAS- LUKTIR, GAS- OG OLÍUPRÍMUS- AR, HREINSUÐ STEINOLÍA, OLÍUOFNAR, ARINSETT, ÚTI- GRILL, GRILLKOL OG VÖKVI, RAFHLÖÐUR, VASAUÓS. SLÖKKVITÆKI OG REYKSKYNJ- ARI, VATNSBRÚSAR OG FÖTUR. OG í BÁTINN EÐA SKÚTUNA BJÖRGUNARVESTI FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA, ÁRAR, ÁRAKEF- AR, DREKAR, KEÐJUR, AKKERI, VIÐLLEGUBAUJUR, KJÖLSOG- DÆLUR. ALLUR ÖRYGGISBÚN- AÐUR. ÖLL SMÁVARA FYRIR SKÚTUNA, BLAKKIR O.M.FL. BÁTALÍNUR. FATADEILDIN FANAR, FLAGGST ANGARH Ú N AR OG FLAGGSTENGU R, 6-8 METRAR. SILUNGANET, NÆLONLÍNUR, SIGURNAGLAR, ÖNGLAR, SÖKK- UR, GIRNI ALLSKONAR. VATNS-OLIUDÆLUR. KEÐJUR, MARGAR GERÐIR, OG VÍRAR, GRANNIR OG SVERIR. HLÍFÐARFATNAÐUR, REGNFATNAÐUR, GÚMMÍSTÍGVÉL HÁ OG LÁG, PEYSUR, BUXUR, SKYRTUR, NORSKU ULLAR- NÆRFÖTIN, GARÐHANSKAR. Ánanaustum, Grandagarði 2, sfmi 28855. _________ »____________

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.