Morgunblaðið - 04.09.1986, Síða 60
MQRGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986
60
JAZZ-TÓNLEIKAR
í Djúpinu í kvöld. Tríó Jóns Páls Bjarnason-
ar gítarleikara frá Los Angeles.
Restaurant - Pizzeria
NlEIRIHÁTTAR
HUÓMSVEIT
ALLTAF
EITTHVAÐ
NYTT AÐ
SKE I
UPP
OG
NIÐUR
Mímir útskrifar nýja ritara
RITARASKÖLI Mímis útskrif-
aði nýlega 28 nemendur. Við
skólaslitin voru afhentar viður-
kenningar fyrir góðan náms-
árangur. Hæstu meðaleinkunn
hlaut að þessu sinni Valgerður
Lísa Gestsdóttir, en næstar
henni komu Helga B. Helga-
dóttir og Siguijóna Astvalds-
dóttir.
Sveinsdóttir, Eva Guðmundsdótt-
ir, Guðný A. Sigurðardóttir,
Hildur Bender.
Fremri röð frá vinstri: Málfríð-
ur S. Skúladóttir, Erla D.
Ármannsdóttir, Elín Ántonsdóttir,
Helga B. Helgadóttir, Valgerður
Lísa Gestsdóttir, Siguijóna Ást-
valdsdóttir, Sigríður Halldórsdótt-
ir, Kristín Einarsdóttir, Þorbjörg
Jensdóttir.
Á myndinni sjást hinir nýút-
skrifuðu ritarar:
Aftari röð frá vinstri: Rósa
Williamsdóttir, Guðrún Valgeirs-
dóttir, Petra Baldursdóttir, Auður
E. Valdimarsdóttir, Elín H. Gúst-
afsdóttir, Hólmfríður Kjartans-
dóttir, Halldóra S. Halldórsdóttir,
Elín Ástráðsdóttir, Unnur E.
Malmquist, Jónína Pálsdóttir,
Hjördís Valgarðsdóttir, Karolín
M
AUGLÝSING
Torfan stendur fyrir sínu
Veitingahúsið Torfan var eitt af
þessum veitingahúsum sem voru
opnuð í kjölfar veitingahúsabylt-
ingarinnar sem varð hér í Reykja-
vík upp úr 1979. Nokkrum þessara
veitingahúsa hefur verið lokað.
Helsta vandamál íslensks veitinga-
rekstrar eru hinar miklu sveiflur.
Veitingahús, sem er með góðan
mat einn daginn, er orðið ómögu-
legt þann næsta. í þessum efnum
hefurTorfanálgjöra sérstöðu.gæðin
hafa frá upphafi verið mjög jöfn og
góð. Meginástæðan fyrir því að
Torfan hefur þetta jafnvægi er fyrst
og fremst sú að matreiðsiumenn
Torfunnar eru afbragðs fagmenn.
Að auki virðist allt innra eftirlit
með rekstrinum vera með ágætum
enda eigandinn matreiðslumaður.
Nú hefur verið gerð andlitslyfting
á Torfunni. Á efri hæð er búið að
taka í notkun 16 manna herbergi,
sem tilvalið er fyrir lítil einkasam-
kvæmi. Þetta nýja herbergi er í
vesturenda hússins. Þá er kominn
lftill bar á efri hæðina. Örn veit-
ingamaður er búinn að fjárfesta í
nýjum borðbúnaði og einkar
smekklegum vínglösum. En líkleg-
ast eru helstu fréttirnar þær að
kominn er nýr matseðill. Við fyrstu
sýn virðist hann ekki ýkja frum-
legur en ef betur er að gáð kemur
annað í Ijós. Vissuiega eru á seðlin-
um þessir venjulegu réttir eins og
t.d. graflax með sinnepssósu, grat-
ineruð frönsk lauksúpa, glóða-
steiktir humarhalar og steiktur
silungur með kryddsmjöri. En svo
er á boðstólum ýmislegt spennandi
eins og t.d. kjúklingalifur með villi-
sveppum og reyktur hrár nauta-
vöðvi, sem er sérlega góður. Þá er
hægt að mæla með trjónukrabba-
súpunni, sem er krydduð með
saffran. Af fiskréttunum er minnis-
stæður steiktur steinbítur með rósa-
pipar og púrtvíni og pönnusteikt
smálúðuflök með jarðhnetum og
kókosrjóma. Kjötréttimir eru fimm
og eru þeir allir frekar athyglisverð-
ir. Hvað segið þið um léttsteikta
önd með engifer og sesam, lamba-
hryggvöðva með kiwisósu, grísa-
hryggsneiðar með drambui-sósu,
nautalundir með grænum pipar og
reyktum hvítlauk eða þá léttsteikta
svartfuglsbringu með rifsberjum?
Öndin er sérlega athyglisverð,
bragðið einstaklega Ijúft og á engi-
ferið sérlega vel við andarkjötið.
Þá var lambahryggvöðvi með kiwi-
sósu einkar góður réttur.
Matseðill Torfunnar er einkan-
lega haganlega saman settur. Sjálf-
ur seðillinn er mjög fallegur, er
hann gerður úr sútuðu steinbítsroði
og má því leggja sér hann til munns
ef svo ber undir.
Á sumrin er boðið upp á fiski-
hlaðborð á Torfunni. Á fiskihlað-
borðinu í ár eru 45 spennandi fisk-
réttir.
Veitingahúsið Torfan er án efa
með athyglisverðustu veitingahús-
um á landinu í dag. Aðaleinkenni
Torfunnar eru jöfn gæði og vel
saman settur matseðill.