Morgunblaðið - 04.09.1986, Side 63
MORGUNBIAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986
6B>
Þessir hringdu . . .
Hvalbuff
Lára Þórðardóttir hringdi:
„Um daginn birtuð þið fyrir-
spum frá konu um góðar hval-
kjötsuppskriftir. Á mínu heimili á
Seyðisfirði hefur það alltaf verið
matreitt eftir þessari 50 ára
gömlu uppskrift:
Hvalbuff: 750gr af hvalkjöti
(einnig má nota hrefnu eða hnísu)
er skorið í frekar þunnar sneiðar,
þurrkað vel og barið létt með
buffhamri. Sneiðunum er síðan
velt upp úr hveiti sem hefur verið
saltað og piprað. Kjötið er pönnu-
steikt í vel heitri feiti. Einn laukur
er skorinn í sneiðar og soðinn með
kjötinu í tæpan klukkutíma. Vatn
er aðeins látið fljóta yfir og eitt
lárviðarlauf soðið með.
Kjötið er sfðan borðað með
brúnni sósu og gott er að hafa
nýjar kartöflur og rabarbarasultu
með.“
Leiðrétting
vegna skákfréttar
Guðmundur Guðjónsson, fyr-
irliði skáksveitar Se(jaskóla,
hringdi:
„Mig langar að koma á fram-
færi leiðréttingu vegna fréttar í
Morgunblaðinu af Norðurlanda-
meistaramóti grunnskólanema í
skák.
Niður féll nafn fjórðaborðs-
manns Seljaskóla, Kristins Frið-
rikssonar, sem fékk þijá vinninga
af fimm mögulegum, enda þótt
hann hafí misst af vinningi gegn
fjórðaborðsmanni Norðmanna.
Rétt er að Akureyringar eru
mjög sterkir skákmenn eins og
þeir hafa sannað, en það orðalag
að þeir hafi „bjargað" Seljaskóla
er full djúpt í árinni tekið. Þeim
hefði nægt jafntefli við norsku
sveitina.
Eins ber að geta þess að danska
stúlkan var ekki ein um að fá fjóra
vinninga af fimm mögulegum.
Það gerði einnig fjórðalxirðsmað-
urinn Rúnar Sigurpálsson frá
Akureyri og er óþarfi að snupra
hann.
Sérhver sveit reynir að fá eins
marga vinninga og henni frekast
er unnt, án tillits til björgunaraf-
reka.“
V erkfærataska
tekin í Grafningi
Anna hringdi:
„Þú sem tókst svarta verkfæra-
tösku úr bíl f Grafningi, sunnu-
daginn 31. ágúst, myndir þú vilja
vera svo vænn að skila henni á
afgreiðslu Morgunblaðsins f Að-
alstæti 6?
Það er mjög mikilvægt fyrir
mig að fá töskuna aftur, gerir
minna til með annað."
Þakkir fyrir
morgunbænina
Ása hringdi:
„Mig langar til að þakka séra
Gunnlaugi Garðarssyni fyrir
morgunbænina í útvarpinu und-
anfarnar tvær vikur. Það er mikil
unun af því að hlusta á hann.
Það er fallegur siður að byija
á því að signa sig á morgnana
og ég man ekki eftir að það hafi
verið gert áður við morgunbæn-
ina. Þar að auki talar séra
Gunnlaugur með einstaklega fal-
legri, viðkunnanlegri og skýrri
rödd.“
Úlpa týndist við
Laugardalshöll
Guðríður Hafsteinsdóttir
hringdi:
„Um síðustu helgi var úlpa
dóttur minnar tekin í misgripum
á heimilissýningunni í Laugar-
dalshöllinni. Þetta er dökkblá
Millet-úlpa, stærð uþb. á 12 ára.
I úlpunni var hvítt peningaveski
með peningum í.
Úlpan hvarf við leiktæki á úti-
svæði.
Sá sem hefur úlpuna í fórum
sínum er vinsamlega beðinn að
hafa samband í síma: 681853.“
Athyglisverð grein um náttúruvemd
„Ákæra — áskorun — Vitið þið
hvað þið gerðuð, Grænfriðungar?"
Þannig hljóðar fyrirsögn og upphaf
greinar eftir Játvarð Jökul Júlíusson
í Morgunblaðinu, 26. ágúst sl.
Af þessu má þegar ráða að þama
séu náttúruvemdarmál til umræðu,
enda sú raunin. Einkum og sér í
lagi fjallar þessi grein Játvarðar um
núverandi ástand og örlög okkar
góðu, gamalkunnu og fogru
strand-sjávarbúa, selanna.
Ég er sjálf fædd og uppalin f
einni þekktustu sjávarhlunninda-
sýslu landsins og því ekki með Öllu
ókunnug því málefni sem þama er
fjallað um. Að mínu mati er þama
á ferðinni einhver sú sannferðug-
asta og gagnmerkasta grein um um
vemdun og viðhald lífríkis hafsins
hér við strendur íslands og annarra
landa í Norðurhöfum, sem komið
hefur fyrir almennings sjónir til
þessa.
Ég tek því heils hugar undir nið-
urlagsorð höfundar þar sem hann
segir:„Ég skora á umboðsmann
Grænfriðunga á íslandi að senda
málflutning minn til aðalstöðva
þeirra erlendu samtaka sem mestu
Yelvakandi góður.
Ég bið þig fyrir eftirfarandi línur,
þar sem ég þykist vita að fátt efni
blaðanna á sér jafn stóran lesenda-
hóp og dálkar þínir.
Föstudaginn 29. ágúst fann ég
36 mynda filmu, átekna, á bílastæð-
ráða og hafa ráðið um stefnu og
skipuleggja aðgerðir."
Þessu til viðbótar vil ég hvetja
alla almenna náttúruunnendur og
umhverfísvemdarmenn til að kynna
sér greinina hans Játvarðar.
Ingibjörg Þorgeirsdóttir,
Höllustöðum, A-Barðastrand-
arsýslu.
inu við Skúlagötu 4 (Útvarpshúsið).
Eigandinn saknar sennilega fílm-
unnar. Hann getur hringt í mig f
sfma 33122 milli kl. 10.00 og 13.00
næstu daga.
Svavar Gests
Átekin filma fannst
: SHANNON
:datastor
SKJALASKAPAR
NÚ EINNIG HIRSLA FYRIR TÖLVUGÖGN
Nú eru fáanlegir rekkar
fyrir segulspólur/ diska.
Segulspóluupphengjur
og slöast en
ekki sist upphengjur
fyrir tölvumöppur.
Sem áöur er hægt
aö fá skápana
útbúna með föstum
hillum, hillustoðum,
útdregnum hillum,
upphengjum bæöi
Aö stafla tölvumöppum I hillur er nú ekki föstum og útdregnum fyrir skjalapoka,
lengur nauðsyn. útdregnum spjaldskrárhillum og
Möppunum er einfaldlega rennt i þar til útdregnu vinnuboröi til aö leggja á þá
geröar þrautir. hluti sem er unnið viö hverju sinni.
ALLT Á SÍNUM STAÐ
AMJR OlSlA-SOW 4 CO. HR
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
í Blómasal
FYRIR ÞIG OG ERLENDA GESTI ÞÍNA
Módelsamtökin sýna íslensku ullartískuna 1986.
Víkingaskipið hlaðið íslenskum úrvals matvælum.
Einstakt tækifæri til landkynningar.
Vinsælar eldsteikur og nýr sérréttamatseðill.
FIMMTUDAGSKVÖLD
FÖSTUDAGSHÁDEGI
Borðapantanir í síma 22322 og 22321
Framleiðsluráð landbúnaðarins
Rammagerðin íslenskur Heimilisiðnaður
Hafnarstræti 19 Hafnarstræti 3,
HÓTEL LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA fV HÓTEL