Morgunblaðið - 04.09.1986, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986
53
Danskir ellilífeyrisþegar
í námsferð á Islandi
- Dvöldu í viku í Lýðháskólanum í Skálholti
Morgunblaðið/Þorkell
Ann-Marie Jurhagen, annar fararstjórinn, og Inger Petersen, sem
ver efri árunum í að fara í fræðandi og skemmtilegar ferðir.
HÓPUR 20 danskra ellilífeyris-
þega var hér á landi frá 20. til
28. ágúst, á námsför. Bjó hann
í Lýðháskólanum í Skálholti,
þar sem fróðir menn héldu fyr-
ir fólkið erindi um ísland, land
og þjóð, náttúru, sögu og menn-
ingu. Þá voru farnar skoðunar-
ferðir á merkisstaði.
Síðasta kvöldið kynntu hinir
dönsku ellilífeyrisþegar sér svo
félagsstarf aldraðra í Kópavogi, í
boði bæjarstjómar og eldri borg-
ara. Sr. Bemharður Guðmunds-
son var leiðsögumaður hópsins
hér á landi, en einnig fylgdu hon-
um 2 fararstjórar danskir, frá
„Ældre pá Hojskole i Udlandet".
Það er sjálfseignarstofnun, sem
hefur nú starfað í þijú ár. Hún
skipuleggur námsferðir fyrir ellilí-
feyrisþega til annarra landa. í
sumar hefur stofnunin staðið fyrir
námsferðum til 20 staða í 12 lönd-
um.
Meðal annarra fluttu Jónas
Gíslason dósent, Hjálmar R. Bárð-
arson, Hjörtur Pálsson, Helga
Jóhannsdóttir, sr. Guðmundur Oli
Ólafsson, Sigurbjöm Einarsson,
Sveinbjöm Finnsson og Heimir
Steinsson erindi fyrir fólkið. Þá
vom famar skoðunarferðir til
Þórsmerkur, Gullfoss, Geysis,
Þjórsárdals og Þingvalla þar sem
sr. Heimir Steinsson þjóðgarðs-
vörður sýndi þeim staðinn. Þá
vom þrjú sveitaheimili heimsótt,
og sagði Ann-Marie Jurhagen,
annar fararstjórinn, að það hafi
komið þeim Dananna, sem kunn-
ug em landbúnaði, á óvart hve
ólíkur landbúnaður er á íslandi
og í Danmörku. Þá kom gestrisni
íslendinga þeim á óvart, og vel
kunni hún að meta heimboð bæj-
arstjómar Kópavogs og eldri
borgara úr Kópavogi, þar sem
myndir vom sýndar frá starfi
hvomtveggja. Hópur eldri Kópa-
vogsbúa kom til að blanda geði
við danska hópinn, og fór vel á
með þeim.
87 ára ungiingur
Lífíð og sálin í danska hópnum
var Alfred Christiansen, 87 ára
gamall, fyrrverandi skipasmiður
frá Helsingjaeyri. Hann sagðist
hafa hætt að vinna á nýjársdag
1963, og hefur hann notið lífsins
síðan og ferðast mikið og ætlar
að halda því áfram meðan aldur
og heilsa endast. Hann var sá eini
úr hópnum sem hafði komið áður
til íslands, dvaldist þá í sumar-
bústaðahverfi í Borgarfirði 1979,
og sagðist hann vera að hugsa
um að koma aftur þegar Borgar-
leikhúsið væri fullsmíðað, en
tæknisýningin þar þótti honum
tilkomumikil.
Hann segir afkomendur sína
alveg sátta við að fá engan arf
eftir hann þar sem hann eyði fé
sínu í ferðalög. í fyrra fór hann
til Svíþjóðar, Skotlands og Ma-
deira, og í ár hefur hann farið til
Sviss. Hvatti hann eldra fólk hér
á landi að fara að dæmi sínu, og
sagði hann, að fjöldi danskra vina
Alfred Christiansen, var hrók-
ur alls fagnaðar í hópnum,
þrátt fyrir að hann sé orðinn
87 ára gamall.
biði þeirra ef þau kæmu til Dan-
merkur.
Tilkomumest hér á landi þótti
honum að heimsækja Þingvöll,
einkanlega að standa við Lögberg
þar sem lögsögumenn sögðu lögin
forðum. Útsýnið og hljómburður-
inn þótti honum stórkostlegur.
Aðspurður sagðist hann hafa lent
í mörgum ævintýrum á ferðum
sínum, en hann vildi ekki að þau
kæmust í hámæli svo hann var
fáorður um þau. Þá var hann hinn
ánægðasti með matinn hér á
landi, en þegar Danir koma heim
úr ferðalögum er alltaf fyrst
spurt, hvað menn fengu að borða,
sagði Alfred að lokum.
Þögxtin stór-
fenglegnst
Inger Petersen frá Kaup-
mannahöfn er sjötug að aldri. Hún
sagðist hafa byijað að ferðast
þegar hún missti manninn sinn
fyrir 6 árum. Fram að því hafði
hún einbeitt sér að því að hugsa
um mann sinn og böm, en nú,
Knud Edelberg er enn starf-
andi læknir þrátt fyrir að hann
sé orðinn 74 ára gamall, en
hann var samt því fegnastur
að hafa ekki haft nein not fyr-
ir kunnáttu sína i ferðinni.
þegar hann er dáinn og þau farin
að heiman, hafi hún ákveðið að
hugsa fyrst og fremst um sjálfa
sig. Því seldi hún húsið sitt og
notar peningana til að ferðast og
hyggst halda því áfram. Hún hef-
ur farið til Sikileyjar, Austurríkis,
Lúxemborgar og Grænlands áður,
á vegum „Ældre pá Hejskole í
Udlandet".
Mestan áhuga hefur hún á nátt-
úrunni og öllu því sem henni
viðkemur. Ahrifamesta upplifunin
hér á landi var þögnin á Þingvöll-
um, sagði hún, en þótt það sé
stórbrotið og fagurt hér á landi,
sagðist hún ekki geta hugsað sér
að eiga heima á Islandi, þar sem
það væri svo eyðilegt. Skemmti-
legasta stundin hér á landi fannst
henni hafa verið í dagsferð í Þórs-
mörk, þegaf rútan ók út í óbrúað-
ar ámar. Slík reynsla væri
algerlega óþekkt og óhugsandi í
Danmörku.
Þá sagði hún að það hafi kom-
ið henni á óvart hve Reykjavík
væri nýtískuleg borg. Hún hefði
haldið af þeim fræðsluritum um
ísland sem hún las áður en hún
kom, að landið væri mun van-
þróaðra en raun bar vitni. Þá
fannst henni Reykjavík vera fal-
legur, hreinlegur og litríkur bær,
og hafði hún á orði að íbúamir
væru blessunarlega ófeimnir við
að nota liti.
Hún vildi endilega mæla með
svona ferðum fyrir fólk sem hefur
heilsu til. Þegar fólk sé búið að
missa makann, hafi það ekkert
gaman af að ferðast eitt, en jafn-
vel þótt hún eigi góða vinkonu sem
hún getur ferðast með, kýs hún
svona ferðir frekar þar sem þær
tryggi mönnum svo skemmtilega
ferðafélaga. Svona ferðir gefi líka
meira en sólarlandaferðir, þar sem
fólk fræðist svo mikið. Að vísu
eru svona ferðir þreytandi, en
menn hafi frá svo mörgu að segja
við heimkomuna að menn taki
ekkert eftir ferðaþreytunni.
Allt öðruvísi en
ég átti von á
Knud Edelberg frá Óðinsvéum
er 74 ára að aldri, en samt enn
starfandi læknir. Hann var á sinni
fyrstu námsferð. Hann sagðist
hafa lesið íslendingasögumar og
bækur Gunnars Gunnarssonar á
yngri árum og fengið af því áhuga
á landinu. En það reyndist allt
öðru vísi en hann hafði búist við.
Það var miklu stórbrotnara, fal-
legra og víðáttumeira en_ hann
hafði getað ímyndað sér. í Dan-
mörku byrgja tré og skógar alltaf
fyrir útsýnið þannig að menn sjá
aldrei neinar víðáttur.
Hann var mjög ánægður með
ferðina, þau hefðu séð svo margt,
heyrt svo margt og verið frædd
um svo margt. Sérstaklega róm-
aði hann leiðsögn sr. Bemharðs
Guðmundssonar, sem hann sagði
að segði frá af slíkum áhuga og
kunnáttu að það vekti menn til
umhugsunar. Sérstaklega var
honum minnisstæð bænastund í
kirlq'unni á Stóra-Núpi, þar sem
sr. Bemharður fékk hópinn til að
fara saman með faðirvorið fyrir
framan altaristöflu sem sýnir
Krist flytja fjallræðuna í íslensku
umhverfi. Taldi hann það eina
áhrifaríkustu stund ævi sinnar.
Bundið slitlag
á Hvanneyri
Uunnnati'iní í An/lol/íl
í tvær götur, sem flest nýj-
ustu íbúðarhúsin standa við,
voru lagðar nauðsynlegar lagn-
ir. Ekki voru allar frágengnar
sem venja er að leggja áður
en bundið slitlag er lagt. Hlað-
ið við nýja skólahúsið var
stækkað og verða nú rýmri
bílastæði þar. Nokkrir húseig-
endur notfærðu sér möguleik-
ann á að láta klæða bílastæði
sín á viðráðanlegu verði. Er nú
meirihluti gatna á staðnum
klæddur bundnu slitlagi.
Hreppsnefnd ákvað að inn-
heimta gatnagerðargjöld af
húseigendum. Það hefur ekki
verið gert fyrr.
í JÚLÍMÁNUÐI var byrjað
að klæða heimreiðina að
Hvanneyri og hluta vega á
staðnum.
Cterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
D.J.
Unnið að lagningu bundins slitlags á Hvanneyri.
Morgunblaðið/DJ.