Morgunblaðið - 21.09.1986, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Geðdeildir
Hjúkrunardeildarstjóri óskast nú þegar á
Geðdeild 28, í Hátúni 10A. Sérnám í geð-
hjúkrun æskilegt.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar
óskast til starfa á ýmsar deildir Geðdeildar.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
38160.
Kópavogshæli
Þroskaþjálfar óskast til starfa á nokkrar
deildir.
Starfsmenn óskast til starfa á ýmsar deildir
svo og til ræstinga. Upplýsingar veitir for-
stöðumaður í síma 41500.
smfmmism «
BrynjólfurJónsson • Nóatún 17 105 Rvik. • S: 621315
• AlhBöa rádningafíjónusta
• Fyrirtækjasaia
• Fjarmálaráðgjöf fyrir fyrirtæki
Ef þú ert í atvinnuleit, hafðu þá samband
við okkur í síma 621315. Við erum í Nóatúni
17 (gengið inn frá Hátúni). Verið velkomin
að ræða málin, að sjálfsögðu í fullum trúnaði.
Dagvistarheimili
— forstöðumaður
Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir lausa
stöðu forstöðumanns við dagvistarheimilið
Kópasel frá 1. nóvember nk. Fóstrumenntun
áskilin. Umsóknarfrestur er til 30. sept. nk.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á Félagsmála-
stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12. Nánari
upplýsingar veitir dagvistarfulltrúi í síma
41570.
Félagsmálastjóri.
Útibússtjóri
Staða útibússtjóra við útibú Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis á Seltjarnarnesi
er laus til umsóknar.
Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning
SÍB og bankanna.
Umsóknarfrestur er til 18. október nk., og
skal umsóknum skilað til skrifstofustjóra,
sem einnig gefur allar nánari upplýsingar um
starfið.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Droplaugastaði vantar starfsfólk í ræstingar
á hjúkrunardeild (III. hæð) strax.
Upplýsingar gefur forstöðumaður, alla virka
daga á milli 9-12. Sími 25811.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð,
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást.
Norræn stofnun um skipuiagsfræði,
NORDPLAN, er samnorræn stofnun,
sem annast framhaldsmenntun og
rannsóknir á sviði skipuiagsfræða.
NORDPLAN
auglýsir hér með lausa:
Prófessorstöðu innan skipulagsfræða (fysisk
planering).
Lýsing: Skipulagning með tilliti til vistfræði-
legra-, félagslegra-, efnahagslegra-, tækni-
legra- og fagurfræðilegra þátta. Saga
skipulagningar (fysisk planering) og starfs-
hættir.
Prófessorinn mun hefja störf 1. janúar 1988.
Skipað verður í stöðuna samkvæmt gildandi
reglugerðum um sænska háskóla. Laun mið-
ast við laun forstöðumanna sænskra stofnana.
Umsækjendur frá Noregi, Danmörku og ís-
landi geta, í vissum tilfellum, haldið fyrri
launum. Við launin bætist greiðsla vegna
flutninga sem nú nemur 1.435 s.kr. fyrir ein-
staklinga og 2.870 fyrir fjölskyldufólk. Einnig
koma aðrar greiðslur og styrkir vegna flutn-
inga til greina.
Til greina kemur að takmarka ráðningartím-
ann æski viðkomandi þess. Hún verður þó
ekki veitt til minna en fjögurra ára.
Samkvæmt núgildandi reglum eiga ríkisstarfs-
menn á Norðurlöndunum rétt á fjögurra ára
leyfi frá núverandi starfi. Nú stendur fyrir dyr-
um endurskoðun á þessari reglugerð og hefur
verið lagt til að starfsmenn við norrænar stofn-
anir eigi rétt á allt að átta ára leyfi.
Umsóknir skal senda: NORDPLAN, Box
1658, 111 86 Stockholm. Þær þurfa að hafa
borist 1.11 1986.
Allar nánari upplýsingar um stöðuna veita
prof. Stif Nordvist eða prof. Per Andersson
í síma 08/24 63 00.
Útflutningsráð
ísiands
óskar að ráða markaðsstjóra
Verksvið: Aðstoð við fyrirtæki, sem eru í
útflutningi eða vilja hefja útflutning, skipulag
samstarfs fyrirtækja og útflutningsátak,
markaðsathuganir erlendis, hagkvæmnisat-
huganir og fyrirlestrahald.
Starfssvið: Tæki og tækni tengd fiskveiðum
og framleiðslu sjávarafurða, rafmagns- og
rafeindatæki, tölvuhugbúnaður, verkefnaút-
flutningur, útflutningur tækniþekkingar.
Kröfur: Frumkvæði, samstarfshæfileikar og
reynsla í atvinnulífinu, málakunnátta og hafa
verið búsettur erlendis um tíma. Tækni-
menntun með viðskiptalegri reynslu eða
viðbótarnámi í markaðsmálum.
Skriflegar umsóknir sendist til:
Útflutningsráð íslands,
Lágmúla 5,
P.O. Box 8796,
108 Reykjavík,
merktar: „markaðsstjóri", fyrir 3. okt. nk.
Útflutningsráð íslands.
Gamla kompanfið hf.
óskar að ráða mann vanan lakkvinnu. Einnig
óskast smiður. Unnið er í bónuskerfi.
Frekari upplýsingar gefur yfirverkstjóri í síma
36500.
Verkamenn
Viljum ráða duglega verkamenn. Mikil vinna.
Upplýsingar í síma 671210 eða í Krókhálsi 1
Reykjavík.
Gunnar og Guðmundur sf.
Byggingarfulltrúi
Bæjarstjórn Ólafsvíkur óskar eftir að ráða
byggingartæknifræðing eða verkfræðing til
að gegna störfum byggingarfulltrúa Ólafs-
víkurkaupstaðar.
Allar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í
síma 93-6153. Umsóknarfrestur er til 3. okt-
óber. Umsóknir sendisttil skrifstofu bæjarins
að Ólafsbraut 34.
Skrifstofustarf
Duglegur og áreiðanlegur starfskraftur ósk-
ast til fjölbreyttra skrifstofustarfa.
Vélritunar- og enskukunnátta æskileg.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
Umsóknum skal skilað á augldeild Mbl. fyrir
25. sept. nk. merkt: „Traust - 5996“.
Skólastjóri
Skólastjórastaða við Grunnskóla Fáskrúðs-
fjarðar er laus nú þegar.
Upplýsingar gefur formaður skólanefndar í
símum 97-5101 og 97-5110.
Múrarar óskast
Vantar 2-3 múrara við að múrhúða utanhúss
3 raðhús á ísafirði. Upplýsingar gefur Guð-
mundur Þórðarson eftir kl. 19.00 á kvöldin
í síma 94-3888.
Framleiðslutækni-
fræðingur
Tæknifræðingur, með menntun á sviði fram-
leiðslu óskar eftir starfi.
Upplýsingar í síma 22880.
Hlutastörf
Óskum að ráða starfsmenn í hlutastörf.
Vinnutími frá kl. 14.30 og frá kl. 16.00.
Umsóknir sendist augld. Mbl. merkt: „H —
1837“ fyrir 24. september.
Háskólabíó — Regnboginn,
Tónabíó.
Grænland
Tæknifræðingur óskast til starfa á teiknistof-
una MASANTI.
Okkur vantar reyndan tæknifræðing sem er
vanur hönnun miðstöðva og loftræsikerfa
(VVS ingenior).
Góð dönskukunnátta skilyrði.
MASANTI er ráðgefandi fyrirtæki í Maniitsoq
(Sukkertoppen) sem veitir alhliða ráðgjöf
bæði fyrir húsameistara og tæknifræðinga.
Við bjóðum gott kaup, góða vinnuaðstöðu
og góða vinnufélaga. Við borgum flutnings-
gjald fyrir þig og fjölskyldu þína og eftir þrjú
ár borgum við líka heimflutning. íbúð verður
eftir fjölskyldustærð.
Maniitsoq er bæjarfélag með herumbil 4000
íbúa.
Sveitin er sérlega falleg og hér er góð að-
staða fyrir veiðimenn, fjallamenn, skíðafólk
og siglingamenn.
Hefur þú áhuga?
Skrifaðu MASANTI - Niels Lyngesvej b581
- postbox 109-3912 Maniitsoq, bara nokkrar
línur, eða hringdu í síma 90-45-299-13132.