Morgunblaðið - 04.09.1986, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986
Sýning á af-
mælisgjöfum
SAMKVÆMT frétt frá borgarskrif-
stofum Reykjavíkur stendur nú yfir
sýning á þeim gjöfum, sem
Reykjavíkurborg fékk á afmælis-
daginn 18. ágúst frá hinum ýmsu
aðilum. Sýningin er í Gallerí Borg
og lýkur henni á sunnudagskvöld.
Shirlene Alicia Blake
Nýr danskenn-
ari hjá Dans-
stúdíói Sóleyjar
DANSKONAN Shirlene Alicia
Blake frá New York mun hefja
danskennslu hjá Danstúdíói Sól-
eyjar 15. september nk.
Shirlene Alicia Blake hlaut dans-
menntun sína í Meþódistaháskóla
Suðurrikjanna í Dallas, Texas, en
er einnig með nuddmenntun frá
Sænsku nuddmeðferðar- og heilsu-
fræðistofnuninni í New York.
Hún hefur komið fram sem dans-
ari í fjölda kvikmynda, m.a. Cotton
Club, Prizzi’s Honor, Falling in
Love og Shoot Out. Einnig hefur
hún dansað í sjónvarpsauglýsingum
og fjölda sviðsverka.
Shirlene mun vera hjá Dans-
stúdíói Sóleyjar í þijá mánuði og
vinna bæði sem danskennari og við
að setja upp sýningar. Hún mun
kenna jass-, nútíma- og sígildan
baliett jafnt framhaldsnemendum
sem byrjendum.
Blúskvöld
í Roxzy
BLÚSKVÖLD verður í Roxzy
fimmtudaginn 4. september.
Smokey Bay Blues Bandið mætir
á svæðið og leikur lög eftir blús-
risa eins og Muddy Water,
Robert Johnson, Willie Dixon,
Elmore James og fleiri. Sniglarn-
ir mæta einnig og hita upp.
Smokey Bay Blues Bandið kemur
ennfremur fram föstudaginn 5.
september og sunnudaginn 7. sept-
ember í Roxzy ásamt nokkrum vel
völdum leynigestum.
Síðastliðna mánuði hafa menn
eins og Steingrímur Guðmundsson,
Stefán Ingólfsson, Rúnar Georg,.
Björgvin Gísla, Jens Hansen,
Kommi, Daniel Pollock og fleiri tek-
ið lagið. með Smokey Bay Blues
Bandinu.
Smokey Bay Blues Bandið skipa
Úlfar Úlfarsson (trommur), Þorleif-
ur Guðjónsson (bassa) og Mickey
Dean (gítar og söngur).
Morgunblaðið/Júlíus
Frá fyrirlestri Maryann F. Fralic á Hótel Sögu.
„Enn sem fyrr þarf köllun til
þess að starfa við hjúkrun“
— Dr. Maryann F. Fralic fyrirlesari á
ráðstefnu hjúkrunarfræðinga um hjúkrun
í fortíð og framtíð
DR. MARYANN F. Fralic, aðstoðarhjúkrunarforstjóri Robert
Wood Johnson-háskólasjúkrahússins i New Jersey og aðstoðar-
deildarforseti hj úkrunarfræðideildar Rutgers-háskólans, hélt
nýverið fyrirlestur á ráðstefnu hjúkrunarfræðinga um hjúkrun
i fortíð, nútíð og framtíð. Það voru Hjúkrunarfélag íslands og
Félag háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga, sem stóðu fyrir
þessari ráðstefnu.
Dr. Fralic hefur gegnt fjölda
trúnaðarstarfa í heimalandi sínu,
Bandaríkjunum, bæði á sviði
stjómunar og kennslu, hún hefur
skrifað flölda greina í bandarísk
hjúkrunartímarit og haldið fyrir-
lestra víðs vegar um heim um
hjúkrunarmál. Blaðamaður Morg-
unblaðsins ræddi lítillega við
Maryann að loknum fyrirlestrin-
um.
Breytingar á hjúkrun
undanfarna áratugi
Það er ljóst, að hjúkrun hefur
gengið í gegnum miklar breyting-
ar undanfama áratugi. Helsta
breytingin er sú, að tækninni hef-
ur fleygt það mikið fram, að fólk
lifir nú mun lengur en áður. Af-
leiðingin af þessu er aukning
langvinnra sjúkdóma, sem aftur
hefur í för með sé aukna þörf á
hjúkrun. Aukin tækni hefur einnig
haft það í för með sér, að hjúkrun-
in sjálf hefur breyst; í hjúkran
felst ekki lengur aðeins að hlynna
að sjúklingi og hlúa, heldur era í
dag gerðar þær kröfur til hjúkr-
unarfræðinga að þeir kunni
meðferð ýmissa tækja og tóla,
sem notuð era við lækningar;
þátttaka hjúkranarfræðinga í
læknismeðferðinni hefur því auk-
ist frá því sem áður var.
Menntun hjúkrunar-
fræðinga
Auknar kröfur sem gerðar era
til hjúkrunarfræðinga tengjast
auknum kröfum til menntunar
þeirra. Hjúkranamám t.d. í Evr-
ópu er líklega eins mismunandi
og Iöndin era mörg. í sumum lönd-
um era sérstakir hjúkranarskólar,
í öðram hvort tveggja slíkir skólar
og hjúkranarkennsla á háskóla-
stigi en í enn öðrum löndum er
hjúkranarkennsla einungis á há-
skólastigi, t.d. hér á Islandi. í
Bandaríkjunum er formið bland-
að. Segja má að íslendingar séu
skrefí framar í menntunarmálum
en Bandarílqamenn. Þetta fram-
kvæði íslendinga er virkilega til
fyrirmyndar og mega þeir vera
virkilega stoltir.
Hjúkrun hér og í
Bandaríkjunum
Það er athyglisvert, þegar mað-
ur ber saman ástand hjúkranar
hérlendis og í'Bandaríkjunum, að
hérlendis er skortur á hjúkranar-
fræðingum en í Bandaríkjunum
er um offramboð að ræða. Launin
eiga víst stóran þátt í þessum
skorti hérlendis, en ég hef ekki
trú á öðra en að þetta muni breyt-
ast, enda er hjúkran mikilvægari
en svo, að hjúkranarfræðingar séu
Morgunblaðið/Júlíus
Það sem mestu máli skiptir er
að sjúklingurinn sé ánægður;
annað skiptir minna máli.
láglaunafólk. Hjúkranarfræðing-
ar í Bandaríkjunum teljast vera
nokkuð vel launaðir, þeir hafa t.d.
hærri laun en flest skrifstofufólk
og kennarar.
Miðað við smæð landsins er
íslensk heilsugæsluþjónusta á
mjög háu stigi og hef ég orðið
fyrir miklum áhrifum af því, sem
ég hef séð og heyrt.
Hjúkrun: Kvennafag
2-3% allra hjúkranarfræðinga
í heiminum era karlmenn; hvers
vegna það er svo, er vissulega
áleitin spuming. Hjúkran höfðar
líklega ekki eins mikið til karl-
manna og kvenmanna; þeim
fínnst sjálfsagt öhnur svið meira
heillandi. Áður fyrr hefur sjálf-
sagt ekki verið framboð á
mönnum til þess að gegna hjúkr-
unarstörfum, en þegar það hefur
síðar meir breyst, hefur hefðin ein
líklega komið í veg fyrir að fleiri
karlmenn sæktu í þessi störf.
Launaþátturinn getur e.t.v. spilað
hér inn í, þ.e.a.s. að karlmenn
sætti sig ekki við eins lág laun
og kvenmenn geri. Karlmönnum
fer fjölgandi í þessari grein og er
það fagnaðarefni, enda hafa þeir
reynst prýðilega sem hjúkranar-
fræðingar.
Framtíðin
Ég var spurð þeirrar athyglis-
verðu spurningar í fyrirlestrinum,
hvort hjúkranarfræðingar yrðu
ónauðsynlegir í framtíðinni. Ég
tel óhætt að fullyrða að hjúkr-
unarfræðingar verði áfram
nauðsynlegur hlekkur í heilsu-
gæslunni; engar aðrar stéttir geta
leyst þá af hólmi og tæknin mun
aldrei geta komið í stað þeirra.
Hjúkranarfræðingar verða hins
vegar að fylgjast vel með og
gæta þess að staðna ekki. Þeir
verða ávallt að gæta þess að til-
einka sér nýjustu tækni og
uppfylla aðrar þær kröfur, sem
eðlilegt er að stofnunin geri til
þeirra. Einnig tel ég það áríðandi
fyrir hjúkranarfræðinga að þeir
taki þátt í rekstri stofnana sinna
og beiti sér fyrir spamaði og hag-
kvæmni í hjúkraninni, enda er
hjúkran yfírleitt stærsti kostnað-
arliður hverrar heilsugæslustofn-
unar. Með því að beita sér sjálfum
fyrir aukinni „framleiðni“, minnka
þeir líkumar á því að stofnunin
dragi úr hjúkran.
Florence Nig'hting’ale
Síðan á tímum Florence Nigh-
tingale hefur hjúkran breyst
mikið; bæði það sem gert er og
hvemig. Starfíð er hins vegar enn
jafn erfítt og krefjandi og það var
þá og hugarfarið er það sama;
það þarf enn köllun til þess að
starfa við hjúkran. Þó að starfið
sé krefjandi og erfítt veita fá störf
eins mikla lífsfyllingu og ánægju
og hjúkran.
Lili og Sussie
í Evrópu
DAGANA 4.-14. september munu
sænsku söngkonumar Lili og
Sussie skemmta gestum veitinga-
hússins Evrópu, Borgartúni 32.
Lili og Sussie era systur, 20 og
22ja ára gamlar og hafa þær æft
söng frá því þær muna fyrst eftir
sér. Þær hafa náð töluverðri hylli
í heimalandi sínu, m.a. með laginu
„Summer Tonight" og hafa komið
fram í sjónvarpi og á skemmtistöð-
um víða í Evrópu.
Systurnar leggja mikinn metnað
í að gera skemmtanimar sem best-
ar og eyða að jafnaði miklum tíma
í söng- og dansskólum, auk þess
að stunda líkamsrækt af kappi.
Fyrsta skemmtun Lili og Sussie
verður fímmtudaginn 4. september.