Morgunblaðið - 21.09.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 21.09.1986, Blaðsíða 7
aser flaaMaTqgg .rs'HUOAatJwiua .aiGAjaMUOHOM íL MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986 7 Morgunblaðið/Ami Sæberg Frá kynningu þorsaklýsisþykknisins, talið frá vinstri: Egill Snorra- son stjórnarmaður í Lýsi hf., Ágúst Einarsson forstjóri, Sigmundur Guðbjarnarson rektor Háskóla Islands, Baldur Hjaltason efnaverk- fræðingnr ogtæknilegur f ramkvæmdastjóri Lýsis hf. ogdr. Guðmundur Haraldsson sérfræðingur hjá raunvísindadeild Háskól- ans. Ný framleiðsluvara frá Lýsi hf.: Omega-3-þorska- lýsisþykkni LÝSI hf. hefur hefur nú sett á markað nýja afurð; Omega-3 þorskalýsisþykkni. Hér er um að ræða venjulegt þorskalýsi, sem inniheldur mun meira af fjöl- ómettuðum fitusýrum af gerð- inni Omega-3-fIokknum. Lýsi hf. gerði rannsóknar- og samstarfssamning við prófessor Sigmund Guðbjamason og Raunvís- indastofnun Háskólans fyrir nokkr- um árum. Tilgangur samstarfsins var að rannsaka áhrif þorskalýsis og Omega-3-fitusýra á tilraunadýr, auk þess að finna aðferðir til þess að framleiða þorskalýsi, sem inni- héldi meira magn þessara fitusýra. Árangur þessa samstarfs er Omega-3-þorskalýsisþykknið. Framleiðslan fór fram í verk- smiðju Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins, en auk þess lánaði Iðnlánasjóður til rannsóknarþátta verkefnisins. Áætlað er að varan verði komin í verslanir í byrjun næstu viku og er heildsöluverð hvers glass 225 krónur. íslensk menningar- vika í Frakklandi Frá Torfa Tulinius, fréttaritara Morgun bladsins í París. í ÞESSUM mánuði hefst um- fangsmikil Islandskynning i Frakklandi. Franska mennta- málaráðuneytið og hið unga vináttufélag landanna, France- Islande, eiga veg og vanda að þessari kynningu og er tilefni hennar aldarafmæli „Pecheurs d’lslande", skáldsögu Pierre Loti um frönsku Islandssjómennina, það að 50 ár eru liðin frá því að Pourquoi Pas? fórst og einnig tveggja alda afmæli Reykjavík- urborgar. íslensk menning verður kynnt með fjölbreyttum hætti. í byijun september var opnuð í St. Malo á Bretagne-skaga yfirlitssýning um íslenska myndlist síðustu 50 ára. Þar er sýnt 31 málverk úr Lista- safni íslands eftir 22 myndlistar- menn. Sýningin verður flutt til Rochefort, fæðingarbæjar Loti á suðvesturströnd Frakklands, í októ- ber, en verður síðan sett upp í París í nóvember og verður opin út des- ember. Á mánudaginn kemur verður opnuð ljósmyndasýning í einni af stærstu neðanjarðaijárnbrautar- lestarstöðvum Paiísar, Chatelet- Les Halles. Sýningin heitir „Islande, le demiére aventure en Europe“, eða ísland, síðasta ævintýri Evrópu. Sýndar verða um 120 myndir af landi og þjóð. Viðstaddir opnunina verða þeir Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra, og Frangois Léotard, menningar- og fjölmiðla- ráðherra Frakklands. Jean-Pierre Fourré, þingmaður og forseti France-Islande, heldur blaða- mannafund, þar sem helstu við- burðir næstu vikna verða kynntir. Þeir eru: Ráðstefna um ísland nútímans, sem haldin verður um miðjan október í Rochefort, en þar munu koma saman fræðimenn og rithöfundar, íslenskir og franskir. Á ráðstefnunni mun Edda Erlends- dóttir, píanóleikari, halda tónleika, en hún mun flytja sömu dagskrá viku seinna í París. France- Musique, tónlistarrás franska ríkisútvar()sins, mun útvarpa tón- leikum Eddu. Utlaginn, kvikmynd Ágústs Guð- mundssonar, verður einnig sýnd á ráðstefnunni, en um mánaðamót október og nóvember verður íslensk kvikmyndahátíð í París, þar sem sýndar verða myndir um Island og eftir Islendinga. Að lokum má geta þess að tónlistar- og menningarrás- ir franska ríkisútvarpsins munu fylgjast grannt með kynningunni, en hin fijálsa útvarpsstöð, RTL, mun hafa ísland að meginefni morgunþáttar síns vikuna 29. sept- ember til 6. október. LONDON-AMSTERDAM Bæklingarnir komnir LONDON I GLASGOW 3ja daga helgarferð. Innifalið: Flug, gisting í 2ja manna herbergi með baði og morgunmat á Scanhotel. Auk þess afsláttarkort í fjölmargar verslanir, veitingahús og skemmtistaði. ._ „ _ Veröfrákr. 12505 m 4ra daga helgarferð. (frá15.september). Innifalið: Flug, gisting í 2ja manna herbergi með baði og morgunmat á Hotel Crest. ... Verðfrákr. 12545 t> amsterdamThamborg 3ja daga helgarferð. Innifalið: Flug, gisting í 2ja manna herbergi með baði og morgunmat á Hotel Owl og sigling um síki Amsterdam. .. Verðfrákr. l4.0UU 5 daga helgarferð. Innifalið: Flug, gisting í 2ja manna herbergi með morgunmatáHotelGrafMolke. Verðfrákr. 17.110 Samvinnuferdir - Landsýn Austurstræti 12 • Símar 91 -27077 & 91 -28899 Hótel Sögu viö Hagatorg • 91-622277 Akureyri: Skipagötu 14 • 96-21400 Áskriftarsíminn er 83033 85 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.