Morgunblaðið - 21.09.1986, Side 45

Morgunblaðið - 21.09.1986, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986 45 Einhliða og þröngt við- miðunar sj ónarhorn — segir bankastjóri Búnaðarbankans um ummæli hagfræðings VSÍ varðandi fjármagn í íslenskum bönkum miðað við starfsmannafjölda NV3DD „MER FINNST hann nú taka nokkuð mikið upp í sig,“ sagði Stefán Pálsson, bankastjóri Bún- aðarbankans, um ummæli Vil- hjálms Egilssonar, hagfræðings Vinnuveitendasambands Islands, þess efnis að fjármagn á bak við hvern bankastarfsmann hérlend- is sé minna en gengur og gerist á hinum Norðurlöndunum. „Vilhjálmur er býsna einhliða í sínum niðurstöðum, en það verður að athuga þetta mál frá öðrum hlið- um, t.d. hlýtur afgreiðslufjöldinn á bak við hvem starfsmann að skipta töluverðu rnáli," sagði Stefán. „Það er jafn mikið verk að afgreiða mann með lágar fjárhæðir eins og mann með háar fjárhæðir. Vilhjálmur mið- ar hins vegar eingöngu við heildar- fjármagnið sem er á bak við hvem starfsmann." Stefán sagði að allar stofnanir yrðu að gæta hófs í bæði manna- haldi og kostnaði og væru bankamir ekki undanskildir í þeim efnum. Hins vegar væri ekki hægt að gera saman- burð á kostnaði hjá íslenskum bönkum og erlendum, án þess t.d. að taka tillit til þess að öll þjónusta hlyti að vera dýrari í landi, sem ís- landi, sem væri tiltölulega stórt land en fámennt. „Það stendur líka yfir mikil tækni- væðing hjá öllum bönkunum hérlend- is og hún á að skila sér í fækkun starfsmanna, jafnvel strax á næsta ári. Verið er að vinna að svokallaðri „beinlínutengingu," og kostar hún aukið starfslið á meðan hún stendur yfir,“ sagði hann. Beinlínutengingin mun tengja saman alla afgreiðslustaði á Stór- Reykjavíkursvæðinu og sagði Stefán að dæmi væm um að tvöfaldan mannskap þyrfti í afgreiðslu sumra banka á meðan á þessari tengingu stæði. „Við emm auðvitað alveg opnir fýrir því að halda kostnaði niðri, en mér fínnst svona lítið rökstuddar fúllyrðingar um að minna fjármagn sé á bak við hvem starfsmann hér en á hinum Norðurlöndunum, vera mjög þröngt viðmiðunarsjónarmið. “ Stefán sagði einnig að bankamir hefðu á undanfömum ámm tekið á sig ýmsa þjónustu, sem þeir ekki höfðu áður, þannig að t.d. væri nú hægt að greiða nánast alla hluti í bönkum með gíróseðlum. Þannig þjrfti líka að athuga hvers konar þjónustu bankamir byðu upp á og hvað hún kostaði, miðað við þjónustu banka erlendis. Að sögn Stefáns býður nýja beinlínukerfið upp á að hver gjald- keri geti tekið við 500 til 600 færslum á dag, en dæmi væm um að hraðvirkir gjaldkerar tælqu við yfir 1.000 færslum á háannatímum og sagði Stefán að það væri ágætur mælikvarði á álagið á gjaldkemm, t.d. um mánaðamót. Stefán vísaði ummælum Vilhjálms um bmðl varðandi ársskýrslur bank- anna á bug og sagði að ársskýrslur þeirra skæm sig á engan hátt úr hvað varðaði íburð, miðað við önnur stórfyrirtæki. „Eg tel að það sé ekki á nokkum hátt bruðlað með ársskýrslur bank- anna og mér finnst það ekkert tiltökumál þótt Landsbankinn gefí út veglega ársskýrslu á 100 ára af- mæli hans,“ sagði Stefán að lokum. Valur Valsson, bankastjóri Iðnað- arbankans, vildi ekki tjá sig um ummæli Vilhjálms sérstaklega, en vísaði í ræðu, sem hann flutti á aðal- fundi Vinnuveitendasambands Is- lands í vor. í ræðunni benti Valur m.a. á ýms- ar ástæður þess að hlutfallslega er fleira starfsfólk í bönkum hér en á Norðurlöndum og nefndi hann dreif- býlið hérlendis sem dæmi. „Bankaþjónusta telst nú orðin eðli- leg og sjálfsögð þjónusta, jafnt í dreifbýli sem þéttbýli. Bankar hafa jafnan verið undir þiýstingi ... um að opna ný útibú og það jafnvel þótt annar banki sé með útibú á staðnum. Bendir það til þess, að fólk sækist einnig eftir samkeppni milli bank- anna.“ Valur nefndi einnig mikla tékka- notkun hérlendis og krefðist hún fleiri starfsmanna en gerðist víða annars staðar. Þá benti Valur á að á íslandi sinntu bankamir lang stærstum hluta gírókerfísins, sem í mörgum löndum væri í höndum póst- þjónustunnar. Loks benti Valur á áhrif verðbólgu á fjölda starfsmanna. „Verðbólgan hefur undanfarin ár og áratugi leitt til þess, að greiðslu- staða fyrirtækja og heimila er mjög rýr. í viðskiptalífinu eru flest fyrir- tæki alltaf að velta síðustu krónunni. Afleiðingin er sú að starfsmenn og forstöðumenn fyrirtækja eru á stöð- ugum þönum við að leysa greiðslu- vandamál og þess vegna er algengt að starfsmenn fyrirtækja komi dag- lega og stundum oft á dag í banka til að leggja inn, færa fé milli reikn- inga eða á annan hátt að bjarga sér greiðslulega frá einum degi til ann- ars. Að sjálfsögðu veldur þetta aukinni þörf fyrir starfsfólk í bönk- um.“ 'aU5%T&f"oddtín>anvm 09 er sau’ y*m#*3»** með ,taðnum «WerfO- í-tŒ CNoW guUsota P veiWotnin. Ve r\ð Nudd- og Ijósastofa Lólóar Dunhaga 23 Sími: 28170 21.488 ÞAÐ MÆLIR ALLT MEÐ ÞVI AÐ ÞU BREGÐIR ÞÉR MEÐ BEINU FLUGI TIL 0RLAND0. Þaðersagtað veðrið hafi aldrei veriðbetra. Eittervíst. Verðiðhefur sjaldan verið betra. Dollarinn erá góðu verði - ogþín bíða lystisemdir Flórída, alltfrá dýrindismatogævintýraheimi WaltsDisneys tiltónleika og skemmtana undir berum himni. Líttu til dæmis á þennan útreikning: Verð* Hótel Staður Dvöl A Kr.21.488 Days Inn Orlando 11 dagar B Kr. 23.952 Days Inn Orlando 18dagar C Kr. 23.766 Gateway St. Pete 11 dagar D Kr. 27.686 Gateway St. Pete 18dagar Innifalið flugferðir, akstur til og frá flugvelli og gisting. * Verð á mann 14ra manna fjölskyldu (tvö böm undir 12 ára aldri). Ótal fleiri otrulega ódýrir möguleikar. Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiöa, umboðsmenn og ferðaskrifstofur. Söluskrifstofan Lækjargötu simi 27477, Hótel Esju siml 685011. Álfabakka 10 síml 79500. FLUGLEIÐIR Upplýsingasími: 690100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.