Morgunblaðið - 21.09.1986, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Ólafsfjörður
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Ólafsfirði.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 62437
og hjá afgreiðslu Mbl. í Reykjavík í síma
91-83033.
Hagstofa íslands
óskar að ráða sem fyrst fólk til almennra
skrifstofustarfa. Laun fara eftir kjarasamn-
ingum BSRB og ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf skulu sendar Hagstof-
unni eigi síðar en 25. september nk.
Hagstofa íslands,
Hverfisgötu 8-10,
150 Reykjavík.
Smurstöð -
Framtíðaratvinna
Hekla hf. vill ráða áhugasaman mann á smur-
stöð fyrir bíla. Helst vanan, en aðrir vandvirkir
koma einnig til greina.
Góð, björt og hreinlega vinnuaðstaða.
Samviskusemi, reglusemi og stundvísi er
áskilin.
Upplýsingar gefur Jón C. Sigurðsson,
smurstöð Heklu.
Könnun á þörf fyrir leiguíbúðir.
Stjórn verkamannabústaða í Mosfellssveit
hefur ákveðið að kanna þörf fyrir leiguíbúðir
á grundvelli laga nr. 60 frá 1984. Rétt til
leigu á íbúðum samkvæmt lögum þessum
eru einkum eftirfarandi:
1. Þeir sem ekki hafa fyrirsjáaniegt húsnæði
eða erfiða húsnæðisaðstöðu.
2. Þeir sem lægstar hafa tekjur.
3. Einstæðir foreldrar.
4. Fólk með sérþarfir.
5. Ungt fólk fyrstu hjúskaparárin.
Þeir sem telja sig hafa þörf fyrir leiguíbuð
og uppfylla einhver framangreind skilyrði eru
beðnir að fylla út eyðublöð sem fást á skrif-
stofu Mosfellshrepps, Hlégarði, fyrir 10.
október nk. Á grundvelli niðurstöðu þessarar
könnunar verður tekin ákvörðun um bygg-
ingu eða kaup leiguhúsnæðis í Mosfellssveit.
Mosfellssveit, 19.9. 1986.
Fyrir hönd stjórnar
verkama'nnabústaða í Mosfellssveit.
Sveitarstjóri Mosfellshrepps.
Afgreiðslustarf
Stúlka óskast til afgreiðslustarfa. Vakta-
vinna. Vinnutími frá kl. 8.00-16.00 og
16.00-23.30 til skiptis daglega. Tveir frídagar
í viku.
Upplýsingar í síma 83436.
Viðskiptafræðingur
óskar eftir vinnu. Margt kemur til greina.
Tilboð merkt: „A — 3188“ sendist augld.
Mbl. fyrir 26. september.
Seyðisfjörður
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Seyðisfirði.
Uppl. hjá umboðsmanni i síma 2129 og hjá
afgreiðslunni í Reykjavík í síma 91-83033.
Húsmæður
— aukavinna
Aukafólk vantar til afgreiðslustarfa eftir sam-
komulagi í Hafnarfjörð og Reykjavík. Um er
að ræða vinnu aðallega um kvöld og helgar.
Áhugasamir leggi inn umsóknir, með uppl.
um aldur og fyrri störf, á augld. Mbl. merktar:
„J — 5763“ fyrir 29. september.
Starf íverslun
Starfskraftur óskast í bóka- og sportvöru-
verslun.
Umsókn ásamt uppl. um fyrri störf sendist
augldeild Mbl. fyrir 24. sept. nk. merkt:
„B - 8165“.
Smiðir óskast
Smiðir eða smíðaflokkar óskast til starfa við
þjónustubyggingu Flugleiða, Keflavíkurflug-
velli. Fæði á staðnum. Daglegar ferðir milli
Reykjavíkur og Keflavíkur.
Upplýsingar gefur Þorgils Arason í síma
53999.
HAGVIBKI HF
SlMI 53999
Árnessýsla
Félag byggingariðnaðarmanna Árnessýslu
óskar að ráða mælingarfulltrúa á mælingar-
stofu, sem félagið hyggst koma á laggirnar.
Auk mælinga er fyrirhugað að sami maður
komi til með að sinna rekstri mælingarstof-
unnar og félagsins að einhverju eða öllu leyti
fyrst um sinn. Æskilegt er að umsækjandi
hafi bíl til umráða. Viðkomandi þarf að hafa
menntun í starfsgreinum byggingariðnaðar.
Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri
störf, skal senda í pósthólf nr. 53 802 Sel-
fossi fyrir 15. október 1986.
Frekari upplýsingar veitir formaður félagsins
Gylfi Guðmundsson í síma 99-2109.
Ljósmyndari
Laus er til umsóknar staða Ijósmyndara hjá
Landmælingum íslands. Ráðningartími er frá
1. október 1986.
Æskileg menntun er Ijósmyndaranám eða
sambærileg menntun.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfs-
manna.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um
fyrri störf sendist Landmælingum íslands,
Laugavegi 178, pósthólf 5536, Reykjavík,
'fyrir 23. september 1986.
LANDMÆUNGAR
ISLANDS
Umbrotsmenn
Okkur vantar vana menn til starfa í umbrots-
deild. Mikil vinna og fjölbreytt verkefni.
Vinsamlega hafið samband við verkstjóra kl.
16-18 næstu daga.
Sölumaður/
hreinlætistæki
Óskum að ráða duglegan sölumann í bygg-
ingarvöruverslun. Viðkomandi þarf að vera
áhugasamur, stundvís og hafa góða fram-
komu. Umsóknir sendist auglýsingad. Mbl.
fyrir miðvikudag 24. sept. merktar: „J — 177".
IHlAUSARSTÖÐURHlÁ
v| REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsmann í borg-
arskjalasafn, Skúlatúni 2. Vélritunarkunnátta
áskilin.
Upplýsingar um starfið gefur borgarskjala-
vörður í síma 18000.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Póshússtræti 9, 6. hæð,
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást fyrir kl. 16.00 föstudaginn 26.09. nk.
Höfðabakka 7, sími 83366.
Akraneskaupstaður
tæknideild
Byggingareftir-
litsmaður
Akraneskaupsstaður óskar að ráða bygg-
ingareftirlitsmann. Starfið er fólgið í verk-
og fjárhagseftirliti með byggingarfram-
kvæmdum við Grunnskólann á Akranesi.
Tæknimenntun og reynsla í stjórnun æskileg.
Skriflegum umsóknum skal skilað á tækni-
deild Akraneskaupstaðar, Kirkjubraut 28,
300 Akranesi fyrir 30. september nk.
Nánari upplýsingar veita bæjartæknifræð-
ingur og bæjarstjóri í síma 93-1211.
Bæjartæknifræðingur.
&
Mosfellshreppur
Ert þú hugmyndaríkur og áreiðanlegur og
kannt þú að umgangast unglinga á aldrinum
13-16 ára?
Félagsmiðstöðin Ból óskar eftir starfsfólki í
hlutastarf (aðallega kvöldvinna). Lágmarks-
aldur 20 ár.
Skriflegar umsóknir sendist á skrifstofur
Mosfellshrepps, Hlégarði, með upplýsingum
um menntun og fyrri störf. Umsækjandi þarf
að geta hafið störf fyrst i okt.
Skilafrestur er til 25. september 1986.
Æskulýðsfulltrúi.
Hárgreiðslusveinar
Óskum að ráða hárgreiðslusveina í fullt starf
og hlutastarf. Gott kaup fyrir gott fólk.
Umsóknir sendist auglýsingad. Mbl. fyrir 25.
sept. merktar: „H — 175“.