Morgunblaðið - 21.09.1986, Blaðsíða 40
LXL/
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986
H
Mt. Mckinley (6.194 m). Leiðin
sem við fórum liggnr upp hrygg-
inn sem gengur frá hægri til
vinstri að miðri myndinni og
þaðan svo til beint upp.
Rib. Við höfum mat til ca 10
daga með okkur og eldsneyti til
jafnlangs tíma. Kóreönsku vinir
okkar vilja allt fyrir okkur gera,
buðu okkur í mat í hádeginu og
héldu að okkur sælgæti allan
daginn. Þeir minna mig svolítið
á suma sem ég þekki að heiman
því annar segist vera alkóhólisti
og þeir eru í því að fara í gegnum
ruslapokana í leit að sígarettu-
stubbum...
Það varð úr að við lögðum í
West Rib og fórum við frá tjald-
búðunum liðlega 9 um kvöldið
og bytjuðum klifrið um tíuleytið
eftir að hafa gengið frá þotunum
og skíðunum fyrir neðan. Gilið
sem við fórum fyrst er um 400
metra hátt og hallinn er nú ekki
nema 45—50° en það er talsvert
erfitt með 20 kílóa bakpoka.
Færið var mishart og fylgdum
við að mestu gamalli slóð þar sem
skiptust á góð spor i snjó og
grjótharður ís. Það tók okkur 5
tíma að brölta upp gilið sem er
gott miðað við ameríska leiðang-
urinn sem er nokkrum dögum á
undan okkur en það tók þá víst
þrjá daga að fara hér upp. En
þeir settu upp fastar línur alla
leið en við klifruðum saman alla
leið í einni línu og settum inn
tryggingar með 10 metra milli-
bili. Þegar við komum uppá
hrygginn var þar tilhoggið tjald-
stæði sem passaði nokkum
veginn alveg fyrir tjaldið og sett-
um við inn nokkrar ísskrúfur
fyrir ofan til að halda því uppi.
Skaflinn sem tjaldstæðið er í er
um 30° en fyrir utan tjaldskörina
er 400 metra frítt fall og reyndar
er eitt homið á lofti. (Ur dagbók
BR.)
Þessar fyrstu búðir okkar á sjálf-
um hryggnum vom í 3.750 m hæð
en daginn eftir fómm við uppí 6.
búðir sem vom í 4.300 m hæð. Þar
hvíldum við okkur í einn dag áður
en við héldum áfram.
„18. júní. Það snjóaði nær allan
daginn, þ.e.a.s. þetta er varla
meira en kom og korn á stangli.
Þó er búið að snjóa hátt í 30 sm
á síðasta sólarhring. Við lágum
inni í tjaldi og hlustuðum á músík
allan daginn. Seinni partinn fór
að létta til og fjöllin að birtast í
kringum okkur og um kvöldið
fengum við þá fegurstu fjallasýn
sem um getur þegar Hunter og
Foraker bmtust út úr skýjun-
um.“ (Dagbók BR.)
7. búðir vom í 4650 m hæð og
þar hvíldum við okkur aftur í einn
dag.
I þessum búðum heyrðum við í
fyrsta skiptið eitthvað í þessari
blessaðri talstöð sem við burðuð-
umst með með okkur. Það kom
reyndar ekki til af góðu vegna þess
að við heyrðum samskipti við flug-
vél sem var. að leita að félögum
Kóreubúana sem við höfðum hitt
áður. Síðar fréttum við að þeir
(Ljósm. BR.)
Mt. Mckinley og
N or ður-Ameríka
— eftir Björgvin Richardson
II. hluti
Lendingarstaðurinn var kapítuli
útaf fyrir sig. Þegar við lækkuðum
flugið til lendingar sáum við Óskar
ekkert framundan nema skriðjökul
sem virtist að vísu að mestu
spmngulaus en hann var langt frá
því að vera á jafnsléttu heldur hall-
aði talsvert fram dalinn. Allt tókst
þó vel en þetta er í fyrsta skipti sem
ég hef flogið uppá við til þess að
lenda. Veðrið þama uppi var með
miklum ágætum, logn, heiðskírt og
um 10 stiga frost. Við lögðumst til
svefns undir bem lofti en klukkan
sex um morguninn stigum við á
skíðin og héldum af stað, með allan
farangurinn, 60 kg, þar af ríflega
helminginn á plastþotum sem við
leigðum.
Til að komast að rótum þeirrar
leiðar sem við ætluðum að reyna
við, West Rib, þarf að ganga 15
km leið á Kahiltna-skriðjökíinum
sem á köflum er allspmnginn. Lóð-
rétt hækkun er um 1.000 metrar á
leiðinni og ræturnar em því í um
3.000 metra hæð. Ferðin inneftir
gekk vel, veðrið var gott allan
tímann og aðalvandamálið var að
það var svo heitt á daginn í sólinni
að við gátum ekki gengið og ferðuð-
umst því aðallega á morgnana og
kvöldin. Annars var það stórkost-
legt að vera þarna umkringdur
§öllum á alla vegu. Handan við
dalinn vom 4.000 metra tindar eins
og Kahiltna Dome og Mt. Crosson.
Aðeins neðan var þriðja hæsta fjall
N-Ameríku, Mt. Foraker (5.360 m)
og þar á móti eitt fallegasta fjallið
á svæðinu, Mt. Hunter. Yfir okkur
gnæfði svo sjálft Denali í allri sinni
tign. Það skemmdi ekki fyrir að það
hmndi svo til stöðugt úr öllum
fjallshlíðum í kringum okkur þar
sem það hafði snjóað talsvert,
stuttu áður en við komum. Það tók
okkur þijá daga að koma okkur og
öllum farangrinum inn að fjalli en
þar settum við upp einskonar
birgðastöð. Ætlunin var að fara
fyrst á lægri tind til að aðlagast
hæðinni og varð fyrir valinu 4.097
metra hár tindur, Kahiltna Peaks,
sem er þama rétt fyrir ofan. Fyrsti
hluti leiðarinnar, eða uppí næstu
„Að lokum fór svo að
við gátum ekki haldið á
okkur hita á göngu
þrátt fyrir að við vær-
um í öllum okkar
fötum. í 5.540 m hæð
stoppuðum við til að
reyna að koma niður
einhverri næringu, en
þá vorum við búnir að
ákveða að snúa við,
enda ekkert vit í því að
halda áfram, þar sem
við áttum á hættu að
ofkælast og kala
o.s.frv.“
búðir (4. búðir), er sá sami og far-
inn er til að komast á West Rib
þannig að við tókum með okkur
auka bensín og mat til að skilja
eftir til notkunar síðar. Við lögðum
af stað um kvöld þegar sólin var
að hverfa bak við ijöllin en þama
er vel bjart alla nóttina á þessum
árstíma rétt eins og hér heima.
Leiðin lá upp krosssprunginn fall-
jökul og þurftum við meira að segja
að fara af skíðunum stuttan spöl
sem má segja að sé afar sjaldgæft.
í 4. búðum hittum við tvo Kóreu-
búa sem vom hiuti af 7 manna
leiðangri en félagar þeirra voru að
reyna við talsvert erflða leið, Cass-
in-hrygginn.
Þessir tveir buðu okkur afnot af
tómu tjaldi í búðunum og þáðum
við það með þökkum.
16. júní. Þrátt fyrir að við séum
komnir í 3.450 m hæð höfum við
enn engin einkenni hæðarveiki,
við sofum og borðum vel og höf-
um engan hausverk. Við vorum
að rajða það í nótt og í dag hvort
það væri eitthvað vit í því að
halda því til streitu að reyna við
Kahiltna Peaks. Til að komast á
þá þyrftum við að fara 300 metra
ísbrekku og síðan eftir hrygg sem
er eins og rakvélarblað með hell-
ing af hengjum á u.þ.b. 1 km eða
meira.
Sú hugmynd kom upp í staðinn
að reyna bara strax við West
Það var mikið af jökulsprungum á leiðinni en hestar höfðu góðan snjóbyr þannig
að auðvelt var að komast yfir þær.