Morgunblaðið - 21.09.1986, Side 65

Morgunblaðið - 21.09.1986, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986 65 IÞROTTIR UNGLINGA Bjarkirnar í Hafnarfirði heimsóttar: Nýkomnar úr æfingaferð til Þýskalands - æfðu 6 tíma á dag við bestu aðstæður Æfa 25 klukku- stundir á viku Núna þegar heim er komið tekur ekkert letilíf við því Bjarkirnar aefa 25 tima á viku og sá tími kemur sennilega til að lengjast enn meira. Um 230 krakkar, aðallega stelpur, ®efa nú með Björkunum en sökum Plássleysis er ekki hægt að veita fleirum inngöngu og eru margir á biðlista. Það er því efst á óskalista Bjarkanna að komast í eigið 'þróttahús. Hinar miklu æfingar sem stelp- ernar í Björk leggja á sig eru ekkert einsdæmi í fimleikum því ætli mað- Ur sér að ná langt í þeirri grein Þarf gífurlegar æfingar. í vetur er kinverskur þjálfari aðalþjálfari Bjarkanna 3. árið í röð. Það þarf Því engan að undra að árangur Bjarkanna á fimleikasviðinu hefur verið góður. í fyrra urðu þær bikar- meistarar A-hópa og áttu stiga- Þ*sta einstaklinginn á því móti Lindu Pétursdóttur. Blaðamaður leit inn á æfingu Þjé A-, B- og C-flokkum Bjarkanna nuna fyrir stuttu og tók nokkrar stelpur tali. Morgunblaðiö/VIP • A-liðsstelpan Hrönn Hilmars- dóttir fetar hér jafnvægisstigu af miklu öryggi og glæsileik — Á myndinni hér að neðan er verið að teygja enda er það mjög mikil- vægt í fimleikum. • Það þarf einbeitingu til að gera ýmsar kúnstir sem liðugum stelp- um finnst gaman að gera. Það er ekki annað að sjá en Steinunn Ketilsdóttir og Ragnheiður Þ. Ragnarsdóttir hafi nóg af henni, og brosa bara á meðan. Fimleikastelpurnar í Björk í Hafn- arfirði ætla sér greinilega að gera 9óða hluti í fimleikabaráttu vetr- arins því þrír af flokkum félagsins eru nýkomnir úr æfingabúðum í Þýskalandi. í Þýskalandi æfðu stelpurnar í 6 klukkustundir á dag 13 daga ferð- arinnar. Það má nærri geta að stelpunum þótti mikið til koma að Þafa heila fimleikahöll út af fyrir si9 í stað þess.að þurfa að æfa langt fram á kvöld eins og venjan er hérna heima. Erfiðið við rækju °9 harðfisksölu til að safna pening- uni fyrir ferðina gleymdust þegar Þægt var að fara flikk flakk og heljarstökk við bestu aðstæður. Allar voru stelpurnar sammála um að framfarir í ferðinni hefðu verið miklar og gaman væri að sjá hvern- '9 þetta kæmi til með að skila sér 1 vetur. Gryfja full af svampi - þótti C-liðs-stelpum Bjarkar merkilegt og gagnlegt fyrirbæri ARNFRÍÐUR Arnadóttir, Guð- björg Alda Þorvaldsdóttir, Helga Björk Hauksdóttir, Svanhildur í Vigfúsdóttir, Ragnheiður Þórdís Ragnarsdóttir, Erla Þorleifsdóttir, Kristrún Gunnarsdóttir og Stein- • Þær ulla nú bara á svona létta æfingu, en hún er samt þræl- skemmtileg. Það finnst þeim Steinunni og Ragnheiði að minnsta kosti. Það kom blaðamanni ekki á óvart að Guðrún Bjarnadóttir sagði að sér gengi best í stökkum í fim- leikaiðkun sinni og hefði mest gaman af þeim því stökkkraftur hennar er mjög mikill og stíllinn glæsilegur. Þegar hún var komin á stað uppí loftið leið langur tími þangað til hún kom niður aftur. í fyrra gekk Guðrúnu vel í fim- unn Ketilsdóttir skipa C-lið Bjarkanna og voru þær í óða önn að fremja ólíklegustu kúnstir á jafnvægisslá þegar blaðamaður gerðist svo djarfur að trufla þær til að segja við sig nokkur orð. Fyrst barst talið náttúrlega að hinni vel heppnuðu keppnisferð til Þýskalands sem var ofarlega í leikamótum, hún vann brons í samanlögðu á innanfélagsmóti og síðan varð B-lið Bjarkanna í 2. sæti á Bikarmótinu. Guðrún var eitt sumar í frjálsum íþróttum en nú einbeitir hún sér að fimleikun- um og æfir alia daga nema sunnudaga. Með þessum æfing- um vonast hún til að geta blandað sér verulega í fimleikabaráttu vetr- arins. huga stelpnanna. „Þetta var frá- bært. Þarna var gryfja sem er alveg eins og sundlaug full af svampi þannig að það var miklu auðveidara að æfa allskonar stökk, t.d. dýnustökk. Þessi ferð var fyrsta æfingaferð allra stelpnanna í C-liðinu og ýmis- legt annað en fimleikar var þeim líka eftirminnilegt eins og t.d. dýra- garðsferðin. En að sjálfsögðu snérist þessi hálfsmánaða ferð fyrst og fremst um fimleika. „Við vöknuðum klukkan 7 og fórum út að hlaupa. Eftir morgunmatinn klukkan 8 fórum við með strætó uppi höllina sem er bara fyrir fim- leika og æfðum þar til 12. Klukkan 13.30 var síðan aftur æfing og var hún til 16.00. Einn dag tókum við frí og fórum í búðir," sögðu þær. í fyrravetur urðu þessar stelpur í 4. sæti á unglingameistaramótinu og sögðust þær ákveðnar i að reyna að bæta þennan árangur í vetur, „í fyrra vorum við yngstar og núna höfum við lært miklu meira," bættu þær við. Guðrún Bjarnadóttir: Gekk vel í fyrra ,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.