Morgunblaðið - 21.09.1986, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 21.09.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986 39 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Afstööur Ég ætla í dag að útskýra lítil- lega hvað við er átt þegar talað er um að afstöður eru milli pláneta. Hvaö er afstaöa? Þegar ákveðin fjarlægð myndast milli tveggja eða fleiri pláneta er sagt að þær séu í afstöðu. Það sem gerist er að þær hafa áhrif hvor á aðra og orka blandast saman. Afstöðu má t.d. líkja við sam- vinnu manna sem eru að vinna sama verkið og verða að taka tillit til hæfileika og vinnubragða hvors annars. Þeir þurfa því að gera mála- miðlun. Fjarlœgöir Þær fjarlægðir sem um ræðir eru 0, 60, 90, 120 og 180 gráður. Leyfð eru frávik upp á nokkrar gráður, þ.e. ef 4 gráður eru milli pláneta telj- ast þær í samstöðu. Fjölskylda Þegar plánetur liggja hlið við hlið, yfirleitt í sama merki, er talað um að þær séu í - samstöðu. Samstaða er sterk afstaða sem tengir plánetur rækilega saman. Við getum líkt henni við fjölskyldu og ættarbönd. Það hvort sam- staðan er erfið eða auðveld fer eftir því um hvaða plánet- ur er að ræða. Vinátta Þegar plánetur eru í 60 eða 120 gráðu fjarlægð er um tengsl á milli líkra merkja að ræða. Þessar afstöður eru kallaðar samhljóma, vegna þess að um ákveðinn sam- hljóm eða uppbyggjandi flæði er að ræða milli plánetanna. tvær plánetur í samhljóma afstöðu eiga yfirleitt auðvelt með að starfa saman og því má líkja samhljóma afstöðu við vináttu. Togstreita Þegar 90 eða 180 gráðu af- staða er milli tveggja pláneta er sagt að þær séu í spennu- afstöðu. Ástæðan fyrir því er sú að um tengsl á milli tveggja ólíkra merkja er að ræða. Um vissa togstreitu og baráttu verður því að ræða. Líkja má spennuafstöðunni við óvin eða samkeppnisaðila. Jöfn hlutföll Þó spennuafstaðan verði að teljast erfiðust er hún alls ekki slæm. Ástæðan fyrir því er sú að hún gefur mesta orku af öllum afstöðum. I reynd virðist það koma best út þegar kort hafa allar þtjár tegundir í jöfnum hlutföllum. Ðœmisaga Við skulum heimsækja þá félaga Mars í Hrút og Sat- úrnus í Krabba. Segjum að 90 gráðu spenna sé á milli þessara pláneta í stjörnu- korti. Mars í Hrút er sagður orkumikill og drifandi í fram- kvæmdum. Hvað gerist þgar hann þarf að vinna með Sat- úrnusi sem er varkár, skipu- lagður og oft bældur? Jú, einn þáttur persónuleikans segir: „Við skulum drífa þetta verk af.“ Um leið vakna efasemdir. „I guðanna bæn- um ekki flýta þér of mikið. Það þarf að skipuleggja og fara að öllu með gát, annars er hætt við slysi o.s.frv. Um togstreitu er því að ræða. Ungur ofurhugi og gamall varkár maður eru að vinna sama verkið. Ungi maðurinn verður pirraður á seinagang- inum, gamli maðurinn hræðist bráðræðið. í persónu sem ber þennan kross getur myndast innri óánægja, óskiljanleg hindrun og síðan gremja. X-9 5JAPU, UWRETTL ■ t-f&DDJR oR6/?/e4&/ tW/y/Y /t/é>ífc/ce//r/r... . JACQI/E6 - ! '/FIKpESSU."Eápf/fK/ i &////■. 06 r ----- l//í>EE7(/// C/LA GRETTIR UÓSKA SMÁFÓLK HERE'S THE L0NELY UJORLP WAKI FLYIN6 ACE SITTIN6 IN A SMALL FRENCH CAFE.. IM IN LOVEÍ IT'5 THE BE6INNIN6 ($!6H) OF ANOTHER TRASIC ROMANCE... | I VE only BEEN IN FRANCE FOUR H0UR5, ANP ALREAPV l'VE HAP SEVEN TRA6IC ROMANCES! Hér situr hinn einmana flugkappi úr fyrra stríði á franskri krá. Hér keniur rótarbjórinn þinn, Monsieur! Ég er ástfanginn! Þetta er upphafið (andvarp) að rétt einu harmþrungnu ástar- ævintýrinu ... Ég er ekki búinn að vera nema fjóra tíma í Frakk- landi og nú þegar er ég búinn að lenda í sjö harm- þrungnum ástarævintýr- um! Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Spenna er fylgifiskur allra keppnisíþrótta og hvergi er hún meiri en í jöfnum útsláttarleikj- um í mikilvægu móti. Á heims- meistaramótinu um Rosen- bluhm-bikarinn, sem lauk á Miami í Bandaríkjunum á sunnudaginn, fylgdust áhorf- endur með æsispennandi viður- eign bandarískrar sveitar, með þeim Martel og Stansby innan- borðs, og sterkrar sveitar frá Indónesíu. Þetta var í 24 sveita úrslitum. Spiluð voru 32 spil og leikurinn var jafn upp á punkt þegar keppendur tóku síðasta spilið úr bakkanum. Leikurinn var sýndur á töflu og áhorfendur fylgdust með sögnum með önd- ina í hálsinum. Þetta var spilið: Norður gefur; allir á hættu. Vestur Norður ♦ Á1063 VÁG3 ♦ 92 ♦ 9754 Austur ♦ KG87 ♦ 94 ♦ KD754 ♦ G Suður ♦ D5 ♦ 108752 ♦ 10863 ♦ Á3 ♦ 942 ♦ KD6 ♦ Á ♦ KD10862 I opna salnum héldu Stansby og Martel á spilum N/S: Vestur Nordur — Pass 1 tígull 1 spadi Pass Pass Pass 3 spaðar Dobl Pass Austur Suður Pass 1 lauf Pass 2 spadar 3 tíglar Pass Pass 4 spadar Pass Pass Kostulegar sagnir; ekki síst sú ákvörðun Martels í suður að hækka í fjóra spaða þegar hann hafði áður sætt sig við að spila tvo spaða. Bandarísku áhorfendurnir stundu þungan og tóku að tínast úr salnum því spilið fer marga niður með tigulsókn. En Indó- nesinn í austur átti eftir að spila út. Hann lagðist undir feld og komst að þeirri niðurstöðu að dobl mákkers hlyti að vra ein- hvers konar útspilsdobl, hugsan- lega byggt á styrk í laufí. Það hefði verið í lagi að spila út lauf- ás og meira laufí, því þá hefði spilið þó farið einn niður. En Indónesinn valdi lítið lauf til að vemda hugsanlega drottningu hjá makker! Það reyndist illa. Stansby drap á laufkóng og spilaði aftur laufí. Og nú var komið að góð- verki vesturs. Hann trompaði og horfði með kvöl í augum á lauf- ásinn detta í slaginn frá félaga. Og þar með var spilið unnið og leikurinn með. símanúmeb 69 00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.