Morgunblaðið - 21.09.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2U SEPTEMBER 1986
23
Fréttir úr borgarstjórn
Fj ár stuðningnr
við kvennaathvarfið
Frá fundi borgarstjórnar á fimmtudag. Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Agreiningur um stjórn
skólamála í borginni
INGIBJÖRG Sólrún Gisladóttir (Kvl.) lagði, á fundi borgarstjórnar
á fimmtudag, fram tillögu frá minnihlutafiokkunum þess efnis, að
kvennaathvarfinu yrði veitt viðbótarfjárstuðningur að upphæð 500
þúsund krónur i stað þeirra 160 þúsunda sem borgarráð ákvað að
veitt yrðu til viðbótar þeim 625 þúsundum sem þegar hafa verið
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lags, Alþýðuflokks, Framsóknar-
flokks og Kvennalista lögðu
fram tillögu þess efnis á fundi
borgarstjómar á fimmtudag, að
Reykjavíkurborg yrði skipt niður
í nokkur skóiahverfi og fyrir
hvert þeirra kosin skóianefnd
með sambærileg verkefni og
skólanefndir í öðmm fræðsluum-
dæmum.
Þorbjörn Broddason, borgarfull-
trúi Alþýðubandalags, sagði að
tillagan væri til komin vegna mik-
illa vandamála í skólum borgarinn-
ar, sem hann taldi að mætti rekja
að mestu leyti til deilna þeirra sem
uppi væru milli fræðsluráðs og
skólamálaráðs. Fór hann mörgum
orðum um vanhæfni formanns
beggja þessara ráða, Ragnars
Júlíussonar, til að gegna þessum
embættum. Jafnframt taldi hann
ágreining uppi milli borgarstjóra
og menntamálaráðherra í þessum
efnum og minnti á að með myndun
skólamálaráðs missa kennarar einn
fulltrúa úr ráðinu. Þeii' voru með
tvo í fræðsluráði en eru með einn
í skólamálaráði.
Davíð Oddson borgarstjóri sagð-
ist ekki kannast við nein stórvægi-
leg vandamál í skólum borgarinnar,
það væri helst mcðal fulltrúa minni-
hlutans í fræðsluráði sem allt viitist
vera komið í bál og brand. Það
væri furðulegt að sjá fulltrúa minni-
hlutaflokkanna hamast við að koma
því fram að ríkisvaldið hafi sem
mcst um þessi mál að segja. Það
væri. hlutverk fræðslustjóra að sjá
um sálfræðiþjónustu og hugsanlega
sérkennslu. Onnur verkefni væru
betur komin í höndum borgarinnar
og þar með skólamálaráðs.
Ekki kannaðist hann heldur við
neinn ágreining á inilli sín og
menntamálaráðherra, þeir væru
báðir jafn hissa á þessu umstangi.
Varðandi fækkun fulltrúa kenn-
ara taldi hann eðlilegt að borgin
tæki sjálf ákvarðanir um þau mál
er lögð væru fyrir skólamálaráð.
Jafnframt hefðu forsendurnar fyrir
þremur fulltrúum kennara breyst,
þar sem kennarafélögin væru nú
orðin tvö í stað þriggja áður. Borg-
arstjóri lagði einnig fram umsögn
borgarlögmanns um aðild kennara
að skólamálaráði, en Kennarafélag
Reykjavíkur taldi að lögum sam-
kvæmt ættu kennarar að eiga sama
rétt á setu í skólamálaráði og
fræðsluráði. Niðurstaða borgarlög-
manns var sú, að ákvæði grunn-
skólalaga um skipun fræðsluráðs
eigi ekki við um skipan skólamála-
ráðs Reykjavíkur. „Borgarstjórn
Reykjavíkur er stjórnskipulega rétt-
ur aðili til að meta og ákveða aðild
að skólamálaráði, þ.á m. aðild kenn-
ara. Með þeirri tilliigu, sem fyrir
liggur um kennarafulltrúa í skóla-
málaráði, er virtur eðlilegur réttur
þeirra til að fylgjast með störfum
ráðsins.“
Siguijón Fjeldsted, skólastjóri og
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
sagði engin sérstök vandamál vera
í rekstri skóla í dag, þó eðlilegt
væri að komið gætu upp viss vanda-
mál þegar kennarar skiptu skyndi-
lega um störf við bytjun skólaárs.
Frávísunartillaga kom frá borg-
arstjóra þess efnis að tiilögu
minnihlutaflokkanna um skiptingu
borgarinnar í skólasvæði yrði vísað
til skólamálaráðs og var hún sam-
þykkt með atkvæðum meirihlutans.
veitt til starfseminnar á þessu ári.
Ingibjörg Sólrún sagði að sú upp-
hæð sem þegar væri búið að ákveða
að veita væri hvorki til að „lifa eða
deyja“ á fyrir kvennaathvarfið.
Benti hún á að þegar væru fordæmi
fyrir aukafjárstuðningi sem þess-
um. Tvær slíkar Ijárveitingar hefðu
verið afgreiddar í sumar og voru
báðar til heimila fyrir áfengissjúkl-
inga.
Guðrún Agústdóttir (Abl.) tók í
sama streng og sagði fjárþörf
kvennaathvarfsins hafa aukist mjög
á þessu ári vegna aukinnar aðsókn-
ar í athvarfið og að nauðsynlegur
viðhaldskostnaður á húsnæðinu
hefði farið fram úr áætlum, samtím-
is sem fjárbeiðnir væru skomar við
nögl. Það væri skylda Reykvíkinga
að sjá til þess, að þessi lífsnauðsyn-
lega starfsemi yrði áfram starf-
rækt.
Arni Sigfússon (S), formaður fé-
lagsmálaráðs, sagði það mjög
mikilvægt að menn gerðu sér ljóst,
að þetta mál yrði að skoða annars-
vegar út frá hinum félagslega þætti
og taka afstöðu til hans og hinsveg-
ar hinum rekstrarlega og fjárhags-
lega þætti og sjá til þess að því
fjármagni sem borgin veitir til hinna
margvíslegu verkefna sé rétt varið.
Taldi hann alla vera hlynnta hinum
félagslega þætti kvennaathvarfsins.
Hvað hinn rekstrarlega þátt varðar
sagði hann að Reykjavíkurborg
bæri skyida til að tryggja það, að
fjármagn sem lagt er til stuðnings
ákveðinni starfsemi nýtist á sem
virkastan hátt. Þegar um væri að
ræða stuðning við konur, sem vegna
ofbeldis á heimilum verða að flýja
þaðan, væri ákvörðun um stuðning
auðveld.
A þessu ári væri varið sömu upp-
hæð til kvennaathvarfsins og á
síðasta ári en þá hefði rekstur þess
gengið ágætlega. Sagði Arni enn-
fremur að ýmislegt benti til þess
að kvennaathvarfið hefði í einhvetj-
um mæli tekið að sér að veita
þjónustu sem þegar væri veitt af
Félagsmálastofnun, nefnilega að-
stoð við fólk í húsnæðisvanda og
því ekki óeðlilegt að borgin velti
vöngum yfir til dæmis húsnæðis-
kaupum kvennaathvarfsins og því
sem lagt hefði verið til þeirra. Taldi
hann þær 785 þúsund krónur sem
styrkur borgarinnar næmi á þessu
ári, vera ætlaðar til að sinna því
markmiði að veita konum og börn-
um skjól sem hefðu þurft að sæta
líkamlegu ofbeldi í heimahúsum.
Bjarni P. Magnússon (A) sagði
að honum hefði strax fundist illa á
þessum málum haldið í borgarráði
af öllum aðilum, þetta væri orðin
eins konar keppni tveggja liða.
Sagði hann starfsemi athvarfsins
ekki eiga það skilið að hún dytti
niður vegna deilna um nokkra tugi
þúsunda.
Tillaga Kvennaframboðs um við-
bótarfjárstuðning var felld með
atkvæðum borgarstjórnarhlutans
gegn atkvæðum minnihlutans.
Veitingastaðurinn Sprengisandur
Deilt um innkeyrslu að Sprengisandi
Útivistarsvæði á
Ölfusvatnslandi
ÖSSUR Skarpiiéðinsson (Abl) lagði fram á fundi borgarstjórnar á
fimmtudag tillögu frá Alþýðubandalaginu iim að borgarstjórn beitti
sér fyrir því að gera Olfusvatnsland í Grafningi að nýtiiegu útivistar-
svæði fyrir Reykvíkinga árið 1987. Lagt er til að sérstök áhersla
verði lögð á það, að skapa aðstöðu til útivistar fyrir hreyfihamlaða
og haft samráð við samtök fatlaðra í þessum efnum.
Sagði Össur að í nýlegri heim- sjálfsagt að borgin gerði það besta
sókn á þetta svæði hefði hann séð
hversu hentugt svæði til útivistar
þetta gæti orðið og tilvalið að nýta
það, fyrst borgin hefði á annað
borð eignast svæðið. Sagði Össur
það vera „sósialíska skyldu“ sína
að gera það besta úr þessum mál-
um.
Páll Gíslason (S),sem mælti fyrir
hönd meirihlutans, taldi það vera
úr þeim svæðum sem hún ætti og
reyndi að hlúa að þeim á allan hátt,
enda hefði verið margoft bent á
það, í sambandi við kaupin á Ölfus-
vatnslandi, að þetta svæði væri
kjörið til útivistar.
Samþykkt var að vísa þessu
máli til umhverfismálaráðs og
stjórnar veitustofnanana til umfjöll-
unar og umsagnar.
ALL NOKKRAR umræður urðu á borgarstjórnarfundi á fimmtudag
um innkeyrsiu að veitingastaðnum Sprengisandi, á horni Bústaða-
vegs og Reykjanesbrautar, seni samþykkt var nýiega i borgarráði.
Siguijón Pétursson, borgarfull-
trúi Alþýðubandalagsins, mælti
fyrir tillögu þess efnis að hætt yrði
við fyrirhugaða innkeyrslu. Sagði
hann þessa ákvörðun vera „svo fár-
ánlega að það tæki ekki nokkru
tali“. Umferðarsérfræðingar borg-
arinnar hefðu lagst gegn henni og
hún verið felld í Umferðairáði. Taldi
Sigurjón það furðu sæta, að hags-
munir veitingastaðar hefðu verið
svo ríkir, að borgarráð þurfti að
samþykkja tillögu þessa í sumarfríi
borgarstjórnar. „Það ætti ekki að
■skipta borgarstjórn nokkru máli
hvort að fleiri eða færri hamborgar-
ar væru snæddir á þessum stað.“
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði að komist hefði verið að þeirri
niðurstöðu, að óhætt va>ri að gera
þessa tilraun til eins árs og að tillag-
an hefði fallið á jöfnum atkvæðum
í Umferðarráði. Minnti hann á að
fulltrúar minnihlutaflokkanna
hefðu áður stutt sambærilegar til-
lögur til dæmis varðandi útkeyrslu
við verslunina Miklagarð.
Össur Skarphéðinsson (Abl.) tók
í sama streng og Siguijón Pétui>s-
son. Ennfremur sagði hann að
kunningsskapur Katrinar Pjeldsted
(S) við Tómas Tómasson, veitinga-
' mann, hefði átt þátt í því að þessi
ákvörðun var tekin. „Það liggja
annarlegar hvatir að baki þessari
ákvörðun."
Katrín Fjeldsted (S) sagði það
hafa verið rétt, að umferðarsér-
fræðingar hefðu lagst gegn þessari
ákvörðun með þeim riikum að út-
keyrslur frá stofnbraut ættu að
vera sein fæstar. Ein undantekning
væri þó á þessu, nefnilega bensín-
stöðvar, en í þeim tilvikum væri
ekki taiið óæskilegt að hvika frá
þessari reglu. Sagðist hún ekki geta
séð að svo miklu hættulegra væri
að lieygja út af vegi til að fá sér
mat en bensín. Skrif Össurar og
Þjóðviljans um vinatengsl hennar
og Tómasar sagði hún ekki vera
svara verð.
Bjarni P. Magnússon, borgarfull-
trúi Alþyðuflokks, sagðist vera
fylgjtmdi þessari ákvörðun. Það sem
skipti meginmáli væri hvort verið
væri að auka þjónustu við borgar-
ana, án þess að stefna öryggi þeirra
í hættu. Taldi hann þcssa útkeyrslu
ekki vera hættuvald en vildi þó
hafa þann fyrii-vara á, að mál þetta
yrði tekið til endurskoðunar að ári
liðnu eins og tillagan kveður á um.
Borgarfulltrúi Kvennalistans,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sagðist
vera efnislega sammála tilliigu Sig-
uijóns Péturssonar og taldi jafnvel
álitamál hvort yfirhöfuð hefði átt
að reisa húsið á þessum stíið.
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull-
trúi Framsóknarflokks, var einnig
sammála tilliigu Siguijóns og taldi,
að með siimu rökum og borgar-
stjórnarmeirihlutinn færði í þessu
máli mætti opna á ný útkeyrsluna
við Miklagarð.
Tillagan var felld með atkvæðum
fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks gegn atkvæðum Al-
þýðubandalags, Framsóknarflokks
ag Kvennaframboðs.