Morgunblaðið - 21.09.1986, Síða 7
aser flaaMaTqgg .rs'HUOAatJwiua .aiGAjaMUOHOM íL
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986 7
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Frá kynningu þorsaklýsisþykknisins, talið frá vinstri: Egill Snorra-
son stjórnarmaður í Lýsi hf., Ágúst Einarsson forstjóri, Sigmundur
Guðbjarnarson rektor Háskóla Islands, Baldur Hjaltason efnaverk-
fræðingnr ogtæknilegur f ramkvæmdastjóri Lýsis hf. ogdr.
Guðmundur Haraldsson sérfræðingur hjá raunvísindadeild Háskól-
ans.
Ný framleiðsluvara frá Lýsi hf.:
Omega-3-þorska-
lýsisþykkni
LÝSI hf. hefur hefur nú sett á
markað nýja afurð; Omega-3
þorskalýsisþykkni. Hér er um að
ræða venjulegt þorskalýsi, sem
inniheldur mun meira af fjöl-
ómettuðum fitusýrum af gerð-
inni Omega-3-fIokknum.
Lýsi hf. gerði rannsóknar- og
samstarfssamning við prófessor
Sigmund Guðbjamason og Raunvís-
indastofnun Háskólans fyrir nokkr-
um árum. Tilgangur samstarfsins
var að rannsaka áhrif þorskalýsis
og Omega-3-fitusýra á tilraunadýr,
auk þess að finna aðferðir til þess
að framleiða þorskalýsi, sem inni-
héldi meira magn þessara fitusýra.
Árangur þessa samstarfs er
Omega-3-þorskalýsisþykknið.
Framleiðslan fór fram í verk-
smiðju Rannsóknarstofnunar fisk-
iðnaðarins, en auk þess lánaði
Iðnlánasjóður til rannsóknarþátta
verkefnisins.
Áætlað er að varan verði komin
í verslanir í byrjun næstu viku og
er heildsöluverð hvers glass 225
krónur.
íslensk menningar-
vika í Frakklandi
Frá Torfa Tulinius, fréttaritara Morgun bladsins í París.
í ÞESSUM mánuði hefst um-
fangsmikil Islandskynning i
Frakklandi. Franska mennta-
málaráðuneytið og hið unga
vináttufélag landanna, France-
Islande, eiga veg og vanda að
þessari kynningu og er tilefni
hennar aldarafmæli „Pecheurs
d’lslande", skáldsögu Pierre Loti
um frönsku Islandssjómennina,
það að 50 ár eru liðin frá því að
Pourquoi Pas? fórst og einnig
tveggja alda afmæli Reykjavík-
urborgar.
íslensk menning verður kynnt
með fjölbreyttum hætti. í byijun
september var opnuð í St. Malo á
Bretagne-skaga yfirlitssýning um
íslenska myndlist síðustu 50 ára.
Þar er sýnt 31 málverk úr Lista-
safni íslands eftir 22 myndlistar-
menn. Sýningin verður flutt til
Rochefort, fæðingarbæjar Loti á
suðvesturströnd Frakklands, í októ-
ber, en verður síðan sett upp í París
í nóvember og verður opin út des-
ember.
Á mánudaginn kemur verður
opnuð ljósmyndasýning í einni af
stærstu neðanjarðaijárnbrautar-
lestarstöðvum Paiísar, Chatelet-
Les Halles. Sýningin heitir „Islande,
le demiére aventure en Europe“,
eða ísland, síðasta ævintýri Evrópu.
Sýndar verða um 120 myndir af
landi og þjóð. Viðstaddir opnunina
verða þeir Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra, og Frangois
Léotard, menningar- og fjölmiðla-
ráðherra Frakklands. Jean-Pierre
Fourré, þingmaður og forseti
France-Islande, heldur blaða-
mannafund, þar sem helstu við-
burðir næstu vikna verða kynntir.
Þeir eru: Ráðstefna um ísland
nútímans, sem haldin verður um
miðjan október í Rochefort, en þar
munu koma saman fræðimenn og
rithöfundar, íslenskir og franskir. Á
ráðstefnunni mun Edda Erlends-
dóttir, píanóleikari, halda tónleika,
en hún mun flytja sömu dagskrá
viku seinna í París. France-
Musique, tónlistarrás franska
ríkisútvar()sins, mun útvarpa tón-
leikum Eddu.
Utlaginn, kvikmynd Ágústs Guð-
mundssonar, verður einnig sýnd á
ráðstefnunni, en um mánaðamót
október og nóvember verður íslensk
kvikmyndahátíð í París, þar sem
sýndar verða myndir um Island og
eftir Islendinga. Að lokum má geta
þess að tónlistar- og menningarrás-
ir franska ríkisútvarpsins munu
fylgjast grannt með kynningunni,
en hin fijálsa útvarpsstöð, RTL,
mun hafa ísland að meginefni
morgunþáttar síns vikuna 29. sept-
ember til 6. október.
LONDON-AMSTERDAM
Bæklingarnir komnir
LONDON I GLASGOW
3ja daga helgarferð.
Innifalið: Flug, gisting í 2ja manna herbergi með
baði og morgunmat á Scanhotel. Auk þess
afsláttarkort í fjölmargar verslanir, veitingahús
og skemmtistaði. ._ „ _
Veröfrákr. 12505
m
4ra daga helgarferð.
(frá15.september).
Innifalið: Flug, gisting í 2ja manna herbergi með
baði og morgunmat á Hotel Crest. ...
Verðfrákr. 12545
t>
amsterdamThamborg
3ja daga helgarferð.
Innifalið: Flug, gisting í 2ja manna herbergi með
baði og morgunmat á Hotel Owl og sigling um
síki Amsterdam. ..
Verðfrákr. l4.0UU
5 daga helgarferð.
Innifalið: Flug, gisting í 2ja manna herbergi með
morgunmatáHotelGrafMolke.
Verðfrákr. 17.110
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Símar 91 -27077 & 91 -28899
Hótel Sögu viö Hagatorg • 91-622277 Akureyri: Skipagötu 14 • 96-21400
Áskriftarsíminn er 83033
85 40