Morgunblaðið - 21.09.1986, Blaðsíða 46
46
t (/»
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986
IÞINGHLÉI
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Atakavetur
— kosningavor
Síðast var kosið til Alþingis
23. apríl 1983. Kjörtímabil Al-
þingis er fjögur ár. Þar af Ieiðir
að umboð þings þess, sem vænt-
anlega kemur saman 10. október
næstkomandi, er úti siðla í apríl-
mánuði að vori. Ekki liggur ljóst
fyrir, hvort kosið verður áður
en umboð núsitjandi þings er allt,
til dæmis í marz- eða aprílmán-
uði. Hugsanlegt er að þing verði
rofið fyrir þessi tímamörk en
kosið síðar og þá i siðasta lagi á
iögmæltum kjördegi i júnímán-
uði. Hitt er á hreinu þegar nýtt
Alþingi kemur saman eftir kosn-
ingar á næsta ári, það er haustið
1987, þá sitja þar 63 réttkjörnir
þingmenn i stað 60, eins og nú er.
Samkomulags-
frumvarp
Þann 19. desember 1983 mælti
Þorsteinn Pálsson (S.-Sl.) fyrir
frumvarpi til breytinga á lögum um
kosningar til Alþingis, sem flutt var
af formönnum fjöguira flokka:
Sjálfstæðis-, Framsóknar- og Al-
þýðuflokks, auk Alþýðubandalags.
Fi-umvarj)ið tók mið af þegar sam-
þykktri breytingu á stjómarskrá
íslenzka ríkisins, m.a. um fjölgun
þingmanna úr 60 í 63.
Frá því sú flokkaskipan sem
ríkjum ræður í íslenzkum stjóm-
málum festist í sessi hafa þijár
breytingar verið gerðar á stjórnar-
skrá og kjördæmaskipan: 1934,
1942 og 1959. Meginbreytingin var
gerð 1959 þegar þingmönnum var
fjölgað í 60 og tekin upp hlutfalls-
kosning í 8 kjördæmum. Sú breyt-
ing hafði það að meginmarki að
tryggja Jöfnun milli stjórnmála-
flokka, þannig að þeir fengju
þingstyrk í eðlilegu samhengi við
kjörfylgi sitt meðal þjóðarinnar",
eins og Þorsteinn Pálsson fram-
sögumaður frumvarpsins, komst að
orði. Frá þessum tíma, 1959, hefur
hlutfallsleg íbúatala kjördæmanna
breytzt svo mjög, að allnokkur
skekkja varð á orðin milli kjörfylgis
og þingstyrks stjómmálaflokka og
mjög mikil skekkja í vægi atkvæða
eftir búsetu kjósenda.
Megintilgangur breyttra stjóm-
skipunar- og kosningalaga nú var
tvíþættur:
* 1) Að koma á jöfnuði milli flokka,
þann veg að þingstyrkur þeirra
væri í meira samræmi við kjör-
fylgi. Miðað við reglur, sem gilt
hafa til þessa, skorti tvö til sex
uppbótarþingsæti til að ná mætti
jöfnuði milli framboðsflokka að
þessu leyti.
* 2) Að komast nær jöfnuði í
vægi atkvæða kjósenda, án tillits
til búsetu þeirra. Vægi atkvæða var
hinsvegar ekki jafnað að fullu, enda
Kosið eftir nýjum reglum
Þing það sem hefst 10. október nk., er síðasta þing kjörtímabilsins. Þingkosningar fara fram að vori
samkvæmt breyttum stjórnskipunar- og kosningalögum, sem styrkja stöðu Reykjavíkur- og Reykjanes-
kjördæma, þó enn vanti töluvert á að vægi atkvæða landsmanna hafi verið jafnað. Það verður Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sem leiðir þann flokk í kosningabaráttunni. Hér sést flokks-
formaðurinn með þinghúsið í baksýn. í þessu húsi verður, ef að líkum lætur, átakaþing í vetur sem endar
í kosningavori.
ekki samstaða fyrir hendi til þess,
heldur dregið nokkuð úr ójöfnuðin-
um, þann veg, að hann verður
heldur minni eftir breytinguna en
hann var árið 1959.
Fjöldi kjördæma-
þingmanna
Samkvæmt breyttum stjómskip-
unar- og kosningalögum skal skipta
54 þingsætum milli kjördæma,
þannig að lágmarkstala kjördæma-
þingmanna verður sem hér segir:
Reykjavík 14, Reykjanes 8, Vestur-
land 5, Vestfirðir 5, Norðurland
vestra 5, Norðurland eystra 6,
Austurland 5, og Suðurland 6. Að
auki skal ráðstafa a.m.k. 8 þingsæt-
um til kjördæma fyrir hveijar
kosningar. Loks er heimilt að ráð-
stafa einu þingsæti til viðbótar, til
frekari jöfnunar.
Miðað við kjósendatölur, eins og
þær vóru þegar málið var rætt á
þingi, hefði skipting 62 þingmanna
á einstök kjördæmi orðið þessi:
Reykjavík 18, Reykjanes 11, Vest-
urland 5, Vestfírðir 5, Norðurland
vestra 5, Norðurland eystra 7,
Austurland 5 og Suðurland 6. Loks
8£Mi
ÝQþúáum.
BROTTFÖR 14. OKTÓBER.
Framlengja má dvölina á Benidorm - Einnig er hægt að stoppa í
London á bakaleið.
SUMARAUKI - ÓDÝR HAUSTFERÐ
Lengið sumarið og skreppið til Spánar í október.
Meðalhiti í október á Benidorm er 24°C, og sólarstundir 7 á dag.
Studioíbúð í tvíbvli: Verð frá 20.000,- pr. mann. Hafðu samband - kynntu þér verðin og ferðamöguleikana.