Morgunblaðið - 21.09.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986
43
Tíu erindi um
umhverfismál
í verkfræðideild Háskóla
íslands verða á næstu vikum
flutt 10 erindi um umhverfis-
mál. Til þeirra er stofnað
fyrir nemendur í deildinni,
en aðgangur er öllum frjáls,
eins þeim, sem ekki eru nem-
endur í Háskólanum. Gert er
ráð fyrir nokkrum umræðum
á eftir hverju erindi. Umsjón
hefur Einar B. Pálsson pró-
fessor og veitir hann upplýs-
ingar.
Erindin verða flutt á mánudög-
um kl. 17.15 í stofu 158 í húsi
verkfræðideildar, Hjarðarhaga 6.
Þau eru ráðgerð svo sem hér segir:
22. september: Unnsteinn Stef-
ánsson prófessor í haffræði:
Sjórinn sem umhverfí.
29. september: Ingvi Þorsteins-
Morgunbladið/Þorkell
Fjórðu bekkingar Leiklistarskóla íslands ásamt leikstjóra sínum að fyrsta verki Nemendaleikhússiiis.
Sitjandi frá vinstri eru: Þórarinn Eyfjörð, Kristin Jóhannesdóttir leikstjóri og Stefán Sturla Siguijóns-
son. Standandi frá vinstri eru: Valgeir Skagfjörð, Hjálmar Hjáimarsson, Ingrid Jónsdóttir, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, Halldór Björnsson og Þórdís Arnljótsdóttir.
„Erum eins og systkinahópur með öllum
þeim kostum og göllum sem honum fylgir“
— segja fjórðu bekkingar Leiklistarskóla Islands
son MS, Rannsóknastofnun
landbúnaðarins: Eyðing gróðurs
og endurheimt landgæða.
6. október: Ólafur K. Pálsson
fiskifræðingur, Hafrannsókna-
stofnun: Auðlindir sjávar og
nýting þeirra.
13. október: Þorleifur Einars-
son, prófessor í jarðfræði: Jarð-
rask við mannvirkjagerð.
20. október: Agnar Ingólfsson,
prófessor í vistfræði: Ýmis undir-
stöðuatriði í vistfræði.
27. október: Jakob Bjömsson,
verkfræðingur, orkumálastjóri:
Orkumál og umhverfi.
3. nóvember: Amþór Garðars-
son, prófessor í líffræði: Rann-
sóknir á röskun lífríkis.
10. nóvember: Eyþór Einars-
son, grasafræðingur, formaður
Náttúruverndarráðs: Náttúru-
vemd í framkvæmd.
17. nóvember: Vilhjálmur
Lúðvíksson, verkfræðingur, fram-
kvæmdastjóri Rannsóknaráðs
ríkisins: Verkfræðilegar áætlanir
og valkostir.
24. nóvember. Einar B. Páls-
son, verkfræðingur: Matsatriði,
m.a. náttúrufegurð.
Tíundi árgangur nema Leik-
listarskóla Islands hefur hafið
störf í Nemendaleikhúsinu í
Lindarbæ í Reykjavík. Fjórðu
bekkingar munu æfa og flytja
þijú verk að vanda og að því er
stefnt að gera vinnu þeirra sem
líkasta starfi leikarans í leik-
húsinu.
Fyrsta sýning Nemendaleikhúss-
ins er gieðileikurinn „Leikslok í
Smymu", sem frumsýndur verður
23. október. Leikritið er unnið upp
úr gamanleik Ítalans Carlo Goldoni
og gerist leikurinn í Feneyjum á 18.
öld og fjallar um raunir óperufólks.
Leikgerðin er eftir Horst Laube,
þýðandi er Árni Bergmann og leik-
stjóri Kristín Jóhannesdóttir.
Leikmynda- og búningahönnuður er
Guðrún Sigríður Haraldsdóttir og
Hilmar Öm Hilmarsson hefur samið
tónlist.
Annað verkefnið verður „Þrett-
ándakvöld" eftir William Shake-
speare í þýðingu Helga Hálfdanar-
sonar. Leikstjóri hefur verið ráðinn
Þórhaliur Sigurðsson. Loks mun
Kjartan Ragnarsson skrifa nýtt leik-
rit sérstaklega fyrir fjórðu bekkinga
Leiklistarskólans. Hann mun jafn-
framt leikstýra því verki sjálfur og
kemur það á fjalir Nemendaleik-
hússins í apríl.
Nemendur Nemendaleikhússins
eru nú átta talsins og er þetta fjórða
árið sem þeir starfa saman. Þeir
em: Halldór Björnsson, Hjálmar
Hjálmarsson, Ingrid Jónsdóttir, Ól-
afía Hrönn Jónsdóttir, Stefán Sturla
Siguijónsson, Valgeir Skagfjörð,
Þórarinn Eyfjörð og Þórdís Amljóts-
dóttir. Þar að auki mun Ámi Pétur
Guðjónsson, sem verið hefur í endur-
menntunar- og framhaldsnámi að
undandfömu, vera með í síðasta
verkefni skólans, sem er jafnframt
útskriftarverkefni.
Blaðamaður Morgunblaðsins
heimsótti leikhópinn í vikunni er
verið var að æfa fyrsta verkið. „Til
að geta starfað saman í þetta langan
tíma, þarf starfsandinn að vera mjög
góður enda stöndum við saman sem
heild út á við þótt ýmislegt annað
gangi upp og niður. Við emm eins
og systkinahópur með öllum þeim
göllum og kostum sem honum fylg-
ir. Við völdum okkur nefnilega ekki
saman - við vomm valin saman, en
þetta hefur gengið stórslysalaust í
gegnum árin. Námið hefur verið
stórskemmtilegt enda leiklistin
áhugamál okkar allra. Síðan reynum
við bara að bjarga okkur þegar við
verðum útskrifuð héðan í vor. Fer
ekki fólk yfirleitt að vinna að námi
loknu? Hugmyndin er að gera þessar
þijár sýningar góðar til að geta hald-
ið uppi hróðri skólans - og svo
hugsum við um morgundaginn þegar
þar að kemur," sögðu fíórðu bekk-
ingarnir.
Þau sögðust nú vera að leika „í
alvöm“ í fyrsta sinn. Þó höfðu þau
leikið mikið á sl. þremur ámm, en
þá aðeins fyrir aðra nemendur skól-
ans og eins fyrir vini og ættingja,
sem þau höfðu hóað í fyrir sýning-
ar. „Þetta ár er sem sagt okkar
lokaauglýsing fyrir atvinnumennsk-
una - emm að reyna að koma okkur
á framfæri. Þetta er síðasta árið sem
við emm undir vemdarvæng skólans
og er verið að þjálfa okkur nú, bæði
í leiklistinni eins og hún gerist í raun-
vemlegu leikhúsi og eins emm við
þjálfuð í alhliða rekstri leikhúss. Við
sjáum aífarið um rekstur Nemenda-
leikhússins, auglýsingar og annað
þess háttar. Við ráðum ekki endan-
legu verkefnavali né ráðningu ieik-
stjóra, en við getum komið með
tillögur þar að lútandi."
Nemendaleikhúsið, sem fjórðu
bekkingar stjóma, verður áfram í
Lindarbæ, en hinir bekkimir hafa
flutt sig í hið nýja hús Leiklistar-
skóla íslands, Landsmiðjuna.
X-Iöföar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!
EDMFALT
ÖRUGGT OG ARÐBÆRT
Höfum í umboðssölu BANKABRÉF
- lausn sem hefur vantað
• Mjöggóðávöxtun - 16.4%-17.4%.
• Öryggi - Veðdeild Iðnaðarbankans er skuldari.
• Stuttur binditími - frá 3 mánuðum.
• Eins einfalt að kaupa bréfín og að leggja fé á bók.
• Iðnaðarbankinn leggur féð inn á reikmng þinn, ef þú vilt.
• Hægteraðseljabréfinfyrirgjalddaga.
Gerum ekki einfalt dæmi flókið.
Bankabréfin em til sölu í öllum útibúum bankans.
© Iðnaðarbankinn
-nM’mÞanki
—
—