Morgunblaðið - 21.09.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986
5
Sinfóníuhljómsveit
Islands:
Kynningartón-
leikar í beinni
útsendingn sjón-
varps og rásar 2
TÓNLEIKAR Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands, sem verða i
Háskólabíói nk. mánudagskvöld,
verða í beinni útsendingu sjón-
varps og rásar 2 í fyrsta skipti.
Pétur Guðfínnsson, fram-
kvæmdastjóri sjónvarpsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið að með
tilkomu nýja upptökubflsins væri
sjónvarpið betur til þess fallið að
sinna tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, en þó væru ekki
fyrirhugaðir fleiri tónleikar hennar
í beinni útsendingu að svo stöddu.
„Þeir verða ekki gerðir að fastri
reglu í dagskrá sjónvarpsins, heldur
koma þeir til greina þegar um meiri-
háttar tónlistarviðburði er að
ræða.“
ÞER BJOÐAST TVEIR
MÖGULEIKAR EF ÞÚ ÞARFAÐ
INIMLEYSA SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS EN VIU EIGA
SPARISKÍRTEINIÁFRAM!
Tónleikamir eru kynningartón-
leikar Sinfóníuhljómsveitarinnar
fyrir vetrardagskrána og verða
leiknir kaflar úr verkum eftir Mik-
hail Glinka, Wolfgang Amadeus
Mozart, Saint-Saéns, Nikolaj Tsjai-
kofski og Igor Stravinski. Stjóm-
andi verður Páll P. Pálsson og
einleikari Guðný Guðmundsdóttir.
Pétur sagði að ákvörðun hefði
verið tekin um að sjónvarpa og út-
varpa samtímis þar sem sumir
hefðu mjög góð útvarpstæki og því
betri hlustunarskilyrði. Því gætu
sumir hlustað á útvarpið og horft
í leiðinni á sjónvarpið og fylgst
þaðan með tónleikunum.
Skoðanakönnun vegna
byggðar á Valhúsahæð:
Meirihlut-
inn á móti
Ekki rétt staðið að
köimuninni segir
Sigurgeir Sigurðs-
son bæjarstjóri
BALDUR, félag ungra sjálfstæð-
ismanna á Seltjarnarnesi, hefur
kannað viðhorf 250 manna úr-
taks bæjarhúa til þess, að byggt
verði á Valhúsahæð. Niðurstöð-
urnar sýna að 60,13% þeirra sem
tóku afstöðu voru á móti en
39,87% voru fylgjandi byggð á
hæðinni.
„Ég er hræddur um að ekki hafí
verið alveg rétt að þessari skoðana-
könnun staðið," sagði Sigurgeir
Sigurðsson bæjarstjóri Seltjamar-
ness þegar niðurstöðumar vom
bomar undir hann. Hann sagði að
einungis hafí verið spurt einnar
spumingar og væri hann þeirrar
skoðunar að með einni spumingu
væri hægt að fá það svar, sem ósk-
að væri eftir allt eftir því hvemig
spumingin er fram borin. „Val-
húsahæð, sem er fastur punktur í
tilvemnni, er 12 hektarar að stærð.
Hugmynd meirihluta bæjarstjómar
er að nýta af þeim 1,2 hektara á
tveimur stöðum undir íbúðarbyggð.
Ef spurt er, vilt þú láta byggja á
Valhúsahasð?, þá er það aðeins önn-
ur spuming en ef spurt er, vilt þú
láta nýta 10% af henni?,“ sagði
Sigurgeir.
I samþykktum skipulagstillögum
fyrir Seltjamamesbæ er gert ráð
fyrir 18 húsum á hæðinni. Að öðm
leyti verður gengið frá vemdun
þess lands sem eftir er, „ bæjarbú-
um til gagns og ánægju eins og að
er stefnt því hæðin er ósköp lítið
notuð sem útivistarsvæði í dag,“
sagði Sigurgeir.
7,5%
vextir
hjá okkur
Eldri flokkar
Spariskírteina
Ríkissjóðs
Vid bjóðum þér Spariskírteini Ríkissjóðs
með hærri vöxtum á meðan birgðir endast.
Það getur borgað sig að leita ráða hjá
sérfræðingum okkar.
Við önnumst innlausn Ríkisskuldabréfanna
fyrir þig og ráðleggjum þér um framhaldið.
Q2>
FJÁRFESriNCARFÉLAGID
VERÐBRÉFAMARKAÐURINN
f jármál þín - sérgrein okkar
Hafnarstræti 7 101 Reykjavík ö (91) 28566
6,5%
vextir
hjá Ríkissjóði
Skiptibréf
Ríkíssjóðs
ISA/SÍA