Morgunblaðið - 21.09.1986, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 21.09.1986, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986 TTTAIMIC Edward J. Smith skip- stjóri, sem ekki var á stjórnpalli við ásiglinguna, fór með skipi sínu niður í djúpið. Afturdekkið á Titanic þar sem fjöldi farþega var saman kominn er skipið sökk. Titanic leggur frá bryggju í Southampton upp í sina fyrstu og siðustu ferð. baka.“ En þjónninn svaraði: „Fylgið mér.“ Þegar við komum niður á A-dekk sáum við, því kveikt hafði verið á þilfarsljósunum, að bátur hafði verið látinn síga niður að gluggunum, sem höfðu verið opnaðir, og að dekkstóll hafði verið settur upp að lunn- ingunni fyrir okkur að stíga á. Mikil slagsíða var komin á skip- ið og báturínn hékk langt út frá skipinu svo sumir mannanna höfðu orð á því að „engin kona getur stigið yfir þetta gap“. Beðið var um stiga frá einhveiju neðri þilfaranna, en áður en komið var með hann voru allir komnir í bátinn. Ekki veit ég hvort báturinn var dreginn að skipshliðinni með stjökum, en auðvelt reyndist að stökkva um borð með aðstoð tveggja manna í bátnum. Eini karlmaðurinn sem ég man eftir að hafa séð úr hópi farþega var Astor ofursti sem var að stíga út um gluggann þegar einhver úr áhöfninni sagði: „Farið til baka herra, engir karlmenn í þennan bát.“ Hann kvaðst hafa viljað hugsa um konuna sína (sem var bams- hafandi), en eftir að honum var tilkynnt á ný að engum körlum yrði hleypt um borð, kallaði hann „Vertu sæl“ og kvaðst koma á eftir í öðrum báti, og spurði svo um númerið á okkar báti, sem áhöfnin sagði að væri „númer 4". Þegar ég var að fara út um gluggann neyddist ég til að fleygja frá mér ábreiðunni, því ég var mjög fyrirferðarmikil í pelsinum mínum og með björg- unarvesti úr korki. Seinna sáum við að þjónar og áhöfn höfðu kastað teppum um borð í bátinn og þau komu að góðu gagni, Elizabeth breiddi sitt teppi utan um ungbam sem var fáklætt og mitt fékk einn úr áhöfninni, sem dreginn hafði verið upp úr sjón- um. Eg held að allar konumar sem komnar voru á bátadekkið hafi verið teknar um borð í okkar bát, sem var síðasti báturinn sem sjósettur var bakborðsmeg- in. Aðeins einn karlmaður fór með okkur. Báturinn var látinn síga rólega, fyret að framan, svo að aftan, og mjog varlega. Þeg- ar við vorum að nálgast sjóinn gaf maðurinn skipun um að „sleppa", en við hrópuðum: „Nei, ekki strax, það er svo hátt niður.“ Þegar báturinn hafði verið sjósettur var kallað ofan af þil- fari og spurt hver stjómaði bátnum og einhver svaraði: „Bátsmaðurinn." Þá var spurt, „Hveijir fleiri?" og hann svar- aði: „Eg er einn.“ Þá sögðu þeir: „Við sendum þér tvo menn tii viðbótar," og stuttu síðar renndu tveir sjómenn sér niður festing- amar úr bátsuglunum um borð í bátinn. Gracie ofureti, sem er áhugamað- ur á sviði hemaðarsögu, skráði lengri og ítarlegri skýrelu um slysið en nokkur annar farþegi á fyreta farrými. Meðan hættan vofði yfir var hann ómissandi og smalaði, ásamt vini sínum Clinch Smith, saman konum og bömum til að koma þeim í bátana. (Eftir ásigling- una hafði Smith hirt upp ísmola af þilfarinu og sagt við Gracie að hann ætlaði að hafa hann með sér heim til minningar.) Eitt af því sem kom á óvart í bók Gracies, sem hann samdi með aðstoð Lightollers 2. stýrimanns, var frásögn hans af því að hafa séð Qölda kvenna í mannþrönginni sem hjúfraði sig höggdofa á afturdekk- inu þegar Titanic sökk. Gracie hafði sjálfum skolað útbyrðis á síðustu stundu; sér til undrunar sá hann konumar á lokamínútunum; hann hafði haldið að allar konumar hefðu komizt frá borði. Gracie benti á, að vegna stærðar Titanic, hefði enginn getað vitað hvað var um að vera nema í næsta nágrenni, ekki frekar en einhver gæti vitað á götu úti hvað væri að gerast einni húsaröð ijær. Engu að síður er nokkuð ljóst af frásögnum Thayer-fjölskyldunnar, Gracies og annarra hvað gerðist á fyreta far- rými. Af öðru farrými Bezta vitnið af öðru farrými var ungur skólastjóri, Lawrence Bees- ley, sem minntist eins atviks, er varpað getur nokkm ljósi á niður- stöðutölur Viðskiptaráðsins yfír þá sem fómst. Hann var á bátadekkinu þegar tvær konur komu að grindun- um sem aðskildu athafnasvæði fyreta og annars farrýmis þar uppi. Þær spurði einn yfirmannanna sem stóðu þar til að passa að enginn færi yfir, hvort þær mættu fara í gegn til að komast að bátunum. Nei, sagði yfírmaðurinn kurteis- lega, þeirra bátur væri aftar á þeirra dekki. Að lokum segir Bees- ley: „Ef ekki var ætlazt til þess að konumar á öðm fanými fengju að fara um borð í bátana frá fyrsta farrými á sama tíma og farþegum þriðja farrýmis var hleypt um borð í báta annare farrýmis, virðist það hafa sett karlfarþega annare far- rýmis í mikinn vanda, enda bera hlutfallstölur yfír þá sem björguð- ust því nokkurt vitni." Sjálfur bjargaðist Beesley vegna þess að þegar hann var að horfa niður af efsta þilfari á bát sem hékk á móts við B-dekk kallaði einn úr áhöfninni til hans og sagði honum að stökkva, hvað hann gerði eftir að hafa kast- að slopp sínum í bátinn. Beésley stökk um tveimur tímum eftir að Titanic sigldi á borgarísinn. Þá var enginn sjáanlegur stjóm- borðsmegin á bátadekkinu; og Beesley var sagt að reyna að stökkva eftir að áhöfnin hafði ár- angurslaust leitað að konum á B-dekki. Engu að síður fómst rúm- lega hundrað konur. Hvar höfðu þær haldið sig? Og — um það leyti sem Beesley stökk niður af mann- lausu bátadekkinu — hvar var allur sá mikli mannQöldi sem Gracie ofureti sá hálftíma síðar streyma upp á dekk rétt áður en skipið sökk? Af þriðja farrými Rannsóknin í Bretlandi beindist ekki að þessum spumingum; Mer- sey lávarður kallaði ekki fyrir neitt vitni úr hópi farþega þriðja farrým- is. En stjómmálamaðurinn frá Michigan, William Alder Smith, sem stjómaði rannsóknunum í Banda- ríkjunum, hafði áhyggjur af þessu atriði. Eftir að opinberri rannsókn lauk á vegum Öldungadeildar þingsins í Washington, hélt Smith öldungadeildarþingmaður til New York til framhaldsrannsókna á eig- in vegum. Hann sagði við blaðamann að hann hefði þungar áhyggjur af ör- lögum farþega þriðja farrýmis, og vildi komast að því hvort þeim hafi á nokkum hátt verið meinað að komast að bátunum. Bereýnilega var hann ekki sáttur við framburð yfírmanna á Titanic, þar sem bæði Lightoller 2. stýrimaður og Lowe 5. stýrimaður höfðu sagt honum afdráttarlaust að ekki hafí verið haldið aftur af neinum, og að far- þegar allra farrýma hafi fengið sömu fyrirgreiðslu. Hins vegar kom síðar í ljós að Lightoller og Lowe höfðu ekki farið með alveg rétt mál. í New York rakst Smith á inn- flytjanda sem hafði séð einn úr áhöfninni læsa hliði milli þriðja far- rýmis og efri þilfara. En þar virtist um einstæðan atburð að ræða og áhrifalausan, því vitnið bætti því við að farþegamir hafí brotið niður hliðið og hafí svo fengið sömu fyrir- greiðslu og aðrir. Annars staðar kemur fram í frásögnum farþega sem björguðust af þriðja farrými að menn úr áhöfninni hafí strengt trossur í veg fyrir þá. Hve mörgum var haldið þar innilokuðum, eða hve lengi og hvers vegna, er óljóst. Ekkert bendir til þess að það hafi verið ætlun skipstjómarmanna að halda farþegum þriðja farrýmis í ske^um meðan aðrir komust undan. Björgunarbátarnir Mjög fljótlega eftir slysið voru uppi háværar raddir, aðallega í Bandaríkjunum, sem kröfðust þess í blöðum og víðar að fá skýringar á því hvers vegna svo fáir björgun- arbátar voru á Titanic, og hvere vegna þeir hafí ekki allir verið full- setnir. Fyrri spumingunni var fljótsvarað: Á Titanic hafði verið farið eftir brezkum reglum sem voru skammarlega úreltar. Síðari spumingunni var ekki jafn fljót- svarað, en síðar kom fram í rannsókninni í Bandaríkjunum að bæði Lightoller bakborðsmegin og Lowe stjómborðsmegin voru hræddir við að fylla bátana meðan þeir héngu enn í davíðunum; annað hvort gætu bátamir „brotnað sam- an“, eins og Lowe komst að orði, eða davíðumar gefíð sig. Þeir vissu ekki að davíðumar höfðu verið reyndar hjá Harland & Wolff og þar sýnt fram á að þær gætu borið bátana fullhlaðna. En af framburði Lightollers og Lowes að dæma er eins og þeir hafi óttazt að óttaslegnir farþeg- amir gerðu aðsúg að þeim. Strax og honum varð ljóst að skipið hafði rekizt á náði Lowe sér í marg- hleypu. Þegar um helmingur bátanna bakborðsmegin hafði verið sjósettur kom Wilde yfíretýrimaður til Lightollers og spurði hann hvar handvopnin væru geymd. Það hafði fylgt starfí Lightollers að taka á móti og geyma skammbyssur og skotfæri, svo hann fór með Wilde og skipstjórann til káetu sinnar og afhenti þeim hvomm sína marg- hleypuna. Lightoller ályktaði sem svo að það „hefði komið til ein- hverra vandræða" við bátana stjómborðsmegin, þaðan sem Wilde kom. Lowe skýrði rannsóknamefnd Öldungadeildarinnar frá því að hann hefði hleypt af skotum til að stöðva „§olda Itala“ sem „störðu reiðilega, næstum eins og villidýr, reiðubúnir til að stökkva" í bátana. Seinna gaf hann út yfirlýsingu þar sem hann sagðist ekki hafa átt við að „villidýrin" hafí verið ítalir; hann hafði aðeins átt við að þeim hafí „svipað til suðrænna þjóða". Marghleypa Lightollere kom hon- um einnig að gagni. Eftir að hafa séð um sjósetningu síðasta björgun- arbátsins fór hann fram á til að sjósetja og fylla varabát númer 2, sem var mun smærri. „Ég fór um borð og fann þar þijá eða fjóra menn sem föidu sig undir þóftun- um.“ Tæpum aldaifyórðungi síðar skrifaði Lightoller um þetta atvik: „Ég vil taka það strax fram að þetta vom hvorki Bretar né Banda- ríkjamenn; reyndar hef ég aldrei á ævi minni verið jafn ólýsanlega hreykinn af enskumælandi þjóðun- um og ég var þessa nótt. Aldrei hefur verið gefíð betra fordæmi um rósama, stillta og ósérplægna hug- prýði." Þessir „fyrirhuguðu laumu- farþegar", segir hann, voru fljótlega afgreiddir. „Nokkrar hót- anir, með óhlaðna byssu á lofti, tæmdu bátinn fljótlega, svo var farþegum hleypt um borð og hann sjósettur." Yfirmönnum á Titanic var frá upphafí ljóst að ekki var rými í bátunum fyrir alla sem um borð voru; þeim var einnig ljóst að skort- ur var á þjálfuðum áhöfnum á bátana. Erfítt er að komast fram- hjá því að álykta að þeir hafí stefnt að því, meðvitað eða óviljandi, að koma frá borði sem flestum far- þegum fyreta og annars farrýmis — sem voru hvort eð er næstir bátun- um — áður en björgunaraðgerðir drukknuðu í stjómlausri mann- þröng farþega þriðja farrýmis. Að því leyti má segja sem svo að þeir ríku hafi haft forgang fram- yfír þá fátæku. En hafa ber í huga að af farþegum fyreta farrýmis björguðust aðeins 58 af 173 körlum; 34% er ekki hátt hlutfall, þótt það sé áberandi hærra en hlutfall karla sem björguðust af öðrum farrým- um. Peningar dugðu ekki til; margir þeirra auðugustu og nafntoguðustu drukknuðu, þeirrá á meðal Astor ofursti. Wilfred Scawen Blunt rit- höfundur og ævintýramaður skráði í dagbók sína að ef einhver þyrfti að drukkna, væri bezt að það yrðu ensk-amerísku auðkýfíngamir. Þetta var heimskuleg hugmynd, og án efa ríkjandi hjá mörgum. En hún samrýmdist ekki þá, og gerir ekki enn, þeirri skoðun að allir auðmenn- imir hafí fengið forgangsþjónustu. Bókin The Titanlc — Full Story of a Tragedy er gefin út af Bodley Head f London og kostar 12,95 pund.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.