Morgunblaðið - 04.09.1986, Síða 54
atfÖR»™í>,
Fjórðungsþing Vestfirðinga
Sveitasljórnar-
menn eru ekki eins
heilsteyptir og áður
- sagði Guðmundur H. Ingólfsson í
framsöguræðu sinni um stöðu og
framtíð fjórðungssambandsins
NÚ ERU 37 ár síðan Fjórðungs-
samband Vestfirðinga var stofn-
að og sagði Guðmundur H.
Ingólfsson stjórnarmaður í sam-
bandinu að sá vettvangur hefði
verið Vestfirðingum farsæll til
þessa dags. En nú eru ýmsar
breytingar framundan vegna
nýrra laga um sveitarstjórnar-
mál og því nauðsynlegt að meta
stöðuna nú. Á síðustu árum hafa
þó verið að grafa um sig efa-
semdarraddir um mikilvægi
sambandsins og sagðist hann ef-
ast um að sveitarstjómarmenn í
dag væra jafn heilsteyptir bar-
áttu- og hugsjónamenn og þeir
sem áður voru.
í lokaorðum sínum lagði hann
áherslu á að menn tækju höndum
saman um að treysta Fjórðungs-
samband Vestfirðinga og tryggja
með þvi farsæla framtíð samstarfs
vestfirskra byggða, því það væri
líklegasti vettvangurinn til að
treysta dreifða byggð svæðisins.
Guðmundur H. Ingólfsson lætur nú
af störfum í stjóm fjórðungssam-
bandsins en hann hefur starfað þar
óslitið í 12 ár.
Úlfar
MorgunDiaoio/unar Agusisson
Jónas Ólafsson formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga fremst á myndinni ásamt fundarstjóra þings-
ins, Ólafi Kristjánssyni, og framsögumönnunum Birgi Þorgilssyni, Guðmundi H. Ingólfssyni og Pétri
Bjaraasyni í húsakynnum Menntaskólans á ísafirði þar sem þingið var haldið, en þar hefur skapast
mjög góð aðstaða til þinghalds.
Jónas Olafsson endurkjörinn for-
maður Fj órðungssambands Vest
fjarða á ársþingi þess á Isafirði
I nýju sveitarstjómarlögunum er
ekki gerð krafa um landshlutasam-
tök sveitarfélaga en gefinn kostur
á þremur möguleikum ef menn vilja,
þ.e. héraðsnefndum, byggðasam-
lögum eða landshlutasamtökum.
Benti Guðmundur á að þessi skipan
gæti veikt mjög stöðu fjórðungs-
sambandsins og ef illa færi gæti
það lognast út af. Eitt af megin-
vandamálum Qórðungssambands-
ins á næstu árum er að taka við
málefnum sýslunefndanna sem
leggjast niður 31. des. 1988, en
nauðsynlegt er að jafna hags-
munaágreining kaupstaðanna og
sveitahreppanna vegna þeirrar
breytingar.
Þá leggur Guðmundur áherslu á
að öll sveitarfélögin verði skuld-
bundin til að taka þátt í sambandinu
og hlýta ákvörðunum þess, en und-
anfarið hefúr nokkuð borið á því
að þau hafí skotið sér undan ábyrgð
á útgjöldum vegna ákvörðunar að-
alfunda sambandsins.
í FRAMSÖGUERINDI sínu um
bætt skipulag skólamála á
Vestfjörðum sagði Pétur
Bjarnason að hópur sem sam-
þykkt hefði verið að koma á
fót á síðasta fjórðungsþingi
hefði komist að þeirri sameig-
inlegu niðurstöðu, að skóli
væri kjarni byggðar, sérstak-
lega í smærri byggðarlögum.
Því væru skólamál alltaf líka
byggðamál. Samgöngumál eru
tengd þessum þáttum óijúf-
andi böndum, þvi yrði að
stórbæta samgöngur.
Varað er við samkeppni milli
sveitarfélaga með gylliboðum og
yfirborgunum. Góð vinnuaðstaða
dregur að gott starfsfólk. Böm í
ísafirði.
FJÓRÐUNGSÞINGI Vestfirð-
inga lauk með stjóraarkjöri
síðia dags á Iaugardag. Jónas
Ólafsson á Þingeyri var endur-
kjörinn formaður, en aðrir I
stjóra eru Björa Gíslason Pat-
reksfirði, Matthías Lýðsson
Kirkjubólshreppi, Björgvin
Bjarnason Bolungarvík og
Kristinn Jón Jónsson ísafirði.
Þá var kosið í fræðsluráð fyrir
kjördæmið og voru kjörin: Einar
Kr. Guðfinnsson Bolungarvík,
Geirþrúður Charlesdóttir Isafírði,
Ásvaldur Guðmundsson Mýra-
hreppi, Jónas Helgason Snæ^alla-
hreppi, Jón E. Alfreðsson
Hólmavík, Sigurður Viggósson
dreifbýli eiga sama rétt til skóla-
göngu og böm í þéttbýli en mikið
vantar upp á það jafnræði á Vest-
íjörðum. Framhaldsnám í heima-
byggð treystir tengsl unga
fólksins við átthagana, styrkjr
atvinnulíf þar og eflir þjónustu.
Það vekur athygli að nægjanlegt
húsrými er til kennslu víðast á
Vestíjörðum, en viðhald og að-
staða til kennslu er á flestum
stöðum í slæmu ásigkomulagi.
Þá er námstími skertur alls stað-
ar utan ísafjarðar og skortur er
á menntuðum kennuram.
Lögð er áhersla á að allir bekk-
ir grunnskóla verði starfræktir í
stærri þorpunum og kaupstöðun-
um tveimur en Núpsskóli og
Patreksfírði og Urður Ólafsdóttir
Isafírði.
Þá vora og kjömir fulltrúar á
ársfund Landsvirkjunar og voru
þar kjömir Jónas Ólafsson Þing-
eyri, Ólafur Kristjánsson Bolung-
arvík, Hjörleifur Guðmundsson
Patreksfírði og Engilbert Ingvars-
son Snæfjallahreppi.
Aðalmál þingsins vora bætt
skipulag skólamála á Vest§örð-
um, æskileg framvinda ferðamála
á Vestljörðum og Fjórðungssam-
band Vestfírðinga og staða þess
og framtíð.
Auk þess lá fjöldi mála fyrir
þinginu. Má þar nefíia róttæka
byggðaþróunaráætlun fyrir Vest-
fírði, kostnaðaráætlun um jarð-
Reykjanesskóli verði notaðir fyrir
tvo efstu bekki grunnskóla úr
sveitunum ásamt tveggja ára
framhaldsnámi þar sem tekið
verði á móti unglingum af
Reykjavíkursvæðinu með sér-
þarfír, enda verði tryggt að
sérmenntaðir kennarar fáist.
Lögð var mikil áhersla á mikil-
vægi héraðsskólanna, enda gert
ráð fyrir að Núpsskóli taki aftur
til starfa haustið 1987.
í framhaldsskólanámi er lögð
áhersla á að tengja námið at-
vinnulífínu á Vestíjörðum.
í lokin sagði Pétur að það
væri álit nefndarinnar að undir-
staða menntunar í Qórðungnum
sé ótraust og að uppbygging í
göng, málefni iðnþróunarfélags
og iðnþróunarsjóðs Vestfjarða,
ályktun um hvala- og selamál, um
Breiðafjarðarfeiju svo nokkuð sé
nefnt. Það kom fram á þinginu
að íbúum Vestfjarða fækkaði um
3,5% á sl. ári og eru menn ugg-
andi um framtíð byggðar vegna
einhæfs atvinnulífs og erfíðleika
í sjávarútvegi og landbúnaði.
Þingið þakkar ákvörðun
Byggðastofnunar um forgöngu
‘við gerð róttækrar byggðaþróun-
aráætlunar fyrir Vestfírði og felur
stjórn sambandsins að leggja fram
allt það starf og fjármuni sem
mögulegt er, til að hraða og vanda
gerð slíkrar áætlunar. Óskar þing-
ið eftir að stjómvöld gefí fyrirheit
grunnskólamálum sé forsenda
þess að hægt sé að taka á málefn-
um framhaldsskólanna. Ef vonir
nefndarmanna rætast og gert
verði tveggja ára myndarlegt
átak í málefnum grunnskólans
verður jafnframt hægt að skipu-
leggja framhaldsskólanám á
Vestfjörðum.
„Ég fel ykkur að ákveða hvort
hér mun ríkja stöðnun í þessum
málum svo sem verið hefur eða
hvort næstu tvö árin munu skipta
sköpum í skólastarfinu og þá
jafnframt áliti annarra lands-
manna á vestfirskum skólum,“
voru lokaorð Péturs Bjamasonar
fræðslustjóra Vestfjarða.
Úlfar
um áhrifaríkar aðgerðir.
Þá beinir þingið því til Alþingis
að um leið og framáætlun, sem
nú er unnið að um jarðgangagerð
á norðanverðum Vestfjörðum,
liggur fyrir, verði hafíst handa
um framkvæmdir og fjármagn
tryggt við næstu endurskoðun
fjárlaga. Iðnþróunarfélag Vest-
fjarða og Iðnþróunarsjóður Vest-
íjarða sem stofnuð voru 1983 að
tilhlutan fjórðungssambandsins
hafa aldrei náð fótfestu. Ekki
hefur tekist að ráða hæfan iðn-
fulltrúa og sveitarstjómir hafa
ekki fullgilt stofnsamning. Á þing-
inu var ákveðið að fela stjóm
Ijórðungssambandsins að kanna
vilja sveitarstjóma til áframhald-
andi starfsemi félaganna.
Þingið fagnaði undirtektum
íjármálaráðherra um fjárveitingu
til Breiðafjarðarfeiju og treystir
því að stjómvöld láti þegar á þessu
hausti gera tímasetta áætlun um
byggingu nýrrar feiju og bættrar
hafnaraðstöðu á Bijánslæk og
Stykkishólmi vegna hennar. I
ályktun um hval- og selveiðimál
segir að á undanfomum áram
hafí alþjóðlegur hópur iðjuleys-
ingja unnið markvisst að því að
kippa fótum undan bjargræðis-
vegum norðlægra þjóða, með
hávaðasömu áróðursglamri, of-
beldisaðgerðum á úthafínu og
skipulögðum aðgerðum til við-
skiptakúgunar undir yfírskini
umhverfísvemdar.
Þar sem þetta snertir marga
íbúa VestQarða mótmælir Fjórð-
ungsþingið aðgerðum þessara
manna og Bandaríkjastjómar og
skorar á ríkisstjóm íslands að
he§a víðtæka kynningu á alþjóða-
vettvangi á þessum veiðum og
nýtingu afurðanna.
Þá var samþykkt tillaga um að
skora á stjómvöld að þau tryggi
eðlilegan rekstrargrandvöll físk-
vinnslufyrirtækja.
Þingið var átakalítið og frið-
sælt. Virtust þingfulltrúar yfírleitt
ánægðir með þingið og glæsilega
veislu sem bæjarstjóm Isafjarðar
bauð til að kvöldi föstudags.
Undirstaða mennt-
unar er ótraust
- sagði Pétur Bjarnason í framsöguræðu um skipulag skólamála á Vestfjörðum