Morgunblaðið - 21.09.1986, Side 47

Morgunblaðið - 21.09.1986, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986 f hcfði eitthvert kjördæmi fengið einn viðbótarþingmann. Pólitískur vetur — kosningavor Þess er þegar tekið að gæta að kosningar ei-u frumundan. Flokk- arnir boða prófkjör í gríð og erg og þingmenn og þingmannsefni, sem haft hafa hægt um sig mánuð- um (og árum) saman sumir hverjir, geysast nú fram í fjölmiðlum, fullir ekimóðs og áhuga á fjöldans hags- munum og velferð. Allt er þetta engu að síður af hinu góða og vott- ur þess, að valdhafar verða að sækja umboð sitt til almennings og sæta niðurstöðum fjöldans í fijáls- um, leynilegum kosningum. Þjóðfélag lýðræðis- og þingræðis hefur sína annmarka, sem rangt er að loka augum fyrir. Það felur engu að síður í sér þann höfuðkost að geta þróazt friðsamlega til hins betra í krafti meirihlutaáhrifa í fijálsum og leynilegum kosningum. Borgaralegt þjóðfélag ber, þrátt fynr allt, af öðrum þjóðfélagsgerð- um. Það eru í raun sérréttindi að búa við slíkt þjóðskipulag, ekki sízt þeg- ar þess er gætt, að minnihluti þjóða og mannkyns nýtur lýðræðis og mannréttinda — í vestrænum skiln- ingi þeirra orða. Þjóðir, sem lúta alræði eins flokks og/eða herræði, líta til lýðræðis Vesturlanda sem mikilvægs áfanga á vegferðinni til fullkomnara samfélags manna. Hinsvegar má búast við því að þingflokkar hugi meir að áróðurs- efnum í málflutningi og uppákom- um á því kosningaþingi sem fer í hönd en á dæmigerðum vinnuþing- um, eins og þau gerast bezt á fyrri hluta kjörtímabila, t.d. í kjölfar stjómarmyndunar. Hætt er og við að þeir verði tregari til að taka af festu á vandamálum, sem ekki eiga „vinsælar" lausnir, rétt fyrir kosn- ingar. Þetta kann, því miður, að segja til í þingstöi-fum á komandi vetri. Þessvegna mætti kjósa fyrr en síðar. Fólkið á leikinn Margur maðurinn bjóst við haustkosningum. í fyrsta lagi vegna þess að það er hagstætt fyr- ir stjómarflokka að kosið sé í góðæri, eins og nú er. í annan stað vegna þess að hyggilegt var, að ýmisa dómi, að hafa kosningar og stjórnarmyndun að baki þegar ný samningalota stendur sem hæst á vinnumarkaðinum eftir fáeina mán- uði. Líkur standa hinsvegar til þess að kosningar fari ekki fram fyrr en með hækkandi sól að vori. Von- andi ræður góðærið þá enn ríkjum. Hinn almenni þegn, sem skipar endanlega í sæti Alþingis, á nú leik- inn. Fyrst í prófkosningum fram- boðsaðila, síðan í þingkosningum. Hvorttveggja er æskilegt og raunar nauðsynlegt, að endurnýja þinglið hæfilega — og halda jafnframt til haga þeirri þekkingu og starfs- reynslu sem eldri þingmenn búa yfir. Gera má ráð fyrir að ungt fólk, sem nú hefur kosningarétt og kjör- gengi frá 18 ára aldri, geri rétt- mæta kröfu til þess, að framboðs- flokkar taki tillit til framvindunnar að þessu leyti. Konur eru og í vax- andi sókn á vettvangi stjórnmála- flokkanna. Framboð verða að höfða jafnt til kvenna og karla. Það er staðreynd sem raðendur framboðs- lista, þátttakendur í prófkjöri, verða að taka tillit til. Og ekki síður hins, að hið endanlega framboð verður að hafa aðdráttarafl fyrir allar starfsstéttir þjóðfélagsins. Endanlega ræður meirihlutinn í flokkunum ferð í röðun á framboðs- lista, þegar prófkjör er viðhaft. Þar hafa hinir óbreyttu meðlimir stjóm- málaflokkanna valdið. Þeir eiga leikinn í prófkosningum hausts og vetrar og enn að vori þegar vilji þeirra verður talinn upp úr kjör- kössunum. Til sölu er þessi glæsilegi Mercedes Benz 350 SEL árg. 1976, sjálfskiptur með vökvastýri, centr- allæsingum, rafmagnsloftlúgu, nýjum dekkjum o.s.frv. Allur nýyfirfarinn. Bíll í toppstandi. Litur: Blásanseraður, ekinn 140.000 km. Fæst í skiptum fyrir ódýrari bíl eða gegn fasteignatryggðu skulda- bréfi. Verð: 550.000 kr. Upplýsingar í síma 23739. F 47 L\ Ballettskóli Eddu^ Scheving Skúlatúni 4 SIÐUSTU INNRITUNARDAGAR Kennsla hefst í byrjun október. Fjölbreytt og skemmtilegt kerfi fyrir aila aldurshópa frá 5 ára. Innritun og upplýsingar í síma 38360 kl. 12— 15 og 20—21. Afhending skírteina fimmtudaginn 2. október kl. 15— 19. Félag íslenskra listdansara Danskennarasamband íslands Faðu frost- þolið á hreint hjáESSO! Mætum frosti með ESSO þjónustu og ESSO frostlegil Jafnvel þótt þú gerir ekkert annaö fyrir bílínn þinn skaltu ganga úr skugga um frostþoi vélarinnar. Þaö er öryggisatriði sem gæti reynst dýrt aö gleyma. Renndu viö á næstu bensín- eöa smurstöð ESSO og fáðu málið á hreint. Okkar menn mæla frostþoliö fyrir þig og bæta ESSO frostlegi á kælikerfiö ef með þarf. Rétt blandaður ESSO frostlögur veitir fullkomna vernd gegn frosti. Einnig ryði og tæringu allra málma sem notaðir eru í kælikerfum bensín- og dísilvéla. ESSO FROSTLÖGUR - MARGFÚLD VERND! Olíufélagið hf AUK hf. 15.150/SÍA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.