Morgunblaðið - 04.09.1986, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986
41
n ^ ^ ^ ^ . —— i
a tvinna — a tvinna — a tvinna — a tvinna — a tvinna — a tvinna |
Óska eftir starfi
Tvítug stúlka með stúdentspróf óskar eftir
vellaunuðu starfi. Hefur unnið við almenn
skrifstofustörf, s.s. vélritun, tölvuvinnslu,
símavörslu og íslenska réttritun svo og af-
greiðslustörf. Meðmæli ef óskað er. Ef
einhver vill nýta sér slíkt vinnuafl, vinsamleg-
ast hafið samband við Auði í síma 76089.
Bygginga-
verkamenn
Viljum ráða nokkra verkamenn til byggingar-
vinnu á Reykjavíkursvæðinu. Upplýsingar í
síma 622700.
ístak,
Skúlatúni 4,
Reykjavík.
GILDIHF
Starfsfólk
Óskum eftir að ráða fólk til eftirtaldra starfa:
— Ræsting í sölum, vinnutími frá 08-16 og
08-12.
— Uppvask, vinnutími frá 12-16.
— Ræsting og uppvask, vinnutími frá 11-19.
— Pottauppvask, unnið á 12 tíma vöktum.
Frítt fæði er á staðnum og nánari upplýsing-
ar eru gefnar á staðnum milli kl. 9 og 13.
Starfsfólk óskast
Óskum að ráða eftirtalið starfsfólk:
1. Dyraverði.
2. Plötusnúða.
3. Salernisverði á karlasalerni.
4. Kjallaravörð.
Uppl. á staðnum kl. 18-20 í dag.
Borgartúni 32
Au-Pair Boston
Au-Pair óskast til að sjá um væntanlegan
frumburð. Starfinu fylgir séríbúð. Svar ósk-
ast sent á ensku ásamt mynd til:
J. William Dolan, M.D.
100 Highland St. Milton, MA 02186
USA
Rafmagnstækni-
fræðingur óskast!
Verkfræðistofan VISTA er 2ja ára um þessar
mundir. Helstu viðfangsefni hafa frá upphafi
verið á sviði mælinga, sjálfvirkni og verk-
smiðjurafmagns.
Óskað er eftir tæknifræðingi með góða þekk-
ingu á hinum ýmsu sviðum rafmagnsfræð-
innar. Verkefnin eru fjölbreytt og vinnuað-
staðan góð. Nokkur ferðalög fylgja starfinu.
Skriflegar umsóknir óskast sendar fyrir 12.
sept. nk.
EfTÍSM-
Veitingahöllin
Starfsfólk óskast. Vaktavinna, kvöld- og helg-
arvinna. Upplýsingar á staðnum milli kl.
13.00 og 17.00.
Starfsfólk vantar
Við höfum flutt starfsemi okkar að Ármúla 5
v/Hallarmúla, í stærra og betra húsnæði, svo
okkur vantar nú þegar hressar saumakonur
og einnig starfsfólk við sniðningar og press-
ingar.
Fasa Ármúla 5 v/Hallarmúla. Sími 687735.
Lausar stöður á
dagvistarheimilum
Við höfum verið beðnir að útvega starfs-
fólk til starfa í eftirtalin störf á dagvistar-
heimilum borgarinnar.
Fóstrur — aðstoðarfólk á deildum — aðstoð
við börn með sérþarfir — talkennara.
Um er að ræða störf í eftirtöldum hverfum:
Vesturbær
Hlíða- og Háaleitishverfi
Langholts- og Laugarneshverfi
Breiðholtshverfi
Árbæjarhverfi
En sérstaklega vantar starfsfólk í:
Iðuborg-Laugaborg-Lækjarborg-Steinahlíð
Tjarnarborg-Valhöll-Múlaborg-Leikfell
Bakkaborg-Hraunborg-Laufásborg-Hóla-
borg-Vesturborg-Garðaborg
Ráðningartími er strax eða eftir nánari sam-
komulagi.
Til greina koma heildagsstörf eða hluta-
störf, aðallega eftir hádegi.
Hugsanleg fyrirgreiðsla varðandi dagvistun.
Við hvetjum alla þá er áhuga hafa á þessum
störfum að hafa samband við skrifstofu okk-
ar og leita nánari upplýsinga.
GuðntTónsson
RÁÐGJÖF &RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Apótek
Starfskraftur óskast til ræstinga í apóteki.
Vinnutími er 2-3 stundir daglega, annað hvort
snemma að morgni eða síðdegis - eftir sam-
komulagi.
Umsóknir með upplýsingum um aldur og
fyrri störf sendist augld. Mbl. fyrir 10. þ.m.
merktar: „P — 8076.
Skipa- eða
véltæknifræðingur
Tryggingarfélag óskar eftir að ráða skipa-
eða véltæknifræðing til starfa. Starfið er
aðallega fólgið í tjónaskoðun og mati á vélum
og tækjum fyrirtækja í sjávarútvegi. Umsókn-
ir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist augldeild Mbl. merktar: „M —
1604“.
Verslunarstörf
Starfsfólk, karla og konur, vantar í verslanir
okkar í Austurstræti og Mjóddinni.
1. í almenn afgreiðslustörf.
2. í kjötvinnslu, röskir menn.
3. í kjötpökkun.
Heilsdags og hálfsdags störf.
Umsóknareyðublöð og allar frekari upplýs-
ingar eru gefnar í Mjóddinni, starfsmanna-
deild, frá kl. 16.00-19.00 í dag.
Víðir,
Mjóddinni.
Skrifstofustarf
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í Reykjavík og ná-
grenni, vill ráða starfsmann til vélritunar- og
annarra skrifstofustarfa. 50% starf. Umsókn-
ir sendist skrifstofu félagsins Hátúni 12, 105
Reykjavík fyrir 12. september nk.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra íReykjavík
og nágrenni.
Lyfjagerð
óskar eftir að ráða sem fyrst:
1. Aðstoðarmann lyfjafræðings. Æskilegt er
að umsækjandi hafi lokið stúdentsprófi í
raungreinum, en alls ekki skilyrði. Má gjarnan
hafa umgengist vélar. Góð vinnuaðstaða.
2. Starfsmann með góða vélritunarkunn-
áttu, til skrifstofustarfa.
3. Aðstoðarmanneskju í framleiðsludeild.
Engin sérstök skilyrði um menntun.
Um öll ofangreind störf gildir að fyrst og
fremst er leitað að samviskusömum einstakl-
ingum. Umsóknir með sem fyllstum upplýs-
ingum sendist augldeild Mbl. fyrir 9. sept.
merktar: „Traust fólk — 522“.
Þægileg vinna
Viljum ráða starfskraft í áfyllingadeild. Starf-
ið felst m.a. í álímingu vörumiða á ýmsar
umbúðastærðir. Unnið er á snyrtilegum stað
við góð vinnuskilyrði. Hlutastarf kemur til
greina. Umsækjendur eru beðnir um að hafa
samband milli kl. 13.00 og 15.00.
málning
Marbakkabraut 21
200 Kópavogi, sími40460.
Garðyrkjustarf
Óskum eftir að ráða áhugasaman og duglegan
garðyrkjumann, eða mann vanan garðyrkju-
störfum. Sérstaklega er leitað eftir reglusemi
og snyrtimennsku í vinnubrögðum.
Um er að ræða fjölbreytt starf við alhliða
ræktun og umönnun garðplantna.
Skriflegar umsóknir sem tilgreini menntun
og fyrri störf berist fyrir 10. september til
augldeildar Mbl. merkt: „Gróður — 1422“.
GRÓDRARSTÖDIN
Stjörnugróf
<
i