Morgunblaðið - 21.09.1986, Qupperneq 1
104 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
212. tbl. 72. árg._______________________________SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tæki til að
forða flug-
árekstri í
flugvélar ?
Washington, AP.
BANDARÍSKA flugmálstjórnin
(PAA) hyggst krefjast þess að
settur verði í stærri þotur búnað-
ur, sem forðað gæti árekstri
flugvéla í lofti. Samtök flugfé-
laga (ATA) segja langt í iand að
búnaður af þessu tagi, sem verið
hefur á tilraunastigi í 20 ár, verði
tilbúinn.
Um er að ræða svokallaðan T-
CAS-tækjabúnað og hafa verið
gerðar árangursríkar tilraunir með
hann. Ratsjá og tölvur fylgjast með
flugvélum í nágrenninu og vara
flugmenn við hugsanlegum árekstri
með 40 sekúndna fyrirvara og 15
sekúndum síðar leggur tölvan til
við flugmennina að þeir annað hvort
lækki flugið eða hækki til að forða
árekstri.
Aætlað er að tækjabúnaðurinn
kosti um 100 þúsund dollara, eða
um 4 millj. ísl. króna. Tæki mörg
ár að búa allar þotur tækjum af
þessu tagi. Jafnframt þessu hyggst
FAA krefjast þess að allar banda-
rískar einkaflugvélar verði búnar
ratsjársvara sem sýni bæði stað-
setningu og flughæð flugvélar.
Ratsjársvari einkaflugvélarinnar,
sem rakst á mexíkanska farþega-
þotu nálægt Los Angeles 31. ágúst
sl. sýndi ekki flughæð hennar.
AP/Símamynd
Björgunarmenn leituðu enn i lestarflökunum í gær 12 klukkustund-
um eftir slysið.
Járnbrautarslys í Englandi:
Einn látinn -
73 slasaðir
Stafford, Englandi, AP.
LESTARSTJÓRI lést og 73 slös-
uðust, þegar tvær hraðlestir
rákust saman i Mið-Englandi á
mesta annatímanum um kvöld-
matarleytið á föstudaginn. Um
800 farþegar voru samtals með
báðum lestunum. 32 var haldið
eftir á sjúkraliúsum, tveimur í
lífshættu og mörgum alvarlega
slösuðum, en hinum var leyft að
snúa til sins heima.
Áreksturinn varð á jámbrautar-
mótum við Colwich. Brautarljósin
þar eru handstýrð. Ókunnugt er um
orsakir slyssins, en þegar eru hafn-
ar yfirheyrslur yfir starfsmönnum
við jámbrautimar. Talsmaður
bresku járnbrautanna segir að hvor
lest um sig hafi verið á 160 kíló-
metra hraða þegar slysið varð.
Önnur lestin var á leið til Manchest-
er frá Lundúnum, en hin á leið til
Lundúna frá Liverpool.
„Lestarvagnamir hlóðust hver
upp á annan við áreksturinn. Ég
get ekki trúað því að fleiri skuli
ekki hafa slasast alvarlega eða dá-
ið. Það var hræðilegt að fást við
þetta," sagði Robin Richards,
slökkviliðsstjóri í Staffordshire í
samtali við fréttamenn.
Lögreglan yfir-
gefur Ryesgade
Kaupmannahöfn. Frá Ib Bjömbak, fréttaritara Morgunbladsins.
SVO VIRÐIST sem hústöku-
menn, sem hafa lokað sig inni
bak við víggirðingar og veg-
tálma á Austurbrú, hafi sigrað
í baráttunni við yfirvöld. Að-
faranótt laugardagsins var
lögreglan kvödd út af víggirta
svæðinu og flest bendir til að
samkomulag náist um lausn,
sem hústökumenn eru sáttir við.
Þverpólitískur hópur borgarfull-
trúa í Kaupmannahöfn hefur lagt
fram tillögu til lausnar deilUnni
ög segjast hústökumenn geta sætt
sig við lausnina. Hún er í því fólg-
in að hin umdeilda bygging
hústökumanna, Ryesgade 58,
verði sett undir sérstaka borgar-
stofnun sem reki fasteignina.
Hústökumenn haldi búseturétti
þar gegn greiðslu fyrir vatn, raf-
magn, hita og viðhald.
Fagnaðarlæti brutust út innan
víggirðingar hústökumanna þegar
lögreglan hvarf af vettvangi að-
faranótt laugardagsins. Það var
fyrir tilmæli Egons Weidkamp,
yfirborgarstjóra í Kaupmanna-
höfn, að lögreglan hörfaði.
Hústökumenn hyggjast þó ekki
Qarlægja vegtálmana fyrr en þeim
hefur borizt skrifleg yfirlýsing
borgaryfirvalda um réttindi þeirra.
Lögreglan hefur handtekið 108
menn frá því í brýnu sló með henni
og hústökumönnum. Sjö þeirra eru
sakaðir um gróft ofbeldi gegn lög-
reglunni.
Bandaríkin:
Meirihluti vill
leiðtogafund
Moskvu, Washington, Los Angeles, AP.
YFIRGNÆFANDI meirihluti Bandaríkjamanna telur að Daniloff-
málið eigi ekki að koma í veg fyrir fyrirhugaðan leiðtogafund
Bandarikjanna og Sovétrikjanna i Washington siðar á þessu ári, að
því er fram kemur í skoðanakönnun Gallup-stofnunarinnar, sem
birt er í dagblaðinu Los Angeles Times í gær. 71% Bandaríkja-
manna eru þeirrar skoðunar að af leiðtogafundinum eigi að verða,
20% eru á móti og 9% voru óákveðnir. Skekkjuinörkin í könnuninni
eru talin 4%.
Fundur Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna og Shultz,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
til undirbúnings leiðtogafundinum
var framhaldið í gær. I viðræðum
þeirra bar Daniloff-málið hæst. Að
þeim löknum er gert ráð fyrir að
yfirlýsing verði birt um árangur við-
ræðnanna, en fundinum var ekki
lokið þegar Morgunblaðið fór í
prentun.
Formaður sendinefndar Banda-
ríkjanna á Vínarfundinum um
lokagerð Helsinki sáttmálans segir
að Daniloff-málið muni hafa mjög
neikvæðar afleiðingar á fundinn,
finnist ekki lausn á því innan
skamms.