Morgunblaðið - 21.09.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986
55
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Skrifstofustarf
Veitingahús í Reykjavík óskar eftir að ráða
starfskraft til skrifstofustarfa.
Leitað er að vönum starfskrafti sem getur
hafið störf sem fyrst. Starfið felst í gjald-
kerastörfum, bókhaldsvinnu, vélritun,
símavörslu og öðrum almennum skrifstofu-
störfum. Æskilegt er að viðkomandi hafi
einhverja reynslu af tölvum, vinni skipulega
og hafi einhverja tungumálakunnáttu.
Einungis heilsdagsstarf kemur til greina.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist augldeild Mbl. fyrir 26. sept-
ember nk. merktar: „A - 5599“.
Laus staða
Hjá Skattstjóranum í Reykjavík er laus til
umsóknar staða endurskoðanda. Nauðsyn-
legt er að umsækjendur hafi lokið prófi í
viðskipafræðum eða hafi sambærielga þekk-
ingu á bókhaldi, reiknings- og skattskilum.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist Skattstjóran-
um í Reykjavík, Tryggvagötu 19, 101
Reykjavík, fyrir 30. september nk., merktar
„starfsmannahald“.
Skattstjórinn í Reykjavík.
Rafmagnsverk-
fræðingur
óskast til starfa. Starfið krefst kunnáttu í
notkun PC-tölva og þekkingar á samrásum.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt,
vera verklaginn og vandvirkur og má ekki
reykja.
Umsóknir skulu berast Hugrúnu sf. fyrir 1.
okt. ásamt afriti af prófskírteinum og upplýs-
ingum um starfsferil.
Nánari upplýsingar fást hjá Hugrúnu sf. í
Skipholti 50c eftir kl. 17 næstu daga.
Véltæknifræðingar
Stórt innflutnings- og verslunarfyrirtæki hef-
ur hug á að komast í samband við ungan
og hugmyndaríkan tæknifræðing varðandi
hönnun og tilboðsgerð á nýsmíði úr áli og
stáli.
Til greina kæmi leiga á húsnæði fyrir teikni-
stofu eða skrifstofu hjá sama fyrirtæki.
Umsóknir sendist augldeild Mbl. merkt:
„Tæknifræðingur - 5557“ fyrir 27. sept. nk.
íslensk matvæli hf.
Hafnarfirði
Óskum eftir starfsstúlkum í framleiðslustörf.
Framtíðarvinna.
Uppl. á staðnum hjá verkstjóra á morgun á
milli kl. 14.00 og 16.00.
Islensk matvæli hf.
Hvaleyrarbraut 4-6
Ungur véltækni-
fræðingur
óskar eftir starfi. Upplýsingar á vinnutíma í
síma 686640.
Skrifstofustarf
Ein af elstu fasteignaskrifstofum borgarinnar
óskar eftir starfsmanni. Starfið felst í síma-
vörslu, vélritun, afgreiðslu o.fl.
Vinnutími kl. 9-18. Fjölbreytt og lifandi starf.
Góð laun í boði fyrir rétta manneskju.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist augldeild Mbl. sem fyrst merktar:
„Z - 1622“.
Meðferðarheimili
einhverfra barna
Trönuhólum 1, Reykjavík
Óskum eftir að ráða þroskaþjálfa, fóstru eða
meðferðarfulltrúa frá og með 8. október.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í
síma 79760.
Framtíðarvinna
Vantar röskar og samviskusamar stúlkur í
eftirtalin störf:
1. Afgreiðsla, innpökkun.
2. Vinna við sloppapressur (bónusvinna).
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra.
Fönn hf. Skeifan 11.
Sími 82220.
Bifvélavirkjar
— vélvirkjar
Óskum að ráða bifvélavirkja eða vélvirkja á
bílaverkstæði okkar nú þegar.
Upplýsingar gefnar hjá verkstjóra, ekki í
síma.
Mjólkursamsalan,
Bitruhálsi 1.
Framkvæmdastjóri
Starf framkvæmdastjóra Reiknistofu Vest-
fjarða hf. á ísafirði er laust til umsóknar.
Umsóknir skulu berast fyrir 1. október til
Magnúsar R. Guðmundssonar, Skipagötu 2,
ísafirði, sími 94-3781 eða Konráðs Jakobs-
sonar, ísafirði, sími 94-3001 sem veita nánari
upplýsingar um starfið.
Aðstoðarfólk
Brauðgerð Mjólkursamsölunnar vantar
aðstoðarfólk.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 17485 eða
á staðnum.
Mjólkursamsalan — brauðgerð
Brautarholti 10, Reykjavík.
Hárgreiðslustofa
óskar eftir að ráða hárgreiðslusvein til starfa
sem fyrst. Góð laun í boði.
Nánari upplýsingar í síma 75383.
Atvinna í boði
Óskum eftir að ráða starfsfólk í alla almenna
fiskvinnslu. Fæði og húsnæði á staðnum.
Upplýsingar í símum 94-4913, Börkur og
94-4909, Frosti.
Frosti hf.,
Súðavík.
Endurskoðunar-
fyrirtæki
Við auglýsum eftir starfsmönnum til eftirtal-
inna starfa:
Vélritun og ritvinnsla. Haldgóð reynsla í
vélritun og/eða ritvinnslu nauðsynleg. Góð
íslenskukunnátta áskilin.
Endurskoðun og reikningsskil. Leitað er
eftir nokkrum viðskiptafræðingum og/eða
mönnum með verslunar eða samvinnuskóla-
próf eða hliðstæða menntun með haldgóða
starfsreynslu. Nemar í viðskiptafræðum
koma einnig til greina.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og starfsreynslu sendist undirrituð-
um fyrir 27. september nk.
ui
endurskoðun hf
löggiltir endurskoöendur,
Suðurlandsbraut 18.
Sími 68-65-33.
Sérverslun
í Hafnarfirði óskar eftir starfst. til framtíðar-
starfa. Vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Vinnutími frá kl. 13-18.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist
augldeild Mbl. fyrir 30. september 1986
merktar: „H — 6627“.
Verksmiðjustörf
Starfsfólk óskast til verksmiðjustarfa.
Upplýsingar í síma 43011.
Dósagerðin hf.
Kópavogi.
Tilraunastöð
Háskólans Keldum
Vantar mann til að annast smádýr ofl.
Upplýsingar í síma 82811.
Au—pair
Bandarísk stúlka óskar eftir starfi. Getur
byrjað strax. Upplýsingar í síma 53772 e.h.
íþróttakennarar
Á Patreksfjörð vantar okkur íþróttakennara
sem vill taka að sér íþróttakennslu og félags-
störf við grunnskólann auk þjálfunar í körfu-
bolta og fleiru fyrir íþróttafélagið. Gullið
tækifæri. Nánari upplýsingar í símum 94-
1257, 94-1337 eða 94-1222.
Grunnskóli Patreksfjarðar og íþróttafélagið
Hörður.
HOTEL
LOFTL0ÐIR
FLUGLEIDA fO* HÓTEL
Framreiðslumaður
óskast
Við leitum að framreiðslumanni í Blómasal.
Upplýsingar um starfið veittar á skrifstofu
hótelstjóra mánudaginn 22. sept. (ekki í
síma).