Morgunblaðið - 21.09.1986, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986
Bókmenntafræðingiirinn og ritstjóri Scribners-forlagsins, Tom Jenks, bros-
ir sínu breiðasta, enda hefur honum tekist að stytta nýfundna skáidsögu
eftir Ernest Hemingway um heilar tólf hundruð blaðsíður. Hemingway
hangir á veggnum og fylgist með öllu.
Freistingar
í Edensgarði
Fundin áður óbirt skáldsaga eftir Ernest Hemingway
að eru ekki ýkja margir
rithöfundar sem koma á
óvart eftir að þeir eru
komnir undir græna
torfu. Ernest Hemingway
er þó undantekning.
Hann féll fyrir eigin hendi
árið 1961 en hefur marg-
oft komið fólki í heimi bókmenntanna
verulega á óvart eftir það. Það hafa nefni-
lega fundist bréf eftir hann, minningabókin
Veisla í farángrinum, skáldsagan Islands in
the Stream, og fyrir nokkrum mánuðum var
upplýst vestur í Bandaríkjunum að enn ein
skáldsaga eftir Hemingway hefði fundist.
Hún heitir The Garden of Eden, eða Edens-
garðurinn, og þykir sýna nýja hlið á gamla
gi'áskeggjaða manninum sem var þekktur
fyrir allt annað en tilfinningasemi.
Kona sem vill
ekki vera kona
Hér er á ferðinni saga um ungan Banda-
ríkjamann sem langar til að verða rithöfund-
ur. Sagan gerist í Suður-Frakklandi á þriðja
áratug aldarinnar, árunum ljúfu er Heming-
way dvaldi í Frakklandi og samdi sínar
fyrstu sögur. Sólin er heit, vatnið tært og
maturinn góður, en konurnar sem rithöfund-
urinn ungi, Davíð Bourne, kemst \ kynni
við eru ekki á þeim buxunum að láta hann
vera lengi einan í Paradís. Davíð er nýlega
kvæntur henni Catherine og eyða þau hveiti-
brauðsdögunum á frönsku rivíerunni, en þar
er sólin heitari en í sögu Camus og vatnið
tært, þau synda í sjónum á daginn og drekka
áfenga drykki á kvöldin.
Það eina sem ógnar þessari yndislegu
tilveni hinna ungu og nýgiftu er skáldskap-
arhneigð Davíðs. Hann hefur gefið út að
minnsta kosti eina bók, sem hefur fengið
afbragðs gagnrýni, og er Catherine ákaflega
afbrýðisöm út í bókina og allt umstangið
sem henni fylgir. Ekki nóg með það og er
þá komið að því atriði sem þykir nýtt hjá
Hemingway; kynlíf fær óvenju opinskáa
umræðu innan verksins. Catherine er óá-
nægð kynferðislega. Þegar hún er komin í
bólið með Davíð sínum, þá vill hún fyrir
enga muni vera kona, hún vill endilega vera
karímaður. Það hefur eðlilega mikil vand-
ræði og heilabrot í för með sér. Hún styttir
hár sitt þannig að það líkist sem mest hár-
gi-eiðslu Davíðs. Gagnrýnendur hafa bent á
að Catherine í Vopnin kvödd hefur ekki
ósvipuð áhugamál og nafna hennar í Edens-
garði. Síðai' kemur í Ijós að Catherine
stendur í ástarsambandi við aðra konu að
nafni Maríta.
„Allt sem kallast má illt í mannseðlinu á
rætur sínar að rekja til sakleysis," skrifaði
Hemingway einhvern tíma. Adam og Eva
skildu þau sannindi seint og síðarmeir og
það sama á við um Davíð og Catherine. Það
er Catherine sem er í hlutverki snáksins,
hún tælir karlmennina að eplinu sem ekki
má snerta. Ut úr sögunni má lesa þá
eldgömlu klisju að konan hafi innleitt synd-
ina í mannlífið, að það sé konunni að kenna
að hið illa, sem ávallt má rekja til sakleys-
is, skipar svo stóran sess í lífi okkar enn í
dag.
Það þykir nokkuð öruggt að kringum-
stæðurnar sem Hemingway lýsir í þessari
nýfundnu sögu líkjast mjög svo þeim kring-
umstæðum sem einkenndu líf Hemingways
og fyrstu konu hans, Hadley, þegar þau
dvöldu sumarlangt í Frakklandi með Pauline
Pfeiffer, sem vann á ritstjórn franska tísku-
ritsins Vogue. Hemingway kvæntist Pauline
ári síðar, þegar Hadley hafði sannfærst um
að þau væru sannarlega hugfangin hvort
af öðiu. (Svo segir Carlos Baker að minnsta
kosti í ævisögu sinni um Hemingway; því
má svo bæta við í þessu sambandi að Hem-
ingway og Pauline tolldu ekki lengi saman.)
En Hemingway lét það ekki nægja, hann
hefur valið verstu og alræmdustu persónu-
einkenni hennar Zeldu Fitzgeralds og gefið
þau Catherine. Fólk rekur ef til vill minni
til þess að Hemingway og Fitzgerald þekkt-
ust á þessum árum, studdu hvor annan á
sviði bókmennta, enn fremur að Zelda átti
sinn þátt í því að Fitzgerald varð ekki meira
úr verki, en það er önnur saga.
Saga sem sprakk í
höndunum á skáldinu
Hemingway byijaði á sögu sinni um Ed-
ensgarð skömmu eftir heimsstyijöldina
síðari, en honum gekk afleitlega að beija
hana saman, enda segir hann í bréfi til vin-
ar síns, Maxwells Geismar, að hann neyðist
til að slíta sig frá henni með löngum millibil-
um. Svo var ánnað sem kvaldi skáldið; sagan
virtist engan endi ætla að taka, hún lengd-
ist og lengdist án þess að hann fengi við
nokkuð ráðið. Það er ekki gott þegar sögur
springa þannig í höndunum á stórsmiðunum
sjálfum, og fékk bókmenntafræðingurinn
og ritstjórinn Tom Jenks á því að kenna,
því þegar sagan kom í leitimar fékk hann
það verðuga verkefni að stytta handrit Hem-
ingways, sem taldi ekki færri en fimmtán
hundruð blaðsíður, niður í þijú hundmð eða
þar um bil.
Tom Jenks segir að styttingin hafi verið
eins og að glíma við Guð, en vitanlega verð-
ur Guð að teljast sigurvegarinn í þeirri
glímu, því það gengur ekki svo lítið á þegar
heil skáldsaga eftir löngu gengið stórskáld
finnst. Það má því segja að Hemingway
hafi komið hinum hálffertuga Tom Janks
til bjargar, því kaldir vindar gnauða þar sem
hann vinnur í efstu hæðum Scribners-skýja-
klúfsins; samkeppnin milli ritstjóranna er
hörð og enn harðari er samkeppnin milli
útgáfufyrirtækjanna. Scribners-forlagið gaf
út allar bækur Hemingways á árum áður,
og það er því mikilvægt að sagan sé sem
haganlegast úr garði gerð.
Tom Jenks þykir hafa staðið sig mjög
vel. Gagnrýnendurnir þykjast sjá handbragð
Hemingways í textanum, hi-ynjandin til-
heyrir honum og engum öðrum. Sagan úr
Edensgarði er einföld eins og flestar ef
ekki allar sögur hans, en því er hins vegar
ekki að leyna að gagnrýnendur eru nokkurn
veginn sammála um að hún sé langt frá
því besta sem Hemingway skrifaði og eru
á því eðlilegar skýringar. Sagan sem komin
er á þrykk er aðeins fimmtungur þess sem
Hemingway skrifaði og því hljóta einhveijir
hlutar sögunnar að hafa farið forgörðum.
Þar með er kastljósi gagnrýninnar beint
að ritstjóranum, Tom Jenks. Hann verður
að sannfæra menn um að öll orðin séu
Hemingways en ekki ritstjórans sjálfs; hann
verður að réttlæta þær styttingar á textan-
um, sem hann taldi nauðsynlegar, og hann
verður að útskýra fyrir sérfræðingum í
skáldverkum Hemingways hvernig hann rit-
stýrði textanum; hvaða brögðum hann beitti
í glímunni. Því þótt Hemingway hafi ekki
fullklárað suma kafla bókarinnar, þá rissaði
hann minnispunkta og útskýringar á spássí-
urnar og eftir þeim varð Tom Jenks að fara.
Veigamesta verkefni hans var að draga
saman samtöl, stytta þau og skerpa, strika
út óþarfa endurtekningar, og hann þurfti
meira að segja að strika út persónur sem
tengdust hliðarsögum (subplot). Hvemig
átti hann annars að stytta skáldsögu um
tólf hundruð blaðsíður?
- HJÓ
Ný p-pilla á markaðnum
Ætlað að hafa minni aukaverkanir
Á MARKAÐ er væntanleg ný tegund af getnaðarvarnapillum er
nefnist Marvelon og hefur hún verið samþykkt af Lyfjaeftirliti ríkis-
ins. Pillan er framleidd af hollenska fyrirtækinu Organon og á að
hafa í för með sér minni aukaverkanir en aðrar slikar pillur.
Marvelon var fyrst kynnt í nokkr-
um löndum Evrópu fyrir tveimur
árum og varð fljótt mest selda pillan
í mörgum löndum, að því er segir í
kynningarbæklingi fyrir hina nýju
pillu.
Marvelon er eins og lang flestar
aðrar getnaðarvarnarpillur sett sam-
an úr tveimur hormónum, östrógen-
hormóni og gestagenhormóni. Það
sem greinir hins vegar Marvelon frá
öðrum slíkum, er ný tegund af
gestagenhormóni, sem nefnt er deso-
gestral. Með notkun desogestral-
hormónsins er ætlunin að koma í veg
fyrir margar aukaverkanir, sem ann-
ars hafa komið í Ijós af notkun gamla
gestagenhormónsins.
Ástæðan fyrir þessum aukaverk-
unum gestagenhormónsins er talin
sú, að gestagen hefur sömu áhrif og
karlhormónið testosteron. Og vegna
þess að allt önnur fitusamsetning er
í blóði hjá karlmönnum en konum,
breytist blóðfítusamsetningin hjá
kvenfólki smátt og smátt við að taka
getnaðarvamapillur, sem innihalda
venjulegt gestagen og samhliða
þessu koma aukaverkanir fram. Fitu-
samsetningin í blóðinu verður þá
líkari því sem hún er í karlmönnum.
Eftir að þessi vitneskja varð ljós,
hefur verið unnið að því að fínna
gestagenhormón, sem hefur sem
minnst testosteron-áhrif eins og
kostur er. Að mati Organon-fyrir-
tækisins hefur þetta tekist með
Marvelon-pillunni og þess vegna séu
aukaverkanir mun færri.
í upplýsingabæklingi frá Organon-
fyrirtækinu er greint frá tilraun sem
gerð var til þess að kanna eiginleika
Marvelon-pillunnar, þar sem 1.437
konur tóku hina nýju pillu.
Ogleði og vanlíðan
Flestar konur þurfa nokkum tíma
til þess að venjast pillunni og fínna
einstaka konur fyrir ógleði og höfuð-
verk fyrst eftir að þær byija að taka
hana, Þessara aukaverkana varð
einnig vart hjá þeim konum, sem
tóku Marvelon en þær hurfu fljótt
við áframhaldandi notkun.
Blæðingar
Konur, sem taka pilluna, gera
ekki ráð fyrir blæðingum í 21 dag á
meðan hún er tekin. Þær vilja hins
vegar jafnan að "blæðingar séu sem
eðlilegastar og reglulegastar í fjórðu
vikunni þegar pillan er ekki tekin.
Morgunblaðið/Bjami
Jón Þ. Hallgrímsson yfirlæknir
á Kvennadeild Landspítalans.
Ruglingur kemur oft á blæðingarn-
ar, þegar byijað er að taka hana og
geta blæðingar orðið mjög óregluleg-
ar. I samanburði við hliðstæðar
pillur, reyndust blæðingar mjög eðli-
legar við töku Marvelonpillunnar.
Aðeins fímm prósent þeirra kvenna,
sem þátt tóku í rannsókninni hættu
að taka pilluna vegna óhagstæðra
blæðinga.
Líkamsþyngd
Vandlega var fylgst með líkams-
þyngd þeirra kvenna, sem rannsak-
aðar vom og varð engra breytinga
vart. Konur yngri en 19 ára vom
rannsakaðar sérstaklega, vegna þess
að þær hafa ekki tekið út vöxt að
fullu ogþyngjastþví af þeirri ástæðu.
Pillan sem
getnaðarvörn
Af þeim hópi, sem tók Marvelon-
pilluna, varð engin kona þunguð, ef
pillan var tekin rétt. Algengt er að
pillan sé tekin rétt og hefur slíkt
vitaskuld áhrif á öryggi hennar sem
getnaðarvamar. Af þeim konum,
sem tóku þátt í rannsókninni,
gleymdu 14% að taka pilluna 1 til 4
sinnum í mánuði. Þrátt fyrir þetta
varð aðeins ein þeirra þunguð. Venja
er að mæla öryggi getnaðarvamar-
pillu út frá notkun 100 kvenna í eitt
ár. Samkvæmt því er öryggi nýju
Marvelon-pillunnar 100% ef hún er
rétt tekin, en 99,4% ef gleymska eins
og ofan greinir er tekin með í reikn-
inginn.
Hvað segja íslenskir
læknar?
Á föstudaginn var haldinn kynn-
ingarfundur á nýja lyfínu að Hótel
Sögu fyrir íslenska lækna. Af því
tilefni ræddi Morgunblaðið við Jón
Þ. Hallgrímsson yfirlækni á Kvenna-
deild Landspítalans um hina nýju
pillu og aðrar slíkar.
Jón vildi taka það fram, að þar
eð engin reynsla væri komin á notk-
un þessarar pillu, væri sér ekki hægt
um vik að lýsa eiginleikum hennar.
„Það sem konur, sem taka pilluna,
kvarta einna mest um, em tíðar
gegnblæðingar, þ.e.a.s. blæðingar
utan venjulegs blæðingatíma. Það
er hugsanlegt að Marvelonið stjórni
blæðingunum betur; alltént er 5%
mjög góður árangur." „Talað er um
að Marvelonið hafi góð áhrif á fitubú-
skapinn í líkamanum og hið nýja
desogestral hafí jákvæðari áhrif en
venjuleg gestagen. Einnig sé talið
að minni hætta sé á auknum hár-
vexti eða öðmm húðbreytingum. Um
öryggi Marvelon-pillunnar, sagði
Jón, að þær pillur, sem væm á mark-
aðnum væm almennt 100% ömggar
og hætta á getnaði lítil, þótt endmm
og sinnum gleymdist að taka pilluna.
„Mér virðist sem hin nýja pilla
komi sem ágæt viðbót á þær getnað-
arvamarpillur, sem em á markaðn-
um í dag, en að óreyndu treysti ég
mér ekki til þess að staðfesta að hún
hafí þá eiginleika, er framleiðendur
fullyrða að hún hafí,“ sagði Jón Þ.
Hallgrímsson að lokum.
Söngur og
skemmtun
SÖNG- og skemmtifélagið Samstill-
ing byijar vetrarstarf sitt mánudag-
inn 22. sept. nk. Markmið félagsins
er að fólk komi saman til að syngja
og skemmta sér.
Félagið er öllum opið. Félagar
koma saman öll mánudagskvöld kl.
20.30 að Hverfísgötu 105, efstu
hæð.